Morgunblaðið - 27.11.1988, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 27.11.1988, Blaðsíða 2
2 FRETTIR/INNLENT MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 27. NÓVEMBER 1988 Fundurum miðlínur með dönum FULLTRÚAR utanríkisráðu- neytisins hafa átt viðræður við danska embættismenn um miðlínurnar milli Græniands og Islands annarsvegar og Færeyja og Islands hinsvegar í þessari viku. Helgi Ágústsson sendiherra sem var í forsvari af Islands hálfu segir að hann geti ekki tjáð sig um efni þessara viðræðna að svo stöddu. Þeim lauk á föstudag og hann eigi eftir að gera utanríkisráðherra grein fyrir efni þeirra. Umferðarráð vill aðvörun á bjórdósir Umferðar- ráð hefur skorað á stjórnvöld að láta setja við- vörun á bjó- rumbúðið sem segi, að eftir neyslu áfengs öls sé akstur bann- aður. í ályktun, sem samþykkt var á fundi ráðsins, segir að að nauðsynlegt sé að gera almenn- ingi rækilega grein fyrir að aksturshæfni manna skerðist eftir neyslu áfengs öls. Sölufélag garð- yrkjumanna: Uppboðsmark- aðnum lokað SÍÐASTA sala á uppboðsmarkaði Sölufélags garðyrkjumanna á þessu ári fór fram sfðastliðinn miðvikudag, og verður næsta upp- boð væntanlega haldið f mars á næsta ári, þegar ný uppskera af gúrkum kemur á markað. IJtið magn af fslensku grænmeti frá uppskeru þessa árs er enn óselt, og verður það selt beint til heild- sala eða'f verslanir. Að sögn Hrafns Sigurðssonar framkvæmdastjóra Sölufélags garð- yrkjumanna telja garðyrkjubændur reynsluna af uppboðsmarkaðnum lofa góðu, og á haustfundi þeirra sem haldinn var í síðasta mánuði var ákveðið að halda starfsemi hans áfram á næsta ári. Njarðvík: Bömfundu merkjablys íQörunni BÖRN sem voru að leik í Qör- unni við Njarðvfk fundu þar merkjablys frá Vamarliðinu. Þau höfðu strax samband við lögregluna sem kom blysinu í hendur Landhelgfsgæslunnar. Samkvæmt upplýsingum frá Landhelgisgæsl- unni er ástæða til að vara fólk við þessum blysum. Þótt þau séu yfir- leitt útbrunnin er þau rekur á land getur leynst í þeim fosfór. Nái fosfórinn að þoma kviknar í honum af sjálfu sér. Því getur verið hættulegt að meðhöndla blysin og þeir sem rekast á þau eru beðnir um að láta lögregluna vita. Blysið sem bömin fundu Morgunblaðið/Júlíus Eins og sjá má varð verulegt eignatjón í árekstrinum á mótum Hringbrautar og Njarðargötu. Slys vegna ölvunar TVÖ umferðarslys urðu vegna ölvunar við akstur i fyrrakvöld og aðfararnótt laugardagsins. Ölvaður ökurmaður á leið aust- ur Breiðholtsbrautina lenti i árekstri við bíl er ekið var frá Jaðarseli. Kona og barn í þeim bQ voru Qutt á slysadeild en mmunu ekki hafa slasast alvar- lega. Um klukkan hálffimm aðfarar- nótt laugardagsins ók svo ölvaður ökumaður jrfir á rauðu ljósi á leið vestur Hringbrautina. Hann lenti á bíl sem kom frá Njarðargötu. Báðir ökumennimir og farþegi í öðrum bílnum voru fluttir á slysa- deild en meiðsli þeirra voru ekki talin alvarleg. Mikið eignatjón varð í báðum þessum tilvikum. Keldur: Móteftii fundið gegn kýlaveiki- bróðnr í laxi Á RannsóknadeUd fisksjúkdóma á Keldum hefúr tekist að ein- angra próteinkljúfandi ensím úr laxfískum sem sýktir eru af kýla- veikibróður, sem er undirtegund kýlaveiki, og mynda mótefiii gegn þvL Undirbúningur að tU- raunum tU framleiðslu á virku bóluefni gegn sjúkdómnum er þégar hafinn. Kýlaveikibakter- ían fannst fyrst hér á landi árið 1980 í sjúkum laxi. Á síðasta ári komu upp 11 sýkingartilfelli í 7 eldisstöðvum hér á landi, og í síðasta mánuði fúndust 3 ný til- felli. Kom þetta fram i erindi sem Bjarnheiður Guðmundsdóttir líffræðingur fiutti á ársfúndi Rannsóknaráðs rikisins og Vísindaráðs. Bjamheiði Guðmundsdóttur líffræðingi tókst að einangra ensím, sem kýlaveikibaktería gefur frá sér í líkama laxfíska og framkallar sjúkdómseinkenni þar, fyrir fjórum vikum sfðan á tilraunastofu í Skotl- andi, en nauðsynlegur tækjakostur til rannsókna af þessu tagi er ekki tfl staðar á Keldum. Ekki er vitað til þess að tekist hafi að einangra þetta ensím áður. Bjamheiður hóf að vinna að þessu verkefni fyrir tveimur árum síðan, en hún tók við því af dr. Evu Benediktsdóttur sem undirbjó það. Bjamheiður hefur síðan unnið verkefnið í samráði við dr. Evu og Sigurð Helgason fisk- sjúkdómafræðing. Undirbúningur að tilraunum til framleiðslu á virku bóluefni gegn kýlaveikibróður er nú hafinn hjá Rannsóknadeild fisk- sjúkdóma á Keldum, og er hann unninn í samvinnu við dr. Jón Braga Bjamason prófessor f lífefnafræði Kýlaveikin getur verið bráðdrepandi sjúkdómur, og sýking í eldis- stöð kemur í veg fyrir alla seiðasölu, auk þess sem villtur fiskur í nærliggjandi vatnasvæðum er í smithættu. við Háskóla íslands, en einnig hefur verið leitað eftir samvinnu við sér- fræðinga í ónæmisfræði á Tilrauna- stöð Háskólans í meinafræði. Eiginleg kýlaveiki hefur ekki . verið greind í laxfiskum hér á landi, aðeins kýlaveikibróðir, sem er und- irtegund kýlaveiki. Kýiaveiki er einn af alvarlegustu bakteríusjúk- dómum sem við er að etja í eldi laxfiska. Bakterian hefúr verið rannsökuð í 90 ár, en ennþá er margt óljóst er varðar sýkingarferil hennar. Kýlaveikin getur verið bráðdrepandi sjúkdómur, og sýking í eldisstöð kemur í veg fyrir alla seiðasölu, auk þess sem villtur físk- ur í nærliggjandi vatnasvæðum er í smithættu. Til að halda sjúk- dómnum í skefjum og smiti í lág- marki hefur lyfjagjöf verið notuð með nokkrum árangri, en hún hefur meðal annars þá ókosti að fram geta komið bakteríustoftiar með lyfjaónæmi, auk þess sem lyfjameð- ferð er dýr og er ekki heppileg við framieiðslu á físki til manneldis. Alþýðusamband íslands: Líf samtakanna hangir á bláþræði samstöðuviljans SAMSTAÐA er líklega það orð sem mest var um munna haft á nýafstöðnu þingi Alþýðusambandsins. Ekki verður þó sagt að orðin einurð og samstaða hæfi tU að lýsa andanum á þinginu. Illskeyttar deUur spunnust í umræðum um samningsréttinn þar sem mönnum voru borin svik á brýn. Samstaða náðist ekki um skipulagsbreytingar á samtökunum. Þó er breytt skipulag jafii- vel eina lífevon þessara samtaka sem telja rúmt 60 þúsund félags- menn. Eitt kom ótvirætt í ljós á þinginu: Ásmundur sigraði Iétti- lega í taugastríðinu í kríng um forsetaembættið,’ enginn vogaði sér að ógna honum. Alþýðusambandið á við mikið innanmein að stríða, sem er hagsmunatogstreita ólíkra hópa. í sambandinu eru meðal annars landssambönd einstakra greina, til dæmis Verkamannasamband íslands. Þar eru félög iðnaðar- manna og fiskvinnslufólk hefur skipað sér í fylkingu, einnig versl- unar- og skrifstofufólk, sem stendur jafnframt frammi fyrir sundurliðun eigin félaga. Sé einhver ein orsök togstreit- unnar, ber launamuninn hæst. Magnús L. Sveinsson sagði í sam- tali við Morgunblaðið, að það væfi illt fyrir láglaunahópa eins og afgreiðslufólk sem ekki hefur annað en taxtakaup til að lifa af; þegar sérsamtök á borð við VMSI semja úr stíl um litlar launabætur og allir aðrir verða síðan bundnir af þeim samn- mgum. Versl- unarmenn hafa ekki gleymt samningunum frá febrúar. Þeim svíður enn. Fiskvinnslukon- ur í Vestmannaeyjum stóðu einar í kuldanum í vor, þegar þær fóru í verkfall, voru kallaðar í land til að semja. Á þinginu sögðu tals- menn láglaunahópanna hvað eftir BÆKSVIÐ eftirÞórhall Jósefsson annað, þar á meðal Ásmundur, Guðmundur J., Bjöm Þórhallsson og Magnús L., að jöfnun launa og hiutfallsleg hækkun lægstu launanna strandaði á hálaunahóp- unum - innan ASÍ. Bjöm og Magnús báðir lýstu efasemdum um að samstaða gæti náðst, um leið og þeir segja báðir að líf samtakanna hangi á þeim þræði. Sporin hræða, segja þeir. Hugmyndir um að breyta skipulagi samtakanna í þá veru, að efla landssambönd og koma á deildaskiptumfélögum, skipta eft- starfsgrein- um, komust lítt áleiðis. Þær voru teknar upp á ný frá síðasta þingi, 1984. Nú var þeim vísað tii framtíðarinnar, tii sambandsstjómarfundar á næsta ári. Kjör Amar Friðrikssonar í varaforsetaembætti er vísbending um vilja til starfsgreinasamninga og bættrar stöðu láglaunahópa, ír þar sem hann hefur náð góðum árangri í Straumsvík. Viðmælend- ur á þinginu sögðu það gefa sam- bandinu von, ef ekki tekst að efla samstöðu um þessi atriði, ætti ASÍ ekki glæsta frámtíð. Ásmundur gerir sér grein fyrir vandanum og kom það margsinn- is fram í máli hans. Hálaunahóp- amir verða að leyfa lægstu laun- unum að hækka miðað við hærri launin ef ekki á illa að fara, var efnislega það sem hann sagði. Hann sýndi styrk sinn með eftir- minnilegum hætti nú á þinginu, tregðaðist við að gefa upp hug sinn um framboð fram á síðustu stundu. Hvort sem það hefur ver- ið með ráðum gert eða ekki, sýndi þessi aðferð hans berlega van- mátt andstæðinga hans. Enginn hafði áræðni eða vilja til að rísa upp og gefa kost á sér í forseta- embættið. Kannski hafa allir skil- ið skilaboðin í setningarræðu hans: ASÍ er í lífshættu, samstað- an er okkar eina von, ég er reiðu- búinn félagar, eruð þið reiðubúnir?

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.