Morgunblaðið - 24.12.1988, Blaðsíða 42
42
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 24. DESEMBER 1988
Stjörnu-
speki
Umsjón: Gunnlaugur
Guðmundsson
Kœrleikur
í dag er aðfangadagur og
upphaf jólahátíðar. Þar sem
frelsari okkar, Jesú Kristur,
var fæddur á jólum og jólin
eru hátíð ljóss og kærleika,
er rétt að viðfangsefni dagsins
tengist þessu efni. Ég ætla
því að fjalla lítillega um kær-
leikann.
Þríþættur kærleikur
Ég tel að kærleikurinn sé mik-
ilvægasta aflið í lífi mannsins
og forsenda þess að við getum
lifað í friði og hamingju. Segja
má að hann sé margslungið
og víðtækt fyrirbæri. Ég ætla
samt sem áður að greina hann
í þtjú stig. Til er kærleikur
sem maðurinn ber til sjálfs
sín, kærleikur sem maðurinn
ber til annarra og kærleikur
mannsins til lífsins. Ég tel að
þetta þrennt verði að fara
saman viljum við lifa sem
hamingjusamir einstaklingar í
heilbrigðum heimi.
Sjálfsvirðing
Það að elska sjálfan sig er
forsenda þess að geta elskað
aðra og vera uppbyggjandi í
lífinu. Þegar talað er um það
að elska sjálfan sig er ekki
verið að tala um sjálfselsku
og eigingirni, heldur fyrst og
fremst það að virða sjálfan sig.
Uppspretta
Við getum aldrei gefið annað
en það sem innra býr. Við
getum tekið dæmi og sagt að
gæði vatnsins sem við drekk-
um mótist af uppsprettu þess.
A sama hátt má segja að ef
sjálfsfyrirlitning er í upp-
sprettu okkar kemur hún allt-
af til með að berast til ann-
arra og ekki síst til þeirra sem
við elskum. Innri óánægja
eitrar útfrá sér.
Uppskera
Ef við ætlum að gefa ást, verð-
um við að hafa einhverja ást
að gefa. Hún verður að búa
innra með okkur. Til að rækta
ástina verðum við að rækta
persónuleika okkar. Ágætt
máltæki segir að við upp-
skerum eins og við sáum. Það
þýðir að við fáum það sem við
gefum. Ef við gefum kærleika,
fáum við kærleika til baka.
Við þurfum hins vegar að vera
meðvituð um þennan einfalda
sannleika. Ég vil því segja les-
andi góður: Ef þér finnst þú
ekki elskaður en þráir ást líttu
þá í eigin barm. Lærðu að
umbera þig eins og þú ert og
elska sjálfan þig. Þá koma
aðrir til með að elska þig.
Heild heimsins
Helsta kenning stjömuspek-
innar er sú að heimurinn sé
ein heild. Velferð heimsins er
því að mati stjömuspekinga
háð því að einstaklingamir
sem mynda heiminn beri virð-
ingu fyrir lífinu í heild sinni.
Við erum öll háð umhverfí
okkar og ástand þjóðfélagsins
í heild varðar okkur öll. Auð-
maðurinn óttast um auð sinn
ef margir eru fátækir og við
göngum ekki áhyggjulaus um
götur borganna ef margir íbú-
ar þeirra eru óhamingjusamir
og reiðir.
Að lifa í kærleika
Kærleikur okkar verður því
einnig að beinast að þeim sem
eru okkur ókunnir. Því þegar
upp er staðið er enginn maður
okkur óviðkomandi. Við þurf-
um því að beina kærleika okk-
ar að heiminum ekki síður en
að okkur sjálfum. Þegar við
getum litið í spegil og sagt:
„ég elska þig eins og þú ert“,
getum gefið vinum pkkar að
drekka af innri brunni ástar
og erum gagnvart vandalaus-
um eins og við viljum að þeir
séu gagnvart okkur, þá fyrst
getum við lifað í kærleika. Ég
tel að slíkt líf sé farsælt og
hamingjuríkt.
AFHVEHM F&t-U&BU þie UKJÞHZ
pilsfauh /hópup pihirUAft/
KOPM'AKUE?
4 PPIHS x/orh1'?! F/UAisr
pee HANN H/EFUR T/L AÞ
RÁÐA PÍKJUM?
/COMDU, ADHMPF/NS.
eUNNADALL/e KANM
APLS/FA MALFRELSI,
FN HÁDRÍKU/e
GREIFI /VUSNOTAF
þAÐ FKBLSÍ-
BRENDA STARR
AF hvepjo\ AF Hve/sxu v/lta 'l"
EFtTU AB> \ KOHUH AL LTAFF/EÐA
SP/LLA SAM- \ sA/HSÓDAe\/ANDA/MÁL
BA/JD/ 1 A ÓHEPPilFGuM ,
OKKAFP / AUG NABL /KUM ?
GJÖR.BU 5 VO
V£L, FPO VAN
GDGH 20-000.
DAuetJlP
I HAF/e þCJ V/LTA/D ELNKALÍF ÁTT-j
‘ 1Rpú ABOFKBA FRA/H/VU -
GTDDUSTÚLKA, EKKU BLABA-
/YtABl/R ! UPP /V!E£> /VIINNIS-
BÓK/N/t !
FERDINAND
Þetta hlýtur að vera skrýtið land ... í hvert skipti sem Brjótast óeirðir út.
þeir kjósa bijótast ólög út — ^ða þannig.
BRIDS
Umsjón: Guðm. Páll
Arnarson
ð
Horfur sagnhafa í tígul-
slemmunni hér að neðan eru all
góðar. Samningurinn vinnst ef
spaðakóngurinn liggur fyrir
svíningu eða ef laufíð brotnar
3-3.
Suður gefur; enginn á hættu.
Norður
♦ 543
•VÁ6
♦ ÁG98
♦ Á764
Vestur
K76
VG10872 IIIIH
♦ 5
♦ G982
Suður
♦ ÁD2
♦ 3
♦ KD10632
♦ KD5
Vestur Norður Austur Suður
— — — 1 tígull
Pass 3 tíglar Pass 3 spaðar
Pass 4 lauf Pass 3 spaðar
Pass 4 lauf Pass 4 grönd
Pass 5 spaðar Pass 5 grönd
Pass 6 lauf Pass 6 tíglar
Pass Pass Pass
Útspil: hjartagosi.
Eins og sjá má, gengur hvort-
ugt eftir. Það þarf þó ekki að
koma að sök ef sagnhafí prófar
möguleikana í réttri röð.
Hann drepur á hjartaás, tekur
tvisvar tígul og trompar hjarta.
Fer svo í laufið. Þegar í ljós
kemur að vestur valdar litinn
verður spaðasvíningin óþörf.
Sagnhafí spilar fjórða laufin og
hendir spaða heima. Vestur er
þó í gamalkunnri klípu. Hann
verður annað hvort að spila frá
spaðakónginum eða hjarta út í
tvöfalda eyðu og gefa þannig
fría trompun og afkast.
Austur
♦ G1098
♦ KD954
♦ 74
♦ 103
SKÁK
Umsjón Margeir
Pétursson
í keppni Sovétmanna við heims-
liðið á Spáni í síðustu viku kom
þessi staða upp 1 síðustu umferð
i viðureign Jóhanns Hjartarsson-
ar, sem hafði hvítt og átti leik,
og Alexander Chernin. Svartur
var síðast fyrir skák með 35. —
Rf6-e8?, en hann gat stýrt fram-
hjá skerinu með 35. — Kg8-h7
og þá haft peði yfir og góða stöðu.
36. Bxf7+! - Kxf7 (Nú tapar
svartur drottningunni, en 36. —
Hxf7, 37. Dxe8+ - Hf8, 38.
Dxf8+ — Kxf8, 39. Re6+ var
engu betra) 37. Rh3+ og hvítur
vann eftir mikinn timahraksbam-
ing. Umhugsunartíminn á skák
var aðeins 25 mínútur og gekk
því á ýmsu, úrslitin réðust oft á
síðustu mínútunum. Sovétmenn
sigruðu á endanum, hlutu 32V2
vinningi heimsliðsins.