Morgunblaðið - 05.01.1989, Page 4
4
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 5. JANÚAR 1989
Alþýðuflokkur og Alþýðubandalag:
Skiptar skoðanir um fnndar-
herferð flokksformannaiina
Ákvörðun formannanna sjálfra, segir Jón Baldvin
SKIPTAR skoðanir eru innan Alþýðuflokks og Alþýðubandalags um
fundaherferð, sem formenn flokkanna hafa ákveðið að leggja upp í
um landið í þessum mánuði. Fundaherferðin, sem kynnt var í Al-
þýðublaðinu í gær, ber yfirskriftina: Á rauðu ljósi, og á m.a. að leita
þar viðbragða við hugmynd um sameiningu flokkanna og stofha stór-
an jafhaðarmannaflokk á íslandi. Rætt var um þessa fyrirætlun for-
mannanna á þingflokksfundum flokkanna tveggja í gær, og sam-
kvæmt upplýsingum Morgunblaðsins kom þar fram óánægja með að
formennimir skyldu taka þessa ákvörðun án þess að bera hana undir
flokksstofnanir áður, og tekið var fram að herferðin væri ekki á
vegum flokkanna sjálfra. „Ákvörðun um þessa fundi, einn f hveiju
kjördæmi f janúarmánuði, er ákvörðun formanna sjálfra," sagði Jón
Baldvin Hannibalsson formaður Alþýðuflokksins f samtali við Morgtm-
blaðið f gær.
í Alþýðublaðinu í gær sagði að
fyrsti fundurinn yrði á ísafirði 14.
janúar, þá á Akranesi 15. janúar,
19. janúar í Vestmannaeyjum, 20.
janúar á Höfn í Homafirði, 21. jan-
úar á Neskaupsstað, 22. janúar á
Siglufirði, 25, janúar á Akureyri og
28. janúar í Hafnarfirði.
Jón Baldvin segist hafa rætt þetta
mál við flokksmenn sína, „en hvergi
borið það upp til samþykktar né
synjunar í neinum af stofnunum
flokksins. Ef svo hefði verið, væri
um að ræða formlega aðild fiokka
og meiriháttar pólitíska ákvörðun.
Það er sum sé ekki svo," sagði hann.
Jón sagði aðdraganda þessarar
ákvörðunar vera þann að þeir for-
mennimir hefðu rætt þetta í desem-
ber og tekið ákvörðun f fyrradag.
Hann sagði fundarefni eiga að vera
bæði sögulegs efnis í ljósi sameigin-
legs uppruna flokkanna og þróunar
í stjómmálum innan lands og utan
á liðnum árum og áratugum. Einnig
á að ræða stjómarsamstarfið. Hann
kvað samstarf formannanna um
þessa fundi vera í ljósi hverfandi
hugmyndafræðilegs munar á flokk-
unum og bræðrahreyfingum þeirra
erlendis.
„Dálítið stórkarlalegur uppsláttur
í Alþýðiíblaðinu hefur vakið nokkrar
geðshræringar í kring um þetta til-
stand, og óþarfar held ég. Við emm
ekki að fara á þessa fundi til þess
að leggja niður flokka eða stofna
VEÐURHORFUR í DAG, 5. JANÚAR
YFIRLIT í GÆR: Skammt austur af Langanesi er 973ja mb lægð
á hreyfingu norðaustur, en hægfara lægðardrag norðan til á Faxa-
flóa, grynnist heldur. Veður fer kólnandi.
SPÁ: Hvöss noröanátt og snjókoma eða slydda víða um land,
mest þó noröanlands. Frost á bilinu 2—3 stig.
VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA
HORFUR Á FÖSTUDAG: Suðaustanátt um mest allt land. Rigning
eða slydda sunnan- og vestanlands, en þurrt að mestu á Norðaust-
urlandi. Hiti 1 til 6 stig.
HORFUR Á LAUGARDAG: Austan- og norðanátt og dálítil él við
norðurströndina, annars sunnan- og suðvestanátt og allvíöa slydda
eða rigning. Hiti 0 til 4 stig.
VEÐUR VÍÐA UM HEIM
kl. 12:00 í gær að ísl. tíma
Akureyri Reykjavik hni 3 4 vaóur rignlng úrkoma
Bergen 5 rigning
Helslnkl 0 þokumóða
Kaupmannah. 3 þokumóða
Nersserssueq +18 léttskýjað
Nuuk +9 léttskýjað
Osló +1 þokumóða
Stokkhólmur 3 þokumóða
Þórshöfn 7 skúr
Algarve 16 léttskýjað
Amsterdam 3 rigning og súld
Barcelona 3 mlstur
Beriln 9 helðsklrt
Chlcago +12 helðsklrt
Feneyjar 0 þoka
Frankfurt 0 þokumóða
Qlasgow 8 úrkoma
Hamborg 0 þokumóða
Las Palmas 20 léttskýjað
London 11 skýjað
Los Angeles 11 alskýjað
Lúxemborg 2 þokumóða
Madrld 3 þokumóða
Malaga 15 léttskýjað
Mallorca 16 skýjað
Montreal +26 helðsklrt
New York +6 skýjað
Oriando 14 helðsklrt
París 1 rigning
Róm 10 helðsklrt
San Diego 12 skýjað
Vfn +4 snjókoma
Washlngton +1 snjókoma
Winnlpeg +11 skafrenningur
nýjan flokk. Við emm að ræða ný
viðhorf í ljósi breyttra aðstæðna og
spyija spuminga og svara spuming-
um fyrir okkar leyti um það hvort
þessar nýju aðstæður séu til þess
fallnar að greiða götu nýskipanar á
vinstra væng íslenskra stjómmála,"
sagði Jón Baldvin Hannibalsson.
Ekki til hins betra
Karvel Pálmason, fyrsti þingmað-
ur Alþýðuflokksins á Vestfjörðum,
þar sem fundaherferðin á að hefl-
ast, sagði við Morgunblaðið að hann
teldi þessa ákvörðun formannanna
tekna í fljótræði, svona fundaherferð
væri mjög ótímabær og ekki til hins
betra. „Ef menn meina eitthvað með
samvinnu, sammna, þá á ekki að
byija fneð þessum hætti. Auðvitað
verður þá að byija í grasrótinni en
ekki á toppunum," sagði Karvel.
Hann sagðist telja að þetta gæti
valdið togstreitu innan flokksins.
„Ég held að að menn hafi við nóg
að glíma þótt þeir séu ekki að búa
til vandamál innan flokka, og fyrst
og fremst á það við formenn," sagði
Karvel.
Bjami Magnússon, oddviti Al-
þýðuflokksins ( borgarstjóm
Reykjavíkur, sagðist styðja heils-
hugar þessa ákvörðun formanns
Alþýðuflokksins. Hann sagði að-
spurður að hann væri mjög hlynntur
sameiginlegu framboði minnihluta-
flokkanna í borgarstjóm, og hann
hefði lýst þeirri skoðun sinni víða.
Hann sagði aðspurður að það gæti
orðið fyrsta skrefið í átt til tveggja
flokka kerfís í íslenskum stjóm-
málum.
Siguijón Pétursson formaður
framvkæmdastjómar Alþýðubanda-
lagsins, og oddviti flokksins í borgar-
stjóm, sagði að þetta hefði ekki ver-
ið ákveðið á vegum stofnana flokks-
ins, hvorki framkvæmdastjómar né
þingflokks, og því sé herferðin ekki
á ábyrð þessara stofnaiia. Hann
sagðist sjálfur telja að áður en til
slíks verði efnt ætti að ræða það á
flokkslegum grundvelli með hvaða
hætti, undir hvaða formerkjum og í
hvaða tilgjangi svona fundir væru
haldnir, þótt ekki væri hægt að
banna mönnum að mæta á fundi ef
þeir vildu.
Aðspurður um samvinnu flokk-
anna í borgarstjórn sagði Siguijón
að það hefði verið rætt, ekki aðeins
milli þessara tveggja flokka heldur
alls minnihlutans, hvort mögulegt
yrði að bjóða fram sameiginlega einn
lista í næstu kosningum. Það helgað-
ist eðlilega af því að næðu þessir
flokkar meirihluta myndu þeir starfa
saman hvort sem er, auk þess sem
stamstarf þeirra hefði verið mjög
gott á þessu kjörtímabili.
Pálmi Jónsson um flárlagaJ&nmvarpið:
Afgreiösla flár-
laga á sandi byggð
„ÞAÐ liggur nú ljóst fyrir að fjárlagafrumvarpið verður afgreitt
sem marklítið plagg og á sandi byggt. Það vantar raunhæfar forsend-
ur undir allt Qárlagadæmið, það er að segja raunhæfar aðgerðir
ríkisstjórnarinanr til að rétta við stöðu atvinnulífsins,“ sagði Pálmi
Jónsson alþingismaður og fyrrverandi formaður Fjárveitinganefiidar
Alþingis um Qárlagafrumvarpið sem unnið hefur verið að á undan-
förnum mánuðum, en Pálmi á sæti i Fjárveitinganefnd.
Pálmi sagði í samtali við Morgun-
blaðið að eftir gengisbreytinguna
væru komnar allt aðrar forsendur
fyrir fjárlagafrumvarpinu, en ríkis-
stjómin virtist ætla að neita kröfu
um framreikning frumvarpsins á
þessum nýju forsendum nema að
litlu leyti. Pálmi sagði það samdóma
álit allra sem til þekktu að gengis-
breytingin eftir áramótin dygði eng-
an veginn til úrbóta fyrir atvinnulíf-
ið í landinu.
Við aðra umræðu fjárlaga setti
Pálmi Jónsson fram þá kröfu að
lokaafgreiðsla Qárlaga færi ekki
fram fyrr en ríkisstjómin hefði
komið sér saman um stefnu í efna-
hagsmálum, stefnu sem myndi
leysa úr vanda atvinnuveganna.
„Þetta verk er allt eftir," sagði
Pálmi, „og gengisbreytingin sem
þegar hefur verið gerð kemur ekki
einu sinni inn í fjárlagafrumvarpið
á raunsæjan hátt.“
Flying Tigers:
Umboðsfyrirtækið
Flugfax stofiiað
FORMLEGA hefur verið gengið frá stofnun hlutafélagsins Flugfax hf.
i Reykjavík. Stærstu hluthafar þess eru Samson Transport, Palís hf. og
Félag hrossabænda. Flugfax hf. verður með einkaleyfi á sölu flutninga
með Flying Tigers héðan til Japans. Framkvæmdastjóri Flugfax er
Guðmundur Þór Þormóðsson og formaður stjómar Halldór Gunnarsson.
Meginviðfangsefni Flugfax um
þessar mundir er, að sögn forráða-
manna fyrirtækisins, að vinna að
úflutningi á sjávarafurðum héðan til
Japans. I því skyni hefur fyrirtækið
meðal annars verið í sambandi við
umboðsmenn í Japan og fengið birtar
greinar í sérstakri Japansútgáfu
sjávarútvegstímaritsins Seafood Int-
emational til að kynna félagið og
framleiðslu sjávarafurða hér á landi.
Flugfax ætlar sér að eiga sem bezta
samvinnu við flugfélög og hefur þeg-
ar átt viðræður við Flugleiðir um
afgreiðslu véla Flying Tigers í
Keflavík. Hafa þessar viðræður leitt
til viðunandi niðurstöðu að sinni.
Jafnframt eru að hefjast viðræður
við Flugleiðir um samstarf vegna
flugs á Evrópuleiðunum að sögn
Guðmundar Þormóðssonar.
Samson Transport er stærsti hlut-
hafinn í Flugfaxi, en það er stærsta
flutningaþjónusta Danmerkur með
800 starfsmenn þar í landi og skrif-
stofur og umboðsmenn víða um heim.
Hluthafar ( Flugfaxi auk þeirra, sem
þegar eru nefndir, eru Jöklar hf.,
OLÍS hf., Gagnaver hf. og B.J. Trad-
ing hf.