Morgunblaðið - 05.01.1989, Side 12
12
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 5. JANÚAR:Í989
Sólar niegin
Bókmenntir
Erlendur Jónsson
Anna María Þórisdóttir:
KRÆKIBER. 91 bls. Skákprent.
Reykjavík, 1986.
Anna María heldur sig sólar
megin. Hún er líka það sem kona
má síst vera nú á dögum: þýð og
kvenleg. Einu sinni heyrði ég kven-
mann nokkum segja í útvarpi að
hún væri fulltrúi hins þögla meiri-
hluta. Af samhenginu mátti ráða
að það væri ekki sagt til lofs. Þrátt
fyrir það hefur Anna María unnið
sér tiltrú og eignast sinn lesenda-
hóp sem dálkahöfundur. Efni þau,
sem hún tekur fyrir, eru ekki allt-
af stórbrotin. Oftar en ekki er það
hversdagsleikinn sem hún skrifar
um: heimili, fjölskylda, gönguferð
í miðbænum, kannski dálítið ferða-
lag. Dálkar hennar hrópa ekki á
athygli. En þeir eru einkar notaleg-
ir aflestrar vegna þess að þeir eru
í fyrsta lagi ágætlega persónulegir
og í öðru lagi er aldrei vérið að
látast eða sýnast. Ekkert umræðu-
efni er í raun svo smátt að það
geti ekki hrifið hug manns ef talað
er þispurslaust.
í þann mund er Anna María hóf
að rita dálka sína var skipulega
tekið að drífa giftar konur út á
vinnumarkaðinn. Að vera bara
heimavinnandi húsmóðir varð hlut-
skipti sem upp frá því taldist ekki
konu sæmandi. En fáeinar þóttust
ekki eiga heimangengt og þráuð-
ust við, þeirra á meðal Anna
María. Og þá kom eins og af sjálfu
sér að hún gerðist málsvari þeirra
þó baráttumaður verði hún síst af
öllu talin. »Og kannski emm við
einna sjálfstæðustu konumar, við
sem þorum að spyrna fæti við ald-
arandanum,« segir hún í þættinum
Að hugsa heima. Það er hveiju
orði sannara. Lítinn manndóm þarf
til að berast með straumi aldar,
hver svo sem hann er. Og enn
minni til að kyija með í einhveijum
pólitískum samkór sem nær hljóm-
grunni í andartakinu.
Þættir Önnu Maríu eru að því
leyti sjálfhverfir að hún segir mest
frá eigin högum. En það eru ekki
einkamál í orðsins þrengsta skiln-
ingi sem hún ræðir heldur hvers-
dagsleg málefni sem hún — og þar
Anna María Þórisdóttir
VILT ÞÚ SPARA FYRIR ÞIG OG Þin FYRIRTÆKI?
REKSTRARVÖRUR FYRIR TÖLVUR OG PRENTARA
Á STÓRLÆKKUÐU VERÐI.
DISKLINGAR Á ÓTRÚLEGA
GÓDUVERÐI kr. 35,-stk.
MICROLINE 182, 192 193
Almenntverð kr. 850,-
Tilboðsverð kr. 690,-
STAR NL 10
Almenntverð kr. 895,-
Okkarverð kr. 570
OLYMPIA COMPACT
Almenntverð kr. 310,-
Okkarverð kr. 240,-
TOLVU
TfflDIID HUGBÚNADUR
« kJnWH skrifstofutæki
SKEIFAN 17 • 108 REYKJAVlK • SlMI 91-687175
-ement Cartridge Ribbon I
‘*‘l" «Or Mirn
ÞAÐ B0RGAR SIG
AÐGERA
VERÐSAMANBURÐ
51/4"
DOUBLE SIDED
DOUBLE DENSITY
SOFT SECTOR
48 TPI
TOLVU
HEIMSENDINGARÞJÓNUSTA
VDRUR HUGBI
W kfnWIL SKRIFSTOFUTÆKI
SKEIFAN 17 • 108 REYKJAVÍK • SÍMI 91-687175
Tölvupappír-Disklingageymslur-Töjyumýs-Tölvumöppur-Tölvuborð-Hugbúnaður-Mótald
með líka flest fólk af hennar tagi
— er að fást við þá stundina. Og
sé einhver boðskapur í pistlunum
þá er hann sá að maður skuli njóta
líðandi stundar og taka eftir feg-
urðinni hvar sem hana er að finna
en leita ekki langt yfir skammt.
Og eftir á að hyggja: fá aðra til
að njóta með sér!
Auðvitað verður að taka með í
dæmið að Anna María hefur verið
heppin. Bjartar eru minningar
hennar frá bemsku og æsku en
þess háttar getur enginn áunnið
sér fremur en hægt er t.d. að kjósa
sér fæðingarstað eða foreldra.
Ekki hefur hún heldur af þeirri
neyð að segja sem sumir þegnar
þjóðfélagsins búa sannarlega við,
t.d. konur sem raunverulega verða
að bæta fullri vinnu utan heimilis
ofan á sjálf heimilisstörfin og búa
samt við kjör sem vel megandi
borgurum þætti ekki mönnum
bjóðandi. Hún hefur því ekki tekið
þann pól í hæðina að bijóta til
mergjar mótsagnimar í samfélag-
inu, enda vandséð að hve miklu
leyti þær eiga rót í þjóðfélags-
gerðinni sjálfri eða hvað af því
orsakast af brestunum í mannlegu
eðli. Okkur vantar ekki fleiri æsin-
gamál, enda munu lúðurþeytarar
réttlætisins oftar vera að smala
atkvæðum en að bæta hlut bág-
staddra. Hinn, sem segir satt og
rétt frá reynslu sinni er líklegri til
að létta lífíð fyrir öðmm.
Anna María kann vel að leggja
út af annarra orðum og því skal
endað hér með því að leggja dálí-
tið út af orðum hennar sjálfrar,
en hún segir svo í einum þátta
sinna: »Ekki vom gangstéttir í
mínu bernskuþorpi. En ég gekk
aldrei svo eftir aðalgötunni í sól-
skini að ég gætti þess ekki vel að
stíga ekki á strik á vissu svæði,
þar sem skuggi féll af girðingu
með vímeti, sem myndaði hæfilega
feminga fyrir bamsfót að stíga í.«
Ætli þetta sé ekki aðferðin til
að lifa lífinu sem áfallaminnst: að
stíga ekki ofan í skuggana? Því
miður mun sá dagur seint renna
upp að allir kunni fótum sínum
forráð í þeim skilningi? Þættir
Önnu Maríu Þórisdóttur minna þó
á að til þess þarf hvorki ríkidæmi
né virðingarstöðu.
Næturfiðr-
ildi Atla
Heimis í
London
TÓNVERKIÐ „Xanties“ eða
„Næturfíðrildi" eftir Atla Heimi
Sveinsson verður flutt á tónleik-
um í South Bank Center í Lon-
don fimmtudaginn 12. janúar
nk. Það er Iliena Ruhemann
flautuleikari sem flytur verkið
ásamt píanóleikaranum Cather-
ine Edwards. Tónleikarnir eru
liður í tónleikaröð sem ber yfir-
skriftina Ungir listamenn og
tónlist tuttugustu aldarinnar.
„Xanties" eða „Næturfiðrildi"
var samið árið 1975 fyrir Manuelu
Wiesler, sem frumflutti verkið
ásamt Snorra Sigfúsi Birgissyni í
samkeppni ungra einleikara á
Norðurlöndum. Sú keppni fór fram
í Helsinki og unnu þau Manuela
og Snorri til fyrstu verðlauna.
Verkið var flutt nokkru síðar í
Ráðhúsi Kaupmannahafnar þegar
Atli Heimir tók á móti tónlistar-
verðlaunum Norðurlanda. Síðan
hefur verkið verið flutt víða um
lönd af mörgum flautuleikurum.
Uiena Ruhemann er með efnileg-
ustu flautuleikurum á Bretlandi
og hefur unnið til margra verð-
launa. Hún er þekktur einleikari
og kammermúsikus. Nú í janúar
tekur hún við stöðu fyrsta flautu-
leikara í sinfóníuhljómsveit BBC-
útvarpsstöðvarinnar.