Morgunblaðið - 17.02.1989, Blaðsíða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 17. FEBRÚAR 1989
Ennekki
fundurum
vísitöluna
ENNÞÁ hefur ekki orðið af
öðrum fiindi forsvarsmanna
landssambanda lifeyrissjóðanna
með ráðherrum viðskipta- og
Qármála um þœr breytingar
sem gerðar voru á grundvelli
lánskjaravísitölunar seinnihluta
janúarmánaðar. Fundurinn átti
að vera á þriðjudaginn í fyrri
viku eða fyrir tíu dögum, en var
þá frestað tun fáeina daga.
Benedikt Davíðsson, formaður
Sambands almennra llfeyrissjóða,
sagðist ekki hafa heyrt í ráðherr-
unum þennan tíma, né hefðu lög-
fraeðilegar álitsgerðir, sem við-
skiptaráðuneytið hefði látið gera
varðandi lögmæti breytinganna á
vísitölunni, verið afhentar. Hann
bjóst við að lífeyris8jóðasamböndin
myndu funda í dag og taka afstöðu
til þess hvort ekki bæri að líta á
þetta sem óformlega höfnun við-
ræðna. Næsta skref væri að leggja
fram álitsgerðir lífeyrissjóðanna
varðandi lögmæti breytinganna á
lánskjaravísitölunni og tækist ekki
samkomulag væri málshöfðun
neyðarúrræði til þess að fá úr þvi
skorið hvað væri rétt í málinu.
Viðræður um skuldabréfakaup
lífeyrissjóðanna af Húsnæðisstofn-
un áttu að heijast í febrúarmán-
uði, en Benedikt sagði að engar
forsendur væru fyrir viðræðum að
óbreyttu. Gildandi samningur tek-
ur einungis til skuldabréfakaupa
fyrstu þijá mánuði þessa árs. Hann
sagðist og gera ráð fyrir að lífey ris-
sjóðimir hefðu haldið að sér hönd-
um varðandi kaup á skuldabréfum
undanfarið vegna þessa óvissu-
ástands.
Morgunblaðið/Sigurður Jónsson
Starfemenn Pósts og síma festa stálplötu til hlífðar Ijósieiðararör-
um á einum brúarstöplinum. Á innfelldu myndinni er Jón Ólafe-
son íbúi við Fagurgerði á Ölfúsárbökkum með dælu til taks ef
flóð verður.
Búist við flóðum í Ölfiisá:
Dæliirnar hafðar
til taks á Selfossi
Selfosai.
STARFSMENN Pósts og sima luku við það í gær að veija Ijósleið-
ararör sem liggja undir Ölfusárbrú, en þetta er ein þeirra varúð-
arráðstafana sem gripið hefiir verið til vegna ísstiflunnar sem
myndast hefúr í Ölfúsá og getur orsakað flóð ef bregður til hlý-
inda og votviðris.
í stærstu flóðum, árin 1930,
1948 og 1968, lék Ölfusá grátt
þá íbúa sem næst búa ánni. Þegar
verst lét náði vatnið í kjöllurum
húsanna eins metra hæð og olli
skemmdum. íbúar I sumum þess-
ara húsa hafa nú gert varúðarráð-
stafanir og orðið sér úti um sjálf-
virkar dælur til að vera við öllu
búnir. Þessir íbúar og þeir sem
gjörla þekkja til árinnar segja
aðstæður nú svipaðar og þær voru
1968. Ekki þurfí annað en það
bregði til hlýinda svo áin fari upp.
í vörugeymslum Vöruhúss KA,
sem er á syðri bakka árinnar,
skammt frá Ölfusárbrú, er unnið
að því smátt og smátt að koma
sekkjavöru upp á palla ofan flóða-
marka.
Samfelldur ís er á ánni, svo
langt sem augað eygir niður ána,
svo notuð séu orð Gunnar Gunn-
arssonar bónda á einum Selfoss-
bæjanna.
- Sig.Jóns.
Hver dagur dýr sem tap-
ast í loðnufry stingnnni
- segir Gylfí Þór Magnússon framkvæmdastjóri hjá SH
LOÐNUVEIÐl! er nú að heQast
að nýju eftir að Ulviðrið rak skip-
in í land í siðustu viku. Skipin
eru farin út og hafa fimdið loðnu
fyrir Suðurlandi, meðal annars á
Meðallandsbugt og við Alviðru.
Loðnufrysting er einnig hafln
hjá fjölmörgum frystihúsum á
Karl vann
Hodgson
KARL Þorsteins vann enska
stórmeistarann Hodgson í
þriðju umferð Fjarkaskák-
mótsins sem tefld var á Hótel
Loftleiðum í gær.
Sovéski stórmeistarinn Eingom
vann Hannes Hlífar Stefánsson-
Jafntefli gerðu Jón L. Ámason
og norski alþjóðlegi meistarinn
Tisdall, enski alþjóðlegi meistar-
inn Watson og sovéski stórmeist-
arinn Balasjov, Helgi Ólafeson
og Margeir Pétursson. Skákir
þeirra Björgvins Jónssonar og
Þrastar Þórhallssonar, Sævars
Bjamasonar og Sigurðar Daða
Sigfússonar fóru í bið.
Fjórða umferð verður tefld í
dag og hefst hún klukkan 17.
svæðinu frá Vestmannaeyjum
vestur um til Reykjavíkur.
Hrognafylling er nú hæfíleg, en
verði gæftir stopular er hætt við
að ekki náist að framleiða upp í
gerða samninga. Gylfi Þór Magn-
ússon, einn framkvæmdastjóra
SH, segir að veður&rið geti haft
afar slæm áhrif á heilfrystingu
loðnu, eins og þegar hafi komið
í ljós, en samningum við nær alla
kaupendur sé nú lokið. Um er
að ræða 5.500 tonn að verðmæti
nm 250 milljónir króna. Loðnu-
frysting hófet í Eyjum í síðustu
viku, en lagðist strax af aftur.
„Þetta er algjört happdrætti og
hver dagur sem ekki nýtist er
dýr. Vertíðin gæti alveg tapazt
fari ekki að rætast úr þessari
ótið,“ sagði Gylfi Þór í samtali
við Morgunblaðið. Aætlað er að
frysting hrogna geti hafizt um
næstu mánaðamót.
SH hefur náð samkomulagi við
japanska kaupendur um sölu á
5.500 tonnum fyrir um 250 milljón-
ir króna alls, en endanlegt verð fer
eftir stærð og flokkun. Verð er svip-
að í erlendri mynt og á síðasta ári.
Þá voru seld austur um 730 tonn,
en 5.700 árið 1987. Eftirlitsmenn
frá kaupendum eru margir komnir
til landsins og bíða þess nú að loðn-
an berist á land og vinnsla hefjist
að nýju.
Sjávarafurðadeild Sambandsins
er að reka smiðshöggið á samninga
um sölu á frystri loðnu og loðnu-
hrognum til Japans. Um er að ræða
800 til 1.000 tonn af loðnu og 400
tonn af hrognum. Verð og skilmálar
eru á svipuðum nótum og hjá SH.
Vinnsla hrogna hefst tæpast fyrr
en undir mánaðamót, en þá er talið
að loðnan verði komin alveg að
hrygningu og hrognafylling um
20%. Á því stigi kjósa Japanir
hrognin helzt. Því er engu hægt
að spá um mögulega framvindu
veiða fyrir þá vinnslu.
Að þessu sinni samdi SH við jap-
anska kaupendur að ekki yrði fram-
leitt á vegum Sölumiðstöðvarinnar
meira en 2.500 tonn af hrognum
og jafnframt að sala þess magns
væri tryggð. Verðmæti, náist að
vinna upp í samninginn, er um 240
milijónir króna og verð svipað og í
fyrra talið í erlendri mynt. Magn
þetta er ákveðið í samvinnu við
kaupendur í samræmi við framboð
og eftirspum á markaðnum. „Ef
heildarframleiðsla loðnuhrogna á
þessari vertíð fer yfir 3.000 tonn
er markaðurinn yfírfylltur. Samn-
ingsverð það sem náðist mun þá
ekki standast og verðið falla stór-
lega. í fyrra frystu hús innan SH
1.640 tonn samkvæmt samkomu-
lagi við kaupendur í Japan til að
halda jafnvægi á markaðnum og
eðiilegu söluverði, en árið áður
5.750 tonn. Afkastagetan er mikil
og þó skammur tími sé til hrogna-
töku og frystingar er hægt að frysta
mikið á fáum dögum," sagði Gylfí
Þór Magnússon.
Tvcggja enn sajkn-
að með Dóra ÍS;
Formlegri
leit hætt
LEIT AÐ mönnunum, sem sakn-
að er með Dora ÍS 213, bar ekki
árangur i gær og hefúr form-
legri leit að Ólafi N. Guðmunds-
syni og Ægi Ólafesyni nú verið
hætt, að sögn Jónmundar Kjart-
anssonar aðstoðarvfirlögreglu-
þjóns á ísafirði. Björgunarsveit-
armenn munu þó leita með
ströndum um helgina.
í gær voru allir rækjubátar, alls
á þriðja tug, við leit í Djúpinu og
leituðu meðal annars með dýptar-
mælum og á haffletinum í björtu
veðri. Þá leituðu björgunarsveitar-
menn og skátar á björgunarbátnum
Ðaníel Sigmundssyni og einnig fóru
björgunarsveitarmenn með strönd-
um á gúmmíbátum og vélsleðum.
Menn frá björgunarsveitunum
Skutli á ísafirði, Tindum á Hmfsdál,
Kofra á Súðavík og Emi á Bolung-
arvík hafa tekið þátt í leitinni und-
anfama daga, svo og félagar úr
Hjálparsveit skáta á ísafírði, alls
um 50 manns þegar mest var. Á
þriðjudag og miðvikudag leituðu
tiltæk skip og stærri bátar úr
byggðum við Djúp og í gær allir
rækjubátar af svæðinu, eins og fyrr
sagði. Bændur við Djúp hafa einnig
aðstoðað við leitina.
OLIS:
Synjað um
ábyrgð vegna
olíufarms
LANDSBANKI íslands synjaði
OLÍS um bankaábyrgð fyrir
greiðslu á olíuíarmi — bensíni,
flugvélabensini og gasolíu — að
verðmæti um 100 milljónir
króna, sem félagið keypti í Rott-
erdam af olíufélaginu Texaco.
Farmurinn kom hingað til lands
9. þessa mánaðar.
Að sögn Hjartar Torfasonar lög-
manns Texaco hériendis sættust
aðilar á þá lausn að farmurinn jrrði
geymdur i tönkum á svæði OLÍS
við Laugames. Þannig tryggir
Texaco eignarhald sitt á þeim hluta
farmsins sem ógreiddur er hveiju
sinni. Farminum er haldið aðskild-
um frá öðmm birgðum OLÍS undir
eftirliti óháðs aðila en OLÍS leysir
til sín af sendingunni í minni
skömmtum, eftir því sem greiðslu-
geta fyrirtækisins leyfir.
Óli Kr. Sigurðsson, forstjóri
OLÍS, vildi ekki Ijá sig um mál
þetta í gærkvöldi.
Vinnueftirlit ríkisins:
Nýjar öryggisregl-
ur fyrir togbrautir
Umdæmisstjórum Vinnueftirlits ríkisins hefiir verið sent bréf með
nýjum fyrirmælum um öryggisbúnað togbrauta fyrir skiðafólk.
Umdæmisstjórunum hefiir verið fidið að kynna rekstraraðilum tog-
brautanna fyrirmæiin og sjá til þess að þeim sé fylgt út { æsar.
Meðal þeirra ráðstafana sem
krafist er að gerðar verði má nefna
að báðar endastöðvar togbrauta
ásamt stögum skal girða af. Girð-
ingamar skulu vera traustar og í
skærum litum. Þær skulu hvergi
vera lægri en 1,1 metra yfir snjó
og hvergi nær búnaði endastöðva
en 1,5 metra.
Taug á niðurleið skal vera á lofti
og hindra skal eins og kostur er
að skíðamenn geti hangið í taug-
inni. Endastöðvum skal koma fyrir
í minnst 5 metra fjarlægð frá enda-
hjólum. Snúra endastöðvar má ekki
vera það lág að léttir einstaklingar
(böm) geti lyfst yfir hana.
Sérstakir neyðarstöðvunarrofar
skulu vera fyrir skíðamann á áber-
andi stöðum þar sem farið er í og
úr brautinni. Allan öryggisbúnað
skal prófa daglega og stöðug gæsla
skai vera við brautina.
í fyrirmælunum sem hafa verið
send er þess sérstaklega getið að
óheimilt sé að taka togbrautir í
notkun fyrr en fulltrúi Vinnueftir-
litsins hefur tekið þær út og gefið
rekstraraðila skriflegt vottorð um
að notkun sé heimil.