Morgunblaðið - 17.02.1989, Side 25

Morgunblaðið - 17.02.1989, Side 25
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 17. FEBRÚAR 1989 25 Morgun bl aðið/Þorkell Hinn ftýi togari Reyðfirðinga, Snæfugl SU 20, kom fyirir skömmu til heimahafiiar f fyrsta sinn. Á innfelidu myndinni eru Alfi-eð Steinar Rafiisson skipstjóri á Snæfugli (til vinstri) og Hallgrímur Jónasson firam- kvæmdastjóri Skipakletts hf. f brú Snæfiigls. Snæfugi SU 20 á Reyðarfírði: Þýðir ekki annað en vera bjartsýnn á nýju skipi segir Alfreð Steinar Rafiisson skipstjóri „SNÆFUGL reyndist vel á leið- inni til landsins," sagði Alfireð Steinar Rafiisson, skipstjóri á hin- um nýja togara Reyðfirðinga, Snæfugli SU 20, þegar hann kom í fyrsta skipti til heimahafhar fyrir skömmu. Snæfugl var smíðaður í Flekkefjord í Noregi og um 15 mánuði tók að smíða skipið, að sögn Hallgríms Jónas- sonar framkvæmdastjóra Skipa- kletts hf. á Reyðarfirði, sem er eigandi togarans. Skipaklettur hf. er hins vegar f eigu Gunnars hf., Snæfugls hf., Kaupfélags Héraðs- búa og Reyðarfjarðarhrepps. „Snæfugl er mjög fullkominn og það þýðir ekkert annað en að vera bjartsýnn þegar maður tekur við svona skipi. Það vantar einungis flökunar- og hausunarvélar í togar- ann til að hann geti kallast alfrýsti- skip,“ sagði Alfreð Steinar Rafnsson í samtali við Morgunblaðið. „Snæfugl byijar á hefðbundnum ísfiskveiðum en fjármagnskostnað- urinn er það mikill að mér sýnist að ekki þýði annað en að nýta skip- ið sem alfrystitogara," sagði Hall- grímur Jónasson. Snæfugl er 598,7 brúttórúmlestir. Skipið er 50,6 metra langt og 12 metra breitt. Það er með 2.500 hest- afla aðalvél sem er af tegundinni MAK. Bæjarstjórn Vestmannaeyja: Iþróttakappleikj um bama verði frestað þegar veður eru válynd Vestmannaeyjum. Á FUNDI bæjarsljórnar Vest- mannaeyja fyrir skömmu komu til umræðu ferðalög íþróttahópa i þeim óveðrum sem gengið hafa yfir að undanförnu. Bæjarstjórn samþykkti i framhaldi af þessum umræðum áskorun til ISÍ varð- andi þessi mál. Það var Guðmundur Þ. B. Ólafs- son íþróttafulltrúi sem hóf þessa umræðu, utan dagskrár í bæjar- stjóm. Sagði hann að ástæða þessar- ar umræðu væru þær hrakningar sem íþróttahópar hafa lent í, í ferða- lögum sínum að undanfömu. Taldi Guðmundur það ábyrgðarhluta að senda böm og unglinga í ferðir í veðrum eins og ríkt hafa. Guðmundur sagði að talað hefði verið fyrir daufum eyrum hjá for- ystumönnum Handknattleikssam- bands íslands varðandi frestun móta, þrátt fyrir slæmar veðurspár. Engin vilji væri til breytinga og liðin yrðu einungis dæmd frá keppni með tilheyrandi sektum ef þau mættu ekki til leiks. Hann minnti á að þó svo að Her- jólfur gæti gengið milli lands og Eyja þá væri það vart fyrir hópa bama að ferðast með honum í vit- lausu veðri, énda hefði áhöfn Her- jólfs lýst ýfir áhyggjum sínum vegna þessara mála. Guðmundur lagði þunga áherslu á það að mótafyrirkomulag yrði þannig úr garði gert að tekið yrði tillit til veðurs og færðar þegar að mót væru sett á. Sigurður Jónsson tók undir orð Guðmundar og hvatti til þess að menn létu ekki áfram bjóða sér þá framkomu að láta hálfpartinn neyða íþróttaflokka af stað í vitlausu veðri og ófærð. Bæjarstjóm kom sér síðan saman um svohljóðandi tillögu sem sam- þykkt var samhljóða: Bæjarstjóm Vestmanneyja skorar á sérsambönd innan ÍSI að taka fullt tillit til erfiðleika í samgöngum þegar að haldnar em keppnir bama og unglinga. Bæjarstjórn bendir á þá hættu sem samfara er því að senda börn og unglinga út í válynd veður við oft afar erfiðar aðstæður, eins og að undanförnu. Með hliðsjón af ofangreindu skor- ar bæjarstjóm Vestmannaeyja á við- komandi aðila, að kappleikjum barna og unglinga verði skilyrðislaust fre- stað þegar veður eða veðurútlit er með þeim hætti að ætla má að teflt sé í tvísýnu með ferðalögum á sjó og landi. Bæjarstjórn sendi stjórn ÍBV þessa tillögu strax eftir fundinn. Fundaði stjóm ÍBV þegar í stað um þessi mál og ákvað í framhaldi af því að senda ekki hópa til keppni um síðustu helgi. Mótanefnd HSÍ var tilkynnt þessi ákvörðun og þeim sagt frá samþykkt bæjarstjórnar varðandi þetta. í framhaldi af þessu ákvað móta- nefnd að fresta leikjum þeirra hópa frá Eyjum er keppa áttu um síðustu helgi. • — Grímur Fískverð ð uppboðsmörkuðum 16. febrúar. FISKMARKAÐUR hf. í Hafnarfirði Hæsta Lægsta Meðal- Magn Heildar- verð verð verð (lestir) verð (kr.) Þorskur 71,00 54,00 69,02 8,978 619.698 Ýsa 113,00 90,00 95,34 3,977 379.165 Karfi 50,00 50,00 50,00 0,134 6.740 Steinbítur 26,00 26,00 26,00 0,011 306 Steinbitur(óst) 16,50 10,00 11,75 1,238 14.550 Ufsi 31,00 29,00 30,40 1,458 44.331 Lúða 240,00 240,00 240,00 0,054 13.068 Keila(ósL) 10,00 10,00 10,00 0,064 645 Samtals 67,76 15,917 1 .078.503 Selt var úr Sigurði Ólafssyni SF, Bjarna Gíslasyni SF, Erlingi SF, Geira Péturs ÞH, Jóa á Nesi SH, fró Sigurði Ágústssyni á Rifi, Nesveri og Kristjóni Guðmundssyni. FAXAMARKAÐUR hf. í Reykjavík Þorsk(ósl.l.bL) 64,00 63,00 63,58 0,372 23.651 Þorsk(umálósl) 20,00 20,00 20,00 0,019 Þorsk(sl1-2n) 50,00 50,00 50,00 1,447 72.350 Ýsa 83,00 83,00 83,00 0,030 2.490 Ýsa(ósL) 93,00 90,00 91,62 0,374 34.266 Ýsa(umálósl) 36,00 36,00 36,00 0,094 3.384 Ufsi 15,00 15,00 15,00 0,017 255 Steinbitur(ósL) 26,00 26,00 26,00 0,041 1.066 Hrogn 131,00 90,00 122,48 0,197 24.129 Samtals 58,69 1,644 96.479 Selt var úr neta- og linubáti. ( dag verður selt úr bátum. FISKMARKAÐUR SUÐURNESJA hf. Þorskur 56,50 47,50 52,44 5,500 288.400 Ýsa 103,00 51,00 87,97 2,454 215.890 Ufsi 25,00 15,00 18,53 8,500 157.500 Karfi 42,00 26,00 28,99 0,643 18.638 Steinbítur 47,00 35,00 45,91 0,330 15.150 Langa 34,00 34,00 34,00 0,250 8.500 Lúða 565,00 360,00 491,20 0,054 26.525 Keila 17,50 17,50 17,50 0,090 1.575 Skata 73,00 72,00 72,43 0,072 5.215 Samtals 41,21 17,893 737.393 Selt var aðallega úr Jóhannesi Jónssyni KE, Hrungni GK og Þorsteini Gíslasyni GK. I dag verður selt úr dagróðra og snur- voðarbátum ef ó sjó gefur. * Islands- mót í hár- greiðslu oghár- skurði ÍSLANDSMÓT í hárgreiðslu og hárskurði fer firam á sunnudag- inn á Hótel íslandi. Mótið hefet kl. 9 árdegis og er gert ráð fyr- ir að því ljúki kl. 16.30 síðdegis. Keppendur eru alls 24, 9 hár- greiðslumeistarar og sveinar og 14 hárgreiðslunemar, 7 hár- skeramefetarar og sveinar og 4 hárskurðarnemar. Þrir efetu keppendur á mótinu munu skipa landslið íslands sem tekur þátt í Norðurlandakeppni og Heims- meistarakeppni í greinunum, að sögn Helgu S. Jóhannsdóttur formanns Sambands hár- greiðslu- og hárskerameistara. íslandsmótið fer þannig flram að hárgreiðslumeistarar og sveinar keppa í viðhafnargreiðslu eða svo- kallaðrí gala-greiðslu, daggreiðslu, klippingu og blæstri en nemamir í lítilli gala-greiðslu, klippingu og blæstri. Hárskerameistarar, sveinar og nemar keppa í klippingu og tísku- greiðslu og meistarar og sveinar keppa í listrænni útfærslu á eigin módeh. Einnig er keppt í sígiidri hárskurðarmótun eða skúlptúr. Á meðan á mótinu stendur kynna heildverslanir hársnyrtivör- ur og bandarískur hárgreiðslu- meistari verður með sýningu. Dómarar eru frá Bandaríkjunum, Belgíu og Noregi. Útfor Lovísu frá Arnarbæli Hveragerði. ÚTFÖR Lovisu Magneu Ólafe- dóttur frá Arnarbæli fór fram síðastiiðinn Iaugardag frá Hveragerðis- og Kotstrandar- kirkjum. Lovisa annaðist í nær sjö áratugi organistastörf i Ölf- usi og nágrenni. Sóknarprestur- inn, séra Tómas Guðmundsson, jarðsöng. Kirkjukór Hveragerðis og Kot- strandarsókna söng undir stjóm Karls Sighvatssonar organista. Haukur Guðlaugsson söngmála- stjóri lék á orgel. Sigurveig Hjalte- sted óperusöngkona söng einsöng. Sóknamefndir Hveragerðis og Kotstrandarsókna ásamt kirkju- garðsnefnd vildu sýna hinni látnu virðingu og þökk með því að kosta útförina. Fjölmenni var við útför- ina þrátt fyrir slæmt veður og tvísýna færð. - Sigrún Reykjanesbraut: Sjö bílar í árekstri Vognm. SJÖ bílar lentu i tveimur árekstrum á Reykjanesbraut, fyrir innan Vogaafleggjara I hádeginu síðastliðinn miðviku- dag. Þá var glórulaus bylur og sá ekki út úr augum, sagði varð- stjóri í lögreglunni i Keflavík i samtali við Morgunblaðið og varð lögreglan að ioka brautinni fyrir umferð i tvær stundir af þessum sökum. Fjórir bílar lentu í árekstri klukkan 12.10 er ekið var aftan á kyrrstæða bifreið, sem hafði verið skilin eftir. Tæplega hálfri klukku- stund síðar, lentu þrír bílar saman á sama stað, þegar fyrsti bíllinn reyndi að staðnæmast, vegna kyrr- stæðu bifreiðarinnar. Engin slys urðu á fólki i árekstr- inum, en bílamir eru mikið skemmdir. - E.G. Loðnan fundin á Meðallands- bugtinni LOÐNUVEIÐIN er nú hafin að nýju eflár versta ótíðarkaflann síðustu daga. Frá áramótum hafii veiðzt 212.230 tonn, sem er nokkru minna en á sama tíma í fyrra. Skipin fundu loðnuna meðal annars á Meðallandsbugt, þar sem þau köstuðu nánast uppi í fjöru. Loðnufrysting er hafin að nýju. Á miðvikudagskvöld tiikynntu fimm skip um afla: Guðmundur VE 870 og Sighvatur Bjamason VE 450 til Eyja, ísleifur VE 740 til Færeyja, Sunnuberg GK 500 tíl Grindavíkur og Húnaröst ÁR 600 til Homaflarðar. Síðdegis á fimmtudag höfðu eft- irtalin skip tilkynnt um afla: Há- berg GK 650 til Grindavíkur, Vala- berg GK 350 og rifina nót til Þor- lákshafnar, Dagfari ÞH 610 til Sandgerðis og Hilmir SU 700 á vesturleið. HafnarQörður: Aukasýningar á unglingaleikriti HIN nýstofnaða unglingadeild Leikfélags HafnarQarðar frum- sýndi í nóvember sl. leikritíð „Þetta er allt vitleysa, Snjólfinr". Leikritið var samið af leikhópn- um undir leiðsögn leikstjórans Guðjóns Sigvaldasonar og fjallar um líf unglinga í gamni og aívöru. Nú stendur til að hafa aukasýning- ar á verkinu vegna fjölda áskor- ana, dagana 18. og 19. febrúar klukan 17.00 og miðvikudaginn 22. klukkan 20.00. Athugasemd frá Myndsýn Morgunblaðinu hefiir borist eftirfarandi athugasemd frá Myndsýn hf: „Vegna greinar sem birtist i Morgunblaðinu þann 14. febrúar s.l. þar sem fjallað var um ákvörðun Verð- lagsráðs að banna að nota orðið „ókeypis" og vitnað í Gísla íslei&son lögfræðing hjá Verð- lagsstofnun, viljum við að eftir- farandi komi firam: „Það er staðreynd að í viðskipt- um okkar við neytendur, látum við af hendi filmu „ókeypis", sem við teljum til hagsbóta fyrir neytend- ur, en ekki á neinn hátt villandi. Einnig teljum við að þetta sé til þess fallið að örva samkeppni en ekki óheiðarlegt gagnvart keppi nautum og því hvetjandi til lægra verðlags. Þegar sú ákvörðun var tekin að gefa filmu með framköllun, skal á það bent að framköllunarverð hækkaði ekki hjá okkur og við höfum alltaf verið á sambærilegu verði og aðrar framköllunarstofur samkv. verðkönnunum. Einnig er- um við með umboðsaðila sem gefa ekki filmu með framköllun, en þar greiðir viðskiptavinurinn sama verð og þar sem hann fær „ókeyp- is“ filmu, þannig að við teljum fil- muna ekki vera innifalda f vöru- verði."

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.