Morgunblaðið - 05.01.1989, Qupperneq 18
18
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 5. JANÚAR 1989
Minning:
Agnar Kristjáns-
son forstjóri
Fæddur 18. júlí 1925
Dáinn 27. desember 1988
í dag er jarðsettur góður vinur
okkar, Agnar Kristjánsson. Agnar
var búinn að berjast hetjulega við
veikindi sín um árabil. Hann hafði
oft mætt manninum með ljáinn, en
jafnan borið sigurorð af honum,
enda sagði hann sjálfur að hann
hefði níu líf. Agnar var mjög ein-
lægur í trú sinni og hefur trú hans
vafalaust hjálpað honum mikið í
veikindum hans og gert þau létt-
bærari. Hann var farsæll maður í
starfí og virtur af samstarfsfólki
sínu. Opinn var hann fyrir nýjung-
um í atvinnurekstri, enda ber tækni-
væðing Kassagerðarinnar því
glöggt vitni í dag. Hráefni Kassa-
gerðarinnar er unnin tijákvoða og
hafði Agnar skilning á því að það
sem af er tekið eyðist. Á seinni
árum beindist áhugi hans í ríkara
mæli að skógrækt. Þessu áhuga-
máli sínu gat hann best sinnt í
sælureit sínum í Grímsnesinu. Þar
hefur hann gróðursett fjölda tijáa
og hefur hvert tré fengið sérstaka
umönnun Agnars. Þrastabær í
Grímsnesi hefur verið sælureitur
Agnars og fjölskyldunnar allt árið
um kring. Hann fylgdist af áhuga
með fuglalífínu í Grímsnesinu, sér-
staklega yfír varptímann og sá til
að fyllsta aðgætni væri höfð við
hreiðrin. Ef ungi féll úr hreiðri var
Agnar fljótur að koma til hjálpar.
Það var mikil gæfa Agnars að
eignast Önnu Lilju fyrir konu, sem
hefur staðið við hlið hans í blíðu
og stríðu. Hjá Agnari og Önnu Lilju
hefur alltaf verið gestkvæmt, enda
vinmörg og góð heim að sækja.
Anna Lilja er myndarleg húsmóðir
og gestrisin og mat Agnar það
mikils.
Margs er að minnast á liðnum
árum m.a. frá utanlandsferðum
með Agnari og Önnu Lilju og heim-
sóknum í Grímsnesið.
Góðs drengs er sárt saknað, en
hlýjar minningar munu lifa. Blessuð
sé minning Agnars Kristjánssonar.
Bára og Gunnar
Með Agnari Kristjánssyni er fall-
inn frá kær vinur. Náin kynni okk-
ar hófust fyrir um átta árum, þegar
lánastofnun fékk mig til að gera
úttekt á fyrirtæki hans, Kassagerð
Reykjavíkur hf. Mér er minnis-
stætt, hversu vel hann tók erindi
mínu. Mér varð skjótt ljóst, að hon-
um var einstaklega annt um, að
rekstur fyrirtækisins væri í
hvívetna óaðfínnanlegur.
Kassagerðin hafði þá starfað í
tæplega hálfa öld. Allt frá því er
Agnar var við nám í Verzlunarskól-
anum hafði hann helgað fyrirtæk-
inu starfskrafta sína. Frá föður
sínum, brautryðjandanum Kristjáni
Jóhanni Kristjánssyni, þáði Agnar
að veganesi það lífsviðhorf, að það
væri þarft að vinna að íslenzkum
iðnaði. Agnar var gagntekinn slíkri
hugsjón alla ævi. Uppbygging
Kassagerðarinnar af hálfu þeirra
feðga hlýtur að teljast eitt af stór-
virkjum íslenzkrar atvinnusögu.
Skömmu eftir að kynni tókust
með okkur Agnari bauð hann mér
að taka sæti í stjóm fyrirtækisins
sem eina utanaðkomandi aðilanum.
Með okkur tókst náið samstarf og
vinátta. Sem stjómandi var Agnar
um margt aðdáunarverður. Hann
gjörþekkti allt gangverk fyrirtækis-
ins. Hann var bæði góður mann-
þekkjari og hafði mjög gott lag á
fólki. Nærvera hans ein sér hafði
ávallt mikil áhrif. Hann kom hugsun
sinni til skila í stuttu máli. Reyndar
var eftirtektarvert, hversu vel hann
vandaði málfar sitt. Þeir stjómunar-
hættir, sem Agnar hafði tamið sér,
komu sér vel hin síðari ár, er Agn-
ar varð iðulega að vera fjarvistum
úr fyrirtækinu af heilsufarsástæð-
um. Þá naut hann líka dyggilegs
stuðnings sona sinna, Kristjáns Jó-
hanns og Leifs.
Sem vinur var Agnar alveg sér-
stakur. Góðvild hans, umhyggja og
rausn létu engan ósnortinn. Honum
á ég að þakka margar ljúfar endur-
minningar frá dvöl við fagrar veiði-
ár landsins.
Hetjuskapur Agnars í baráttunni
við þá sjúkdóma, sem á hann heij-
uðu, verður ógleymanlegur öllum,
sem með fylgdust. Minningin um
Agnar verður öllum hjartfólgin. Ég
votta eftirlifandi eiginkonu hans,
Önnu Lilju, Agnari Gunnari og eldri
bömunum þrem innilega samúð
okkar Ingibjargar.
Arni Vilhjálmsson
Agnar Kristjánsson fæddist í
Reykjavík 18. júlí 1925. Hann var
sonur hjónanna Agöthu Dagfínns-
dóttur og Kristjáns Jóhanns Krist-
jánssonar. Faðir Agnars, mikill at-
hafnamaður, var annar af stofnend-
um Kassagerðar Reykjavíkur hf.,
sem síðar meir varð fjölskyldufyrir-
tæki hans. Alla starfsævi Agnars
helgaði hann Kassagerðinni, sem
undir hans stjóm hefur orðið að
traustu stórfyrirtæki. Hann var
góður yfirmaður starfsmanna
sinna, kröfuharður en sanngjam.
Ég lærði fljótlega að kynnast því,
að sá eiginleiki sem Agnar mat
mikils hjá starfsfólki sínu var sá
að geyma ekki til morguns það sem
hægt er að framkvæma í dag.
Agnar var ætíð reiðubúinn að
hjálpa þeim sem til hans leituðu og
þeir voru ekki fáir. Mannlegi þáttur-
inn hefur alltaf verið í hávegum
hafður hjá stjómendum Kassagerð-
arinnar.
Agnar var þrígiftur. Með fyrstu
konu sinni, Unni Símonardóttur,
eignaðist hann þijú böm, þau eru
Kristján Jóhann, Leifur og Agatha.
Hjónaband hans með Grétu Magn-
úsdóttur var bamlaust, en með eft-
irlifandi eiginkonu sinni, Önnu-Lilju
Gunnarsdóttur, átti hann einn son,
Agnar Gunnar. Bamabömin em
níu. Eina systur átti Agnar, Helgu,
sem gift er Bandaríkjamanni og
búsett í Arizona.
Ifyrir nokkmm ámm veiktist
Agnar og eftir það hafa sjúkrahús-
legur verið nær því óteljandi. Þetta
hafa verið ákaflega erfíð ár, ekki
sízt fyrir Önnu-Lilju, sem alla tíð
hefur sýnt óbilandi kjark, þegar á
móti hefur blásið. Hún hefur verið
í senn ástrík eiginkona og fómfús
hjúkmnarkona, sem alltaf var
reiðubúin að sinna hveiju kalli.
Nú er góður vinur horfínn eftir
langa og stranga baráttu. Agnar
fékk að dvelja á heimili sínu með
fjölskyldunni aðfangadag jóla en
var síðan fluttur aftur á sjúkrahús
þar sem hann lézt þ. 27. des. sl.
Ég votta Önnu-Lilju og öðmm að-
standendum samúð mína.
Að eilífðarljósi bjarma ber
sem brautina þungu greiðir,
Vort líf, sem svo stutt og stopult er
það stefnir á æðri leiðir.
Og upphiminn fegri en auga sér
mót öllum oss faðminn breiðir.
(E. Ben.)
Ég kveð Agnar Kristjánsson með
virðingu.
Edda Eiríksdóttir
Vorið er liðið, ilmur ungra daga
orðinn að þungum, sterkum sumarhita.
Æskan er horfin, engir draumar lita
ókomna tímans gráa sinuhaga.
Þannig kveður góðskáldið Jó-
hann Siguijónsson í frægri sonn-
ettu. Og þessar línur komu mér í
hug, er ég frétti lát vinar míns,
Agnars Kristjánssonar. Hann and-
aðist á Landspítalanum aðfaranótt
þriðjudagsins 27. desember síðast-
liðins, eftir skamma legu þar; hafði
lengi háð hetjulega baráttu við erf-
iðan og banvænan sjúkdóm.
Agnar fæddist í Reykjavík hinn
18. júlí 1925, sonur merkishjónanna
Agöthu Dagfínnsdóttur, húsfreyju,
og Kristjáns Jóhanns Kristjánsson-
ar, forstjóra Kassagerðarinnar.
Kristján var hálfbróðir síra Sigurð-
ar Pálssonar, vígslubiskups á Sel-
fossi.
Ævi þessa dugmikla athafna-
manns var merkt bæði skini_ og
skúrum, Ijósi og skuggum. Árið
1944 er hann staddur um borð í
Goðafossi, þegar skipið er skotið
niður. Hann er aðeins nitján ára
að aldri, þegar þetta gerist. Sama
árið missir hann elskaða móður
sína. Og lengi hefur Agnar barist
við örðuga sjúkdóma, þar sem vant
var að sjá, hvort yrði ofan á: lífið
eða dauðinn.
En Agnar var eindæma kjark-
maður, fjarskalega vinnusamur og
fylginn sér, átti enda velgengni að
fagna í atvinnurekstri sínum. Hann
rak fyrirtæki sitt af mikilli festu,
en jafnframt af aðdáanlegri lipurð,
enda mjög bóngóður og samvinnu-
þýður ávallt — og mikill vinur vina
sinna. Þá var því viðbrugðið, hve
góður Agnar var og mikill höfðingi
heim að sækja. Fóru þar saman
hlýjar móttökur, höfðinglegar veit-
ingar og skynsamlegar viðræður.
Sérstaklega var áberandi hin
hárfína kímnigáfa Agnars, sem
mun ættarfylgja. Sumum gat fund-
ist, að þessi maður hefði átt að
vera hættur að koma auga á hinar
skoplegri hliðar lífsins. En svo var
nú aldeilis ekki!
Agnar var við nám í Verslunar-
skóla íslands árin 1940 til 1942,
en gerðist eftir það deildarstjóri í
Kassagerð Reykjavíkur, síðar verk-
smiðjustjóri og loks forstjóri.
Eftirlifandi eiginkona Ágnars er
Anna Lilja Gunnarsdóttir, dóttir
Gunnars Jónassonar og Önnu Jóns-
dóttur. Hún var manni sínum mikil
stoð og stytta í veikindunum og var
hann henni innilega þakklátur fyrir
ástríki hennar og umhyggju í hans
garð.
Agnar var trúaður maður, svo
sem margir frændur hans. Hann
leitaði alltaf mikils stuðnings í bæn-
inni — og hlaut hann. Hann fór til
dæmis ekki í nærbol án þess að
signa sig fyrst.
Og nú hefur dauðinn kallað hann,
sá gamli kunningi, sem dokar við
þröskuldinn hjá okkur öllum. Ég
kveð vin minn með söknuði og flyt
ástvinum hans öllum mínar inni-
legustu samúðarkveðjur.
Far þú í friði,
friður Guðs þig blessi,
hafðu þökk fyrir allt og allt.
(V. Br.)
Gylfí Hinriksson
í dag er til moldar borinn Agnar
Kristjánsson, forstjóri Kassagerðar
Reylq'avíkur. Hann fæddist í
Reykjavík 18. júlí 1925. Agnar var
sonur þeirra sæmdarhjóna Agöthu
Dagfínnsdóttur húsfreyju og Krist-
jáns Jóhanns Kristjánssonar fyrrum
forstjóra Kassagerðar Reykjavíkur.
Eina systur átti Agnar, hún lifír
bróður sinn og er búsett í Banda-
ríkjunum.
Lífshlaup Agnars Kristjánssonar
á seinni árum var oft erfítt. Hann
upplifði og háði harða baráttu fyrir
lífi sínu við illvíga sjúkdóma og oft
var tvísýnt um hvort lífíð eða dauð-
inn sigraði, uns yfír lauk. Agnar
var einbeittur persónuleiki og mik-
ill kjarkmaður. Ungur að aldri hóf
hann störf við hlið föður síns við
uppbyggingu Kassagerðar Reykja-
vfkur, sem í dag er eitt af stærri
iðnfyrirtækjum landsins. Eftir lát
fóður síns tók Agnar alfarið við
rekstri Kassagerðarinnar og rak
hana af mikilli festu en jafnframt
lipurð, enda bóngóður og samvinnu-
þýður í alla staði. Hann lét mál iðn-
aðarins mikið til sín taka og sat í
stjórn Félags íslenskra iðnrekenda
til margra ára. Þá átti hann sæti í
stjómum fjölda annarra fyrirtækja.
Kynni okkar Agnars hófust fyrir
12 árum, en þá vorum við báðir
ásamt fjölskyldum okkar að byggja
sumarhús í landi Vaðness í
Grímsnesi. Hann var þá nýkominn
af sjúkrahúsi eftir erfíða sjúk-
dómslegu. Agnar hóf þá þegar að
stunda gönguferðir til að endur-
heimta lífskraft sinn. Hann hafði
mikið yndi af útiveru og voru þær
margar gönguferðimar sem við fór-
um saman, skipti þá ekki máli á
hvaða tíma árs það var, né hvemig
viðraði. Á þessum ferðum okkar lét
hann oft þau orð falla, að kyrrðin,
útiveran og hið ferska loft sveitar-
innar gæfí sér ómældan lífskraft.
Eins og flestum vinum Agnars var
kunnugt, vildi hann dveljast eins
oft og auðið var í unaðsreit sínum
í Þrastarbæ, en svo nefnist sumar-
hús fjölskyldunnar. Eins og áður
hefur komið fram, var Agnar mik-
ill náttúruunnandi, hann hafði mik-
inn áhuga á tijárækt, fylgdist náið
með fuglalífi og stundaði laxveiðar,
dáðist ég oft að elju hans og dugn-
aði, þar sem hann gekk ekki heill
til skógar. Þær eru svo óteljandi
minningamar sem sækja á hugann
þegar ég hugsa um vin minn Agn-
ar. Þær eru hver annarri betri og
heyra til samskipta okkar og fjöl-
skyldna frá því við kynntumst.
Agnar átti því láni að fagna, að
kynnast eftirlifandi eiginkonu sinni,
Önnu Lilju Gunnarsdóttur, fyrir 18
árum. Hún hefur staðið við hlið
manns síns og verið honum mikil
stoð í veikindum hans á undanföm-
um ámm. Þau eignuðust einn son,
Agnar Gunnar, sem nú stundar nám
í Verslunarskóla íslands. Frá fyrra
hjónabandi átti Agnar eina dóttur,
Agöthu, sem búsett er í Reykjavík,
og tvo syni, Kristján og Leif, sem
báðir starfa við Kassagerðina.
Heimili þeirra hjóna Agnars og
Önnu stóð ætíð opið og var þar oft
gestkvæmt enda gestrisni þeirra
með eindæmum. Elsku Anna Lilja
og Agnar Gunnar, á sorgarstundu
kemur fátt annað okkur að haldi
en bænin og því bið ég algóðan Guð
að styrkja ykkur í harmi ykkar og
söknuði.
Ég og fjölskylda mín viljum að
leiðarlokum þakka Agnari fyrir all-
an þann trúnað og hlýju er hann
veitti okkur og aldrei brást.
Blessuð sé minning hans.
Magnús Tryggvason
Einu sinni í jólaleyfi hér heima,
þegar ég var við nám í Toronto í
Kanada, hitti ég Agnar Kristjáns-
son. Þó ég hefði séð hann áður og
átti stutt spjall við hann þá var
þetta viðkynning af allt öðmm toga.
Ég hitti Agnar í fyrirtæki hans,
Kassagerð Reykjavíkur. Líður sú
heimsókn mér seint úr minni. Við-
mót Agnars, hlýja og sérstakur
persónuleiki, sem um leið létti and-
rúmsloftið, er mér sérstaklega
minnisstætt. Agnar hafði einstakan
mann að geyma. Traust hans og
skilningur var með eindæmum.
Hann hafði unun af því sem fátítt
er í dag; að gefa af sjálfum sér.
Það var sama hvenær ég hringdi
eða fór til hans, alltaf hafði hann
tíma. Af hans fundi fór ég ávallt
ríkari vitneskju og fróðleiks. Hann
hafði iriikla hæfíleika til að aðgreina
smáatriði frá öðm því sem meira
máli skipti. Yfírsýn hans var mikil,
var sama hvar borið var niður.
Agnar hafði sínar skoðanir á málun-
um. í umræðum fléttaði hann sam-
an á skemmtilegan hátt alvöm
lífsins og léttleika þess. Stundum
hugsaði ég með mér, hversu
lífsglaður hann væri þrátt fyrir erf-
iða sjúkdóma. Agnar sló því frá sér
og fjallaði um heilsu sína á jákvæð-
an hátt þó að á móti blési.
Fyrirtæki sitt, sem Agnar tók við
af föður sínum byggði hann upp
af alúð og einstökum dugnaði. Hann
var sannur sinni viðskiptahugsjón
sem byggði á því að samspil manna
innan fyrirtækisins væri homsteinn
fyrir velgengni þess. Aldrei heyrði
ég Agnar tala illa um nokkum
mann í sínu fyrirtæki, og hann dró
ekki fólk í dilka enda mannvinur
mikill. Agnar skilur eftir sig merkan
bautastein sem fyrirtækið er, og
afsannar þá kenningu að önnur
kynslóð stjómenda fjölskyldufyrir-
tækja komi fyrirtækjum í koll. Þeg-
ar ég hugsa um þennan einstaka
mann, minnist ég þess sérstaklega,
hversu fallega hann talaði um kon-
una sína, Önnu Lilju. Hann fylltist
lotningu og stolti þegar á hana var
minnst og greinilegt var að þar var
IMYND
HVIRFISCATA 46 SÍMI 621088 I
MODEL MYIMD
ertískusýningarskóli þarsem börn og unglingarlæra:
Framkomu
Hreinlæti
Fataval
Göngu
Tjáningu
Vinna bug á feimni
Aukið sjálfstraust
og fleira og fleira.
Flokkaskipting:
4-6 ára
7-9 ára
10-12 ára
13-14 ára
15-20 ára
Stig 1. Byrjendur, sett upp sýning, tekið próf.
Stig 2. Þyngra stig, snyrtisérfræðingur og hárgreiðslumeistari.
Stig 3. Lokastig, tískuljósmyndari vinnur með módelum.
Modelin fara í myndbandsupptökur fyrir auglýsingar.
Ný námskeið að byrja.
Innritun alla daga í síma 657070 frá kl. 13-17.
Þeir, sem eru að fara á 2. eða 3. stig, tilkynni sig strax.
Síðast komust færri að en vildu.
Afhending skírteina laugardaginnn 14. janúar frá kl. 14-18 á
Hverfisgötu 46, Reykjavík.
VSSA9 E
ttttUI