Morgunblaðið - 31.08.1988, Side 63
MORGUNBLAÐŒ) IÞROTTIR MIÐVIKUDAGUR 31. ÁGÚST 1988
63
KNATTSPYRNA / UNDANKEPPNI HM
ísland — Sovétríkin á Laugardalsvelli í dag kl. 18.00:
Morgunblaöiö/Einar Falur og Sverrir
toémR
FOLX
■ LANDSLIÐIÐ fékk útgöngu-
leyfí f gærkvöldi. Rúta fór með
strákana í Bíóþorg, þar sem þeir
sáu íslensku spennumyndina Fox-
trot, en síðan var ekið beinustu
leið heim á hótel.
■ SOVÉSKA liðið kom til lands-
ins í gær og eftir að hafa fjárfest
í ullarvöruni var æfing í Laugar-
dalnum. Liðið æfir aftur klukkan
07.30 í dag, en heldur rakleiðis til
Moskvu fljótlega eftir leik.
■ VAGIZ Khidiyatullin, sem
leikur með Toulouse í Frakk-
landi, kom til landsins frá
Amsterdam í gær. Farangurinn
fannst hins vegar hvergi, en félagi
hans hljóp undir bagga í gærkvöldi
og lánaði Khidiyatullin skó svo
hann gæti verið með á æfíngunni.
■ SKOSKI framheijinn Mo Jo-
hnston var í gær seldur frá franska
liðinu Nantes til Sheffield Wedn-
esday á Englandi fyrir 750.000
pund. Sigurður Jónsson fær þar
með nýjan samheija til að „mata“
uppi við mark andstæðinganna.
Johnston lék á sínum tfma með
Celtic og Watford og hefur skorað
mikið af mörkum fyrir franska liðið.
■ JAFNTEFLI varð í gærkvöldi
f leik Skotfélags Reykjavíkur og
Hveragerðis 1:1, í úrslitakeppni
4. deildar á gervigrasinu. Hrafn
Loftsson gerði mark Reykvíkinga
en Ólafur Jósefsson skoraði fyrir
Hvergerðinga.
Babcock tók konuna fram ytfir UMFG
Arthur Babcock, bandaríski
körfuknattleiksþjálfarinn,
sem úrvalsdeildarlið Grindavíkur
réði fyrir mánuði síðan, kemur
ekki eins og um
Krístinn var samið. Eigin-
Benediktsson konan hótaði hon-
. um skilnaði ef ís-
landsferðm yrði
ofan á og þjálfarinn valdi frekar
konuna!
Grindvíkingar hafa átt von á
Babcock undanfama daga og voru
orðnir ergilegir að heyra ekki frá
honum. I gær náðist loks í kapp-
ann og tilkynnti hann þá að hann
kæmi ekki þar sem eiginkonan
hefði hótað skilnaði færi hann til
íslands.
Forráðamenn körfuknattleiks-
liðs UMFG höfðu strax samband
við Mark Holmes, fyrrum þjáifara
þeirra, og óskuðu eftir aðstoð
hans. Von er til að hann fái sig
lausan úr vinnu og taki við liðinu,
en það skýrist væntanlega í dag.
Astþór Ingason, Njarðvíkingur
og fyrrum leikmaður KR, hefur
æft með Grindvíkingum og ætlar
að ganga til liðs við þá ef leysist
úr þessari þjálfarakreppu sem upp
er komin og góður þjálfari fæst.
Morgunblaöiö/Kr. Ben.
GuAjón Jónsson, framkvæmdastjóri körfuknattleiksdeildar UMFG, lengst
til vinstri, tilkynnir leikmönnum tiðindin á æfíngu í gærkvöldi.
Held
tekur
enga
áhættu!
Leikmönnum bannað
að tala við blaðamenn
SIEGFRIED Held, landsliðs-
þjálfari í knattspyrnu, bannaði
íeikmönnum sínum að ræða við
blaðamenn í gær. „Þeir verða
að einbeita sér að leiknum og
öll utanaðkomandi truflun get-
ur haft óhrif til hins verra,“
sagði þjálfarinn við Morgun-
blaðið, þegar óskað var eftir
viðtali við leikmenn.
Held sagðist vera reynslunni
rikari hvað fréttamenn varðaði
og benti í því sambandi á atgang
fjölmiðla dagana fyrir leikinn gegn
Áustur-Þjóðverjum S fyrra, en við-
urkenndi að fréttamenn hefðu ekki
haft áhrif á úrslit leiksins.
Venjan brotln
Landsliðsþjálfarinn hefur ekki
viljað tilkynna byrjunarlið sitt fyrr
en á leikdegi, en að þessu sinni brá
hann út af vananum — byijunarlið-
ið verður eins og Morgunblaðið
stillti því upp í blaðinu í gær. Bjami
Sigurðsson verður í markinu, Guðni
Bergsson, Sævar Jónsson og Atli
ICðvaldsson í öftustu víglínu, Olafur
Þórðarson og Gunnar Gíslason á
vængjunum, Pétur Ormslev, Sig-
urður Jónsson og Ásgeir Sigurvins-
son á miðjunni og Amór Guð-
johnsen og Sigurður Grétarsson
frammi.
Varla hægt að hugsa
erfiðari byrjun
- segir Ellert B. Schram.formaðurKSI
„ÞAÐ er varla hægt að hugsa
sér erfiðari byrjun, en við höf-
um allt að vinna og engu að
tapa í þessum leik. Okkur hefur
tekist áður að ná stigi af Sovét-
mönnum og því skildum við
ekki gera það núna?“ sagði
Ellert B. Schram, formaður
KSÍ, í samtali við Morgunblaðið
í gærkvöldi, um leikinn á Laug-
ardalsvellinum íkvöld.
að er ekkert útilokað í íþróttum
— handboltamennimir okkar
sýndu það um daginn er þeir sigr-
uðu Sovétmenn. Því skildu knatt-
spymumennimir ekki endurtaka
þann leik? Ef við lítum raunsætt á
málin má segja að Sovétmennimir
séu með betra lið á pappírnum og
sjálfsagt fleiri betri einstaklinga og
meiri reynslu, en á móti kemur að
íslenska liðið er á heimavelli og oft
þegar lítils hefur verið vænst af lið-
inu hefur því einmitt gengið best —
með mikilli baráttu. Og það er bar-
átta og aftur barátta sem skiptir
öllu máli í leiknum,“ sagði Ellert.
Formaðurinn var í V-Þýskalandi
í sumar og fylgdist með Evrópu-
keppni landsliða. Þar sá hann Sov-
étmenn leika, og sagði að ljóst
væri að þeir hefðu verið með „eitt
besta liðið. Það var aðeins spuming
um dagsform hvort liðið sigraði í
úrslitaleiknum, Sovétmenn eða Hol-
lendingar. Hollendingar sigruðu þá
en ég minni á að Sovétmenn voru
búnir að vinna þá áður í keppn-
inni.“ Ellert sagðist eiga von á að
Sovétmenn sigruðu í 3. riðli þegar
upp væri staðið — „en við ætlum
okkar að ná öðru sæti í riðlinum.
Með það markmið í huga förum við
í keppnina."
Til I slaginn!
Þátttaka íslands í heimsmeistarakeppninni
hefst að nýju í kvöld er landsliðið tekur á
móti því sovéska á Laugardalsvelli kl. 18.00.
Á myndunum, sem teknar voru á æfingu I
gær, má sjá Ásgeir Sigurvinsson (að ofan)
sem leikur á ný með landsliðinu eftir nokkra
fjarveru, miðjumennina Gunnar Gíslason
og Sigurður Jónsson (efst til vinstri) og hér
til hliðar eru Amór Guðjohnsen og Sigurður
Grétarsson — sem verða í fremstu vfglínu
í kvöld. Á litlu myndinni til vinstri er sá
sem þeir verða að sigrast á; sá frábæri
markvörður Rinat Dassajev.
KÖRFUKNATTLEIKUR / ÚRVALSDEILDIN