Morgunblaðið - 24.12.1988, Síða 45

Morgunblaðið - 24.12.1988, Síða 45
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 24. DESEMBER 1988 45 Jón Karl Baldurs son - Kveðjuorð Góður drengur er genginn. Við sem eftir stöndum spyrjum okkur spuminga sem aldrei fást svör við og þó svo væri er ekki víst að það væri þeim huggun sem missa ást- vin sinn. Lífið er ekki til að skilja það, miklu fremur til að sætta sig við og það sama virðist gilda um dauðann. Þó orð séu einskis megn- ug langar okkur að minnast Kalla með örfáum orðum. Allar okkar bernskuminningar em á einhvem hátt tengdar honum, leikir og störf. í okkar huga var Kalli svo mikið náttúmnnar bam með óteljandi hæfileika. Hugmynd- irnar streymdu frá honum og við Grýtubakkakrakkarnir höfðum nóg að starfa. En Kalli var svo ótal- margt. Ábyrgðarfullur frá fyrstu tíð sem sést m.a. á röggsemi hans að taka við búi á Grýtubakka með móður sinni, þá aðeins 16 ára gam- all. Kalli var hrókur alls fagnaðar á gleðistundum og þó leiðir hafi skilið á fullorðins ámm var alltaf jafn gaman að hitta hann á förnum vegi. Hann hafði kraftinn sem smit- aði út frá sér hvar sem hann fór. Góður drengur er genginn, minn- ing hans lifir áfram í hugum okk- ar, alla tíð. Við sendum okkar bestu kveðjur til fjölskyldu hans og annarra að- standenda. Far þú í friði, friður Guðs þig blessi hafðu þökk fyrir allt og allt. Gekkst þú með Guði, Guð þér nú fylgi, hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt. (V. Briem) Steingerður og Snæbjörn Minning: SigurðurKr. Þorbjam- arson, Neðranesi Fæddur 18. mars 1915 Dáinn 5. desember 1988 Sigurður frændi minn lést á heim- ili sfnu að morgni 5. desember sl. Okkur hjónunum brá mjög er við fréttum andlát hans þá um morgun- inn, einkum vegna þess að við höfð- um verið gestir þeirra hjóna kvöldið áður og rætt við þau svo sem venja var er við sóttum þau heim. Hinsveg- ar var öllum ljóst að hann gekk ekki heill til skógar og hafði dvalið um tíma á sjúkrahúsi Akraness nú í vetur. Ég minnist þess frá mínum bemsku og unglingsárum hvað gam- an var að koma að Neðranesi, eink- um vegna þess að þar var alltaf eitt- hvað nýtt að sjá, sem þeir bræður Sigurður og Halldór höfðu smíðað: eftirlíkingar af bílum og vélum ýmis- konar. Þá var ekki síður gaman að fá að fara út á Þverá á bátnum sem ávallt var þar til, því samgöngur frá Neðranesi lágu gjarnan yfir Þverá og út á þjóðveg áður en vegur kom þar heim svo sem nú er. Sigurður var einnig óþreytandi að lesa fyrir mig skrýtlur úr dönsk- um blöðum og enskum sem nóg var til af þar á bæ, því Sigurður var mjög vel að sér um bæði innlend og erlend málefni og las bæði ensku og dönsku, jafnvel þýsku enda hafði hann stundað nám í gagnfræðaskóla í Reykjavík á sínum yngri árum. Sigurður Kristinn fæddist í Neð- ranesi 18. mars 1915. Foreldrar hans voru Þorbjörn Sigurðsson bóndi í Neðranesi og Þórdís Halldórsdóttir Jónssonar bónda á Brúarreykjum. Sigurður var maður prúður í framgöngu, snyrtilegur og smekkvís. Hann var hófsamur í skoðunum, tillögugóður og hlýr í viðmóti og munu menn minnast hans lengst vegna þessara góðu eigin- leika. Hann gegndi mörgum trúnaðar- stöðum fyrir sveit sína: var í hrepps- nefnd, skattanefnd, meðhjálpari og sóknamefndarformaður í Stafholts- sókn og sat marga héraðsfundi. Var virkur félagi á ungmennafélagi Staf- holtstungna og mætti sem fulltrúi á þingum UMSB og var einnig fulltrúi á aðalfundum Kaupfélags Borgfirð- inga. Sigurður tók við þar sem faðir hans lauk sínu ævistarfi 1942 og bætti jörðina að ræktun og húsa- kosti. Nú síðast hafði hann lokið við að byggja íbúðarhús fyrir fáum árum. Hann kvæntist eftirlifandi konu sinni Jórunni Jóhannsdóttur frá Litlu-Fellsöxl í Skilmannahreppi 1943 og voru þau hjón mjög sam- hent í búskapnum og áttu afburða gott bú svo af bar. Neðranes er falleg jörð á bökkum Hvítár og Þverár og var í þjóðbraut áður fyrr vegna vaðs á Hvítá fyrir landi Neðraness og er þessa bæjar oft gerið í fornum sögum vegna þess. Sigurður féll frá við störf sín 5. desember sem fyrr er sagt og hefði því getað tekið undir þéssi orð úr Biblíunni: „Oss ber að vinna verk þess er sendi oss, meðan dægur er, því nótt kemur og enginn getur unnið." Við hjónin biðjum honum guðs- blessunar á þeim vettvangi sem hann starfar nú á og við þekkjum ekki og sendum aðstandendum, konu hans og sonunum Þorbimi og Þóri Gunnari, innilegustu samúðarkveðj- ur. Þorsteinn Sigurðsson ■ Móðir okkar og tengdamóðir. h ÁGÚSTA GUÐMUNDSDÓTTIR THORLACIUS, andaðist fimmtudaginn 22. desember. Birna Thorlacius, Margrét Thorlacius, Gunnlaugur Gunnlaugsson, Ólafur Helgi Ólafsson, Þórhildur Þorleifsdóttir, Björg Thoriacius, Tryggvi Tryggvason, Ólöf Thorlacius, Haraldur L. Haraldsson. t Eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir, afi og langafi, GUNNAR STEINDÓRSSON, fyrrv. tollþjónn, Vesturgötu 19, Keflavík, er látinn. Gunnlaug Jónsdóttir, börn, tengdabörn, barnabörn og barnabarnabörn. t Ástkær eiginkona mín, móðir, tengdamóðir og amma, SIGRÍÐUR KJARTANSDÓTTIR, Engihjalla 19, Kópavogi, verður jarðsungin frá Fossvogskirkju þriðjudaginn 27. desember kl. 15.00. Tryggvi Benediktsson, Þórunn Björk Tryggvadóttir, Reynir Þór Ragnarsson, Kjartan Tryggvason, Gyða Dröfn Tryggvadóttir, Árni Magnússon, og barnabörn. t Útför fööur okkar, tengdafööur, afa og langafa, SIGURÐAR EINARSSONAR frá fvarsseli fyrrv. vörubflstjóra, Laufásvegi 10, er lést í Landspítalanum að morgni 17. desember, veröur gerð frá Dómkirkjunni miðvikudaginn 28. desember kl. 15.00. Helgi Sigurðsson, Elín Hildur Sigurðardóttlr, Ómar E. Ólafsson, Elvar Sigurðsson, Guðrún Jóna Jóhannesdóttir, Einar Sigurðsson, Hörður Sigurðsson, barnabörn og barnabarnabarn. Minning: Guðrún Kemp Þegar ég sá myndina af Guð- rúnu minni Kemp í minningargrein um hana í Morgunblaðinu þá hrökk ég nokkra áratugi aftur í tímann. Rétt er að taka fram að Guðrún var Pálsdóttir og fædd og uppalin hér í Reykjavík, en fluttist vestur um haf og þar tók hún upp nafn maka síns, Kemp, við giftingu og síðar seinni maka, Crosier, sem hún lifði, en dáði svo, að hún gat sjaldan orða bundist ef á hann var minnst. Árið 1948 stofnaði Guðrún fyrstu AA-deildina hér í Reykjavík. Hún hafði kynnst hreyfíngunni fyrir vestan og sem góður íslend- ingur vildi hún reyna að kynna löndum sínum það sem hún taldi sig hafa fundið dýrmætast í nýja heiminum. En framtak Guðrúnar koðnaði niður nokkuð fljótlega eft- ir að það hætti að njóta forystu hennar, og þessi þáttur í menning- arlífi okkar lá svo niðri þar til annar Islendingur, sem einnig hafði flutt búferlum vestur um haf, kom til gamla landsins og tókst að gróðursetja AA-tréð í það ftjóan jarðveg að það náði að festa rætur. En þætti Guðrúnar var ekki þar með lokið í gróðursetningunni, því hún kom ár eftir ár og leiðbeindi okkur og ég tel að það sé henni mjög mikið að þakka, að AA hélt sér við jörðina og s[app fram hjá þeim hættum að verða að stofnun eða fyrirtæki og lenda í samkeppni við alla hina sem líka vilja bjarga °g byggja upp heilbrigt fólk. Hlutdeild Guðrúnar í AA á ís- landi verður aldrei metin og verður vonandi aldrei gerð tilraun til að meta hvorki hlutdeild hennar né annarra sem þau mál gera að sínum, en mér gaf hún þann skiln- ing á drykkjuskap og alkóhólisma sem enst hefur mér fram að þessu og hefur orðið mér styrkur til að gera mér ljóst að drykkjuskapur er viðráðanlegt fyrirbæri, en alkó- hólismi afleiðing sem maður situr uppi með, en er langt frá því að þurfa að vera nokkrum manni fjöt- ur um fót. Blessuð sé minning þessa góða íslendings, sem nú hefur verið grafínn fjærri ættjörð sinni, en sem var svo heppinn að vera kjörinn verkfæri Guðs til að ryðja hinum óþekkta meðbróður leið til betra lífs. Steinar Guðmundsson t Móðir okkar, tengda- og fósturmóöir, amma og langamma, SESSEUA KRISTÍN HALLDÓRSDÓTTIR, Grænumörk 3, Selfossi, verður jarðsungin frá Selfosskirkju þriðjudaginn 27. desember kl. 13.30. Jónas Magnússon, Aðalbjörg K. Haraldsdóttir, Halldór Magnússon, Erla G. Kristjánsdóttir, Ragnar Reynir Magnússon, Guðleif Sveinsdóttir, Ragnheiður Jónasdóttir, Pálmar Vfgmundsson, barnabörn og barnabarnabörn. t Þökkum auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og útför fósturson- ar míns, sonar, bróður og fósturbróður, ÞORSTEINS BRYNJÓLFS PÉTURSSONAR bónda, Ytra-Felli, Dalasýslu. Halldóra Ingirfður Ólafsdóttir, Pétur Ólafsson, Jóhann G. Pótursson, Ólafur Pétursson, Einar G. Pótursson, Agnes Pótursdóttir, Björgvin H. Kristinsson. t Þökkum innilega auðsýnda samúð og vinarhug við andlát og út- för móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu, JÓNÍNU ÁSMUNDSDÓTTUR frá Vffilsnesi, Háagerði 59, Reykjavfk. Guð blessi ykkur öll og gleðilega jólahátíð. Sigrfður Júlfusdóttir, Sigurgísli Eyjólfsson, Sólveig Ása Júlíusdóttir, Steinar Freysson, Þorbjörg Júlfusdóttir, Þórólfur Magnússon, Frímann Júlíusson, barnabörn og barnabarnabörn. Þökkum innilega auðsýnda samúð og vinarhug viö andlát og útför STEFÁNS GUÐMUNDSSONAR, Lækjarfit 6, Garðabæ. Sigurlaug Stefánsdóttir, Sveinn Viöar Stefánsson, Heiða Sólrún Stefánsdóttir, Guðmundur Stefánsson, Guðný S. Stefánsdóttlr, Kristrún Sveinsdóttir, Jóhannes Hjaltested, Sigrföur Brynjólfsdóttir, Jón Sigfússon, Unnur Jóhannsdóttir, Hörður S. Hrafndal og barnabörn.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.