Morgunblaðið - 24.12.1988, Qupperneq 47
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 24.: DESEMBER 1988
47
Búa íslenskar sjúkrastofnanir
við öryggisleysi í raforkumálum?
eftirJóhann
Þórðarson
Þann 16. október sl. varð raf-
magnslaust í Reykjavík og víðar
vegna bilana í leiðslum frá orkuver-
um. Þegar slíkt kemur fyrir, sem
við megum alltaf búast við að geti
hent, þá koma upp alls konar vand-
ræði, þar sem stór hluti af allri
starfsemi byggist á notkun raf-
magns. Til að verða ekki fyrir alvar-
legum áföllum vegna þessa, hafa
einstaklingar og fyrirtæki komið sér
upp varaafli til að taka við raf-
magnsframleiðslunni og þá með
keyrslu á vélum sem eiga sjálfkrafa
að taka við, þegar aðstreymi raf-
magns rofnar.
Slíkt varaafl mun eiga að vera
tiltækt á sjúkrastofnunum m.a. til
að fyrirbyggja stöðvun á mikilvæg-
um tækjum, sem notuð eru á stofn-
unum þessum og þá lögð rík áhersla
á að rafstöðvar þessar séu í lagi
þegar þörf verður á.
Þegar umrædd bilun varð 16.
október sl. fór rafstöð sú, sem Borg-
arspítalinn í Réykjavík hefur, ekki
í gang. Skömmu eftir að atburður
þessi gerðist kom viðtal í ríkisút-
varpinu að mig minnir við starfs-
mann, sem hafði með þessa rafstöð
að gera. Gaf hann þá skýringu á
þessari bilun að vélin hefði ekki náð
upp olíuþrýstingi. Þessi skýring
starfsmannsins kom mér þannig
fyrir sjónir að vél þessi hlyti að
vera orðin það slitin að olía inn á
slitfleti vélarinnar væri þrýstings-
laus. Ég tel því að allir sem ein-
hveija þekkingu hafa á vélum
mundu álíta að vél í þannig ástandi
geti á engan hátt verið gilt öryggis-
tæki.
Frekari skýring á þessum atburði
kom svo fram í Morgunblaðinu 24.
nóvember sl. undir fyrirsögninni
„Gömul vararafstöð uppfyllir ekki
kröfur um öryggi“.
Ég varð alveg furðu lostinn, þeg-
ar ég las og heyrði fréttir af þessu
atviki og ég hygg að svo hafi orðið
um fleiri.
í tilvitnaðri frétt Morgunblaðsins
er vitnað til bréfs framkvæmda-
stjóra Borgarspítalans til borgar-
ráðs vegna fyrirspumar þar. Þar
er þess getið að vararafstöð þessi
sé 500 kw díselstöð af rússneskri
gerð og sú eina sinnar tegundar
hérlendis. Einnig er bent á að í 24
skipti, sem nota þurfti vélina á
undanfömum árum, hafi hún í 5
skipti bmgðist.
Af þessu sést að framkvæmda-
stjóranum hefur verið það vel kunn-
ugt hversu lélegt tæki var hér not-
að eða átti að nota í neyðartilvikum.
— Vélin fór sem sagt ekki gang í
rúmlega fímmta hvert skipti, sem
nota átti hana —. Hvað kemur til
að við þurfum að búa við ástand
sem þetta og hvemig stendur á að
ekkert hefur verið gert?
Nú er það ljóst að mikið af tækj-
um, sem notuð em á sjúkrahúsum
til að halda lífínu í sjúklingum og
tækjum sem notuð em við aðgerðir
á sjúklingum, ganga fyrir raf-
magni, þannig að lífí fjölda fólks
er stofnað í hættu með því að hafa
slíkt falskt öryggi, sem gömul og
slitin rafstöð er og við þetta hefur
verið búið í áraraðir, sbr. tilv. frétt.
Tilvitnuðu bréfí framkvæmda-
stjórans fylgdi umsögn yfírlæknis-
ins á svæfinga- og gjörgæsludeild,
þar sem yfírlæknirinn lætur þess
getið að aldrei hafi komið til þess
að tjón hafi hlotist af því að vararaf-
Afinæliskveðja:
Guðmundur Olafeson
Þann 21. desember varð afí minn,
Guðmundur Ólafsson, hundrað ára.
Hundrað ár em langur tími, heil öld.
Hann hefur lifað margar breytingar
og tekið þeim með aðdáunarverðu
æðmleysi.
Guðmundur fæddist í Króki, Ása-
hreppi, Rangárvallasýslu, árið 1888.
Foreldrar hans vom Ólafur Gunn-
laugsson bóndi og kona hans, Guðrún
Magnúsdóttir. Afí var yngstur fjög-
urra systkina. Árið 1915 giftist hann
Guðrúnu Gísladóttur frá Árbæjar-
helli í Holtum. Þau eignuðust 14
böm sem öll em á lífí nema eitt er
lést 1977. Reynum að hverfa í hug-
anum aftur tii þess tíma þegar afí
var að ala upp stóra bamahópinn
sinn. Húsakynni vom þá léleg að
okkar mati sem emm ung í dag,
þvotturinn þveginn í höndunum, allur
matur búinn til heima, samgöngur
erfiðar og sem merki um það gekk
afi oft austan frá Króki og suður
með sjó. Já, aðstæður hafa breyst
mikið, iðnbyltingjn, örtölvubyltingin
og svo má ekki gleyma því að
íslenska þjóðin hefur hlotið sjálfstæði
sitt á þessum tíma, það er ekki lengra
síðan. Okkur unga fólkinu hættir til
að taka því sem sjálfsögðum hlut.
Konu sína missti afí árið 1935 frá
stóra bamahópnum sem var á aldrin-
um 3 ára til tvítugs. Amma var að-
eins 45 ára þegar hún dó. Afi og
bömin bjuggu áfram í Króki þó að-
stæður væm erfíðar. Þau minnast
þess þó ekki að hafa liðið matarskort.
Árið 1955 fluttist hann til
Reykjavíkur og hefur búið síðan á
Kaplaskjólsvegi 37, hjá syni sínum,
Ólafí Guðmundssyni, og konu hans,
Jóhönnu Kristjánsdóttur. Hann vann'
hjá Bæjarútgerð Reykjavíkur í 17
ár en lét af störfum 84 ára gamall.
Afí er mjög em og er gaman að
spjalla við hann því minnið hefur
ekki bmgðist honum þó sjón og heym
sé farin að bila. Ég hef ekki náð að
kynnast afa mínum mjög mikið en
ég hef kynnst honum í gegnum frá-
stöðin fór ekki í gang, en því sé
eingöngu að þakka árverkni og
snarræði hjúkmnarfræðinga deild-
arinnar. Að sjálfsögðu er þetta
huggun harmi gegn og ber að þakka
þessu fólki fyrir sinn dugnað. Ég
vildi hinsd vegar ekki þurfa að vinna
við slíkt öryggisleysi og ég hygg
að svo muni vera um fleiri.
Ég vil samt draga í efa að ár-
vekni og snarræði starfsfólks í bil-
anatilfellum dugi til, þegar mikill
fyöldi hjálpartækja stöðvast vegna
rafmagnsleysis, þó starfsfólk hafí
fullan vilja, árvekni og dugnað til
að bregðast við slíkum vanda. Auk
þess sem mér hefur skilist að starfs-
lið sjúkrahúsa sé í lágmarki.
Hér er því um að ræða mjög svo
alvarlegt mál sem verður að leysa
— við vitum ekki hvenær stóra slys-
ið verður —, hver verður þá fómar-
lambið — verður það þú lesandi
góður eða þínir nánustu?
Þó að við séum nú að ræða um
Borgarspítalann, þá er enginn kom-
inn til með að segja að ástandið sé
betra hvað þetta snertir á öðmm
sjúkrastofnunum um land allt. Það
er ekki forsvaranlegt að jrfírmenn
heilbrigðismála stingi höfðinu í
sandinn, þegar við svo alvarlegan
vanda er að etja.
í fískeldisstöðvum taka stjóm-
endur þeirra ekki í mál að hafa
ekki tvöfalt öryggi, ef rafmagn
bregst og þá, hafðar tvær vélar frek-
sagnir og sögur sem móðir mín, Sigr-
ún, hefur sagt mér. Móðir mín er
yngst í systkinahópnum og held ég
að afí hafí þess vegna tekið hana
undir sinn vemdarvæng. Hann átti
það til að koma á hesti á móti
mömmu þegar hún var ein á leið úr
skólanum, hún var jú yngst og hafði
því ekki samfylgd eins og hin höfðu
haft. Þetta finnst mér lýsa vel hans
innri manni. Afí hefur þurft að þola
margar raunir og þá einna stærstu
þegar hann missti konu sína frá
bamahópnum. En afi hélt hópnum
saman þó stór væri.
Afí gerði sér ekki vonir um að lifa
svona lengi og sagði eitt sinn að
hann skildi nú ekkert í Guði að láta
sig lifa svona lengi, hann hafí jú
bara beðið um að fá að koma bömum
sínum til manns.
Kæm ættingjar, ég man þá tíð
að við hópuðumst saman einu sinni
á sumri og fómm í svokallað fjölskyl-
duferðalag, ég er viss um að við
myndum öll hafa bæði gagn og gam-
an af að taka þann sið upp aftur.
Fjölskylda okkar er stór og ég er
stolt af því að tilheyra henni. Treyst-
um fjölskylduböndin.
Lifíð heil.
Guðrún Ólafedóttir
ar en ein, þannig að framleiða má
rafmagn með hálfum afköstum, ef
önnur vélin kynni að bila. Þannig
að nauðsynlegustu tækin stöðvist
ekki, þó úr rafmagnsframleiðslunni
dragi og töflukerfi byggt upp í sam-
ræmi við það.
Skipulega er svo að því staðið
að kanna hvort vélar þessar em í
lagi og tiltækar og í fullu standi til
að taka við rafmagnsframleiðsl-
unni, þegar þörf verður á.
Miðað við það sem ég hef rakið
hér að framan virðist vera að stjóm-
endur heilbrigðismála meti stöðuna
þannig að viðunandi varaafl til raf-
orkuframleiðslu hafí ekki eins mikið
gildi fyrir sjúkrastofnanir eins og
sijómendur laxeldisstöðva meta það
fyrir eldisstöðvar sínar.
Það er erfítt að skilja slíkt mat,
þegar um líf eða dauða fólks er að
ræða.
Varla er þörf að minna á að við
búum í landi þar sem jarðskjálftar,
eldgos, snjóflóð og þess háttar nátt-
úruhamfarir geta dunið yfír okkur
án fyrirvara, en samfara slíku má
oftast búast við því að bilanir á
orkuvemm verði svo og að leiðslur
þaðan rofni. Reikna má með, að
þegar þess háttar náttúruhamfarir
verða, verði ótiltekinn fjöldi fólks
fyrir slysum. Óhugnanlegt er þá til
þess að hugsa að sjúkrastoftianir
verði þá jafnframt óstarfhæfar
vegna rafmagnsskorts.
Jóhann Þórðarson
„Eg varð alveg- fiirðu
lostinn, þegar ég las og
heyrði firéttir af þessu
atviki og ég hygg að svo
hafi orðið um fleiri.“
Ég vil að lokum beina þeim til-
mælum mínum til alþingismanna
okkar að þeir taki sig til og eyði
einhvetju af sínum dýrmæta tíma
í að ræða þessi mál á Alþingi og
sjái til þess að þeir þættir öiyggis-
mála, sem ég hef Ijallað um hér
verði kannaðir um allt land og það
lagað, sem lagfæringa þarfnast og
það strax, svona mál þola enga bið.
Ég vænti að þú lesandi góður sért
mér sammála í þessu efni. Við
megum ekki bíða eftir því að stóra
slysið verði.
Höfundur er hæstaréttarlögmað-
ur í Reykjavík.
• J-0 r
a
LT.V---V.
á/n/M óem e/'ad uJa.
©
riTÖLVUFRÆÐSLAN
Borgartúni 28
r m
BAMBO A ISLANDI
OSKAR OLLUM
BÖRNUM
GLEÐILEGRA
JÓIA
$ VERSLUN ARDEILD