Morgunblaðið - 08.01.1989, Qupperneq 20

Morgunblaðið - 08.01.1989, Qupperneq 20
20 C MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR SUNNUDAGUR 8. JANÚAR 1989 Minning: Guðmundur HaJldórs- son frá Botnastöðum Fæddur 18. ágúst 1904 Dáinn 1. janúar 1989 Afi minn, Guðmundur Halldórs- son, andaðist á Sjúkrahúsi Skagfirð- inga á Sauðárkróki á nýársdag. Hann fæddist á Eldjámsstöðum í Blöndu- dal í Austur-Húnavatnssýslu 18. ágúst 1904, en þar bjuggu þá foreldr- ar hans, hjónin Halldór Jóhannes Halldórsson og Guðrún Gísladóttir. Halldór Jóhannes var fæddur 22. maí 1862 í Syðra-Tungukoti í Blöndudal, sonur Halldórs Jónasson- ar bónda í Syðra-Tungukoti og þriðju konu hans Unu Jóhannesdóttur bónda á Sigríðarstöðum í Fiókadal, Guðvarðssonar, en hún bjó lengi ekkja á Sellandi í Blöndudal. Guð- rún, kona Halldórs Jóhannesar, var fædd 30. desember 1863 á Neðri- Fitjum í Viðidal, dóttir Gísla Gísla- sonar húsmanns á Neðri-Fitjum, áð- ur bónda í Hlíð í Kollafirði, og sam- býliskonu hans Helgu Guðmunds- dóttur bónda á Kambhóli í Víðidal, Ásmundssonar, en hún giftist síðar Jóhanni Guðmundssyni bónda á Hryggjum á Staðarfjöllum. Guðmundur var fjórði yngstur í röð átta alsystkina. Hann ólst upp hjá foreldrum sínu'm á Eldjámsstöð- um til 1906, á Hóli í Svartárdal 1906-08 og í Kálfárdal á Skörðum 1908-10, en þá neyddust þau hjónin til að bregða búi sökum fátæktar og ómegðar. Fór Guðmundur þá til hjón- anna Gunnars Jónssonar og Ingi- bjargar Lámsdóttur, sem þá bjuggu á Fjósum í Svartárdal, en síðan lengi á Botnastöðum í sömu sveit. Hjá þeim sleit hann bamsskónum og fermdist frá þeim með ágætum vitn- isburði árið 1919. Eftir fermingu var hann enn um hríð hjá Gunnari og Ingibjörgu á Botnastöðum, en síðan um margra ára skeið vinnumaður hjá hjónunum Hjálmari Sigurðssyni og Stefaníu Guðmundsdóttur í Stafni í Svartárdal. Á þeim tíma dvaldist hann oft um stundarsakir annars staðar og var m.a. um vetrartíma í Vatnshlíð á Skörðum og lærði þá að leika á orgel hjá Pétri Guðmundssyni bónda þar. Frá Stafni lá leið Guðmundar norður í Skagafjörð, en þangað sótti hann konu sína, Guðnýju Klöru Lár- usdóttur. Hún fæddist í Skarði í Gönguskörðum 25. ágúst 1906, yngsta dóttir Lárusar Jóns Stefáns- sonar og seinni konu hans Sigríðar Bjargar Sveinsdóttur, en þau bjuggu í Skarði yfir fjörutíu ár og áttu margt bama. Þau Guðmundur og Klara voru gefín saman í Glaumbæ á Lang- holti 16. desember 1933. Fyrstu bú- skaparár sín áttu þau heima í leigu- húsnæði á Skagfirðingabraut 10 (Ljósheimum) á Sauðárkróki, en vom síðar nokkra hríð í Skarði hjá Sigríði, tengdamóður Guðmundar, sem þá var orðin ekkja. Þegar hér er komið sögu, hafði Guðmundur veikst heiftarlega af bijósthimnubólgu, sem hafði það í för með sér, að hann þoldi ekki að vinna við heyskap og gegningar, svo nokkru næmi. Atvinnuástand á Sauðárkróki var um þessar mundir afar bágborið og vart annað að hafa en stopula skipavinnu. Allt þetta varð þess valdandi, að Guðmundur ákvað að freista gæfunnar á öðrum slóðum. Fór hann suður á Suðumes í atvinnuleit haustið 1937, en Klara kona hans kom á eftir með son þeirra ungan vorið 1938. Var fjölskyldan á Völlum í Njarðvíkum fyrsta árið syðra, en þá vék sonurinn, Jóhann, aftur norður að Skarði til Sigríðar ömmu sinnar, sem fóstraði hann fram að skólaaldri og mörg sumur eftir það. Frá Völlum fluttust þau Guðmund- ur og Klara inn í Keflavíkurkauptún og bjuggu í leiguhúsnæði hjá Run- ólfi Þórðarsyni á Suðurgötu 19 (síðar Suðurgötu 25) næstu fjögur árin, svo hluta úr ári hjá Jóni Guðmundssyni við Heiðarveg, en reistu sér þá lítið og snoturt einbýlishús, þar sem nú er Faxabraut 32b, og nefndu Heiðar- býli. Reis það af grunni árið 1943 og stóð uppi í heiði langt frá þáver- andi byggðum bólum í Keflavík. Fluttust hjónin inn í það fýrir hátíð- ina, sem hajdin var á Þingvöllum árið 1944. Áður hafði Guðmundur reist útihús hjá Heiðarbýli og voru þau hjón með kýr og hænsni fyrstu búskaparár sín þar og drýgðu tekjur sínar með því að selja mjólk og egg. Á Sauðárkróksárum sínum vann Guðmundur alla vinnu, sem til féll, og var þá m.a. tvö sumur í síld á Siglufirði, ásamt konu sinni. Árið sem hann var á Völlum, leigði hann jörðina af hjónunum Valdimar Bjömssyni og Sigríði Ámadóttur, hafði þar nokkrar kýr og seldi mjólk, sem hann keyrði á rejðhjóli heim til viðskiptavina sinna. Á fyrstu ámm sínum í Keflavík vann Guðmundur öll störf, sem til féllu, m.a. við skipa- vinnu svo og við fiskverkun, lengst hjá Lofti Loftssyni eða af og til í þijú ár. Eftir að hann hætti hjá Lofti fékk hann vinnu hjá Þórði Einars- syni húsasmíðameistara og starfaði með honum að húsbyggingum og viðgerðum öðru hveiju næstu tvö ár. Seinna haustið sem hann var hjá Þórði, vildi Þórður taka hann sem lærling, en var af einhveijum orsök- um synjað um það af Iðnaðarmanna- félaginu í Keflavík. Þetta sama haust sendi Þórður Guðmund einhveiju sinni til þess að dytta að þaki á húsi Gunnars Sigurfinnssonar húsgagna- bólstrara í Keflavík. Stóð þá svo á, að Gunnar vantaði laghentan mann til starfa og réði hann Guðmund til sín um þriggja mánaða tíma, að smíða dívangrindur. Teygðist svo úr samstarfí þeirra, að Guðmundur vann hjá Gunnari í tvö ár eða lengur og nam hjá honum undirstöðuatriði húsgagnabólstrunar, en hóf þá sjálf- stæðan rekstur í iðninni og hafði af því lifibrauð sitt fram á elliár. Var hann um áratuga skeið eini starfandi húsgagnabólstrarinn á Suðumesjum og stofnsetti í Keflavík bólstmn þá, sem við hann er kennd og nú er rek- in af Jóhanni syni hans, en þeir feðg- ar unnu saman að iðninni alla stund frá því að Jóhann komst til þroska í Heiðarbýlinu bjuggu þau Guð- mundur og Klara allt til ársins 1965. Tóku þau til sín Sigríði tengdamóður hans, en þau voru alla tíð mjög sam- rýmd. Var hún hjá þeim á þrettánda ár og andaðist í skjóli þeirra 1957. Þá var lengi á heimili þeirra Fanný Sigríður Lárusdóttir, systir Klöru, sem nú er háöldruð á Elliheimilinu Garðvangi í Garði. Árið 1955 byijaði Guðmundur að grafa fyrir grunni steinhúss þess, sem síðar reis að Faxabraut 32a í Keflavík, tveggja hæða með risi. Vann hann ötullega að byggingu þess, ásamt konu sinni, en langur tími leið áður en húsið yrði fullbúið til íveru. Það var ekki fyrr en tíu árum síðar að þau hjón fluttust úr Heiðarbýlinu í steinhúsið, en áður hafði Guðmundur flutt bólstrun sína á neðstu hæð þess. Guðmundur og Klara báru mjög sterkar taugar til Norðurlands og hefðu bæði kosið að lifa þar allan sinn aldur, þótt örlögin höguðu því á annan veg. Um áramótin 1980- 1981 settist Guðmundur í helgan stein, og svo er það í febrúarmánuði 1983, að gömlu hjónin taka sig upp og flytja búferlum norður á Sauðár- krók eftir 45 ára veru syðra. Bjuggu þau fyrst rúmt ár í leiguhúsnæði að Suðurgötu 1, þá hluta úr ári Aðal- götu 14, en keyptu svo húseign á Hólavegi 10, þar sem Guðmundur átti heimili uns yfir lauk. Guðmundur afi minn var í lægra meðallagi á vöxt, fremur grannholda alla.tíð, ljósskolleitur á hár, en hærð- ist snemma, með gráblá augu, fjörleg og glettnisleg, höfðinglegur í fram- göngu og bar með sér mikla persónu- töfra. Hann var léttleikamaður hinn mesti, íjörlegur í öllum hreyfingum, hraustmenni og átti fáa sína líka að dugnaði og seiglu. Hann var með afbrigðum lagtækur maður, svo segja mátti að allt léki í höndunum á honum. Á yngri árum sínum fékkst hann nokkuð við tamningar og þótti takast vel. Hann var vel greindur og manna skilningsríkastur, fróð- leiksfús og bókhneigður og mjög ljóð- elskur. Kunni hann feiknin öll af lausavísum og öðrum kveðskap, sem hann hafði gjarnan á hraðbergi. Hann var söngelskur og músíkalsk- ur. Var hann einn af fyrstu meðlim- um Karlakórs Bólstaðarhlíðarhrepps og starfaði þar í fjölda ára, en síðan um langt skeið í Karlakór Keflavík- ur. Á fimmtugsafmælinu fékk hann orgel að gjöf frá konu sinni og spil- aði oft á það sér og öðrum til ánægju. Guðmundur var félagslyndur og glaðlyndur og hafði góða kímr.igáfu. Var jafnan ofarlega í honum strákur- inn og átti hann létt með að vekja glaðværð í kringum sig, þannig að fólki leið vel í návist hans, enda líka mjög alúðlegur í allri framkomu sinni. Hann var yfir höfuð velviljaður maður, afar bamgóður og dýravinur mikill. Hann var tilfinningamaður, þó hann færi dult með, og oft niður- sokkinn í hugsanir sínar. Hann var geysilegur skapmaður, þó á því bæri ekki að öllum jafnaði, og gat verið HÁSKÓLI ÍSLANDS Endurmenntunarnefnd og Reiknistofnun TÖLVUNÁMSKEIÐ A VORMISSERI 1 989 Tölvunotkun fyrlr PC-tölvur (42 klst.) Lýsing: Þetta er alhliða námskeið þar sem farið verður í ritvinnslu (Word Perfect), töflureikni (Pian Perfect), stýrikerfi (MS-Dos) og gagnagrunnkerfi (dBase III+). Umsjón: Bergþór Skúlason, tölv- unarfræðingur Reiknistofnun H.i. Tími og verð: Námskeiðið hefst í janúarlok og verður í 14 vikur, 3 tímar einu sinni í viku. Þátttöku- gjald kr. 22.000,- SkráarvlflBSla í dBase III+ (fyrir PC-tölvur) Lýsing: Krafist er reynslu í tölvu- notkun, bæði ritvinnslu og töflu- reikni (þekking á forritunarmáli eða öðru skráarvinnslukerfi dugir einn- ig). Þetta er með öflugustu og út- breiddustu kerfum til skráavinnslu og forritunar á PC-tölvum. Leiðbeinandi: Halldóra Magnús- dóttir, tölvunarfræðingur. Tími og verð: 30. jan.-2. feb., kl. 8.30-12.30, verð kr. 8.500,- Orðsnilld (Wordperfect fyrir PC-tölvur) Lýsing: Þetta er þróað ritvinnslukerfi með fjölbreytta möguleika á uppsetn- ingu texta og til þess að flytja gögn í prentsmiðju. Hentugt fyrir þá sem skrifa bækur eða langar greinar. Tími og verð: 23.-26. janúar kl. 13.00-17.00, verð kr. 8.500,- Forritun í dBase III+ (fyrir PC-tölvur) Lýsing: Þetta er framhald af námskeiðinu um skráavinnslu í dBase III+. Leiðbeinandi: Þórunn Pálsdóttir, tölvunarfræð- ingur. Tími og verð: 6.-9. febrúar, kl. 8.30-12.30, verð kr. 8.500.- MS-Des stýrikerfið (fyrir PC-tölvur) Lýsing: Þetta námskeið er ætlað þeim sem hafa dálitla reynslu í tölvunotkun. Fjallað er um skrár, afrit og vélbún- að. Leiðbeinandi: Bergþór Skúlason, tölvunarfræðingur. Tími og verð: 6.-8. febrúar kl. 13.00-17.00, verð kr. 6.500,- Plan Perfect (fyrir PC-tölvur) Lýsing: Þetta er töflureiknir á íslensku ætlaður til alhliða útreikninga og gagnavinnslu. Býður upp á tengi- möguleika við Orðsnilld (Word perfect) og hefur sama skipana- sett. Tími og verð: 30. jan.-2. febrúar kl. 13.00-17.00, verð kr. 8.500,- Uoixkynniuo Lýsing: Þessi kynning er ætluð þeim sem hafa nokkra reynslu af tölvuvinnslu og forritun í einhverju stýrikerfí. Kynnt verður sérstaða Unixstýri- kerfisins, samskiptamöguleikar og notendaforrit. Tími og verð: 13.-15. febrúar kl. 8.30-12.30, verð kr. 8.500,- Tex og Latex (fyrir PC-tölvur) Lýsing: Kennd verða grunnatriði í notkun TEX hins víðkunna setning- ar- og umbrotsforrits Donalds E. Knuth, sem einkum er annálað fyr- ir framúrskarandi eiginleika við setningu stærðfræðitexta. Sér- staklega verður miðað við þá gerð TEX sem nefnist LATEX. Greint verður frá ólíkum ritsniðum og ,,umhverfum‘', leturgerðum og stærðfræðisetningu. Fjallað verð- ur um það með hvaða hætti not- andinn getur breytt skilgreiningum á rítsniðum. Leiðbeinandi: Jörgen Pind, deild- arstjóri Orðabókar HÍ. Tími og verð: 6.-9. febrúar kl. 8.30-12.30, verð kr. 9.500,- Nstkun tolvu vifi tölfræðilega gagna- viiislu (fyrir PC-tölvur) Lýsing: Farið verður yfir helstu atriði tölfræðiforritsins Spss/pc+ og rifjuð upp undirstöðuatriði úr tölfræði. Leiðbeinendur: Helgi Þórsson, tölfræðingur. Tími og verð: 6. mars-24. apríl, kl. 8.30-12.30 á mánudögum (sjö sinnum hálfur dagur - 28 klst.), verð kr. 14.000.- Staðarnet (Lan) Tími og verð: 27. febr.-2. mars, kl. 8.30-12.30, verð kr. 12.000,- Tölvusamskipti og gaguabankai Tími og verð: 17.-19. apríl, kl. 8.30-12.30. Þátttökugjald kr. Leiðbeinandi: Leiðbeinandi á öll- um námskeiðum verður Halldór Kristjánsson, Tölvu- og verkfræði- þjónustunni. Notkun Macintosh - almennir notendur Tími: 27. janúar í 4 eða 6 klst. Grunnnámskeifi - Microsoft Works: Tími og verð: 9.-12. jan., kl. 16.00-19.00, 16.-19. jan., kl. 16.00-19.00, 23.-25. jan., kl. 8.30- 12.30 og helgarnámskeið 28.-29. jan., kl. 9.00-16.00. verð kr. 8.500.- Notkun Macintosh - kerfisstjóro: Tími: 13.-15. feb., kf. 8.30-12.30. Verð kr. 8.500.- Microsoft Worf - ritvinnsla: Tími: 23.-26. janúar, kl. 16.00- 19.00. Verð kr. 8.500.- Microsoft Excel - töfiureiknir og vifi- skiptagrafík: Tími: 30. jan.-2. feb., kl. 16.00- 19.00. Verð kr. 8.500,- Microsoft Excel - viðskipti og stjórnun: Tími: 20.-22. febr. kl. 8.30-12.30. Verð kr. 9.800.- Page Maker 3.0 - umbrotsforrit: Tími: 6.-9. febrúar, kl. 16.00-19.00. Verð kr. 8.500.- Filemaker II - gaguasafnskerti: Tími: 13.-16. febrúar, kl. 16.00- 19.00. Verð kr. 8.500.- Hypercard - alhliða upplýsingasöfnun: Tími: 28.-31. mars, kl. 19.30- Teiknun og myndgerð: Tími: 9.-12. janúar kl. 19.30-22.30. Verð kr. 8.500.- NáMSKEIB f HUGBÚNABARGERB Fjórðu kynslóðarmál - ný viðhorf f tölvunotkun Tími: 30. jan.-1. febr., kl. 13.00- 17.00. Einingaforritun ug hugbúnafiargerfi - með sérstakri áherslu á fjölnota (generic) einingar í Ada. Tími: 20.-22. febrúar (14 klst.). Kerfisgerð: Staðlar og aðferðafræði Tími. 13.-16. mars (16 klst.), kl. 9.00-13.00. Tölvu- og mælitækni - hagnýting tölva til mælinga og stýringa Tími og verð: 17.-21. apríl (15 klst.). Þátttökugjald kr. 9.500.- Þekkingarkerfi („Expert systems“) Tími og verð: 5.-7. apríl, kl. 13.00- 18.00. Þátttökugjald kr. 9.500.- Sölu- og markaðsmál í hugbúnaðarfyrir- tækjum Tími: í maí, kl. 8.30-12.30 í tvo til þrjá daga. Nýjar aðferðir í hönnun tölvuhugbúnaðar Tími: 3. maí. Hlutbundin forritun (object oriented pro- gramming) - og nýjar aðferðir við skilgrein- ingu kerfa Tími: 10.-12. maí. 22.30. Verð kr. 8.500,- Skráning fer fram á aðalskrifstofu H.í. í síma 694306 en nánari upplýsingar eru veittar á skrifstofu endurmenntunarstjóra í símum 694923, 694924 og 694925. (íbHU3MH0V4K.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.