Morgunblaðið - 27.11.1988, Síða 25
25
MORGUNBLAÐIÐ VEROLD/HLAÐVARPINN SUNNUDAGUR 27. NÓVEMBER 1988
Það er ekki vitlaust
að láta lýsa með
I Sviss tíðkast enn að lýsa með brúðhjónum. Nöfii þeirra
eru hengd út í glugga við bæjarskrifstofiir þar sem þau
búa og þar sem þau eru upprunnin. Þau eru einnig birt í
eins konar lögbirtingablaði. Fólki er gefinn hálfúr mánuður
til að fetta fingur út í fyrirætlan hjónaefiianna. Og fyrirtæki
fá upplýsingar um hvað stendur til.
Tæpum mánuði eftir að Zurie-
h-búar gátu lesið að ég væri
í giftingarhugleiðingum hringdi
ókunnug kona og óskaði mér til
hamingju. Hún spurði hvort að
hún mætti koma og gefa mér
gjöf. „Hún kostar ekki neitt,“
endurtók hún tvisvar. Ég sagði
að hún væri velkomin og var
viss um að hún væri frá trygg-
ingarfélagi. Það höfðu nefnilega
þó nokkur tryggingarfélög
hringt og boðið okkur
hjónaefnunum allrahanda
tryggingar en án
árangurs. Ég hélt að þetta
fyrirtæki væri svona
snjallt, konan kæmi með
gjöfina og myndi svo telja
mér trú um að ég þyrfti
viðbótartryggingar.
En mér skjátlaðist.
Konan kom með kassa
fullan af vörum: núðlum,
hrísgrjónum, þvottaefni,
tímaritum, pöntunarlista
og ýmsum blaðaáskriftum. Hún
var frá fyrirtæki sem annast
auglýsingar fyrir vörurnar.
Svona kemur það þeim inn á
gafl hjá nýgiftu fólki. Ég er búin
að búa í hundrað ár svo að mér
fannst lítið til gjafarinnar koma.
En kannski finnst nýbakaðri
brúðir úr heimahúsum spennandi
að prófa villihrísgijón frá Uncle
Ben. Konan sagði að þau væri
sérstaklega góð með kjúklinga-
bringum í madeirasósu.
Fyrirtæki sem sérhæfir sig í
veisluundirbúningi bauð okkur
aðstoð við brúðkaupsveisluna.
Annað bauð að sjá um músíkina.
Hið þriðja sendi þulu um ágæti
þess að eyða brúðkaupsnóttunni
í vatnsrúmi í sveitinni viúRínar-
fljót. Og við fengum afslátt af
gólfteppi í brúðargjöf frá teppa-
verslun.
Nú skil ég af hveiju það er
enn lýst með brúðhjónum í Sviss.
Allir græða eitthvað á því.
HUSGflHGflK
okkar á tnilli...
■ VÖKVI er jafnan fljótandi
og rennur þokkalega. Þó kann-
ast fólk við ýmsa vökva sem
verður að beita öðrum brögðum
ef færa á úr stað. Að minnsta
kosti eru til sögur um ijóma
sem var svo þykkur að þurfti
að moka honum með skeiðum
og svo er kaffi stundum sagt
svo sterkt að megi skera það —
eða bera þurfi fram með þvi
hnífapör.
Hugleiðingar af þessu tagi
vöknuðu um daginn hjá nokkr-
um lesendum Dags á Akureyri
þegar í fyrirsögn fi-éttar var
minnst á vatnsskurðarvél. Menn
tóku að leggja höfúðið í bleyti
og velta fyrir sér notagildi
þessa verkfæris. Hvenær þarf
að skera vatn? Og hvenær þarf
ekki að skera vatn? Sennileg-
asta skýringin var sú að þetta
væri einhvers konar íssög,
nefhilega til þess gerð að skera
vatn í sundur eftir að búið er
að fiysta það.
En eins og oft vill verða kom
skýring þegar fréttin var lesin.
Þetta verkfæri með þessu. við-
amikla nafhi reyndist vél sem
getur skorið fisk eftir öllum
kúnstarinnar reglum, en í stað
eggjárna eru það örmjóar,
kraftmiklar vatnsbunur sem
skera það sem fyrir verður. Og
er nokkur furða þótt einhverj-
um hafi dottið í hug að vélin
verðskuldaði betra nafn?
■ÓVENJU háfleyg gæs olli því
að júmbóþota með 300 farþegum
innanborðs varð nýlega að nauð-
lenda í Gander á Nýfundnalandi.
Pan American-vél var á leið frá
New York til London þegar hún
flaug beint á gæsina. Nef vélar-
innar beyglaðist og hún varð að
lenda í Gander, en það þýðir
gæsarsteggur. Önnur vél varð
að flyfja farþegana til London.
Ekki er vitað af hveijugæsin var
svona hátt uppi, 11.000 metra
hæð er mjög óvenjuleg flughæð
fyrir gæsir — ab.
■ UM er talað á Akureyri að
breyta eigi útsölu ÁTVR og gera
hana að kjörbúð. Það er vissu-
lega mikil framför og örugglega
kærkomin þeim sem gera mun á
víni og víni. Hins vegar er ör-
stutt síðan áfengisversluninni
var breytt og settar upp nýjar
og glæsilegar innréttingar með
gamla afgreiðslulaginu. Menn
eru að velta því fyrir sér hvers
vegna ekki var breytt yfir í kjör-
búð þá, ekki síst vegna þess að
um svipað leyti var unnið að
undirbúningi kjörvínbúðar í
Reykjavík. En nú mun hilla und-
ir þá tíð að maður geti valið sér
vín í ró og næði norðan fjalla
eins og í útlöndum. Séð hvað til
er í búðinni og jafhvel lesið á
flöskumiðana í stað þess að
kaupa bara eitthvað og vera
fljótur að því til að tefia ekki þá
sem biða aftar í jröðinni.
BRUNAÐU HHEÐ
m.
AUSTURRIKIS 06 FRAKKUNDS
Úrvals skíðaferðir í bestu skíðalönd Evrópu!
AUSTURRIKI
BADGASTEIN
39.300
2 vikur.
Verð frá 1717 kr.
Brottför 4. og 18. febrúar.
FLACHAU
69.300
Hálft fœði innifalið.
Brottför 11. febrúar.
MAYRHOFEN
19.900
1 vika.
Verð frá M 707VIÍ kr.
Brottför 17. 24. og31. desember,
7. og 14. febrúar.
SAALBACH -
HINTERGLEMM
76.000
2 vikur.
Verð frá
Hálft fœði innifalið.
Brottför 18. febrúar.
Flogið til og frá Salzburg.
Innifalið i verði: Flug, gisting og flutn-
ingur til og frá flugvelli erlendis.
Staðgreiðsluverð, miðað við gengi
6. október 1988.
FRAKKLAND
Dalirnir þrír,
eitt besta skíða■
svœði Evrópu.
VAL THORENS
51.000
2 vikur.
Verð frá <
Brottför 25. febrúar.
Flogið til og frá Genf.
Innifalið í verði: Flug, gisting og flutn-
ingur til og frá flugvelli erlendis.
Staðgreiðsluverð, miðað við gengi
6. október 1988.
FERÐASKRIFSTOFAN
- fólk sem kann sitt fag!
Pósthússtrœti 13 - Sími 26900.