Morgunblaðið - 22.02.1989, Page 31

Morgunblaðið - 22.02.1989, Page 31
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 22. FEBRÚAR 1989 31 Stjörnu- speki Umsjón: Gunnlaugur Guðmundsson LjóniÖ og athygli Hið dæmigerða Ljón (23. júll — 23. ágúst) er sagt skap- stórt og ráðríkt, opið I tján- ingu og áberandi I umhverfí sínu. Þegar við hugsum til þeirra manna sem eru I Ljóns- merkinu sjáum við fyrir okkur sterka persónuleika, menn sem eru litríkir, hlýir, einlæg- ir og gefandi og jafnframt stórtækir og fyrirferðarmiklir. Þetta er rétt svo langt sem það nær, því mörg Ljón eru þannig. Eigi að síður eru mörg þeirra lokuð og þung og að því er virðist lítið fyrir að láta á sér bera. ÞungtLjón Ég hef velt þessu töluvert fyrir mér. Af hveiju eru sum Ljón þung og hlédræg, þó þau vilji athygli og vilji vera sér- stök? Niðurstaða mín er eftir- farandi: Auk þess að vilja vera sérstakt er Ljónið fast fyrir og á erfítt með að gera málamiðlanir. Það þýðir að mörg Ljón eiga erfitt með að sætta sig við annað en það að vera í miðju og vera sá sem skiptir máli. Ljónið dregur sig því frekar I hlé heldur en að vera aukahjól undir vagnin- um. Það nennir ekki að silja hjá í aukahlutverki og horfa á aðra hljóta lofið. Aðalhlutverk Mín reynsla er sú að Ljónið eigi stundum erfítt með að stunda „eðlileg" samskipti. Það hlustar ekki alltaf á aðra og á erfítt með að gefa og taka til jafns á við aðra. Það dregur sig þvf í hlé ef það fær ekki að ráða. Ég hef t.d. heyrt sögur af Ljónum sem hafa móðgast ef ekki hefur verið tekið nógu vel á móti þeim þegar þau hafa komið I heim- sókn til fólks. Uppeldi Annað atriði sem getur dregið úr Ljóni varðar uppeldi. Ef foreldrar sýna litla Ljóninu ekki athygli, eða vanrækja það á einhvem hátt er hætt við að því fari að finnast sem eitthvað sé að því sjálfu. Það verður óánægt með sjálft sig og sjálfstraustið minnkar. Hversu mikla athygli? Þetta með Ljónið I bemsku vekur upp ákveðna spumingu. Hversu langt á að ganga I því að veita Ljóninu athygli? Mér var nýlega sögð saga af 9 ára gamalli telpu I Ljónsmerkinu. Þessi saga er ekkert eins- dæmi. Þegar gestir em I heimsókn hjá telpunni og t.d. 6—7 fullorðnir sitja saman I stofúnni og em að reyna að tala saman þá hegðar hún sér þannig að öll athyglin beinist stöðugt að henni og hinir full- orðnu ná ekki að tala saman. Konan sem sagði þessa sögu bætti því við að þetta væri óþolandi en sagði um leið að erfítt væri að eiga við þetta því ekki mætti brjóta eðli bamsins. Spumingin er því sú: Hvar liggja mörkin í upp- eldi? VerÖskulduð athygli Að mlnu mati þarf að sýna Ljónsbami athygli umfram önnur böm og það þarf að veita því jákvæða hvatningu, hrósa því og hlusta á það segja sögur. Ljónið þarf hins vegar að læra að það getur ekki fengið athygli sjálfkrafa. Það verður að vinna til henn- ar, eins og aðrir. Ég tel því rétt að stöðva það af þegar það er að heimta athygli út á ekki neitt, en hrósa því óspart þegar það hefur gert eitthvað vel. Ef Ljóninu er sýnd eðlileg athygli, fer það ekki að krefj- ast óeðlilega mikillar eða nei- kvæðrar athygli, þ.e. fer að brjóta af sér bara til þess að verða miðdepill umræðu. GARPUR GARPOH TBtOJg LÖGM /SÍNAP HENÞUR þEGAPL HAMN HITTie 7VO BÖTA / ' GRETTIR BRENDA STARR UOSKA 5JÁÐO TIL, PETTA l'AGA TIL80P ‘ 5TENOOR BKKI EG ER FARINN A& HALPA AE> HONOM HAFI EKKI VERIB) A I \/ADfl ' FERDINAND SMAFOLK ANP UJe'll 5TART EATIN6 A5 500H A5 W00P5T0CK 6ET5 HERE LIITH THE /V\AR5HMALL0L)5... Við förum að borða um leið og Bíbi kemur með sykurpúðana. BRIDS Umsjón: Guðm. Páll _ Arnarson Ein litríkasta persónan í dýra- garði Mollos er gríski auðjöfur- inn Papa, eða Themistokles Papadopolus, eins og hann heitir fullu nafni. Papa er snjall spilari en ekki sigursæll. Hann hefur nefnilega einn alvarlegan veik- leika: honum er fyrirmunað frá náttúmnnar hendi að spila sönnu spili. Þessi blekkingar- árátta hans er oft dýrkeypt. Norður gefur; NS á hættu. Norður ♦ 7654 ♦ K3 ♦ 86 ♦ ÁKD82 Vestur ♦ K1093 ♦ DGIO ♦ Á102 ♦ G109 Austur ♦ 8 ♦ 98762 ♦ DG94 ♦ 543 Suður ♦ ÁDG2 ¥Á54 ♦ K753 ♦ 76 Vestur Norður Austur Suður — 1 laut Pass 1 spaði Pass 2 spaðar Pass 3 tíglar Pass 3 spaðar Pass 3 grönd “ - Pass Pass Pass Útspil: hjartadrottning. Papa var með spil vesturs og fékk að eiga fyrsta slaginn. Hann spilaði hjarta áfram á kóng blinds og sagnhafí svínaði strax I spaðanum. Papa drap á kónginn og lagðist undir feld. Það var auðvelt að telja slagi sagnhafa. Hann á ÁK I hjarta og ÁG I spaða. Sem em fjórir slagir og laufíð gefur honum hina fímm. Spilið virðist því vera óhnekkjandi. En Papa hafði eitt með sér. Sagnhafí veit ekki hvemig ligg- ur I laufinu. Mun oftar það 4-2, og þvi kemur vel til greina að dúkka lauf einu sinni til að tryggja þar Ijóra slagi. Þ.e.a.s. ef suður heldur að hann þurfi aðeins Jjóra á lauf. Og það dug- ir honum brotni spaðinn 3-2. Papa spilaði því laufi og þvingaði sagnhafa til að taka strax ákvörðun, áður en hann fékk ráðrúm til að kanna spaða- leguna. Snilldarvöm, en auðvit- að þurfi hann að klúðra henni með því að velja TÍUNAI? Aum- ingja Hérinn I sæti suðurs þorði ekki að dúkka, því hann óttaðist að austur yfirdræpi og skipti yfir I tígul. Nokkuð sem hann kærði sig ekki um. SKAK Umsjón Margeir Pétursson Á hinu árlega móti I Wijk aan Zee I Hollandi I janúar kom þessi staða upp I skák stórmeistaranna Anand, Indlandi, sem hafði hvftt og átti leik, og Ivan SokolovT Júgóslavíu. 36. Ra6! (Svartur hefði hins vegar haft einhveija möguleika á að bjarga sér eftir 36. Re4 — Kd7.) 36. - Dxh4, 37. Df8+ - Kd7, 38. Rc5, mát! Anand, sem varð heimsmeistari unglinga árið 1987 viröist I stöðugri framför. Mörgum stendur sérstakur ótti af honum vegna þess hve hratt hann teflir. Á þessa skák notaði hann t.d. aðeins 67 mínútur, en svartur klukkutima og 59 mín.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.