Morgunblaðið - 05.01.1989, Qupperneq 21
MQPÚUNBLAÐIÐ, FJMMTUDAGUR 5< JANÚAR 198a
21
Erling Ásgeirsson, framkvæmdastjóri Gísla J. Johnsen og Lára M.
Ragnarsdóttir framkvæmdastjóri Stjórnunarfélagsins innsigla sam-
starfið með handabandi. Magnús Ingi Óskarsson; fráfarandi skóla-
stjóri Tölvuskóla Stjórnunarfélagsins og Sjöfii Ágústsdóttir skóla-
stjóri fylgjast með.
Tölvuskólar
sameínaðir
Stjórnunarfélagið og Gísli J.
Johnsen sf. hefja samstarf
TÖLVUSKÓLAR Stjórnunarfélags íslands og Gísla J. Johnsen gengu
til samstarfs um áramótin með því að Tölvuskóli GJJ var ráðinn til
að annast rekstur Tölvuskóla Stjórnunarfélagsins. Tilgangurinn með
samstarfinu er að skapa grundvöll fyrir markvissari fræðslu innan
skólanna, þar sem auðveldara verður að fylgjast með nýjungum og
koma þeim á framferi án þess að hækka námsskeiðsgjöld.
Á námsskrá Tölvuskóla Stjóm-
unarfélagsins og Gísla J. Johnsen
verða 39 námskeið, allt frá byij-
endanámskeiðum upp í námskeið á
stór og flókin hugbúnaðar- og
tölvukerfi, auk sérnámskeiða fyrir
einstök fyrirtæki og stofnanir.
Að baki Tölvuskólanna standa
Stjómunarfélag íslands, sem er
brautryðjandi á sviði tölvufræðslu
og stofnaði fyrsta tölvuskólann hér-
lendis árið 1981, Gísli J. Johnsen
s.f. og Skrifstofuvélar h.f., en bæði
þessi fyrirtæki hafa starfað á sviði
tölvu- og hugbúnaðarþjónustu um
árabil. Starfsmenn þessara fyrir-
tækja og stjórn Tölvuskóla SFÍ
munu kappkosta að námsefnið sé
hagnýtt og henti nemendum hveiju
sinni.
Leiðbeinendur á námskeiðunum,
sem starfa flestir hjá Stjórnunarfé-
laginu, Gísla J. Johnsen eða Skrif-
stofuvélum eru vel menntaðir á sínu
sviði og hafa langa reynslu í tölvu-
fræðslu. Skólastjóri er Sjöfn
Ágústsdóttir.
Fyrstu námskeiðin hefjast mánu-
daginn 9. janúar og fer kennslan
fram í húsnæði Stjórnunarfélagsins
að Ánanaustum 15 í Reykjavík og
hjá Gísla J. Johnsen að Nýbýlavegi
16 í Kópavogi.
Starfsfólk hef-
ur sagt upp
vegna málsins
- segir Ingólfur Guðbrandsson
„ÞAÐ er ekki rétt hjá Ómari Kristjánssyni að hann hafi ekki
móttekið uppsagnir frá öðrum starfsmönnum Útsýnar en Andra
Má Ingólfssyni“ sagði Ingólfur Guðbrandsson í samtali við Morg-
unblaðið i gærkvöldi. „Mér er kunnugt um að Qórir lykilstarfs-
menn ferðaskrifstofunnar hafa sagt upp og óskað eftir að hætta
störfum. Hve margir muni fara er mér ekki kunnugt um, en það
mun koma í ljós á næstu dögum. Einnig munu nokkur af stærstu
fyrirtækjum landsins sem átt hafa öll sín ferðaviðskipti við Útsýn
í áraraðir, hafa tilkynnt ferðaskrifstofunni að þeim viðskiptum
sé nú lokið“ sagði Ingólfúr.
„Ég held að það sem starfsfólki
sárni einna_ mest sé lítilsvirðandi
framkoma Ómars Kristjánssonar í
minn garð og aðdróttanir í garð
Andra Más um að hann hafi „leik-
ið tveim skjöldum" og við feðgar
„setið á svikráðum" sagði Ingólf-
ur. „Starfsfólki og öðrum sem til
þekkja er ljóst að þessar grófu
aðdróttanir eru uppspuni frá rót-
um. Ákvörðun Andra um uppsögn
var tekin samdægurs og enginn
hafði áhrif á þá ákvarðanatöku.
Þær fullyrðingar að Andri hafi
verið farinn að vinna fýrir Ferða-
miðstöðina áður en starfí hans hjá
Útsýn lauk eru einnig uppspuni.
Enginn fundur um starf hans hjá
Ferðamiðstöðinni átti sér stað fyrr
en 31. desember. Þá hafði Andri
tryggt sér far til útlanda að morgni
2. janúar og greitt fyrir úr eigin
vasa. Starf hans hjá Ferðamiðstöð-
inni hefst ekki formlega fyrr en
næsta föstudag."
Ingólfur vísaði því einnig alfarið
á bug að nokknr samningar varð-
andi rekstur Útsýnar hafi verið
fjarlægðir úr húsakynnum Útsýnar
fyrir tilstilli Andra Más eða sitt.
Varðandi það hvort brottför þeirra
feðga mundi kosta Útsýn erlend
umboð sagði Ingólfur að flestir
samningar sem ferðaskrifstofur
gerðu við gististaði og önnur fyrir-
tæki erlendis væru tímabundnir
og giltu til nokkurra mánaða í
senri: Það væri síðan á valdi hvers
fyrirtækis fyrir sig að semja við
aðra aðila að samningstímanum
loknum, enda í fæstum tilfellum
um að ræða samninga með einka-
rétti.
„Þótt Ómari Kristjánssyni hafí
tekist að komast yfir fyrirtæki
mitt og eignast það fylgdi mann-
orð mitt ekki með í kaupunum og
það verður ekki til sölu“ sagði Ing-
ólfur Guðbrandsson.
Viðskiptaráðherra:
Nefhd til að kanna
þróun bankakerfisins
JÓN Sigurðsson viðskiptaráð-
herra hefúr skipað nefiid til að
kanna þróun bankakerfisins og
kostnað við bankaþjónustu hér á
landi undanfarin ár. Þetta er gert
þar sem ýmislegt bendir til að
munur á útláns-og innlánsvöxtum
í bankakerfinu sé meiri hér en i
nágrannalöndunum. Þessi mikli
vaxtamunur eigi sinn þátt í háum
raunvöxtum undanfarin misseri,
segir í frétt frá ráðuneytinu.
I frétt frá viðskiptaráðuneytinu
segir að óhagkvæmni í skipulagi og
rekstri banka og sparisjóða gæti ver-
ið ein skýringin á þessum mikla
vaxtamun. Úrbætur á þessu sviði
gætu því yerið mikilvæg forsenda
raunvaxtalækkunar. Nefndinni er
m.a. falið að kanna hvað hæft er í
þessu og gera tillögur um úrbætur.
Meðal þess sem nefndinni er ætlað
að gera er að kanna þróun vaxta-
munar og bera hann saman við það
sem gerist í nágrannalöndunum.
Ætlast er til að hún skili skýrslu til
ráðherra eigi síðar en 28. febrúar n.k.
í nefndinni eiga sæti Birgir Áma-
son hagfræðingur í viðskiptaráðu-
Foreldra- og kennarafélag Vest-
urbæjarskóla standa fyrir Þrett-
ándagleði föstudaginn 6. janúar.
Hópurinn hittist við gamla skól-
ann klukkan 19.30 og farin verður
blysför að nýja skólanum þar sem
ýmislegt verður til skemmtunar.
neytinu sem verður formaður, Eirík-
ur Guðnason aðstoðarbankastjóri í
Seðlabankanum, Eyjólfur Sverrisson
forstöðumaður á Þjóðhagsstofnun,
Hinrik Greipsson formaður SÍB, Lilja
Mósesdóttir hagfræðingur ASÍ„Ólaf-
ur Öm Ingólfsson forstöðumaður í
Landsbankanum og Sigurður Helga-
son framkvæmdastjóri Björgunar hf.
Blys verða seld við upphaf blys-
fararinnar. Félögin hvetja fólk til að
mæta stundvíslega. Fyrir tveimur
árum héldu þessi samtök Þrettána-
dagleði. Farin var blysför frá gamla
skólanum á nýja skólavöllinn þar sem
tekin var fyrsta skóflustungan að
nýju húsi.
Þrettándagleði í vesturbænum
Byrjum aftur
eftir jólafrí 3. janúar
j
ÞOLAUKANDI OG VAXTAMOTANDI ÆFINGAR
Byrjendur I og II og framhald I
FRAMHALDSFLOKKAR I OG II
Lokaðirflokkar
ROLEGIR TIMAR
Fyrir eldri konur og þær, sem þurfa að fara varlega
liBlliÍÍP
KERFI MEGRUNARFLOKKAR L| Fjórum sinnum í viku
KERFI kk FYRIR UNGAR OG HRESSAR
Teygja-þrek-jazz. Eldfjörugir tímar með léttri jazz-sveiflu
„LOW IMPACK" - STRANGIR TIMAR
Hægar en erfiðar æfingar, ekkert hopp en mikil hreyfing
SKÓLAFÓLK
Hörku púl og svitatímar
NYTT-NYTT
Nýi kúrinn siær ígegnll
28+7
undirstjórn Báru og Önnu
ATH!
KynnHykkur afsiart-
arprógrammokkar.
Keðjuverkandi af-
sláttur fyrir Þæ^
sem eru allan vetur-
inn
Suðurveri, sími 83730 Hraunbergi, sími 79988