Morgunblaðið - 05.01.1989, Síða 1
64 SIÐUR B
3. tbl. 77. árg.
FIMMTUDAGUR 5. JANUAR 1989
Prentsmiðja Morgunblaðsins
Morgunblaðið/Sverrir
Að áliðnum degi náði eldurinn hámarki og ljóst varð að litlu sem engu yrði bjargað.
Hús Gúmmíviimustofunnar og sex annarra fyrirtækja brann til kaldra kola:
Tjón nemur hundruðum milljóna
Gúmmívinnustofan á Réttar-
hálsi, ásamt viðbyggingu, húsi
þar sem sex fyrirtæki voru með
starfsemi, brann til kaldra kola
í gærdag. Erfitt er að áætla tjón-
ið af völdum þessa eldsvoða en
talið ljóst að það nemi hundruð-
um milljóna.
Viðar Halldórsson framkvæmda-
stjóri Gúmmívinnustofunar segir að
tjón fyrirtækisins sé ekki undir 200
milljónum króna. Kristinn Ó. Guð-
mundsson forstjóri Húsatrygginga
Reykjavíkur segir að lauslegt mat
á báðum fasteignunum nemi nokk-
ur hundruð milljónum króna.
Eldsins varð vart um kl. 15.
Slökkviliðið var komið á staðinn um
7 mínútum síðar en er þeir fyrstu
sáu hvers eðlis eldsvoðinn var, var
stórútkall sett í gang og beðið um
aðstoð frá Reykjavíkurflugvelli og
Hafnarfírði. Mikið magn eldfímra
efna var í Gúmmívinnustofunni og
slökkviliðið náði ekki tökum á eldin-
um. Rúmri klukkustund eftir að
slökkvistarf hófst logaði Gúmmí-
vinnustofan stafnanna á milli og
síðan braut eldurinn sér leið í gegn-
um þak hússins við hliðina.
Starfsemi var í fullum gangi hjá
Gúmmívinnustofunni er eldurinn
kom upp. Breiddist hann svo hratt
út að nokkrir starfsmenn áttu fót-
um fjör að launa. Aðeins einn þeirra
slasaðist, hlaut minniháttar bruna-
sár. Slökkviliðsmenn stóðu vakt við
húsið í nótt.
Sjá ennfremur baksíðu og
miðopnu.
Frank Carlucci, varnarmálaráðherra Bandaríkjanna:
Líbýsku herþotunum
grandað í sjálfsvörn
Washington, Sameinudu þjóðunum, Túnis. tteuter.
Bandarískar herþotur frá flugmóðurskipinu John F. Kennedy
skutu í gær niður tvær líbýskar orrustuvélar yfir alþjóðlegri siglinga-
leið á Miðjarðarhafi. Frank Carlucci, varnarmálaráðherra Banda-
ríkjanna, sagði, að líbýsku vélarnar hefðu ógnað þeim bandarísku
og verið grandað þegar þær sinntu í engu viðvörunum. Sagði hann,
að málinu væri þar með lokið og tengdist það ekki á nokkurn hátt
þeim ásökunum Bandaríkjastjórnar, að Líbýumenn væru að hefja
eiturvopnaframleiðslu. Gaddafi Líbýuleiðtogi hefúr hótað hefndum
og krafist fúndar í öryggisráði Sameinuðu þjóðanna en talsmenn
ríkisstjórna á Vesturlöndum segjast vona, að atburðurinn dragi eng-
an dilk á eftir sér. Arabaríkin flest hafa hins vegar fordæmt hann.
Carlucci sagði á fréttamanna-
fundi í gær, að atburðurinn hefði
átt sér stað í gærmorgun þegar
flugmóðurskipið John F. Kennedy-
og deild úr Sjötta flotanum hefðu
verið stödd á alþjóðlegri siglingaleið
75 km undan norðausturströnd
Líbýu. Hefði í ratsjá verið fylgst
með tveimur líbýskum herþotum
af MiG-gerð frá því þær fóru á loft
og þar til þær stefndu á miklum
hraða að tveimur bandarískum F-
14-þotum, sem voru í æfingaflugi.
„Bandarísku flugmennimir
reyndu að forðast líbýsku flugvél-
amar. Þeir breyttu um hraða, hæð
og stefnu en líbýsku orrustuþotum-
ar eltu með ógnandi hætti. Þær
vom þá skotnar niður í sjálfsvörn
með fjómm eldflaugum og málinu
er þar með lokið,“ sagði Carlucci
og bætti við, að atburðurinn tengd-
ist ekki ásökunum um, að Líbýu-
menn væm að koma upp eiturefna-
verksmiðju. Tvær fallhlífar sáust
líða til sjávar eftir, að líbýsku þot-
umar vom skotnar niður og líbýsk
björgunarþyrla fór flugmönnunum
til hjálpar.
Líbýustjórn heldur því fram, að
MiG-þotumar hafí verið í eftirlits-
flugi og hefur farið fram á, að
■7-----
Mtöjaröarhaf <;>.K,F,IT
N Syrtu-r
.Trípo.( X To^/
} SÝRLAND
/
y
ALSÍR
f Efnaverk-1
S smiöja
''V
LÍBÝA
Libýu-
eyöimörkin
i;
------ /íé'RA^—
lr«rí cl/nr / <'
\j JÓRDANÍA
. K
IJL. SAUDÍ-
\ ARABIA
Bandariskar
F:14 þotur
skutu tvær
líbýskar
MiG-23
þotur niður
EGYPTA-
LAND
S j
V\
MiG-23
Orrustuþota, smíðuö í
Sovótríkjunum. Áhöfn: 1
F-14
Orrustuþota af flugmóðurskipi
Áhöfn: 2
Heimildir: AP, Jane's Aircraft
KRTN
málið verði tekið fyrir í öryggisráði
SÞ. Sakaði Gaddafi Líbýuleiðtogi
Bandaríkjamenn um hryðjuverk og
hótaði hefndum. Arabaríkin hafa
flest fordæmt atburðinn en ríkis-
stjórnir á Vesturlöndum hafa verið
mjög varkárar í yfírlýsingum
sínum. Sovétmenn vömðu Banda-
ríkjamenn hins vegar við að ráðast
á Líbýu vegna deilunnar um efna-
verksmiðjuna og sögðu slíkt geta
haft alvarleg áhrif á ástandið í al-
þjóðamálum.
Sjá „Augljóst að efnavopn ...“
á bls. 24.