Morgunblaðið - 27.11.1988, Blaðsíða 36
SUNNUDAGUR 27. NÓVEMBER 1988
VERÐ f LAUSASÖLU 70 KR.
Rússnesk
um hlustun-
arduflum
fer fjölgandi
RÚSSNESKUM hlustunardufl-
um sem rekur á land hérlendis
fer Qölgandi. Frá upphafi þessa
áratugar fækkaði þeim verulega
frá áratugnum á undan er
nokkra tugi þeirra rak á land
hérlendis.
Samkvæmt upplýsingum frá
Landhelgisgæslunni hafa 15 rússn-
esk hlustunardufl rekið á land hér
frá árinu 1982, þar af hafa 5 rekið
á land í ár. Á þessu tímabili, frá
1982, hefur 11 dufl frá öðrum þjóð-
um en Rússum rekið á land.
Rússnesku duflin eru ekki hættu-
leg en dufl annarrar gerðar geta
1 verið það. Rússnesku duflin sem
finnast hér eru nær undantekingar-
laust send vestur til Bandaríkjanna
til rannsóknar. Þótt þau séu ekki
talin hættuleg vill Landhelgisgæsl-
an taka fram að í öllum tilfellum,
sem almenningur verður var við að
dufl hafi rekið á land, beri að til-
kynna það réttum yfirvöldum hið
fyrsta.
Djúpivognr:
Minkur
veiðist
íála-
gildru
Djúpavogi.
Pípulagningamaðurinn á
Djúpavogi, Bogi Ragnarsson, er
áhugamaður um ýmiss konar
nýstárlegar veiðar, m.a. hefúr
hann átt nokkrar álagildrur í
þijú ár og hefúr stundum lagt
fyrir ál.
Áll hefur þó yfirleitt ekki veiðst
í miklu magni. Um daginn lagði
Bogi gildru í svokallaðan Jakobs-
vogslæk, sunnan við þorpið. Þegar
vitjað var um gildrumar næst voru
í einni þeirra fáeinir litlir lækjarsil-
ungar og tveir dauðir minkar.
Höfðu minkarnir elt silungana inn
í gildmna, drepið þá alla en ekki
komist út sjálfir. Hver veit nema
hér sé fundin ný veiðiaðferð í bar-
áttunni við þetta illræmda kvik-
indi. - Ingimar
^ Morgunblaðið/Sverrir
GRAS SLEGIÐ A GOLFVELLI
„Það er einsdæmi að við höfum getað haldið vellinum
svona lengi opnum. Það er enn dálítil spretta á vellinum
og stór hluti hans er iðagrænn," sagði Björgúlfur
Lúðvíksson, framkvæmdastjóri GR, í samtali við Morg-
unblaðið. Á föstudaginn var Haraldur Ólafsson, starfs-
maður Golfklúbbs Reykjavíkur, að slá golfvöll GR í
Grafarholti og í gær fór þar fram golfmót.
Lýsi og Hydrol samoinuð:
Ný lýsisverk-
smiðja byggð
HEILDARTEKJUR Lýsis h.f.
og dótturfyrirtækja þess á
þessu ári nema um 460 milljón-
um króna miðað við rauntölur
fyrstu 10 mánaða ársins og
áætlun fyrir nóvember og des-
ember. Á árinu 1985 námu
heildartekjurnar um 170 millj-
ónum króna, og hafa þær því
nær þrefaldast síðan þá. Kom
þetta fram í erindi sem Ágúst
Einarsson forstjóri Lýsis h.f.
flutti á ársfúndi Rannsóknaráðs
ríkisins og Vísindaráðs.
Ágúst sagði að. á síðastliðnum
tveimur árum hefði verið bætt
verulega við framleiðslu Lýsis h.f.,
og þá oft í samvinnu við dótturfyr-
irtækin, en þau eru fiskmjölsverk-
smiðjan Lýsi og mjöl h.f. í Hafnar-
firði og Hydrol h.f. í Reykjavík.
Sagði hann að samvinna Lýsis h.f.
og Hydrol h.f. væri orðin það sam-
tvinnuð að tekin hefði verið
ákvörðun um að sameina fyrirtæk-
in og yrði það gert á þessu ári.
Væri stefnt að því að byggja nýja
verksmiðju sem kæmi til með að
leysa núverandi verksmiðjur fýrir-
tækjanna af hólmi. Yrði sú verk-
smiðja með tveimur vinnslurásum,
þar sem annars vegar yrði fram-
leitt þorskalýsi og hins vegar búk-
lýsi eða loðnulýsi. Með þessu væri
hægt að ná mikilli hagræðingu í
rekstrinum.
Lánstraust okkar stendur óhaggað:
Erlendar skuldir Islend-
inga 113 milljardar króna
Skuldirnar hafa hækkað um 12 milljarða á árinu, vegna gengisfellinga
eílir Agnesi Bragadóttur
YFIRLÝSING Steingríms Hermannssonar forsætisráðherra um
að íslendingar stæðu nær þjóðargjaldþroti en nokkru sinni fyrr,
virðist í engu hafa haft áhrif á lánstraust íslendinga meðal lánar-
drottna erlendis. Erlendar skuldir nema nú 113 milljörðum króna,
og þar af eru langtímaskuldir 107,6 milljarðar króna. Þetta jafn-
gildir því að hver Islendingur skuldi tæplega hálfa milljón króna
orðum forsætisráðherra og í öðru
lagi, að afstaðan til lánveitinga
til íslands breyttist í engu við
fregnir af orðum hans.
í erlendri mynt.
í samtölum við 'MÆ-W
helstu lánardrottna
íslands, svo sem
Scandinavian Bank,
Sumitomo Bank,
Westdeufsehe Lan-
desbank og Citibank, hefur komið
fram að í fyrsta lagi höfðu yfir-
menn íslandsviðskipta hverrar
stofnunar fyrir sig ekki heyrt af
Erlendar lántökur á þessu ári
nema um 18 milljörðum króna,
eða 100% meira en lánsfjárþörfin
var áætluð við fjárlagagerð fyrir
einu ári. I árslok í fyrra námu
erlendar skuldir 83 milljörðum
króna, en nema nú 113 milljörðum
króna, sem jafngildir um 45% af
vergri þjóðarframleiðslu ársins.
Bara gengisbreytingar á þessu ári
hafa hækkað erlendar skuldir um
12 milljarða króna — tólf þúsund
milljónir króna. Hver íslendingur
telst nú skulda um 455 þúsund
krónur í erlendri mynt.
Sjá Lán í óláni og Syndir
feðranna á bls. 14 og 15.
Jólabóka-
prentunin
hálíum mán-
uði seinni
Jólabókaprentunin hófst
seinna núna en oftast áður og
munaði þar rúmum tveimur vik-
um. Venjulega hefst prentun
jólabókanna fyrir alvöru í lok
september, en lítið var að gera
í prentsmiðjum fram í miðjan
nóvember.
Magnús Matthíasson fram-
leiðslustjóri í prentsmiðjunni Odda,
sagði að óvissan vegna stjórnar-
skiptanna hefði örugglega haft
mikið að segja um að bókaprent-
unin hófst seinna í ár en venju-
lega, því önnur sérstök ástæða
væri ekki sjáanleg. í Odda er nú
unnið á vöktum við bókaprentun.
Kringlan:
189 þúsund
í gosbrunni
íslendingar hafa kastað
189 þúsund krónum í gos-
brunninn í Kringlunni á
þessu ári, eða um 500 krón-
um á dag.
Þessar
krónur af-
henti Ein-
ar Ingi
Halldórs-
son fram-
kvæmda-
stjóri
Kringl-
unnar
Bamaspít-
ala
Hringsins
í gær. Þá
var
Kringlan
komin í
jólabúning
og kveikti
Ástríður
Thorar-
ensen, eigin
sonar borgarstjóra, á jólatré
og skólakór Kársnesskóla
söng undir stjórn Þórunnar
Bjamadóttur..
Erilsamt hjá
lögreglunni
ERILSAMT var hjá lögreglunni
aðfararnótt laugardagsins. Urðu
útköllin alls 150 um nóttina
vegna ölvunar, rúðubrota og
slagsmála. Lögreglumaður slas-
aðist er unglingar réðust á hann
í miðbænum en meiðsli hans
munu ekki alvarleg.
Samkvæmt upplýsingum frá lög-
reglunni í Reykjavík var nóttin talin
eðlileg föstudagsnótt þrátt fyrir
útkallafjöldann Og engir verulega
alvarlegir atburðir áttu sér stað.
Tæplega tuttugu rúðubrot urðu í
miðbænum, unglingar kveiktu í
strætóskýli og til átaka kom milli
manna fyrir utan veitingastaðinn
Geirsbúð svo dæmi séu tekin af
málum næturinnar.
Ekið var á gangandi mann fyrir
utan Þórskaffi um kl. 2 um nóttina
en hann mun ekki hafa slasast al-
varlega.
Davíðs Odds-