Morgunblaðið - 08.01.1989, Page 1

Morgunblaðið - 08.01.1989, Page 1
SKÁK EN EKKI MÁT AnnaP. Þórdardóttir HINAR GÓÐU, HINAR SLÆMU HINAR UÓTU SUNNUDAGUR SUNNUDAGUR 8. JANÚAR 1989 BLAÐ Flestir sem slitið hafa barnsskónum hafa kynnst tannlækningum að meira eða minna leyti. Fáum þykir það sérlega skemmtilegt, en viðhorfin hafa breyst og tækninni fleygt fram á síðustu árum. Innan nokkurra ára gæti svo farið að engum þætti það neitt tiltökumál að fara til tannlæknis. HJÁ TANNLÆKNINUM eftir Brynju Tomer/myndir: Árni Sæberg og Bjarni Eiríksson Tannlæknir kl. 9.30 stendur skrifað við morgundaginn í dagbókinni. Óþægileg tilfinning fylgir því að rekast á fyrsta minnispunkt morgundagsins og sú spurning vaknar hvort ekki væri sniðugast að afpanta tímann og fá að koma seinna. Engin raunveruleg ástæða er þó fyrir því að fara ekki til tannlæknisins í fyrramálið — og þó. Hræðslan, þessi óþægilega tilfinning sem kölluð er tannlækna-fóbía, eða tannlæknafælni. Þótt allir séu, sem betur fer, ekki haldnir þessari hræðslu við tannlækna, er hún engu að síður algengt vandamál, sem tannlæknar hafa oft rætt um á ráðstefnum sínum. Hins vegar virðist þessi fælni vera á undanhaldi; almenn tannhirða fólks fer sífellt batnandi, tækniframfarir í tannlækningum hafa dregið úr sársaukanum og yngstu kynslóðirnar þekkja varla tannlæknafælni, þvert á móti þykir mörgum spennandi að fara til tannlæknisins. Hér verður fjallað um tannvernd og einnig bent á leiðir til að losna undan farginu sem fylgir hræðslu við tannlækna. AuUGHI

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.