Morgunblaðið - 27.11.1988, Síða 20
Saga Benazirs: Hvernig hún reyndi að bjarga lífijoöursíns
*
Um svipað leyti lézt faðir hennar í
fangelsi í Rawalpindi í nokkurra
kílómetra fjarlægð.
Náði ekki andanum
„Nei! Nei!“ hrópaði Benazir sam-
kvæmt útdrætti í The Observer.
„Ég náði ekki andanum, vildi ekki
anda. Pabbi! Pabbi! Mér var kalt,
svo kalt, þrátt fyrir hitann, og ég
gat ekki hætt að skjálfa."
í dögun tilkynntu mæðgurnar að
þær væru reiðubúnar að fylgja hin-
um látna til grafar í kirkjugarði
ættfeðranna. Fangavörður, sem
þær sneru sér til, sagði. „Þeir hafa
þegar farið burt með líkið til að
láta grafa það.“ „Án fjölskyldunn-
ar?“ spurði Benazir reið ...
Fangelsisstjórinn afhenti fátæk-
lega muni fangans í dauðaklefan-
um: slitin föt, sem hann hafði feng-
ið að ganga í þegar hann neitaði
að klæðast fangabúningi á þeirri
forsendu að hann væri pólitískur
fangi en ekki ótíndur glæpamaður,
matarskrín, en hann hafði neitað
að borða í 10 daga, sængurfatnað,
sem hann fékk ekki að nota fyrr
en slitnir vírar í beddanum meiddu
hann í bakinu, drykkjarílát ...
Vörðurinn afhenti ekki hring hans
fyrr en Benazir krafðist þess.
„Hægt andlát," tautaði vörðurinn.
„Hann fékk mjög hægt andlát."
Burðarmenn fjölskyldunnar,
Basheer og Ibrahim, komu og Bas-
heer hrópaði náfölur af reiði þegar
hann sá föt húsbónda síns: „Ya,
Allah! Ya, Allah!. Þeir drápu sahibl
Þeir drápu hann!“ hrópaði hann.
Allt í einu þreif hann benzínbrúsa
og hellti úr honum yfir sig. Hann
virtist ætla að kveikja í sér og
móðir Benazir gat með naumindum
komið í veg fyrir það.
Féllust hendur
„Ég stóð dofin fyrir framan að-
stoðarfangavörðinn og hélt á litlum
eftir Guðm. Halldórsson
BENAZIR BHUTTO,
sigurvegari
kosninganna í Pakistan
á dögunum, segir í
nýútkominni bók,
Dóttir austursins, að
hana hafí grunað að
faðir hennar, Zulfikar
Ali Bhutto fv.
forsætisráðherra, hafi
ekki verið hengdur eins
og tilkynnt var á sínum
tíma, heldur að hann
hafi látizt eftir
ryskingar í
dauðaklefanum. Þó vill
hún ekki að lík hans
verði grafið upp, svo
að hægt verði að ganga
úr skugga um
dánarorsökina; hún vill
heldur að hann fái að
hvíla í friði.
Benazir Bhutto: „Hvernig gat ég
haldið áfram?“
Zulfikar Ali Bhutto: „Kom á lýð-
Benazir hefur eftir þjóni,
sem sá um útförina, að
engin merki þess að faðir
hennar hafi verið hengdur
hafi sézt á líkinu. Hann
var ekki hálsbrotinn, en
undarlegir, rauðir og
svartir deplar voru á háls-
inum. Benazir kveðst því „hallast
að því“ að þær fréttir séu réttar
að liðsforingjar hafi slegið föður
hennar niður, þegar þeir reyndu að
neyða hann til að undirrita ,játn-
ingu“ nokkrum klukkustundum áð-
ur en taka átti hann af lífi.
Mohammed Zia-ul-Haq hers-
hofðingi, sem fórst í flugslysi fyrir
þremur mánuðum, steypti Zulfikar
Ali Bhutto af stóli í byltingu hers-
ins 1977. Samkvæmt opinberum
yfirlýsingum var Bhutto, sem var
voldugur landeigandi, hengdur fyrir
morð snemma morguns 4. apríl
1979. í einum áhrifamesta kafla
bókarinnar lýsir Benazir Bhutto því
hvemig hún hafi vaknað skelfingu
lostin klukkan tvö um nótt í yfir-
gefnum æfingabúðum lögreglunnar
í Sihala, þar sem hún og írönsk
móðir hennar, Nusrat, voru í haldi.
!itliUlllLiIll}ji]ilUlllllllÍllli!IIUli!SliitUtlI!i!iiitiíl!llilil!ilkIilliill!ll}UlilklitÍÍlÍ>ilHlkltiilkÍlklitliftilllliitltiiii