Morgunblaðið - 04.12.1988, Side 9

Morgunblaðið - 04.12.1988, Side 9
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 4. DESEMBER 1988 C 9 ' .úiajuu. Eiik Neilöe ARFURINN , sf,iia9^a. ■' !ki!L-a. . mmi&Htöm Else-Marie Mohr QYLLTU SKÓRMIR < útiiim . ggaaitSL'iiiiaix. Sigge Stdrk ÁST OG ÁTÖK SKUGGSJA ARFURINN Erik Nerlöe Hún er ung og fátæk og ferðast til aldraðrar frænku sinnar til að aðstoða hana í veikindum hennar. Alveg síðan hún var barn hafði hana dreymt um að fá einhvern tíma tækifæri til þess að búa á óðalssetri. Þessir draumar hennar höfðu fengið hana til að gleyma dapurlegri og erfiðri bernsku sinni. Nú virtust óskir hennar mjög óvænt vera að rætast — en ungi maðurinn í draumum hennar elskar aðra . . . GYLITU SKÓRNIR Else-Marie Nohr Móðir hennar var kona, sem var erfið í umgengni, og hugsaði aðeins um sjálfa sig. Og bróðir hennar var eiturlyfjasmyglari, sem eftirlýstur var af lögreglunni. Eitt kvöldið fer hún frá heimili sínu og eftir það fréttist ekkert af henni. Þegar hún sást síðast, var hún klædd hvítum hlíralausum kjól, rneð gula slá og var í gylltum skóm. Lögreglan er á þeirri skoðun, að henni hafi verið rænt af samtökunum, sem bróðir hennar er í. ÁST OG ÁTÖK Sigge Stark Þær höfðu farið upp í selkofa, sem var úr alfaraleið uppi í skóginum. Þær voru dálítið óttaslegnar, því að þær höfðu frétt af því, að snryglarahópur héldi til í nágrenninu. Þær voru taugaóstyrkar, og enn meir eftir að hundur þeirra hafði fundið bakpoka falinn bak við stórarrstein í skóginúm. í bakpokanum var samanvafmn frakki, íjórir elgsfætur og bréfmiði, sem á var skrifað „Miðvikudag kl. 11". En hvað átti að gerast á miðvikudag klukkan ellefu? ÖRLAGAÞRÆÐIR Barbara Cartland Idona Overton hafði orðið furðu lostin, þegar hún komst að því, að faðir hennar hafði, áður en hann var drepinn í einvígi, tekið þátt í veðmáli. Og það sem hann hafði lagt undir var húseign hans, allt sem í húsinu var — og þar með talin dóttir hans. Þetta hafði hann lagt undir í veðmáli við markgreifann af Wroxham. En vegir örlaganna eru órannsakanlegir, og þegar heitar tilfinningar leysast úr læðingi milli tveggja persóna, getur hvað sem er gerst — einnig það, sem síst af öllu var hægt að láta sér detta í hug. . . AÐEINS UM EINA HELGI Theresa Charles Morna, eldri systir Margrétar Milford, hafði tekið fyrstu ást Margrétar frá henni og gifst honum. Og síðan hafði Morna sagt við Margréti: „Gleymdu eiginmanni mínum — og komdu ekki nálægt okkur!" Þetta hafði sært Margréti mikið. Nú var Morna sjúk af einhverri dularfullri veiruveiki og gat ekki hugsað um börnin sín þrjú — og það var erfitt fyrir Margréti að neita hinni örvæntingarfullu beiðni um hjálp. Það er aðeins yfir helgina fullvissaði Margrét hinn góða vin sinn, Hinrik, | um. Það getur nú ekki margt £ gerst á einni helgi. SKVGGSJÁ - BÓKABÚÐ OLIVERS STEINS SF PÉTUR ZOPHONÍASSON VIKINGS IÆKJARÆTT FANGINN OG DOMARINN Þáttur af Sigurdi skurdi og Skúla sýslumanni Ásgeir Jakobsson Svonefnd Skurðsmál hófust með því, að 22. des. 1891 fannst lík manns á skafli á Klofningsdal í Önundarfirði. Mönnum þótti ekki einleikið um dauða mannsins og féll grunur á Sigurð Jóhannsson, sem kallaður var skurdur. en hann hafði verið á ferð með þeim látna daginn áður á Klofningsheiði. Skúla sýslu- manni fórst rannsókn málsins mcð þeim hætti, að af hlauzt 5 ára rimma, svo nefnd Skúla- mál, og Sigurður skurður, sak- laus, hefur verið talinn ntorð- ingi í nær 100 ár. Skurðsmál hafa aldrei verið rannsökuö sérstaklega eftir frumgögnunt og aðstæðum á vettvangi fyrr en hér. VIKINGSLÆKJARÆTTIV Pétur Zophoníasson Þetta er íjórða bindið af niðja- tali Guðríðar Eyjólfsdóttur og Bjarna Halldórssonar hrepp- stjóra á Víkingslæk. Pétur Zophoníasson tók niðjatalið saman, en aðeins hluti þess kom út á sínum tíma. í þessu bindi eru i-, k- og 1-liðir ættar- innar, niðjar Ólafs og Gizurar Bjarnasona og Kristínar Bjarna- dóttur. í þessari nýju útgáfu Víkingslækjarættar hefur tals- verðu verið bætt við þau drög Péturs, sent til voru í vélriti, og auk þess er mikill fengur að hinum mörgu myndum, sent fylgja niðjatalinu. í næsta bindi kemur svo h-liður, niðjar Stefáns Bjarnasonar. ÞORÐUR KAKALI Ásgeir Jakobsson Þórður kakali Sighvatsson var stórbrotin persóna, vitur maður, viljafastur og mikill hermaður, en um leið mannlegur og vinsæll. Ásgeir Jakobsson hefur hér ritað sögu Þórðar kakala, eins mesta foringja Sturlunga á Sturlungaöld. Ásgeir rekur söguna eftir þeim sögubrotum, sem til eru bókfest af honum hér og þar í Sturlungusafninu, í Þórðar sögu, í íslendinga sögu, í Arons sögu Hjörleifssonar og Þorgils sögu skarða og einnig í Hákonar sögu. Gísli Sigurðsson myrjdskreytti bókina. ANDSTÆÐUR Sveinn frá Elivogum Andstæður hefur að geyma safn ljóða og vísna Sveins frá Elivogum (1889-1945). Þessi Ijóð og vísur gefa glögga mynd af Sveini og viðhorfum hans til lífs, listar og sam- ferðamanna. Sveinn var bjarg- álna bóndi í Húnavatns- og Skagafjarðarsýslu á fyrri hluta þessarar aldar. Hann var eitt minnisstæðasta alþýðuskáld þessa lands og þótti mjög minna á Bólu-Hjálmar í kveð- skap sínum. Báðir bjuggu þeir við óblíð ævikjör og fóru síst varhluta af misskilningi sam- tíðarmanna sinna. SKVGGSJA - BOKABÚÐ OLTVERS STEINS SE s mullögyo rnrWEOjI öurn gie njLíI.s) e í nriíjri no .h'uunttl -jod :Jöb dért fn98 I i ,u6óí86b ^o JaoM. ulév imona ðfivd | £<J jsötxtéös öb iv4 lín^öi go muíiia |

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.