Morgunblaðið - 24.12.1988, Page 9

Morgunblaðið - 24.12.1988, Page 9
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 24. DESEMBER 1988 9 IOLAHUGVEKJA Jólin, Davíð, Steinn og þú eftirsr. Þóri Stephensen „Yður er í dag frelsari fasddur, sem er Kristur Drottinn í borg Davíðs." í ofan rituðum orðum er fólgið inntak jólanna. Þau eru ekki ákveðið ástand eða atburður. Dýpst skoðað eru þau persóna. Þau helgast af Kristi sjálfum. Þama eru tvö orð sterkust. Fögn- uðurinn, sem hinn himneski sendi- boði flytur jörðinni og bömum hennar, samkvæmt frásögn Lúk- asar, hann eins og kristallast í þessum tveimur orðum: Frelsari og Drottinn. Hið þriðja orð kem- ur reyndar einnig við sögu: frið- ur, já, friður með þeim mönnum, sem skynja þörf sína fyrir sam- ræmi milli Guðsviljans og manns- viljans. Þegar við vomm böm að aldri glöddumst við ekki síst af hinni ytri dýrð, sem hátíðinni fylgdi. Okkur var þó sagt, að það væri Jesús Kristur sem jólin snemst um. Við vissum það, en skildum það kannski ekki til fulls. Svo þróast þetta þannig, að hinn ytri rammi verður enn hluti af tján- ingu gleðinnar. En við fínnum samt, að við hljótum að leita dýpra. Og þá verða þau fyrir okk- ur þessi kjamaorð: Frelsari og Drottinn. Allt sem heyrir til hinu verald- lega lífí er ófullkomið. Þess vegna fylgja því sjúkdómar, freistingar og margs konar böl, hlutir sem krefjast baráttu af hendi manns- ins. Hann upplifír erfíðleika, sem oft verða þungbærir. En einmitt þar koma jólin inn í. Guði stendur ekki á sama um sköpun sína. Þess vegna sendi hann son sinn í heiminn. Við skildum ekki í gamla daga, það sem þá var svo oft sagt, að Guð gerðist maður. En við skiljum nú, að Jesús var sendur til að taka þátt í kjömm mannanna. Jólin þýða þó ekki, að allt verði fullkomið. Nei, en hann sem ber kærleikskraft himnanna í sér, hann kemur til móts við okkur hvert og eitt þeirra erinda að bjóða okkur hjálp sína. En svo er það spumingin stóra: Hvernig tökum við á móti þeim kærleika, sem að okkur er beint? Viljum við opna honum hús okkar innra manns? Viljum við þiggja, að hann gangi undir byrðar lífsins með okkur? Þegar við gemm það, og setjum allt okkar traust á hann, þiggjum styrk hans og fyrirgefhingu, þá er það reynslan, að miklum byrð- um er af okkur létt. Hann hefur gengið undir þær með okkur, lyft hinum mesta þunga af. Þannig er hann frelsari. Hitt er af öllum viðurkennt, að enginn mannkynsfræðari hefur komið með viturlegri lífsreglur okkur til handa. Guðlegur upprani hans undirstrikar þetta enn frekar fyrir okkur fylgjendur hans. Út frá þessu ætti það að vera auðs- ætt, að hann er Drottinn, sá sem okkur ber að lúta. Því er og ekki stefnt til undirgefni eingöngu, heldur þeirrar farsældar, sem það veldur að lifa í samræmi við Guðs- viljann. Þama er og hinn eini gmndvöll- ur friðar í mannlegu samfélagi. Orðið friður er komið af hinni fomu sögn að frjá, sem þýðir að elska. Þess vegna segir og skáldið frá Fagraskógi: „Þegar allir meiri og minni mega treysta elsku þinni, þá er samin sáttargjörð, frelsið tryggt í fyrsta sinni, friður Guðs á jörð.“ Þessir hlutir segja okkur, að öll friðarbarátta, sem vill vera meira en orðin tóm, hlýtur að heijast með kristniboði. Það kristniboð þarf að sjálfsögðu að beinast jafnt inn á við að eigin siðgæði og andlegum styrk krist- inna þjóða, sem út á við til hinna ekki-kristnu mannfélaga, sem sum heiðra enn endurgjaldslög- málið og tala jafnvel um „heilagt stríð". Jólin hafa verið okkur heilög allt frá bemskutíð. Þau segja okk- ur æ meir, eftir því sem við skyggnum boðskap þeirra betur. Það er svo margt gott meðal þess, sem hinn bamslegi skilningur hefur mótað og skilið.eftir í sálum okkar. Þar em hlutir, sem við lif- um flest á alla ævi til viðbótar öðm því, er aukinn skilningur og þroski bæta við. Mér verður hugs- að til ljóðs eftir Stein Steinar. Hann nefnir það Kvæði um Krist. Steinn dregur þar upp minninga- mynd af tveimur bömum, sem sátu í garðinum, horfðu á sólina hverfa og sáu nóttina koma. Er á líður kvæðið fínnur lesandinn að skáldið er þama sjálft, bam í anda, við hliðina á baminu frá Betlehem. Þeir hvíslast á dreng- imir um fegurstu lejmdarmál heimsins, þegar sólin verður stærri og bjartari en áður og mennimir verða svo góðir við bömin. Steinn segir: „Og'þá verða allir menn svo góðir, sagðir þú, eins og blómin. Og þá þurfum við ekki framar að hrasðast myrkrið, því þá verður aldrei nótt, þegar búið er að frelsa heiminn. Og við sátum í garðinum eitt kvöld fyrir tvö þúsund árum, tvö fátæk böm.“ Steinn lætur tíma og rúm hverfa. Hann sér í Kristi sinn besta bróður og nemur af honum bamslega gleði, þótt vaxinn mað- ur sé. Og hann sér myrkrið hverfa vegna frelsarans, já, bæði myrkr- ið og mannvonskuna. Steinn Steinarr var ekki mikill kirkjunnar maður og ekki trúmað- ur á hefðbundinn hátt. Samt höfð- aði Kristur mjög sterkt til hans og hugsun Steins og kenning vom oft boðberar hugarfars frelsarans. Fáir sáu betur þörfina fyrir breyttan og bættan heim. Við sjáum hana reyndar öll, en hugs- um e.t.v. hvorki út í að útbreiða þá skoðun okkar, né sjáum þann möguleika, að við getum áorkað þar einhveiju sjálf. Samt er það lausnarorð í framkvæmd allra hugsjóna að byija á sjálfum sér. Hversu margar fréttir skyldum við lesa daglega af því, að óham- ingja skapaðist af því að einhver gerði vísvitandi annað en það sem hann vissi að er rétt? Gleymum ekki heldur því sem hér var til vitnað: „Þegar allir meiri og minni, mega treysta elsku þinni þá... Jólin og persóna Krists em iíftengd. Viljir þú gefa öðmm gleðileg jól, þá þarft þú að hafa eitthvað af Kristi í þér og sýna það í verki, hvort heldur við hugs- um til heimsins í heild eða fólks- ins sem næst þér stendur. Hugs- aðu um það, lesandi minn. Reyn- um að gera það báðir, þá munu gleðiieg jól gróa úr spomm okkar og það langt út fyrir þau mörk, sem áðfangadagur og þrettándinn skapa. Guð gefí slíka fagnaðartíð. 0? KAFFI "*í/\STRÆTOt jið nýtt ár á Café Óperu og/eða Kaffi Strætó. á Café Óperu er sem hér segir: ravorður opnar húsið kl. 18. Kl. 8.03: Yfirþjónninn okkar, Marian Zak, býður ykkur velkomin á sinni bjöguðu fslensku og ber fram litríkan iystauka. Pása. Kokkarnir Eiki, Steini og lngi gera sig klára með matinn og bjóða fyrst upp ó laxatartar með vorlauk og japanskri sósu. Pása. Villibráðarkjötseyði með kryddjurtum. Pása. Kofareykt hangikjöt með valhnetum, jöklasalati og vínedikssósu. Pása. Kampavínssorbet Pomsardin. Pása Cekkert stress). Eiki eldsteikir nautalundir úr tuddan- um Flekk frá Kirkjubóli ásamt humarhölum og koníakslagaðri sinnepssósu. Pása Cmuna að tyggja veD. Súkkulaðibolli með ferskum suðfæn- um ávöxtum, vanilluís og IfÞyÓ'r. Pása. Brasilískur baunadrykkur ásamt Camus konfaki og konfekti. Kór matreiðslumanna hússins syngur ættjarðarsöngva Cbara stutta). Skemmtið ykkur á ógleymanlegan hátt á ógleymanlegum stað. Hlé. yT / Allir pæla í hvort þetta sé grímuball Stebbi Pet. leikur kannski á píanóið Cerum að leita að nýjum!) kl. 23.00; Léynigesti kvöldsins ekið að húsinu í lögregiubH ög skilað að notkun lokiipni. Knöll, hattar o.fl.,,^ staðfiui Sem sagt fullt faeði o á aðeins kr. 5 Boroapantanir í símum 29499 og 624045. Ml5ar óskast sóttir í síðasta lagi 30. desember fyrir ki. 17:00.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.