Morgunblaðið - 22.02.1989, Qupperneq 17

Morgunblaðið - 22.02.1989, Qupperneq 17
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 22. FEBRÚAR 1989 17 Félagsmálaráðuneytið stöðvar valdníðslu bæj- arstjórnar Kópavogs eftirSigurð Helgason Þann 19. janúar sl. var kveðinn upp stðrmerkur úrskurður í-félags- málaráðuneytinu, þar sem fellt er úr gildi byggingarleyfi á lóðinni Sunnubraut 54 í Kópavogi, sem samþykkt var í bygginganefnd Kópavogs þann 13. október sl. Einnig var lagt fyrir bæjarstjórn að gera uppdrætti sem sýni afstöðu lóða og þeir auglýstir. Úrskurður þessi er uppkveðinn af Jóhönnu Sigurðardóttur, félags- málaráðherra, og Berglind Ásgeirs- dóttur, ráðuneytisstjóra. Það fer ekki á milli mála, að þessi úrskurður og málsmeðferð félagsmálaráðuneytisins gæti haft fordæmisgildi og haft heilladijúg áhrif í framtíðinni og þá ekki síst orðið viðvörun til sveitarstjóma að gæta réttar þegnanna og fylgja lagaákvæðum í allri stjómsýslu. Rétt er að benda á að félagsmála- ráðuneytinu ber að sjá til þess að sveitarfélög fari að lögum, svo og fer það með yfirstjóm skipulags- mála. Til þess að forðast allan mis- skilning skal tekið fram að undirrit- aður er mikill stuðningsmaður auk- innar sjálfsstjómar sveitarfélaga svo og valddreifingar í þjóðfélaginu. Framangreint byggist ekki síst á því að það er eindregin skoðun mín að með því eigi að aukast réttur íbúanna, enda eiga áhrif þeirra að aukast á allri stjómun. Undirritaður er kunnugur sveitarstjómarmálum og hefur starfað 13 ár í bæjarstjóm Kópavogs og unnið að þeim mála- flokki sl. 8 ár. En á sveitarfélögun- um hvílir aftur á móti sú skylda til þess að halda tiltrú íbúanna að gæta réttar þeirra og fylgja lögum, án tillits til þess hver á í hlut. Verða nú helstu málsatvik rakin nánar. Grænt svæði norðan Fossvogslækjar Af hálfu bæjarstjómar Kópavogs hefur verið gert ráð fyrir og sam- þykkt grænt útivistarsvæði með- fram sunnanverðri Kársnesströnd- inni frá árinu 1970, sem þó var ekki staðfest endanlega, en samt hefur verið unnið eftir því síðan. Var í þessu sambandi gert ráð fyr- ir að íbúar Kópavogs gætu hagnýtt sér þá möguleika sem felast í að stunda sjóböð, siglingar svo og er hér ákjósanleg gönguleið og útivist- arsvæði. Ekki síst ber hér að hafa í huga að þetta svæði hlýtur að verða mikið aðdráttarafl fyrir æsku þessa byggðarlags, vegna mögu- leikanna sem felast í heita vatninu. Tekið skal fram, að þegar undirrit- aður keypti húseign sína á Þing- hólsbraut 53, þá kynnti þáverandi bæjarverkfræðingur, Ólafur Jens- son, þetta skipulag og hugmyndir um framtíðarútivistarsvæði, en hann átti stóran þátt í mótun þessa framtíðarskipulags. í umræðum við ýmsa núverandi bæjarfulltrúa og bæjarstarfsmenn hefur því miður komið í ljós að þeir vita nær ekkert um þessi mál. Til þess að varðveita grænt göngusvæði frá Kópavogs- hæli til enda Kársnessins hefur ver- ið föst venja til margra ára í bæjar- stjórn að húsin meðfram ströndinni væru á einni hæð og að stærð þeirra verði í samræmi við ofangreint framtíðarskipulag. Fjölmörg dæmi eru að íbúum hafi verið neitað um stækkun af þessum sökum. Af hálfu bæjaryfirvalda Kópa- vogsbæjar hefur verið mikið rætt um varðveislu Fossvogssvæðisins og Reykjavíkurborg borin þungum sökum. I sjálfu sér tel ég varðveislu grænna svæða og umhverfismál almennt vera eitt af framtíðarmál- um okkar þjóðar og höfum við eng- in efni á því að verða á fleiri mis- tök en orðin eru og ekki er hægt að bæta. En í þessu sambandi vil ég alveg sérstaklega fordæma þau vinnubrögð yfirvalda Kópavogs að hafa aðra skoðun á þessum málum eftir því hvorum megin Fossvogs- lækjar umhverfismál eru til um- fjöllunar. Stærsta einbýlis- hús Kópavogs Þann 25. febrúar 1988 var sam- þykkt í bæjarráði Kópavogs erindi Eyjólfs Brynjólfssonar um stækkun lóðar Sunnubrautar 54 til vesturs um 5 metra. Umrædd lóð var þó stærsta einbýlislóðin í hverfinu, 914 fm að stærð, en við hana bættust 120 fm. Bæjarverkfræðingur benti þó bæjaryfírvöldum á að hann teldi rétt að leggja þyrfti þessa breytingu fyrir skipulagsstjóm ríkisins lögum samkvæmt. Engum íbúa þessa svæðis var gert viðvart, en lóðar- stækkunin náði til fjölmargra tijáa meira en 40 ára gamalla, en þá þarf leyfi Skógræktar ríkisins og við sjávarströndina var bátalægi og lítil vör. Nokkrum mánuðum síðar var íbúum þessa svæðis ljóst að þama ætti að reisa fjögurra hæða einbýlishús, þ.e. kjallara, tvær hæð- ir og ris, sem líktist helst villunum í amrískum sjónvarpsþáttum og all- ir þekkja. Erindið kom fyrir bygg- inganefnd Kópavogs þann 9. júní sl. og var fellt með öllum atkvæð- um, en áður höfðu allir húseigendur á þessu svæði mótmælt stærð húss- ins. Mótmælum. húseigenda Þing- hólsbrautar 53A og B til bæjar- stjómar að ólöglega væri staðið að stækkun áðurgreindrar lóðar var ekki svarað. Það sem þó vakti mikla undrun var að arkitekt „hallarinn- ar“ var Skúli Norðdahl, sem jafn- framt var skipulagsarkitekt Kópa- vogsbæjar. Af hálfu bæjarstjómar Kópavogs var ekkert fundið at- hugavert við þessa tilhögun, en mun í dag vera mikið aðhlátursefni þeirra sem fjalla um skipulagsmál hér á landi og notað sem skólabók- ardæmi öðrum til varnaðar um fá- heyrð vinnubrögð. Margt er skrýtið íkýrhausnum Þann 12. október sl. hafði bæjar- stjóri, Kristján Guðmundsson, sam- band við undirritaðan og tilkynnti að teikning að umræddu húsi yrði samþykkt í bygginganefnd daginn eftir. Hefðu verið gerðar verulegar breytingar og spurði hann hvort málið væri ekki þar með fallið nið- ur, því að bæjarstjóm vildi ekki vera í málaferlum við_ fyrrverandi forseta bæjarstjómar. Ég tjáði hon- um að við feðgar myndum kæra málið til félagsmálaráðuneytisins, sem færi með yfirstjóm skipulags- mála, þar sem ólöglega hefði verið staðið að þessari lóðarstækkun. Á bygginganefndarfundi var fram- lögð teikning ekki samþykkt ein- róma og tveir reyndustu fulltrúar í bygginganefnd gerðu svofellda bók- un. „Við álítum að teikningar þær sem núna liggja fyrir bygginga- nefnd séu að óverulegu leyti breytt- Sigurður Helgason „Það er og lærdómsríkt fyrir starfandi minni- hluta að láta ekki teyma sig í ógöngur í máli þessu og er ekki trúlegt að þeir fái miklu áork- að í framtíðinni, ef þeir geta ekki myndað sér sjálfstæða stefinu í jafin einföldu máli.“ ar frá þeim er synjað var 9. júní sl. svo að það réttlætir ekki breytta afstöðu bygginganefndar til máls- ins“. Það kemur af framansögðu og í Ijós að bæjarstjóri, sem ber að vera hlutlaus, hefur stofnað til klíku- fundar með hluta af fulltrúum bygginganefndar, sem hefur sam- þykkt teikningarnar. Slíkt stríðir gegn bæjarmálasamþykkt Kópa- vogsbæjar og teljast fáheyrð og ólögleg vinnubrögð. Hvað liggur hér að baki fæ ég ekki skilið? Umsögn bygginganefndar er svohljóðandi um hina samþykktu teikningu: Húsið er einbýlishús og skiptist í íbúðarhæð, rishæð, hana- bjálkahæð og undir hluta er niður- grafmn kjallari. Stærð hússins er samtals 595.8 fm, en þar af er kjall- ari 161.9 fm, samtals 1827 rúm- metrar. Skipulagsstjóri ríkisins tel- ur húseignina 655 fm (skakkar 60 fm) og nýting verði 0.7 á' meðan eðlileg nýting í einbýlishúsahverfi sé 0.2—0.4. Eitthvað virðast upplýs- ingar stangast á milli þessara aðila. Niðurstaðan var eins og fyrr segir: Félagsmálaráðuneytið úrskurðar, að byggingarleyfið sé fellt úr gildi og bæjarstjóm skylt að auglýsa breytingar á deiliskipulagi. Voru því kröfur kærenda teknar að öllu leyti til greina. Enn höggið í sama knérunn í Morgunblaðinu þann 10. febrú- ar sl. var auglýst nýtt deiliskipulag, þar sem lóðarstækkunin að Sunnu- braut 54 er kynnt og auglýst og fcúum gefin kostur á að mótmæla. í bæjarstjóm var felld tillaga um að fresta framkvæmdum við vænt- anlega „hallarbyggingu" uns fyrir lægi úrskurður ráðherra, með 5 atkvæðum gegn 3, en skipulags- stjóri ríkisins undraðist mjög þessa afstöðu bæjarstjómar, sem að sjálf- sögðu lýsir ótrúlegu ábyrgðarleysi. Umræddur byggingaraðaili hóf framkvæmdir án tilskilinna leyfa, en því mætti bæjarstjóm með al- gjöru skilningsleysi og aumingja- skap og hefur nú verið grafin 4 metra djúp gryfja, sem er stór- hættuleg bömum í nágrenninu. Byggingaraðili hótar bæjarstjóm málssókn og enn er lagt á flótta. Er ekki tími til kominn að mál þetta verði tekið fyrir af bæjarstjóm Kópavogs með fullri festu og ábyrgð? Núverandi meirihluti, þ.e. Alþýðubandalagið og Alþýðuflokk- urinn, hefur talið sig félagshyggju- flokka, sem nú beijast gegn útivist- arsvæðum bæjarbúa og virðast fyrst og fremst allt vilja gera til að nefnd hallarbygging verði reist. Hjúkrunarheimilið Sunnuhlíð sótti um lóð fyrir íbúðir fyrir aldraða, en ekkert svar hefur borist í tæp tvö ár. En samþykkja þarf nýtt deiliskipulag, en það mætir afgangi því að allt kapp er nú lagt á marg- nefnt ævintýri. Það er og lær- dómsríkt fyrir starfandi minnihluta að láta ekki teyma sig í ógöngur í máli þessu og er ekki trúlegt að þeir fái miklu áorkað í framtíðinni, ef þeir geta ekki myndað sér sjálf- stæða stefnu í jafn einföldu máli. Að lokum vil ég hvetja íbúa Kópavogs til þess að fylgjast vel með framvindu þessa máls og af- stöðu einstakra bæjarfulltrúa. Það er eindregin skoðun mín að skyn- samleg hagnýting útivistarsvæðis að sunnanverðu í Kársnesinu horfi til mikilla heilla fyrir æsku okkar bæjar. Höfiindur er bæjarfógeti á Seyðis- firði ogsýslumaður Norður-Múla- sýslu. Stjórnunarfélag íslands Ánanaustum 15 Sími; 6210 66 Nýjar lesarkir frá Námsgagnastofiiun HJÁ Námsgagnastofiiun eru komnar út tvær nýjar bækur í flokki svokallaðra lesarka. Les- arkirnar sem nú koma út eru Skuggar og Ævintýri og veru- leiki. Lesarkir þessar hafa fengið nýtt útlit og verða þær lesarkir sem áður hafa komið út færðar í sama búning um leið og þær fara til end- urprentunar. Auglýsingastofa GIH hannaði útlit bókanna. Báðum lesörkunum fylgja kennsluleiðbeiningar sem verða fáanlegar á næstu vikum. í lesörkinni Skuggum er fjallað um fólk sem ekki hefur auðnast að vera sólarmegin í tilverunni. Brugð- ið er upp textum frá ýmsum tímum úr íslenskum bókmenntum, ljóðum og skáldsögum, smásögum eða frá- sögnum úr annálum og blöðum. Efni bókarinnar hentar einkum til umfjöllunar með nemendum í 7.-9. bekk grunnskóla. Hjálmar Ámason og Magnús Jón Amason söfnuðu efninu en Guðrún Tryggvadóttir er höfundur myndefnis. Bókin er alls 104 blaðsíður. í Ævintýri og veruleika er ann- ars vegar að finna ýmsar gamlar og nýjar ævintýrafrásagnir og hins vegar raunsæilegar frásagnir úr mannlífinu. Með þessu móti er vak- in athygli á að sögur af ýmsu tagi eru sífellt að gerast í kringum okk- ur; raunsæislegar sögur eru venju- lega lýsingar á hversdagslegum við- burðum og „gætu gerst hvar sem er“, en ævintýri endurspegla og upphefja hversdagsleikann. Lesörk- in ætti að henta vel í 4.-6. bekk. Heimir Pálsson annaðist endanlegt val efnis en Svava Bjömsdóttir teiknaði myndirnar í bókina. Bókin er samtals 80 síður. Báðar þessar bækur em settar og prentaðar í Steinholti hf. en bundnar hjá Félagsbókbandinu, Bókfelli hf. DEILDASKIFTING FYSISTÆEJA ERTU AÐ BREYTA SKIPULAGINU í FYRIRTÆKINU ÞÍNU - EÐA HUGLEIÐIR ÞÚ SLÍKAR BREYTINGAR? Námskeið þetta er ætlað þeim, sem þegar eru þúnir að skipta rekstri fyrirtækis síns í deildir eða rekstrareiningar, eða eru að hugleiða slíkar breytingar. Á námskeiðinu verður fjallað um þær breyt- ingar sem verða á fjárhagsstýringu við slíka uppstokkun. Meðal efnis er: • Hvers vegna deildaskipting? • Hvaða uppgjörsform á að nota? • Áhrif uppgjörsforms á fjárhagsstýringu. • Innri og ytri gjaldskrár fyrirtækisins. • Skipting sameiginlegs kostpaðar. ÞátttakendunNámskeiðið er ætlað framkvæmdastjórum, fjármálastjórum og bókurum lítilla og meðalstórra fyrir- tækja. Leiftbelnendur:Ágúst Valgeirsson og Ólafur B. Birgisson, rekstrar- og hagverkfræðingar. Tími og staður: 27. febrúar frá 09:00 -17:00 í Ánanaustum 15. (Fréttatilkynning)

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.