Morgunblaðið - 17.02.1989, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 17.02.1989, Blaðsíða 16
16 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 17. FEBRÚAR 1989 Alusuisse: Vonbrigði með niðurstöð- ur hagkvæmniathugunar ZUrich, frá Önnu Bjamadóttur, fréttaritara Morgunblaðains. ERLENDU álfyrirtækin sem standa að hagkvæmnisathugun á auk- inni álframleiðslu á íslandi bíða nú eftir lokaniðurstöðu könnunar Bechtel fyrirtækisins á kostnaðarhlið flárfestingarinnar. „Þær tölur sem við höfúm þegar séð eru verulega hærri en við áttum von á,“ sagði Edward A. Notter, fúlltrúi Alusuisse í viðræðunefiid fyrirtælg- anna. „Það væri rangt að leyna því að þær hafa valdið okkur öllum vonbrigðum." „Könnunin bendir til að það sé mun dýrara að reisa nýtt álver og fjárfesta í álframleiðslu á íslandi en könnun Atlantal benti til á sínum tíma og við vonuðum fyrir hálfu ári,“ sagði Notter. Hann sagði að fyrirtækin fjögur, Alusuisse, Alum- ined Beheer, Austria Metal og Gránges, myndu fara yfir niður- stöður Bechtels þegar þær liggja Starfsemi Sjóvá- Almennra hafín SJÓVÁ-Almennar tryggingar hf. fékk á miðvikudaginn leyfi heil- brigðis- og tryggingamálaráð- Skíðaferðir Flugleiða: Snjóleysi dreg- ur úr aðsókn SKÍÐAFÓLK í Austurríki hefúr Iítíð getað stundað iþrótt sína að undanförnu, þar sem litíll snjór hefúr verið í fjöllum. Sömu sögu er að segja frá Sviss. íslenskt skiðafólk hefur þvi litíð sótt tíl þessara staða i vetur. í frétt Morgunblaðsins í fyrradag kom fram, að ekki hefur snjóað að ráði í Sviss frá 18. desember. í byij- un þessarar viku snjóaði þó lítillega í Ölpunum, en ékki hefur mælst minni snjór þar á þessum árstíma í yfír aldarfjórðung. herra til vátryggingastarfsemi. Með leyfi þessu tekur Sjóvá- Almennar við öllum viðskiptum og skuldbindingum Sjóvátrygg- ingafélags íslands hf. og Al- mennra trygginga hf. Starfsemi Sjóvá-Almennra hófst því fimmtudaginn 16. febrúar. Öll almenn afgreiðsla verður eftir sem áður bæði í Síðumúla 39 og á Suð- urlandsbraut 4, nema tjónadeild sem staðsett verður í Síðumúla 39 og innheimtudeild og markaðsdeild atvinnurekstrar á Suðurlandsbraut 4. Umboðsskrifstofa Sjóvá- Almennra í verslunarmiðstöðinni Kringlunni, sem og önnur umboð um land allt, opnaði á sama tíma. Fyrirhugað er að flytja aðalskrif- stofur félagsins í október 1989 í Kringluna 5, í húsnæði sem félagið er að byggja. endanlega fyrir og eiga fund með fulltrúum þess á næstu þremur vik- um. „Við munum gera okkar at- hugasemdir og fá skýringu á óljós- um punktum. Fyrirtækin hafa öll eytt tíma og fé í þessa könnun og eru vonsvikin með það sem hún hefur leitt í ljós.“ Fulltrúar fyrir- tækjanna munu eiga formlegan fund með íslenskum aðilum í apríl. Notter sagðist ekki hafa orðið var við breytt viðhorf í álmálinu á íslandi síðan stjómarskipti urðu í haust. „Við höfum nú langa reynslu af álframleiðslu þar og viljum auka hana ef það borgar sig. Við höfum ekki áhyggjur af því þótt raf- magnið hafi farið af í Straumsvík í tvo tíma um helgina, það hefði verið alvarlegt ef um 10 tíma hefði verið að ræða. Framleiðslan í ÍSAL gengur nú betur hvað afköst og gæði snertir en við munum eftir." Grænlaiíd: Morgunblaðið/Þorkell Kaplakriki: Framkvæmdir hafin- ar við íþróttahús FH FRAMKVÆMDIR við smíði íþróttahúss FH I Kaplakrika hófúst síðastliðinn laugardag. Hagvirki bauð best í útboði og á að skila verkinu af sér eftír tæpt ár. Myndin var tekin á laugardag þegar Bergþór Jónsson formaður FH tók fyrstu skóflustunguna en Guðmundur Ámi Stefánsson bæjarstjóri var með hakann til taks. Há farmgjöld koma í veg fyrir sölu kvartz til Islands FYRIRTÆKIÐ Narsaq Minerals í Narsaq á Grænlandi hefúr mikinn áhuga á því að flylja kvartz tíl íslands. Nú eru 5000 tonn af kvartzi tilbúin til innflutnings hingað á hafnarbakkanum í Narsaq. Hinsveg- ar koma há framgjöld I veg fyrir að af þessum innflutningi til íslands. Samkvæmt upplýsingum frá Hagvirki og Malbikunarstöðinni Hlaðbær/Colas hafa Grænlending- amar rætt við þau um þennan inn- flutning en framkvæmdir hafa strandað á verðinu. Hægt er að fá kvartz frá Noregi á mun hagstæð- ari kjörum. Eysteinn Hafberg hjá Hlaðbæ/Colas segir að kvartzið sé helst notað í slitlag enda er það endingargott og ljóst á litinn. Sumarið 1987 kannaði Jám- blendifélagið hvort það gæti notað grænlenska kvartzið í framleiðslu sína. í ljós kom að efnasamsetning þess var ekki nógu hentug til þess. Bo Christiansen verkfræðingur hjá Narsaq Minerals segir að þeir hafí áhuga á að flytja 60.000 tonn af kvartzi til íslands í ár. Til að af þessum flutningum geti orðið þurfí þeir framgjöld sem nema 120 dkr. á tonnið. Hinsvegar standi þeim til boða farmgjöld sem nema 330 dkr. á tonnið. Það verð sé alltof hátt. —-.. .."".. ...... — ............. Líkan að ísaksskóla eins og hann verður, gamla húsið er lengjan sem snýr að Bólstaðarhlíð, en nýbyggingin veit aftur að Stakkahlíð. Skólahúsnæðið tvöfeldast TIL STENDUR að meira en tvöfalda skólahúsnæði ísaksskóla við Bólstaðarhlíð í Reykjavík. Gamla húsnæðið er 838 fermetrar, en fúllgert er á teikniborði dr. Magga Jónssonar arkitekts líkan og teikningar af rúmlega 1000 fermetra viðbyggingu sem mun gerbreyta til hins betra allri kennsluaðstöðu við skólann. Ekki er ætlunin að fjölga nemendum, heldur rýmka um þann fjölda sem fyrir er. Með tilkomu hins nýja húsnæðis mun kennslu verða hætt i kjallara hússins og útíhúsi á lóð skólans. Húsið mun kosta fúllgert án búnaðar um 50 milljónir króna. Áformað er að hefja smíðina í vor og ganga frá húsinu fokheldu fyrir haustið þannig að innivinna geti farið fram næsta vetur. Að sögn dr. Magga Jónssonar er draumurinn að húsið verði tilbúið annað haust. Vegna þess að húsnæðið stend- ur í halla þá reyndust ýmsar leið- ir vera dr. Magga opnar. Byggt verður yfír gamla aðalinnganginn og gengið inn í nýbygginguna. Á aðalhæð hennar verða m. a. fjórar nýjar kennslustofur og kennara- stofa, auk svokallaðs fjölrýmis, sem eru aðlaðandi salarkynni með breiðum teppalögðum pöllum, og stofa undir bókasafn og náttúru- gripi. I kjallara nýja hússins verð- ur m. a. íþróttasalur, snyrting og vinnuaðstaða kennara. Þá verður húsið búið nauðsynlegri aðstöðu fyrir fatlaða. Morgunblaðið/Þorkell Dr. Maggi Jónsson arkitekt við teikniborðið. Modem Iceland Qallar um hvalveiðar Mendinga AFSTAÐA íslendinga til hval- veiða er aðalefúi nýjasta tölu- blaðs tímaritsins Modem Iceland að þessu sinni. í blaðinu, sem kemur út undir heitinu „Gettíng the Facts Straight“, koma m.a. fram ítarlegar upplýsingar um heilbrigt ástand hinna stóru hvalastofiia, sem eru í hafinu í kringum tsland. í þessu sérstaka hvalablaði er lögð megináhersla á tvær stað- reyndir. I fyrsta lagi, að íslendingar eru fagmenn en ekki fúskarar í öllu er viðkemur nýtingu auðlinda sjávar og vemdun þessara auðlinda. I öðm lagi er greint frá vísindaáætlun ís- lendinga og helstu niðurstöðum hennar til þessa. Meðal greinahöfunda era sumir af viðurkenndustu vísindamönnum íslands á sviði sjávarlíffræði. Má þar nefna Jakob Jakobsson, for- stjóra Hafrannsóknastofnunar og forseta Alþjóða hafrannsóknaráðs- ins, Hjálmar Vilhjálmsson, Jóhann Siguqónsson og dr. Gunnar Stef- ánsson, tölfræðing hjá Hafrann- sóknastofnun. f ristjómargreinum í blaðinu er bent á þá einföldu staðreynd að íslendingar eiga allt sitt undir þvi komið, að rétt sé staðið að nýtingu hinna takmörkuðu auðlinda hafsins. íslendingar leggja því mikla áherslu á að standa sem best að rannsókn- um á þessum auðlindum, skiptir þá engu hvort hvalir eða þorskar eiga hér hlut að máli og reyndar er það svo, að allar lífverur hafsins mynda eina óijúfanlega heild þar sem eng- an hlekk má skilja undan. Því era vísindaveiðar íslendinga þeim mikil- vægar, auk þess sem ljóst er, að veiðar á 78 hvölum úr stofnum sem telja tugþúsundir dýra, skipta engu máli varðandi stærð þessara stofna. Þá er samtökum umhverfisvemd- unarsinna bent á, að þau og íslend- ingar eiga mun meira sameiginlegt en hitt og að þessir aðilar ættu að taka höndum saman í baráttunni við þá fjölmörgu, sem ógna lífríki hafsins. Af öðra efni biaðsins má nefna stórskemmtilega grein Sigurðar A. Magnússonar, rithöfundar, „Where are the Vikings?" Þá era í blaðinu fjölmargar smáfréttir um atburði og fólk í atvinnulífinu. Efni þessa tölublaðs, svo og efnismeðferð, mið- ast fyrst og fremst við dreifingu til þriggja hópa, fyrir utan fasta áskrifendur: Til erlendra viðskipta- manna íslenskra fyrirtækja, til sam- taka umhverfisvemdunarsinna og til erlendra fjölmiðla. Modem Ice- land er gefið út af Forskoti sf. og kemur ritið út á ensku fjóram sinn- um á ári. (Fréttatílkyoning)

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.