Morgunblaðið - 04.12.1988, Qupperneq 3
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 4. DESEMBER 1988
C 3
í ljós að þetta starf var miklu verr
launað en ég hélt.
Þekking á tölvusviði er ágæt
hér, en það eru alltaf þessi upp-
hlaup á Islandi; stjórnvöld tala fal-
lega um þennan framtíðariðnað, en
ég held að það séu nú bara „skála-
ræðumál". Útflutningur gæti tekist
ef vel er á málum haldið; við höfum
þreifað fyrir okkur á því sviði, en
það gengur hægt og rólega."
— Heldurðu að samdráttur sé á
næsta leiti í þessum iðnaði?
„Það er nú alltaf auglýst vel upp
ef þrengir að. En það er mikið af
„bílskúrsfyrirtækjum", og þó nokk-
ur hafa hætt rekstri, enda er starf-
semi lítilla fyrirtækja oftast háð
undirboðum.“
Pjetur segist ekki álíta að tölvu-
væðing geti orsakað atvinnuleysi
enda hafi reynslan sýnt annað, með
aukinni framleiðni hafi tölvur skap-
að atvinnu. „Það er talað um yfir-
fjárfestingu í tölvum, en þó á eftir
að tölvuvæða mikið í sambandi við
grunnatvinnuvegi þjóðarinnar. Við
þurfum að koma þessum leiðinda-
verkum sem nú eru unnin í verk-
smiðjum í burtu.“
— 0g þá verður þetta tilbreyt-
ingalaus tölvuveröld?
Hann kímir: „Á blómaskeiði
Grikkja ríkti mikil háspeki, en
Grikkir höfðu líka þræla. Tölvurnar
eru okkar þrælar."
Pjetur er kvæntur Ellu Þórhalls-
dóttur og eiga þau tvo syni, 6 ára
og 2ja ára. Hann segist nú ekki
ætla að hafa áhrif á synina varð-
andi tölvur, enda þýði það ekkert.
Fjölskylda hans hafi í mörg ár reynt
að gera hann sjálfan að bridsspilara
en gefist upp á því, og móðir hans
því haft að orði að það væru víst
tölvumar sem væru hans brids.
og þykir miður, en hans starf er
aðaliega fólgið í skipulags- og und-
irbúningsvinnu.
„En við höfum verið heppnir með
starfsmenn, og þar sem ég er að
kenna við háskólann þá hef ég tök
á því að fá góða menn beint úr
námi, og hef auðvitað valið þá
bestu. En það er staðreynd að besti
forritarinn er tíu sinnum afkasta-
meiri en sá lakasti. Það skiptir því
miklu máli að hafa góða starfs-
menn.“
— Geta menn orðið ríkir í þess-
ari atvinnugrein?
„Sú tíð er liðin þegar menn rök-
uðu saman fé. Launin em komin
niður og minni eftirspurn eftir tölv-
unarfræðingum, þó svo að þessir
góðu séu alltaf eftirsóttir. En þetta
er lítill og veikburða iðnaður og
stærstu hugbúnaðarhúsin eru með
álíka veltu og góð sjoppa, kannski
60 milljónir á ári. Stjórnvöld hafa
Iítið hlúð að þessum iðnaði, til að
mynda greiðum við fullan sölu-
skatt. Styrkir til útflutnings og
rannsókna hafa verið litlir sem eng-
ir.
En ég er alls ekki svartsýnn því
við eigum marga möguleika í þess-
ari grein, og auk þess er ungu fólki
veitt ágætis menntun í tölvunar-
fræði hér á Iandi.
Hvað þróun varðar þá álít ég að
miklir umbrotatímar séu framund-
an. Nú eru um 60 hugbúnaðarfyrir-
tæki hér og fíest þeirra mjög smá.
Mín persónulega skoðun er sú að
mörg þeirra muni hætta á næst-
unni eða jafnvel sameinast öðrum
og mynda stærri einingar. Þá gæti
komið út úr þessu sterkur kjarni
fyrirtækja sem væri hagkvæmt
bæði fyrir iðnaðinn og viðskiptavin-
ina.“
IÐUNNARBÓK E R GÓÐ BÓK
MðKKINN
EWINDUR P. EIRÍKSSON
MflKKIWN
EYVINDUR P. EIRÍKSSON
Lifandi, rauntrú og nærgöngul lýsing á lífi
sjómanna og samspili manns og hafs. Líf
skipverjanna sem hér segir frá er bundið
hafinu. í þessum karlaheimi verður þörfin fyrir
samneyti við konur oft knýjandi og birtist í
næsta óhefluðu tali og þegar í land er komið
ieitar þessi þörf útrásar. Sagan er með ósviknu
saltbragði og rituð af stílöryggi, hvort sem um
er að ræða frásagnir af hátterni og hugsunum
sjómannanna eða svipmyndir af síkviku lífi
hafsins.
1FIÆDARM4LIM
Njörður P. Njarðvík
Þetta er æskusaga, þættir frá uppvaxtarárum
drengs í sjávarplássi. í fáguðum og
drátthreinum svipmyndum er því lýst hvernig
hann vaknar til vitundar um sjálfan sig og
umhverfið. Undir kyrrlátu yfirborði
frásagnarinnar vakir næm tilfinning og ýmsar
persónur sem hér bregður fyrir verða lesanda
minnisstæðar. Þessi saga er gerð af listrænni
kunnáttu og um leið skemmtilegur lestur.
IRISMURDOCH
NUNNUR 0G HERMENN
Nunnur og hermenn er ein þekktasta saga
hinnar frægu bresku skáldkonu, Iris Murdoch,
og er fyrsta bók hennar sem gefin er út á
íslensku. Þetta er spennandi og falleg
ástarsaga, en jafnframt átakamikið skáldverk.
Hér segir frá dauða Guy Openshaw og harmi
ekkju hans, Gertrude. í kringum hana safnast
vinirnir: Anne, nunna sem snúið hefur baki við
klaustrinu. Greifinn, sem er af pólskum ættum
og dálítið utanveltu. Hann þjáist af vonlausri
ást á Gertrude. Og Tim Reede, sem fyrir
tilviljun dvelst samtímis Gertrude í sumarhúsi
í Frakklandi. Þau verða heiftarlega ástfangin -
en þar með er sagan ekki öll sögð né
hamingjan tryggð.
ISl fNSKA AUCL ÝSINCASTOFAN HF
IÐUNN
Brœðraborgarstícj 16 ■ sími 28555