Morgunblaðið - 04.12.1988, Side 16

Morgunblaðið - 04.12.1988, Side 16
16 C MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 4. DESEMBER 1988 festu þær að miklu leyti (þótt próf. Nandris sé á öðru máli. I þessum bæklingum er hann hvergi sakaður um að trúa á vampírur. Þjóðhetja í rúmenskum þjóðsögum er dreg- ið úr grimmd Vlads og áherzla lögð á að sýna að hann hafí staðið dygg- an vörð um lög og rétt. Þær virð- ast jafnvafasamar og saxnesku bæklingamir. Algengt var á miðöld-. um að smábændur dýrkuðu skel- egga leiðtoga, einkum ef þeir refs- uðu ríkum stórbokkum. í nýjustu ævisögum Vlads er Veizla vampírunnar: Óvinir stjaksettir og höggnir í spað meðan furstinn snæðir. honum lýst sem krossfara og þjóð- hetju o g því haldið fram að gróusög- ur hinna óánægðu saxnesku kaup- manna hafi valdið því að hann hafi fengið óorð á sig. Roach segir að það sem helzt komi í veg fyrir að hægt sé að taka mark á þessu nýja mati á Vlad sé að dómar samtíðar- manna, sem studdu hann, séu eins tortryggilegir og dómar andstæð- inga hans á sínum tíma. Roach telur ekki að Vlad hafi verið hetja og segir að hann hafi haft litla pólitíska þýðingu. Vilji Rúmenar sýna fram á að einhver leiðtogi þeirra á miðöldum hafi gegnt hlutverki krossfara og strangs þjóðarleiðtoga geti þeir bent á ýmsa aðra en Vlad, t.d. samtímamann hans, Stefán af Moldavíu. En ein helzta skýringin á því að hann hafi orðið mikilvægur í augum rúmensku þjóðarinnar sé baráttan um Transylvaníu. Hann sé talinn eitt bezta vitnið í hinni nýju deilu um héraðið. í nýlegu riti um sögu Rúmeníu segir: „í augum rúmensku þjóðar- innar var Vlad stjaksetjari merki- legur stjórnskörungur og leiðtogi, sem varði sjálfstæði landsins.“ Þeirri kenningu að hann hafi verið glæpamaður er algerlega vísað á bug og því haldið fram að hann hafi verið brautryðjandi, leiðtogi lítillar þjóðar, sem hafi boðið vold- ugri ríkjum byrginn „innblásinn af föðurlandsást og æðstu hugsjónum þjóðarinnar". Hetja Ceausescus Ceausescu forseta hefur verið lýst á svipaðan hátt og hann hefur ýtt undir hið nýja mat á „vampíru- furstanum.“ Að ýmsu leyti virðist Ceausescu telja Vlad fyrirmynd sína sem þjóðarleiðtoga, Conducator. Hann hefur m.a. notað Vlad til að efla andstöðu Rúmena gegn Rúss- um og í einni af mörgum greinum, þar sem reynt hefur verið að hvítþvo Dracula, segir að hann hafi sannað að „raunverulegar framfarir geti aðeins orðið undir einræðisstjórn". Eins og Vlad á Ceausescu í höggi við volduga nágranna og sagan um hann er sögð sýna að stjómvizka sú og réttlætiskennd, sem sagt er að hann hafi verið gæddur, hafi verið nátengd grimmd hans. Aukn- ir efnahagserfíðleikar Rúmena, sem Ieiddu til „matvælaóeirða" í Brasov og víðar í árslok 1987, hafa einnig ýtt undir dýrkunina á Vlad. Á sama hátt og Vlad gerði kennir Ceauses- cu útlendingum um efnahagsvand- ann og vestrænir bankastjórar hafa tekið við hlutverki saxnesku kaup- mannanna. Líklega heldur ástandið áfram að versna og því má búast við að enn meiri áherzla verði lögð á hlutverk Vlads í sögu þjóðarinnar. Rúmenar reyna einnig að græða á áhuga vestrænna ferðamanna á Dracula, þótt þeir séu óánægðir með lýsingu Stokers. Kastala hans hefur verið breytt í safn og hann er vinsæll ferðamannastaður, en sumum kann að þykja að hann sé ekki nógu draugalegur. Ævintýra- höll, sem var reist á ámnum 1976- 1983 á fjaMindi við veginn milli Transylvaníu og Búkóvínu, 50 km frá sovézku landamærunum, er meira í anda Dracula. Staðurinn minnir 'á miðaldavirki og heitir Hotel Tihuta, en gestimir kalla hann Hotel Dracula. Þegar inn er komið blasa við leðurblökur og úlfar á veggjum við flöktandi skin olíulampa. Þeir sem vilja fá að sofa í líkkistum. Hótelklukkan er geymd í líkkistu. Hótelvampíran er er mat- sveinninn Radu Varareanu, sem stekkur upp úr líkkistu til að hræða ferðamennina í „pyntingarklefa“ kjallarans. Til að róa gestina er þeim boðið upp á Dracula-elixír þ.e. eins konar plómubrennivín. Fáir Rúmenar þekkja þennan stað, en útlendingar láta vel af „góðri þjón- ustu“. GULLVÆGBOK FYRIR SUNNLENDINCA SAGA ÞORLÁKSHAFNAR Þríggja binda stórvirki, swnnlensk atvinnu- og menningarsaga gefin ót að frwmkvœði Ölfwshrepps. Bindin nefnast: Byggð og búendwr, Veiðistöð og verslun, Örlög og atbwrðir. Saga Þorlókshafnar er viðamik- ið og margþætt verk, í senn safn þjóðsagna fró Þorlókshöfn, sagn- fræðileg úttekt ó sögu staðarins, þjóðhóttarit um sjósókn fyrri tíma þar sem útgerðarsagan er rakin fró stofnun biskupstóls í Skólholti til loka óraskipaútgerðar 1929, og ævisögurit sögufrægra bænda og sjósóknara í Höfninni. Saga Þorlókshafnar er umfangsmikið verk í íslenskri atvinnu- og menn- ingarsögu. Hún lýkur upp dyrum að heimi löngu genginna kynslóða þar sem þær ganga fram í starfi og leik, blíðu og stríðu, í hvers- dagsleika og ó örlagastundum. sköli h0,gkson Ötiög, ORN OG ÖRLYGUR SIÐUMÚLA 11, SÍMI 8 48 óó

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.