Morgunblaðið - 04.12.1988, Page 8

Morgunblaðið - 04.12.1988, Page 8
8 C MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 4. DESEMBER 1988 GALDMSTUlt JÓNS GUNN- ARS Ég held að kaþólska kirkjan kom- ist miklu nær náttúrunni, og sé umburðarlyndari gagnvart breysk- leika mannsins. Auk þess hefur hún marga guði, svona eins og Maríu, Stefán, Jóhann og hvað þeir nú heita allir, sem er mjög gott og samræmist meira eðli hlutanna í lífinu og náttúrunni. Og hvað er Jesús merkilegri en Múhameð? Annars er kærleikur, virðing og drengskapur boðaður í öllum trúar- brögðum.“ — En á hvað trúir þú? „Ég trúi á listina og framgang hennar í heiminum sem afl til að gera lifíð og umhverfið betra.“ Akademían Tal okkar berst að árum hans erlendis, þegar hann kenndi í Lon- don og svo síðar í Kaupmannahöfn, en hann er fyrsti íslenski kennarinn sem kenndi við Listaakademíuna þar. — Það hefur nú verið mikil upp- hefð að kenna þar, hvemig kom Sóltákn „Þn'forkur er sóltákn hvar sem er í heiminum og sóltákn er í öllum galdri.“ Nýja testamentið er gijótfalsað út í gegn, notað í stjórnmálum gegnum aldirnar, og Lúther var ekkert ann- að en villutrúarmaður. Lútherskan er útþynnt, og hugsjónamenn ekki til í íslensku prestastéttinni. Hall- grímur Pétursson er eini presturinn í lútherskri trú sem mér hefur þótt vænt um. það til? „Sennilega hefur það verið rós í hnappagatið. Það var prófessor Robert Jakobsen sem bauð mér starfíð, en hann var yfir deildinni sem ég kenndi síðar við. Ég kenndi þarría í tvö til þijú ár og hafði al- veg fijálsar hendur með allt sem ég gerði. Kaupið var þrisvar sinnum meira þar en hér fyrir sambærilega vinnu, ég átti íbúð, og á reyndar enn, við hliðina á akademíunni og gat því gengið yfir á inniskónum. En auðvitað var ég bundinn af kennslunni því þetta er ekki bara vinna frá níu til fjögur, maður hef- ur alltaf áhyggjur af nemendum sínum og reynir því að aðstoða þá eftir bestu getu og heimsækja, til að sjá hvemig gengur. Þetta var lúxuslíf, en varð leiðin- legt fyrir rest. Það er spillt andrúmsloftið í Listaakademíunni í Kaupmanna- höfn. Hver níðir skóinn af öðrum, og öfund og framagirni ríkir meðal þeirra sem ráða. Slíkt hef ég aldrei orðið var við hér á íslandi. Akadem- ían er auk þess mörg hundruð ára gömul og íhaldssöm, það er því er- fítt að koma inn með nýjar hug- myndir. Ég held það séu ekki góðir listamenn sem kenna þar nú, það er þá undantekning ef svo er. Hins vegar er þetta best útbúni skólinn hvað snertir vélakost og aðstöðu, Vélhjartað „Ég heyrði af einhveijum gervivísindamanni í Afríku sem hét doktor Barnard." og geta því nemendur gert allt sem hugur þeirra stendur til. Myndlista- og handíðaskólinn hér heima er tíu sinnum fijálslyndari en Listaakademían í Kaupmanna- höfn og hingað koma mörgum sinn- um fleiri erlendir kennarar á ári heldur en á fímm ára fresti þar ytra. Samt halda þeir að þeir séu nafli heimsins. Ég. þekki listaskóla í mörgum löndum og þeir eru geysilega mis- jafnir, en sá allra lélegasti er Lista- akademían í Kaupmannahöfn.“ Þennan sama morgun og við Jón Gunnar tölum saman keypti listráð Listaakademíunnar reyndar eina af myndum hans, galdramerki úr spítalaseríunni. Hjartað Jón Gunnar horfir snöggt á mig: Heyrðu, viltu kannski Havanavind- il? — Nei takk, ég fæ svo mikinn hjartslátt af slíku. „Hvað segirðu, og ég var að panta handa þér kaffi, þú færð kannski líka hjartslátt af því?“ spyr hann og horfir áhyggjufullur á mig. Bætir svo við si sona: „Hún dóttir mín fór til Kúbu og færði mér þá dýrustu og bestu Havanavindla sem til eru í heiminum, ég held það kosti 1000 krónur stykkið af þeim hér. Það var falleg gjöf. Þær eru óskaplega góðar við mig dæturnar. En úr því að við tölum um hjarta þá get ég gefið þér dæmi um vinnu- brögð. Fyrir 20 árum vann ég verk sem heitir „Hjartað" og er á Lista- safni íslands. Hugmyndina að þessu verki fékk ég þegar heyrði af ein- hveijum gervivísindamanni í Afríku sem hét doktor Bamard, en hann Geislar „Hvaðan kemur þessi geisli? mun fólk spyija undrandi og skima upp í skýjaðan himin.“ var að flytja hjörtu úr mönnum og græða í aðra. Mér fannst það óeðli- legt þá að vera að krukka svona í fólki og þetta kom mér fyrir sjónir sem hálfgert auglýsingaskrum og „egótripp“. En ég fór að hugsa um hjartað, fór meðal annars á spítala og skoðaði hjörtu í glerkmkkum, og bjó til 20 hjörtu af öllum gerðum sem ennþá standa bæði í þrívídd og tvívídd. Að lokum komst ég að því að best væri að gera stórt vél- hjarta, sem varð að skúlptúr sem slær og titrar og hefur óreglulegan hjartslátt. Þetta verk var ég búinn að stúdera í 4 mánuði, en endan- legi hluti vinnunnar tók aðeins tvo eða þijá daga.“ Við ræðum um listamenn, hvers vegna sumir verða frægir en aðrir ekki, hvað það sé sem geri gæfu- muninn, og Jón Gunnar segir að það sé ekki nóg að skynja og skilja, menn verði að hafa kraft til að koma hugmyndum sínum í fram- kvæmd og skapa sér aðstöðu, því aðstaðan verði ekki sköpuð fyrir— þá.„Þegar kraftur og orka bætist við mikla hæfíleika, þá ná menn langt. Erró er gott dæmi um slíkan mann.“ Svo hristir Jón Gunnar höfuðið yfir manneskjunni svona yfirleitt og segir: „Við fáum svo slæmt upp- eldi. Frá bamæsku erum við sett inni í kerfi sem Freud, marxistar, nazistar eða kapítalskir „tyrano- saurusar" hafa búið til, og á ekkert skylt við okkar eðli.“ Við eram komin út í pólitík og það væri efni í aðra grein því Jón Gunnar fylgist jafnvel með gangi mála á Kópaskeri og í Kína. En þegar við kveðjumst og ég horfi á eftir þessum mikla lista- manni þar sem hann gengur út í sólina á Bergstaðastrætinu, horfi á þetta sérstaka göngulag hans sem er bæði í senn tiginmannlegt og strákslegt, þá endurtek ég í hugan- um orð hans: Maðurinn þarf að kynnast sjálfum sér. Það fyrsta er að viðurkenna veikleika sinn, skynja sjálfan sig með kostum og göllum.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.