Morgunblaðið - 04.12.1988, Side 25
24 C
MORGUNBLAÐIÐ RISPUR SUNNUDAGUR 4. DESEMBER 1988
MORGUNBLAÐIÐ RISPUR SUNNUDAGUR 4. DESEMBER 1988
C 25
óladómkirkja verður tekin í notkun
að nýju í dag, sunnudaginn 4. desember, eftir endurreisnarstarf síðan í ársbyrjun.
Er nú lokið endurbyggingu innan dyra á kirkjunni sjálfri, en á næsta ári lýkur við-
gerð utan dyra og frágangur aðkomu heim að Hólum. Það er hátíð á Holum í dag
og hátíðarmessa klukkan 13.30, en þótt engar messur hafi verið í kirkjunni síðan
um síðustu jól má með sanni segja að allt það verk sem hefur verið unnið í kirkj-
unni síðan sé ein samfelld guðsþjónusta. í ársbyrjun má segja að kirkjan hafi verið
rústuð að innan, múrhúðun hreinsuð burt og múrhúðað upp á nýtt, gert við skemmdir
í gólfi, veggjum og lofti, rauðgrýti sótt í Hólabyrðu, skipt um glugga, gólf lækkað
og lagt hellum úr Hólabyrðu og kirkjumunir lagfærðir og innrétting endurbyggð
að hluta. Hólar í Hjaltadal urðu biskupssetur Norðlendinga árið 1106 og þar var
bæði skóli og prentverk. Gamla Hólakirkjan sem var á undan núverandi kirkju,
Guðbrandskirkja, var frá 1628 og þar til núverandi Hólakirkja var reist og vígð 20.
nóvember 1783. Einhverjir mestu
helgidýrgripir íslendinga tilheyra
Hóladómkirkju og fá þeir nú á ný þá
umgjörð sem sæmir í einu af höfuð-
bólum kirkjunnar á íslandi. Kostnaður
við þennan hluta endurreisnar Hóla-
dómkirkju er á milli 40 ,og 50 milljón-
ir króna. Morgunblaöið heimsótti
Hóladómirkju í vikunni þegar verið
var að leggja síðustu hönd á endurreisnarstarfið innanhúss. Kristslíkneskið á krossin-
um var komið á sinn stað og nýju gluggarnir með 24 rúðum í stað 12 gjörbreyta
svip kirkjunnar. Kristlíkneskið er eldra en kirkjan sjálf, talið frá 16. öld. Skírnarfont-
ur kirkjunnar var höggvinn í stein 1674 af Guðmundi Guðmundssyni frá Bjarnastað-
arhlíð, en talið er að steinninn hafi borist til íslands frá Grænlandi með borgarí-
sjaka. Minningarkross um Einar Þorsteinsson biskup og Ingibjörgu Gísladóttur konu
hans, hangir nú í kirkjuskipinu miðju milli glugga, en var áður yfir anddyri. Einar
var biskup á Hólum 1692-1696. í kór er nú komin frummynd af Guðbrandi Þorláks-
syni biskup og búið er að hreinsa legsteina biskupanna í kórgólfi Hóladómkirkju
og aðra legsteina svo sem Halldóru Guðbrandsdóttur sem Hóladómkirkja var lengi
kennd viö og kölluð Halldórukirkja. Þegar okkur bar að garði voru séra Sigurður
Guðmundsson vígslubiskup, séra Hjálmar Jónsson prófastur og Björn
Björnsson trésmiður aö taka upp gömul Hólabríkina sem var í Hóladómkirkju
til 1886, en var þá flutt á Þjóðminjasafnið. Nú er þessi 15. aldar alabastursbrík
frá Englandi komin aftur heim að Hólum, en ennþá er unnið að viðgerð á
stóru flæmsku Hólabríkinni sem Jón Arason biskup fékk í kirkjuna, en
báðar töflurnar eru taldar til mestu dýrgripa.
MYNDIR OG TEXTI:
ÁRNIJOHNSEN