Morgunblaðið - 27.11.1988, Qupperneq 4
4 FRETTIR/YFIRUT
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 27. NÓVEMBER 1988
ERLENT
INNLENT
Forseti
Hæstaréttar
segir af sér
Magnús
Thoroddsen,
forseti Hæsta-
réttar, sagði af
sér embætti á
föstudagskvöld
vegna opin-
berrar umræðu
'um áfengis-
kaup hans. Magnús notaði
heimild sína sem handhafí for-
setavalds til þess að kaupa um
1.440 flöskur af áfengi á kostn-
aðarverði.
Ásmundur endurkjörinn
forseti ASÍ
Ásmundur Stefánsson var
endurkiörinn forseti Alþýðusám-
bands Islands á þingi þess á mið-
vikudag. Varaforsetar voru kjöm-
ir þau Ragna Bergmann og Órn
Friðriksson.
Jóhann sviptur þinghelgi
Efri deild Alþingis samþykkti
að svipta þingmanninn Jóhann
Einvarðsson þinghelgi til þess
að hægt sé að bera fram kæru á
hendur honum í Hafskipsmálinu.
Slfkt hefur ekki gerst áður í sögu
Íýðvéldisins.
Álmálið veldur titringi
Jón Sigurðsson iðnaðarráð-
herra sagði á þingi á mánudag
að yrðu kannanír á hagkvæmni
nýs álvers í Straumsvík jákvæðar,
yrði flutt frumvarp um byggingu
þess. Ólafíir Ragnar Grímsson
sagði að ef af slíkt frumvarp yrði
samþykkt, þýddi það nýjan meiri-
hluta á Alþingi.
Formenn skiptast
á heimsóknum
Jón Baldvin
Hannibalsson og
Steingrímur Her-
mannsson voru báðir
endurkjömir til forystu
á flokksþingum Al-
þýðuflokks og Fram-
sóknarflokks. For-
mennimir ávörpuðu
flokksþing hvor annars
og breiddu yfir gömul
ágreiningsmál.
ERLENT
Oeirðir í Az-
erbajdzhan
Óeirðir blossuðu upp í Sovétlýð-
veldinu Azerbajdzhan á þriðjudag
og stóðu hefmenn vörð við heim-
ili Armena í borginni Bakú til að
veija þá gegn ofsóknum Az-
erbajdzhana. Þrír sovéskir her-
menn féllu og rúmlega 120 manns
særðust í átökum í borginni
Kírovobad. Á fimmtudag vom
sovéskar hersveitir sendar inn í
Bakú og neyðarástandi lýst yfir.
Fréttir bámst af ijölmennum
mótmælafundum bæði í
Azerbajdzhan og Sovét-Armeníu.
Ólgaí
Eystrasaltsríkjunum
Sovésk þingnefnd ákvað í vikunni
að gera breytingar á drögum að
stjómarskrárbreytingum og
ganga þar með til móts við kröfur
Eystrasaltsþjóða. Á miðvikudag
lýsti þingið í Kákasuslýðveldinu
Grúsíu yfír andstöðu við breyting-
amar.
Deilt um mælingar á
möskvastærð
Mismunandi aðferðir við mæl-
ingar á möskvastærð veiðarfæra
ollu deilum milli útgerðarmanna
og Landhelgisgæslunnar. í ljós
kom að nýr möskvamælir, sem
Gæslan notar, hefur ekki hlotið
löggildingu heldur má aðeins nota
hann til viðmiðunar.
45 með alnæmi
Alnæmisvika hófst á miðviku-
dag undir kjörorðinu „tölum sam-
an um alnæmi". 45 íslendingar
hafa greinst með alnæmi og frjöl-
margir eru taldir smitaðir án þess
að vita af því.
Þjóðleikhúsið hættuiegt
Starfshópur um endurreisn
Þjóðleikhússins hefur lagt til að
annað hvort verði viðgerðir á hús-
inu hafnar strax eða því lokað af
öryggisástæðum, þar sem lagnir
og eldvamakerfí séu í niðumíðslu
óg loftræstikerfíð eldgildra.
Framsókn næststærst á ný
í skoðanakönnunum, sem gerð-
ar voru í vikunni, kom fram að
Sjálfstæðisflokkurinn á mestu
fylgi að fagna meðal kjósenda.
_ Slæmt gengi á
Ólympíuskákmóti
íslensku skákmönnunum gekk
ekki eins vel á Ólympíuskákmót-
inu í Grikklandi og margir höfðu
búist við. Eftir tapið gegn Sovét-
mönnum seig á ógæfuhliðina og
íslenska sveitin er nú í kring um
2Q. sætið.
Sigur íhaldsmanna í
Kanada
íhaldsflokkur
Brian Mulro-
neys vann sigur
í þingkosningun-
um sem fram
fóru í Kanada á
mánudag. Helsta
kosningamálið
var fríverslunarsamningur milli
Kanada og Bandaríkjanna.
Skattaumbætur í Svíþjóð
Sænska stjómin kynnti á miðviku-
dag hugmyndir um róttækar
breytingar á skattakerfínu. Stefnt
er að því að 90% launþega greiði
engan tekjuskatt og hlutfall
beinna skatta verði að jafnaði 30%
í stað 45% nú.
Dauðadómar afturkallaðir
P. W. Botha, forseti Suður-Afríku,
ákvað á miðvikudag að afturkalla
dauðadóma yfír svonefndum sex-
menningum frá Sharpeville, fímm
körlum og einni konu, og dæmdi
Suður-Kórea:
Forsetmn biður Chun
griða hjá almenningi
Seoul. Reuter.
ROH Tae-woo, forseti Suður-Kóreu, flutti sjónvarpsræðu til þjóðar-
innar í gær og hvatti almenning til að fyrirgefa fyrrum forseta
landsins, Chun Doo Hwan, misgerðir hans. Chun tók völdin i landinu
árið 1979 og var síðan i forystu fyrir herforingjastjóm þar til i
febrúar á þessu ári. Á miðvikudag baðst hann afsökunar á illræðis-
verkum stjómar sinnar, þ. á m. fjöldamorðum á óbreyttum borgurum.
Roh gekk ekki svo langt að lýsa
yfir sakaruppgjöf til handa Chun.
Hins vegar sagðist hann ekki
myndu láta ákæra einvaldinn fyrr-
verandi; Chun hefði iðrast og ekki
bæri að draga hann fyrir rétt.
„Mér fínnst vera kominn tími til
að binda endi á vangaveltur um það
hvemig við gerum upp við fortíð-
ina, þær hafa valdið okkur öllum
miklum sársauka," sagði Roh. „Við
getum ekki látið allt þjóðfélagið
engjast endalaust í kvöl og upp-
lausn vegna vandamála fyrri tíma,“
sagði hann einnig. Forsetinn kynnti
ýmsar ráðstafanir sem eru til þess
ætlaðar að koma til móts við þá er
krefjast hefnda. Öllum pólitískum
föngum frá valdatíma Chuns verða
gefnar upp sakir og manngjöld
verða greidd fyrir fómarlömb
fjöldamorða hersins á óbreyttum
borgurum á mótmælafundi í borg-
inni Kwangju 1980. Einnig verða
greiddar bætur fyrir morð og
barsmíðar í svonefndum „endur-
hæfíngarbúðum" Chuns. Opinberir
starfsmenn, er misstu störf sín í
pólitískum hreinsunum Chuns
1980, fá auk þess miskabætur.
Mörg þúsund manns, aðallega
stúdentar, börðust við óeirðalög-
reglu í Seoul í gær er fólkið reyndi
að komast að embættisbústað Rohs
forseta til að mótmæla ákvörðunum
hans í málum Chuns. Mótmælendur
beittu gijóti og bensínsprengjum
og lögregla svaraði með táragasi.
Reuter
Jólasveinninn íKaliforníu
Jólasveinn og hreindýr hans tóku í gær þátt í söfiiun fyrir börn
með krabbamein f Beverly Hills í Kalifornfu.
Enn hertá
hvalveiði-
1 •• • •• e? •
loggjonmii
Frá fvari Guðmundssyni, fréttaritara
Morgunblaðsins.
RONALD Reagan Bandaríkjafor-
seti hefur undirritað ný lög um
veiði- spendýra í sjónum, sem
herða til muna fyrirmæli um refs-
ingar fyrir brot á fyrri lögum um
sama efiii.
Þessi nýju lög mæla m.a. svo fyr-
ir, að Bandaríkin skuli banna inn-
flutning á fískafurðum frá löndum,
sem stunda hvalveiði, eða aðrar spen-
dýraveiðar í sjó.
Bandarísk blöð skýrðu frá því í
gær, að Grænfriðungar hefðu hafíð
mál fyrir rétti gegn Bandaríkjastjóm
þar sem þess er krafíst að sett verði
á bann gegn innflutningi á físki og
fískafúrðum frá Islandi.
Yngsti milljarða-
mæringnr sögunnar?
Þriggja ára gömul stúlka erfir
Onassis-auðinn
MEÐ andláti Christinu Onassis hefur auður þessarar nafhtoguðu
fjölskyldu feerst f hendur þriggja ára gamallar dóttur hennar.
Hún heitir þvi þjóðlega nafiii Aþena og þótt ekki iiggi fullkom-
lega ljóst fyrir hversu mikla Qármuni og eignir hún erfír verður
hún vafalítið einn yngsti milljarðamæringur sögunnar. Sjóðstjórn
mun hafa umsjón með auðæfímum en faðir Aþenu og fjárhalds-
menn, sem sfðar verða skipaðir, munu hins vegar bera ábyrgð á
uppeldi hennar og menntun.
Sérfræðinga greinir á um
hversu mikill Onassis-auður-
inn sé. Menn virðast þó almennt
telja að arfur Aþenu Onassis verði
á bilinu 22 til 45 milljarðar
íslenskra króna. Aþena er einka-
erfingi Christinu Onassis, sent lést
í Buenos Aires í Argentínu þann
19. þessa mánaðar, 37 ára að
aldri.
Christina Onassis var dóttir
gríska auðjöfursins Aristótelesar
Onassis. Á þriðja áratugi aldar-
innar fluttist hann blásnauður frá
Grikklandi til Argentínu en er
hann lést í mars árið 1975 var
hann einn auðugasti maður í
heimi. Hann hafði byggt upp
gífurlegt fjármálaveldi og átti
hundruð fyrirtækja um allan
heim, 47 olíuskip, flugfélag og
geysilega verðmætar fasteignir
er hann safnaðist til feðra sinna,
68 ára að aldri.
í erfðaskrá Aristótelesar On-
assis var kveðið á um að Christina
skyldi erfa helming eigna hans
en hinn helmingurinn rann í sjóð
sem stofnaður hafði verið til minn-
BflKSVlP
eftir Asgeir Sverrisson
ingar um son hans, Alexander,
sem fórst í flugslysi árið 1973.
Höfuðstöðvar sjóðsins, sem rekinn
er sem góðgerðarstofnun, voru
fluttar til Liechtenstein. Sjóðurinn
hefur veitt bæði einstaklingum og
ýmsum samtökum styrki og hafa
til að mynda mannréttindasam-
tökin Amnesty International og
Lech Walesa, leiðtogi Samstöðu,
hinnar bönnuðu hreyfíngar pól-
skra verkamanna, þegið fjárveit-
ingar úr honum.
Aristóteles Onassis var einkum
þekktur sem skipakóngur. Þegar
olíukreppan skall á ákvað stjóm
Onassis-fyrirtækjasamsteypunn-
ar með Christinu Onassis í broddi
fylkingar að afpanta smíði fjölda
olíuskipa sem faðir hennar hafði
falið japönskum og frönskum
skipasmíðastöðvum. Tapið varð
gífurlegt en ákvörðunin þótti engu
Aþena Onassis. Reuter
að síður skjmsamleg. SkÖmmU
síðar seldi Onassis-samsteypan
hlut sinn í gríska flugfélaginu
Olympic Airways fyrir um fímm
milljarða króna. Á undanfömum
árum hefur fyrirtækið minnkað
skipastólinn og á nú 35 olíuskip.
Fjölmörg flutningaskip f eigu fyr-
irtækisins hafa ýmist verið seld
eða tekin úr umferð. Fjárfesting-
um hefur verið beint inn á nýjar
brautir og hefur megináhersla
verið lögð á fasteignir, einkum í
Bandaríkjunum, Evrópu og Suð-
ur-Ameríku.
Christina Onassis átti þijú mis-
heppnuð hjónabönd að baki og
stóð í skilnaðarmáli er hún lést.
Hún eignaðist Aþenu Onassis í
janúar 1985 með fjórða eigin-
manni sínum, franska milljóna-
mæringnum Thierry Roussel, sem
nú hefur fengið forræði yfír dótt-
ur sinni þar til hann og fjárhalds-
mennimir hafa ákvarðaö hvemig
staðið skuli að uppeldi hennar og
menntun.
Heimild: Intemational Herald
Tribune.