Morgunblaðið - 24.12.1988, Qupperneq 37
I
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 24. DESEMBER 1988
37
J é LA-
skákþrautir
Margeir Pétursson
Þrautirnar í ár eru með hefðbundnu sniði, þær fyrstu
eru léttastar, en síðan þyngjast þær jafht og þétt. Það
er þó aðeins fyrsta dæmið sem er mjög auðvelt, tölu-
verð heilabrot þarf til að leysa flest hinna.
Fyrsta dæmið er tekið úr 1.
bindi alfræðibókarinnar, þar sem
fjallað er um peðsendatöfl og er
eftir Búlgarann Nikolai Minev,
sem reyndar er kunnur skákmað-
ur og -kennari, nú búsettur í
Bandaríkjunum.
Annað dæmið er dæmigert
tvíleiksdæmi þar sem finna þarf
fyrsta leikinn. Slík dæmi gæti
auðvitað aldrei komið upp í
tefldri skák og sennilega eiga
vanir meistarar lítt auðveldara
með að leysa slík dæmi en þeim
sem hafa gaman af annars konar
skynsemisþrautum. Dæmið er
eftir A. Dombrovsky frá Letti-
andi og er úr safni fimm
sovézkra skákdæmahöfunda,
sem gefið var út í Moskvu 1985
(Izbrannije kompositzij).
Þriðja dæmið er í sama riti
og nr. 2, það er eftir Rússann
Al. Kuznetsov. Það er lær-
dómsríkt, lausnin byggir á nokk-
uð algengu þema úr riddara-
endatöflum. Það er rétt að minna
lesendur á að ekki er hægt að
máta með tveimur riddurum
gegn berum kóngi andstæðings-
ins.
STÖÐUMYND ffl
Hvítur leikur og vinnur
Fjórða dæmið hefur komið upp
úr tefldri skák, þar tókst hvíti
ekki að finna vinninginn, en það
verður að virða honum til vor-
kunnar að klukkan gekk á hann
og hann hafði ekki þriggja daga
jólafrí til að fínna lausnina. Þessa
skák fann ég í nýrri útgáfu af
bráðskemmtilegri bók enska
stórmeistarans og stærðfræðid-
oktorsins Johns Nunn, „Tactical
chess endings" útgefín af Bats-
ford 1988.
STÖÐUMYND I
Hvítur ieikur og vinnur.
Hvítur leikur og vinnur
Það fímmta er eftir sjálfan
David Bronstein, sem missti af
heimsmeistaratitlinum með
12-12 jafntefli við Botvinnik árið
1951. Bronstein útfærir þarna
eldra þema á afar skemmtilegan
hátt. Það er reyndar með mestu
ólíkindum þegar litið er á stöð-
una að hvíti geti haldið jafntefli,
því það er ljóst að svartur hlýtur
að vekja upp drottningu í næsta
leik hefur þá mikla liðsyfirburði.
Síðasta dæmið er þríleiks-
STÖÐUMYND H
Hvítur mátar í öðrum leik
STÖÐUMYNDV
Hvítur leikur og heldur jafii-
tefli
dæmi eftir Rússana R. Kofman
og L. Loshinsky, fengið úr sama
riti og nr. 2 og 3. Rök venjulegs
manntafls virka ekki á það frem-
ur en í dæmi nr. 2. Það sem
vakir fyrir höfundum slíkra
dæma er einfaldlega að fela
lausnina sem allra bezt.
Skákdæmi eru sá þáttur skák-
arinnar sem er hrein listgrein.
Erlendis eru árlega haldnar
margar keppnir um það hver
semur erfiðasta eða frumlegasta
dæmið, rétt eins og um tónverk,
höggmynd eða ritverk væri að
ræða. Sérfræðingar meta síðan
dæmin út frá nokkurs konar list-
rænum sjónarhóli. Þessi grein
skákarinnar er langmest stunduð
í A-Evrópu og Sovétríkjunum.
Þeir sem hafa gaman af að
fást við slík dæmi og vilja fræð-
ast um þau skal bent á bókina
„Skákdæmi og tafllok“, sem
tímaritið Skák gaf árið 1981. í
því eru fróðlegar greinar eftir
ýmsa sovézka höfunda, þýddar
af Áma Bergmann.
Ég óska íslenskum skákunn-
endum gleðilegra jóla og farsæls
komandi árs.
STÖÐUMYND VI
Hvítur mátar í þriðja leik.
BRANDARASNAUÐIR
BÚFERLAFLUTNINGAR
Beverly Todd og Richard Pryor I hinni mistæku gamanmynd,
Á fullri ferð.
Kvikmyndir
Sæbjörn Valdimarsson
Bíóhöllin:
Á fullri ferð - “Moving“
Leikstjóri Alan Metter. Handrit
Andy Breckman. Tónlist How-
ard Shore. Kvikmyndatöku-
stjóri Donald McAlpine. Aðal-
leikendur Richard Pryor, Be-
verly Todd, Stacey Dash, Rap-
hael Harris, Ishmael Harris,
Randy Quaid. Bandarísk. Warn-
er Bros 1988.
Það segir sína sögu um gæða-
flokk mynda Richard Pryors í
dag, að’ nú fá þær ekki lengur
inni í A sölum kvikmyndahúsa,
enda þessi fomfrægi gamanleik-
ari ekki nema svipur hjá sjón
miðað við uppgangstímana, er
hann var hæst launaðastur þel-
dökkra, (og reyndar flestra ann-
arra), gamanleikara í Vestur-
heimi. Aukinheldur eftirsóttastur
skemmtikrafta, sjónvarpsstjarna
og glæst fyrirmynd ungra, upp-
rennandi starfsbræðra einsog
Eddie Murphy. En Pryor þoldi
ekki velgengnina, fór á bólakaf í
sterk eiturlyf sem næstum gengu
frá honum dauðum. Og nú er
þessi áður einstaki hæfileikamað-
ur svipur hjá sjón. Þó má marka
í þessari brokkgengu mynd gam-
alkunna takta sem lofa góðu, í
bland við vandræðalegt öryggis-
leysið.
En vandinn liggur ekki aðeins
hjá Pryor sjálfum, handritið er
afleitt og vart við hæfí metnaðar-
fullra leikara, hvað þá heldur fall-
inna stjama sem er það lífsspurs-
mál að fá bitastæð hlutverk. Það
sveiflast ólánlega milli farsa og
hádramatískra þátta, frá því að
ná léttum tökum á áhorfendum í
að drabba þá niður í fýlu. Hug-
myndin er alls ekki svo galin en
hroðvirknislega útfærð. Pryor
leikur verkfræðing sem á annann
áratug hefur verið að koma sér
og fjölskyldunni fyrir í glæsivillu
í New Jersey. Allt gengur svo
skínandi vel og snuðrulaust. En
Iflít og hendi sé veifað hrynur
vemduð veröldin, Pryor missir
vinnuna og aðra er ekki að fá
fyrr en eftir langa mæðu, og þá
lengst vestur í landi. Ekki nóg
með það, heldur gengur hreinlega
allt á afturfótunum, flutningamir,
íbúðarsalan og kaupin og nýja
vinnan.
Heljarmikið efni en oft illa
framborið. Sem dæmi um and-
leysi handritshöfundar má geta
prýðilegrar hugmyndar um öku-
þórinn snarruglaða, það er í raun-
inni ekkert gert úr þeim kómísku
möguleikum sem manngerðin
býður uppá. Það er hálf-dapurlegt
að þrátt fyrir góða spretti þá er
það ekki Pryor sem á bestu kafla
myndarinnar, þeir falla í hlut þess
ágæta gamanleikara, Randy Qua-
id. Hann er bráðfyndinn í hlut-
verki hálfóðs nágranna og fyrr-
verandi landgönguliða. Quaid fær
einfaldlega bestu línumar og
kjamsar á þeim. Slík mistök lét
Pryor einnig viðgangast í Brew-
ster’s Millions, þegar Candy stal
senunni. Svona mistök eru dýr,
en vonum að Eyjólfur hressist.
Tæknilega er myndin laglega
gerð, vel tekin og tónlistin til bóta.
REKSTRARSTJORI
Útgerð - Fiskvinnsla
ICECON hefur tekið að sér að hafa railligöngu um ráðn-
ingu á REKSTRARSTJÓRA fyrir viðskiptavin, sem
rekur umfangsraikla útgerð og fiskvinnslu í Chile.
Starfið felst í að hafa yfírumsjón með eftirfarandi:
1. Útgerð þriggja fískiskipa.
2. Stjórnun framleiðslunnar.
3. Viðhaldsþætti fyrirtækisins.
Framleiðsluvörur fyrirtækisins eru fyrst og fremst frosn-
ar fiskafurðir, ræktun lax auk lítilsháttar niðursuðu.
Leitað er að manni, sem hefur a.m.k. 5 ára starfsreynslu
í stjómunarstörfum í sjávarútvegi. Auk þess er krafist
að umsækjandi hafi gott vald á ensku eða spænsku.
Um er að ræða tveggja ára lágmarks ráðningartíma.
Vakin er sérstök athygli á að starfið er mjög krefjandi
og unnið er við framandi aðstæður.
Þeir, sem hafa áhuga fyrir starfinu, vinsamlegast snúi
sér til skrifstofu Icecon þar sem þar til gerð umsókna-
reyðublöð fást afhent.
Skúlagötu 51,3. hæð, Reykjavík.