Morgunblaðið - 05.01.1989, Page 48
48
MORGUNBLAÐŒ) IÞROTTIR FIMMTUDAGUR 5. JANÚAR 1989
KNATTSPYRNA
KNATTBORÐSLEIKUR
Þrír leik-
menn
Stjörn-
unnar hjá
Spurs
Þrír leikmenn Stjömunnar
æfa þessa viku með Totten-
ham í London. Það em þeir
Valdimar Kristófersson, Ragnar
Gíslason og Loftur S. Loftsson.
Helgi Þórðarson, unglingaþjálf-
ari Stjömunnar, er með strákun-
um og fylgist með þjálfun liðs-
ins.
í fyrra fóm fímm leikmenn á
vegum Stjömunnar til Liverpool
og æfðu með meisturunum. Sú
ferð þótti takast vel og ákvað
stjórn knattspymudeildar að
halda áfram að verðlauna efni-
lega leikmenn.
Steve Davis og l\leal Foulds
heyja einvígi í Reykjavlk
Davis erfimmfaldur heimsmeistari og Neal Foulds ertalinn hans skæðasti keppinautur
TVEIR af bestu knattborðs-
leikurum heims eru vœntanleg-
irtil Reykjavíkur til að heyja
einvígi ísnóker 17. janúar. Ein-
vígið fer fram á Hótel íslandi.
Þetta eru þeir Steve Davis,
heimsmeistari í snóker og Neal
Foulds, sem ertalinn einn efni-
legasti knattborðsleikari
heims. Hann er nú í þriðja
sæti á heimslistanum.
Davis er fimmfaldur heims-
meistari í snóker og er í dag
launahæsti íþróttamaður á Bret-
landseyjum. Hann þénaði rúmlega
88 millj. ísl. kr. á síðasta ári. Fyrir
mánuði varð hann sigurvegari í
World Matchplay og fékk hann litl-
ar 8.8 millj. ísl. kr. í verðlaun.
Davis, sem er 31 árs og ógiftur,
er þegar orðin goðsögn. Elísabet,
drottning, sæmdi hann MBE-orð-
unni 31. október sl., fyrir framlag
hans í knattborðsleik. Þá má geta
þess að Davis, sem safnar hljóm-
plötum (rhythm & blues og soul),
gefur úr hljómplötutímaritið „ Voic-
es from the Shadows
oulds er geysilega efnilegur
knattborðsspilari og er hann
talinn einn skæðasti keppinautur
Davis og er nú þriðji stigahæsti
knattborðsspilari heims. Þess má
geta að hann lagði Davis að velli í
æsispennandi keppni í september
sl. Það má því fastlega reikna með
skemmtilegri keppni þegar þeir
mætast á Hótel Islandi.
Sætum fyrir 500 áhorfendur
verður komið upp. Þeir sem hafa
hug á að tryggja sér miða, geta
fengið þá á flestum knattborðsstof-
um og í Billiardbúðinni Ármúla.
Steve Davls
Neal Foulds
Símar 3540$ og 83033
GAMLIBÆRINN SELTJNES
Hveríisgata 4-62 Tjarnarstiguro.fi.
AUSTURBÆR KÓPAVOGUR
Stigahlíð 49-97 Kársnesbraut 77-139 o.fl.
fltargutilriEftMfe
1 ,4 tonna snóker-
borð frá Englandi
Ekkert verður til sparað til að gera einvígi þeirra Steve Davis og
Neal Foulds sem glæsilegast, þegar þeir keppa á Hótel ísiandi.
Hingað til lands hefur verið flutt 1,4 tonna snókarborð, sem er tólf
feta borð. Sérfræðingar frá Englandi koma sérstaklega til Reykjavík-
ur til að setja borðið upp á Hótel Islandi, þar sem einvígið fer fram.
Borðið verður sett upp á miðju dansgólfí, en gólfíð verður teppalagt
og þar verða sæti fyrir 500 áhorfendur.
FRJÁLSAR / GAMLÁRSHLAUP ÍR
IVIár og Martha
með ný brautarmet
MÁR Hermannsson úr Keflavík
sigraði í Gamlárshlaupi ÍR sem
fram fór á gamlársdag 13. árið
í röð. Setti hann nýtt brautar-
met og varð fyrstur til að
hlaupa leiðina á innan við 30
mínútum. í kvennaflokki varð
Martha Ernstdóttir ÍR langfyrst
og voru reyndar aðeins 12 karl-
menn á undan henni í mark.
Setti hún met í kvennaflokki.
Aldrei hefur verið meiri þátt-
taka í Gamlárshlaupinu en nú.
Og í fyrsta sinn, að því er best
verður vitað, komu fleiri í mark en
lögðu af stað. Ástæðan mun sú að
nokkrir hlupu af stað án þess að
láta skrá sig.
Flestir fremstu hlauparar lands-
ins kepptu enda hlaupið mikilvægur
undirbúningur þátttöku þeirra í
heimsmeistaramótinu í víðavangs-
hlaupum í Stavanger í Noregi 19.
marz nk. Einnig mættu til leiks
lögfræðingar og læknar, húsmæður
og hjúkrunarkonur, forstjórar og
fyrirmenn ýmiss konar. Setti þátt-
taka þeirra skemmtilegan svip á
hlaupið.
Gamlárshlaup ÍR fór fyrst fram
á síðasta degi ársins 1976.
Már hljóp á 29.55 mín., en annar
var Daníel S. Guðmundsson,
USAH á 30.33 mín. Sigurður P.
KORFUKNATTLEIKUR
„Kóngakeppni" á Akureyri
KÖRFUKNATTLEIKSDEILD Þórs á Akureyri hefur ákveðið að
standa fyrir „Kóngakeppni", þar sem eigast við lið 40 ára og
eldri. Mótið verður haldið laugardaginn 25. febrúar næstkom-
andi í íþróttahöllinni á Akureyri. Tilkynna þarf þátttöku fyrir miðj-
an janúar, til Jóns Más Héðinssonar i síma 96-25486 eða Kristín-
ar Jónsdóttur í síma 96-25662.
Morgunblaöiö/Einar Falur
Már Hermannsson
Sigmundsson, FH, var þriðji
(30.39), Ágúst Þorsteinsson,
UMSB, fjórði (30.50) og Jóhann
Ingibergsson, FH, fímmti á 31.05
mín. Martha hljóp á 33.32 mín..
Önnur var Hulda Pálsdóttir, Ár-
manni, 38.44 og Rakel Gylfadótt-
ir, FH, var þriðja á 39.36 mín. í
flokki 16 ára og yngri komu fyrst
í mark Orri Pétursson, UMFÁ, á
35.59 mín. og Þorbjörg Jensdótt-
ir, ÍR, á 40.27 mín.
ÍÞfémR
FOLK
■ TERRY Venables, fram-
kvæmdastjóri Tottenham, vill
fækka leikmönnum hjá liðinu. Nú
eru 39 atvinnumenn með samning
IBHMBMI hjá liðinu, auk
Frá Bob Guðna Bergsson-
Hennessy ar, sem enn er talinn
i Englandi áhugamaður og
Nayim sem er í láni
frá Barcelona. Állir þessir leik-
menn þurfa að fá laun svo þeir eigi
fyrir salti í grautinn og Venables
segir að liðið hafí ekki efni á að
borga öllum þessum leikmönnum
laun. Hann hefur nú ákveðið að
reyna að selja Paul Walsh, sem
Tottenham keypti fyrir 500.000
pund í fyrra. Þá hefur hann einnig
■ hyggju að gera aðra tilraun til að
selja Mitchell Thomas, en hann
neitaði að fara til Luton á síðustu
stundu. Venables hefur hinsvegar
neitað ósk QPR um að fá Chris
Houghton lánaðan í mánuð.
■ ALEX Ferguson, fram-
kvæmdastjóri Manchester United,
vill hinsvegar bæta við hópinn á
Old Trafford. Hann hefur boðið
1,5 milljónir punda í Neil Webb,
frá Nottingham Forest. Ferguson
vill kaupa Webb sem fyrst, svo
hann geti leikið með United í ensku
bikarkeppninni.
■ SHEFFIELD Wednesday
gengur mjög illa um þessar mund-
ir. Gary Megson, einn sterkasti
leikmaður liðsins, segist vera búinn
að fá nóg og vill fara. Alan Har-
per, sem var keyptur frá Everton
í sumar, tekur í sama streng —
segist vera búinn að fá nóg af dvöl-
inni í Sheffield.
■ FRANK McAvennie, sem
hefur verið helsti markaskorari
Celtic, mun ekki leika með liði sínu
næsta mánuðinn. McAvennie
handleggsbrotnaði í leik Celtic
Segn Rangers á þriðjudaginn.
I SERGEI Baltasja, sovéski
landsliðsmaðurinn sem skrifaði
undir samning við Ipswich, hefur
fengið leyfi til að leika í deildinni.
Hann mun þó ekki leika með Ips-
wich gegn Nottingham Forest um
helgina í bikarkeppninni. Hann þarf
að bíða í viku til að verða löglegur
með liði sínu.
■ DIEGO Maradona, knatt-
spymukappinn snjalli hjá Napolí,
verður að taka sér fri frá knatt-
spyrnu í nokkra daga vegna meiðsla
í baki.