Morgunblaðið - 01.02.1989, Side 19

Morgunblaðið - 01.02.1989, Side 19
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 1. FEBRÚAR 1989 19 Fóbos kominn á braut um Mars Stjórnunarfélag íslands Ánanaustum 15 Sími: 62 10 66 Moskvu. Reuter. SOVÉZKA könnunartunglið Fó- bos komst á braut um reikistjöm- una Mars á sunnudag. Þvi er ætlað að afla ýmissa upplýsinga vegna væntanlegrar mannaðrar geimferðar til reikistjörnunnar. Að ferð Fóbos standa 13 ríki auk Sovétríkjanna. Honum var skotið á loft 12. júlí sl., fimm dögum á und- an samskonar tungli, sem samband rofnaði við í september sl. Að sögn Níkolaj ívanovs, eins af stjómendum Fóbos-áætlunarinn- ar, fóru hreyflar, sem draga áttu úr ferð Fóbosar og koma honum á braut um Mars, í gang klukkan 12.55 að íslenzkum tíma á sunnu- dag. Verður tunglið á braut um Mars um sinn. Að því kemur þó að það mun breyta um stefnu og nálg- ast einn af fylgihnöttum Mars, Fó- bos, sem það er nefnt eftir. Mun það taka myndir af hnettinum og gera ýmsar mælingar, en gert er ráð fyrir að könnunartunglið verði um tíma í aðeins 50 metra hæð yfír yfírborði hnattarins. Mun það senda tækjasamstæðu niður á Fó- bos og á hún að senda upplýsingar til jarðar. Áætlað er að könnunar- tunglið sendi tækin niður á Fóbos eftir um einn mánuð. Ítalía: Lögreglumenn ræna póstflutningabifreið Tórínó, firá Brynju Tomer, fréttarítara Morgunblaðsins. Þrir lögregluþjónar ítölsku herlögreglunnar rændu á laug- ardaginn póstflutningabíl og myrtu einn samstarfsmann sinn, sem hafði borið kennsl á þá. Eft- ir nokkurra klukkustunda flótta framdi einn ræningjanna sjálfs- morð en hinir tveir náðust og eru nú í varðhaldi. Þeir eiga yfir höfði sér þunga dóma fyrir brot í opinberu starfi, rán og morð af ásettu ráði. Ránið var framið utan við Verc- elli, sem er lítil borg á milli Tórínó og Mílanó, árla á laugardagsmorg- un. í póstflutningabílnum voru pen- ingar og önnur verðmæti sem námu um átta milljónum króna. Meðal annars voru í bflnum launaumslög lögregluþjónanna. Tveir bændur urðu vitni að því er ræningjamir skutu á lögreglubflinn, sem fylgdi póstflutningabflnum. Bændumir gerðu varðstöðinni viðvart og innan skamms var lögreglan komin á vett- vang. Salvatore Vinci, 37 ára gam- ali lögregluþjónn, var skotinn til bana af ræningjunum, en hann hafði borið kennsl á þá. Mikill eltingaleikur upphófst sem stóð yfír lengi dags. Að lokum gáf- ust ræningjamir upp og einn þeirra framdi sjálfsmorð. FORSENDA GÓÐRAR SÖLU ER AÐ VARAN SÉ VELKYNNT Á námskeiðinu erfjallað um gerð prentaðs kynningarefnis, bæði það sem hægt er að vinna í fyrirtækinu og það sem fagmenn gera. EFNI: • Hlutverk kynningarefnis • Hvaða form er best: Bæklingar? Auglýsingar? Dreifirit? Veggspjöld? • Málogstíll • Myndanotkun • Hvað gerist á auglýsingastofum? í prentsmiðjum? LEIÐBEINANDI: Þröstur Háraldsson, blaðamaður. TÍMIOG STAÐUR: 6. og 7. febrúar kl. 8.30-16.30 íÁnanaustum 15. VR OG STARFSMENNTUNARSJÓÐUR BSRB STYRKJA FÉLAGSMENN SÍNA TIL ÞÁTTTÖKU í ÞESSUM NAM- SKEIÐUM. Metsölublað á hverjum degi! Óseyri 4 Auðbrekku3 200Kópavogi s. 40460 og 40461 600Akureyri S. (96)26662 Síðustu daga útsölunnai* miðvikudag til laugardags. færðu vörur með allt að 50% afslætti!

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.