Morgunblaðið - 08.01.1989, Síða 19
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 8. JANÚAR 1989
C 19
Kínverskir verkamenn undirbúa lendingu bandarískra sprengjuflugvéla: yfirráð í lofti voru tryggð.
B-29-„risaflugvirki“ frá Banda-
ríkjunum og hófu loftárásir á
heimaeyjar Japana.
Til að stöðva árásir 14. flug-
hersins hóf 300.000 manna jap-
anskur her sókn gegn flugvöllum
Chennaults vorið 1944. Þetta var
fyrsta stórsókn Japana í Kína síðan
1938. Þeir náðu hveijum flugvellin-
um á fætur öðrum og í ágúst voru
eldsneytis- og skotfærabirgðir
Chennaults á þrotum. Stilwell gat
lítið gert til að hjálpa Kínveijum
og þeir virtust standa á barmi upp-
gjafar. Roosevelt sannfærðist um
að Stilwell hefði haft rétt fyrir sér,
en Chiang Kai-shek vildi ekki sam-
þykkja að hann tæki við stjórn alls
kínverska heraflans og hann var
leystur frá störfum 18. október
1944.
„Fljúgandi tígrar“ koma sér í loftið til að mæta árás Japana: báru hita og þunga dagsins.
Chennault: stofiiandi flugfylkisins
Chiang og Stilwell: á
öndverðum meiði.
Prescott: reynsla úr ferð-
um yfir„Hrygginn“.
Flying Tigers á íslandi (í marz 1982): DC-8-63CF með
ferskfisk til Bandaríkjanna fyrir Coldwater.
Ljósm. PPJ
Merki flugfélagsins:
verður það sameinað
öðru fyrirtæki?
stjórn Stilwells, jafnvel þótt þeir
vildu vera áfram með Chennault. í
júlí 1942 fór því svo að aðeins fimm
Tígranna buðust til að verða um
kyrrt, en 60 fóru heim til Banda-
ríkjanna. /
Til að koma í veg fyrir að flug-
floti Bandamanna í Kína leystist
upp sendi flugher Bandaríkjahers
nokkra herflugmenn þangað í flýti
í júlí 1942. Þeir urðu kjarninn í
nýjum flugher Chennaults, China
Air Task Force. Fljúgandi tígrarnir
voru raunverulega úr sögunni, en
hið nýja fluglið náði ekki síður góð-
um árangri.
Chennault hélt áfram að deila
við Stilwell um skiptingu birgð-
anna. Chennault taldi að ef hann
fengi það sem hann þyrfti gæti
hann hrakið Japana úr kínverskri
lofthelgi og gert svo mikinn usla í
herliði þeirra að þeir yrðu að hörfa
frá Kína.
Stilwell taldi hins vegar ekki
unnt að sigra Japana með loftárás-
um einum saman. Samstilltar árás-
ir landhers og flughers þyrftu að
koma til og efla yrði kínverska her-
inn. Hann þóttist líka viss um að
Japanar mundu reyna að ná flug-
stöðvum Bandaríkjamanna með
árásum á landi, þegar loftárásir
Chennault yrðu of skeinuhættar.
Chiang Kai-shek var á bandi
Chennaults, en Stilwell naut stuðn-
ings Georges C. Marshalls, forseta
herráðs Bandaríkjahers, og Henry
H. Amolds hershöfðingja, yfir-
manns flughers Bandaríkjahers. I
ársbyijun 1943 snerist Franklin D.
Roosevelt forseti á sveif með
Chennault. Hinn 10. marz 1943 var
14. flugherinn stofnaður og hann
leysti China Air Task Force af
hólmi. Chennault varð yfirmaður
hans og átti að fá megnið af birgð-
unum, sem vom sendar yfir
„Hrygginn".
Fjórtándi flugherinn náði yfirráð-
um í lofti yfir Mið-Kína. Chennault
hóf árásir á skip Japana á Kína-
hafl og gerði mikinn usla á aðal-
hernámssvæði þeirra í Austur- og
Norður-Kína og Formósu. Vorið
1944 komu langfieyg og hraðfleyg
Flutningaflugfélagið
Árið 1946 stofnaði Chennault
flugfélagið Civil Air Transport
(CAT) i Kína með stuðningi Chiang
Kai-sheks og UNRRA. Kjarni CATs
vora flugmenn og viðgerðarmenn
úr Tígranum fljúgandi. Félagið átti
að vega upp á móti áhrifum komm-
únista í Kína og fluttist seinna til
Taiwans. Það komst í eigu CIA
1950 og var fyrirrennari félagsins
Air America, sem var notað til
leyniaðgerða í Suðaustur-Asíu.
Chennault lézt í júli 1958 og var
sæmdur þriðju hershöfðingjastjörnu
sinni á dánarbeðinu.
Robert Prescott fór að dæmi fyrr-
verandi yfirmanns síns í stríðinu.
Hann stofnaði flugfélag, sem hann
kallaði National Skyway Freight
áður en hann tók upp nafnið Flying
Tiger Line (FTL) rúmu ári eftir
stofnun þess og kenndi það þar
með við flugfylkið, sem hann hafði
flogið með þegar það varði herflutn-
ingavélar á leið yfir „Hrygginn“. Á
þeim áram höfðu hugmyndir manna
um stórfellda loftflutninga mótazt
og reynsla Prescotts úr stríðinu kom
honum að góðum notum.
FTL var fyrsta bandaríska flug-
félagið, sem einbeitti sér að vöru-
flutningum. Þegar það var stofnað,
25. júní 1945, keypti það 14 Budd
Conestogas-flugvélar úr stríðinu
fyrir 401.000 Bandaríkjadali og
fyrsta afborgunin, 90.000 dalir, var
m.a. greidd með framlögum frá
félögum Prescotts úr „Tígranum
fljúgandi".
Félagið fór að ganga vel síðla
árs 1946 vel þegar það fékk útveg-
aðar 32 Douglas C47-flugvélar
(„þrista") úr stríðinu og samdi um
að flytja birgðir 28 sinnum á viku
til bandarískra herstöðva í Austur-
Asíu. Þar með hófust víðtækustu
loftflutningar einkafyrirtækis, sem
um getur. Við þá voru notaðar
Douglas C-54-flugvélar, fyrstu
fjögurra hreyfla flutningaflugvél-
arnar.
Mikil samkeppni var á sviði loft-
flutninga á þessum áram og FTL
átti í höggi við 300 keppinauta
1947. Tveimur árum síðar tók fé-
lagið á leigu 25 Curtiss C46-vélar
(„Commando"), sem Tígrarnir
fljúgandi höfðu flogið yfir „Hrygg-
inn“ í stríðinu, hjá bandaríska flug-
hernum og þær urðu „drottningar"
félagsins. Síðan gegndi félagið mik-
ilvægu hlutverki í Kóreustríðinu.
Árið 1953 bjargaði FTL sér úr
miklum fjárhagserfiðleikum (og
fékk fyrstu flugvél sína af gerðinni
DC-6A. Snemma árs 1954 hóf fé-
lagið flutninga um þver og endilöng
Bandaríkin og um vorið fékk það
leyfi til póstflutninga. Flugvélaflot-
inn fjórfaldaðist á einu ári og enda- '
stöðvum fjölgaði úr sex í 30.
Bylting varð í loftflutningum í
Bandaríkjunum þegar félagið
keypti Lockheed Super H Constell-
ation-flugvélar 1957 og hóf fyrstu
flutninga sína stranda á milli án
viðkomu. Félagið pantaði flugvélar
af þessari gerð fyrir 28 milljónir
dala. Þá hafði ekkert annað flugfé-
lag pantað flutningaflugvélar fyrir
eins háa upphæð og FTL varð
stærsta flutningaflugfélag Banda-
ríkjanna.
Víetnam-flutningar
Árið 1961 festi FTL kaup á 16
Canadair CL-44-skrúfuþotum, hin-
um fyrstu sem vora notaðar til
flutninga, fyrir 55 millj. dala. Fjór-
um áram síðar stökk félagið inn í
þotuöldina þegar það keypti flugvél-
ar af gerðinni Boeing 707-349C.
Víetnamstríðið harðnaði og daglega
vora fjórar flugvélar FTL i föram
milli Víetnams og Bandaríkjanna.
Ekkert annað flugfélag flutti eins
mikið vörumagn yfir Kyrrahaf á
þessum tíma.
Árið 1968 pantaði FTL 17 nýjar
DC-8-63F-flugvélar fyrir 206 millj-
ónir dala. Ári síðar hóf félagið dag-
legar ferðir til að tengja helztu
markaði í Bandaríkjunum og Asíu
og gerði draum framheijanna að
veraleika. Haustið 1974 tók félagið
fyrstu Boeing-747-breiðþotur sínar
í notkun.
í október 1980 tók FTL við
rekstri Seaboard World Airlines,
sem er þekkt hér á landi, og náði
þar með fótfestu á Norður-Atlants-
hafi og í Evrópu. Félagið heldur
einnig uppi flutningum í Ástralíu
og Miðausturlöndum og starfsemi
þess nær því um allan heim. í jan-
úar 1981 stofnaði FTL dótturfyrir-
tækið Metro International Airways,
en það hætti starfsemi 1983 og
Tower Air tók við rekstri þess.
Nú er FTL dótturfyrirtæki sam-
steypunnar Tiger Intemational.
Önnur dótturfyrirtæki hennar era
Tiger-Air, sem heldur einnig uppi
alþjóðlegri flugþjónustu, og Warren
Transport (vörabílafyrirtæki). í
fyrra var flugvélafloti FTL skipaður
tíu Boeing 747-200F flugvélum,
einni 747-200, einni 747-100, sjö
747-100F og 17 727-100C. Núv.
forstjóri félagsins er Stephen Wolf,
starfsmenn þess era um 6.500. og
aðalskrifstoflirnar eru í Los Angel-
es, en voru áður í Burbank.
í flugleyfí ísl. samgönguráðu-
neytisins segir að Flying Tiger séu
veitt réttindi til fragtflutninga til
og frá Keflavíkurflugvelli á eftir-
töldum leiðum: Til og frá Frankfurt
og öðram stöðum í Evrópu og til
og frá Tókýó, Seoul, Taipei og öðr-
um stöðum í Asíu handan Anc-
horage. Gildistími réttindanna er til
ársloka 1989 á Evrópuleiðum, en
til ársloka 1990 á Asíuleiðum.
Á sama tíma er framtíð FTL í
óvissu eins og Morgunblaðið hefur
greint fíá. Umsvifamesti aðilinn í
Bandaríkjunum, sem annast svo-
kallaða hraðsendingarþjónustu, fyr-
irtækið Federal Express, hefur
ákveðið að kaupa Tiger Internation-
al fyrir 880 milljónir dala. Federal
Express, sem var stofnað 1971,
hefur 525 bækistöðvar í Banda-
ríkjunum og útibú í Kanada, á
Karíbahafssvæðinu, í Vestur-Evr-
ópu og Miðausturlöndum. Flugfloti
fyrirtækisins er m.a. skipaður 21
DC-10-flugvél, 72 Boeing 727 og
117 Cessnum 208 og fyrirtækið á
auk þess 21.000 sendibíla, sem
flytja böggla, bréf og skjöl heim til
fólks. Talið er að gengið verði frá
kaupunum á Tiger International
innan hálfs árs, ef opinbert sam-
þykki fæst, en rekstur fyrirtækj-
anna verður aðskilinn fyrst um sinn.