Morgunblaðið - 27.11.1988, Síða 16

Morgunblaðið - 27.11.1988, Síða 16
16 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 27. NÓVEMBER 1988 Um bunustokka og \itlausa stjómmálamenn Fyrir nokkru hafði umsjónar- maður sunnudagsútgáfu Morg- unblaðsins samband við mig. Erind- ið var að fá mig til að skrifa í þenn- an dálk ásamt formönnum annarra stjómmálaflokka. í huga umsjónar- mannsins var tilgangurinn alveg skýr. í fyrsta lagi áttu stjómmálamenn allra flokka að skrifa undir sam- , heitinu „Að hugsa upphátt". í öðru i lagi var til þess ætlast að þeir fyöll- \uðu um önnur efni en þeir væra /vanir og í þriðja lagi var mælst til /þess að þeir skrifuðu öðpu vísi en þeir ættu að sér í daglegu starfí. Mín fyrstu viðbrögð vora auðvit- að þau að setja fram beiðni til umsjónarmannsins um það að fá að hugsa um stund í hljóði um þessa hispurslausu ósk að hugsa upphátt á síðum Morgunblaðsins. Um- sjónarmaðurinn sam- þykkti umhugsunar- frestinn eftir stutta umhugsun. Það verð ég hins vegar að viður- kenna að frestinn not- aði ég ekki sem skyldi. Því að beiðni sem þessi kallar auðvitað á djúpa umhugsun um ýmis efni og hún kallar auðvitað á það að menn fari að virða fyrir sér þjóð- málaumræðuna af fleiri en einni sjónarhæð. Mér þykir líklegt, eða að minnsta kosti ekki ólíklegt, að stjómmála- þrætur séu hér á landi fyrirferðar- meiri þáttur í þjóðmálaumræðu en víðast hvar annars staðar. Að vísu hef ég engar félagsfræðilegar at- huganir að styjast við í þessu sam- bandi heldur aðeins persónulega til- fínningu. Það má deila um hversu næm hún er. En ég ætla samt að þessi tilfinning mín sé ekki fjarri veraleikanum. Og svo má alltaf deila um það hvar draga á mörkin á milli stjómmálaumræðu og ann- ars konar umræðu í þjóðfélaginu. En hvað sem slíkum bollaleggingum líður verður ekki um það deilt að stjómmálaumræður era fyrirferðar- miklar í þjóðfélaginu. Nú er það svo að stjómmálaum- ræður era í eðli sínu afar víðfeðm- ar. Þær eiga í raun réttri að taka til allra þátta mannlegs samfélags. Á þeim vett- vangi eiga menn að geta deilt um vísindi, fegurðarsmekk, hags- muni, bunustokka, stöðuveitingar, skóla- stefnu og vamir gegn alnæmi, svo ekki sé tal- að um efnahagsmál. Upp úr jarðvegi þessara umræðna spretta svo ákvarðanir almennings í kosningum og Ig'ör- inha fulltrúa í bæjar- stjórnum og á Alþingi. Samkvæmt lögmál- inu eiga stjómmálaum- ræður því að vera afar merkilegar og þýðing- armiklar, en einhvem veginn er það svo að stjómmálaum- ræður þykja almennt heldur ómerkilegar og lítilsigldar. Ég hlustaði á það í útvarpi fyrir nokkr- um dögum að ungur maður var spurður að því úti á götu, hvort hann vissi hversu margir menn sætu á Alþingi. Hann sagðist ekki muna það, enda skipti það engu, því þeir væra allir jafn vitlausir. Þetta var nokkuð jákvæð umsögn af hálfu drengsins. En kjami máls- ins er þó sá að ég geri ráð fyrir því að svarið lýsi nokkuð almennu viðhorfi til stjómmálamanna og þeirrar umræðu sem þeir ástunda. Ég fór því að velta því fyrir mér hvort það væri í raun og vera svo að umsjónarmaður sunnudágsút- gáfu Morgunblaðsins hafí haft æma ástæðu til þess að biðja for- menn allra stjómmálaflokka að hugsa nú einú sinni upphátt, skrifa nú einu sinni öðra vísi og um annað en venjulega. Finnst unglingnum, sem hér hefur verið tekinn sem dæmi um ímyndað almenningsálit, að stjómmálamenn hugsi yfirleitt ekki upphátt? Er það tilfínning manna að þeir meini yfirleitt annað en þeir segja eða gefí ekki í ein- lægni í ræðum sínum og greinum nægjanlega mikið af dýpstu tilfinn- ingum og innstu hugsunum? Með öðram orðum, era stjómmálaum- ræðumar of yfírborðskenndar til þess að verða trúverðugar? En það má líka snúa spuming- unni á hinn veginn (vafalaust þykir sumum það vera of framsóknarleg efnistök). Hvað er Morgunblaðið að HUGSAÐ UPPHÁTT í dag skrifar Þorsteinn Pálsson,formadur Sjáljstaðisflokksirss Teikning/Pétur Halldórsson fara þegar það þiður stjómmála- menn að skrifa öðra vísi og um annað en venjulega? Er með því verið að draga menn frá hinum kalda veraleika hversdagsumræð- unnar og biðja menn um smá sunnudagsspjall úr eldhúsinu, sum- arleyfínu eða jafnvel hjónaherberg- inu? Engum vafa er undirorpið að það er söluvara fyrir dagblöð að fá sljómmálamenn til þess að opna dymar að heimilum sínum. Ekki einasta útidymar heldur að hverjum krók og kima þegar inn er komið. Og flest bendir til þess að þetta séu einnig góð viðskipti fyrir sijóm- málamennina. Þá kemur stóra spumingin. Hvað er það sem veldur því að unglingur- inn segir: Það skiptir ekki máli hvort ég veit hversu margir þeir era, því þeir era allir jafn vitlausir. Er það þessi leiðinlega staglkennda þræta um efnahagsmálin, þar sem hver ber annan sökum og skýtur sér undan ábyrgð, eða er það þessi yfirborðsmennska, sem felst í því að selja einkalíf sitt, efna til skraut- sýninga, í þeim mæli sem hugarflug manna í þeim efnum stendur til? Jo Benkow, forseti norska Stór- þingsins, gerir þessa spumingu ein- Skíðamiðstöðin í Oddsskarði festi nýlega kaup á þessum snjótroðara frá Þýskalandi. / ' : Oddsskarð: Skí ðamiðstöðin kaupir snjótroðara NcnkaupsUð. Skíðamiðstöðin í Odsskarði festi nýlega kaup á snjótroð- ara af Kassbohrer gerð. Spjótroðarinn kom hingað með skuttogaranum Birtingi er hann kom úr söluferð frá Þýskalandi nýlega. Troðarinn er fjögurra ára gamall en allur nýyfírfarinn af framleiðanda. Kaupverð var um 4 milljónir. Fram að þessu hefur snjóbíll Austfjarðaleiðar verið not- aður sem snjótroðari í skíðalandinu í Oddsskarði en ekki nýst sem skyldi því mjókka þurfti á honum beltin til þess að hann kæmist í gegnum Oddsskarðsgöngin. — Ágúst Hveragerði: NÝ GERÐ AF BORÐBÚNAÐI Hveragerði. Hagleiksmaðurinn Sigurður Sólmundarson í Hveragerði hefiir hannað nýja gerð af borðbúnaði og er hann að koma á markað um þessar myndir. Um er að ræða stein, _sem ætlað- ur er til að steikja á. Á Sigurð- ur allan veg og vanda af smiði gripsins. Sigurður bauð fréttaritara að koma í vinnustofu sína i Dyn- skógum 5 og kynna sér þessa nýju framleiðslu. Hann gaf eftir- farandi lýsingu: „Steinninn er lát- inn á meðfylgjandi svarta álplötu. Rauðspritt er notað sem orkugjafí og hentar því vel i stofu, garð- húsi eða í ferðalögum, t.d. i tjaldi eða rúmgóðum bíl. Steinninn er handhægur og auðveldur í með- ferð og steinasteik bragðast vel og gefur skemmtilega stemmn- ingu á góðri stund við kertaljós og léttar veigar. Tveir geta auð- veldlega verið saman um einn stein og eldar hver fyrir sig að eigin smekk. Tvær skálar fylgja hveijum steini, er önnur undir sósu en hin fyrir salat. Steinninn er tilbúinn til notkun- ar eftir 25—30 mínútur. Ein áfyll- ing á brennarann endist í einn klukkutíma eða lengur." Það verður að segjast að steinn- inn er fallegur gripur og trúlegt að marga fysi að reyna nýja að- ferð við matseldina. - Sigrún Morgunblaðið/Sigrún Sigfúsdóttir Sigurður Sólmundarson með borðbúnað • þann sem hann hefúr hannað til að steikja á.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.