Morgunblaðið - 18.03.1989, Síða 1
52 SIÐUR OG LESBOK
65. tbl. 77. árg.
LAUGARDAGUR 18. MARZ 1989
Prentsmiðja Morgunblaðsins
Holland:
Eiturleifar í snuð-
um og naghringjum
Amsterdam. Reuter.
í HOLLANDI hefur verið bannað að selja tvo þriðju þeirra teg-
unda af snuðum og svokölluðum naghringjum, sem verið hafa
fáanleg í landinu. Skýrði talsmaður hollenska heilbrigðisráðuneyt-
isins frá þessu í gær.
Vegna fjölmargra kvartana um
ofnæmi og útbrot í börnum gekkst
hollenska heilbrigðisráðuneytið
fyrir rannsókn á fyrrnefndum vör-
um og kom þá í ljós, að 36 tegund-
ir af 49 hafa inni að halda of
mikið af eiturleifum, sem raktar
eru til gúmmívinnslunnar. Sagði
talsmaður heilbrigðisráðuneytis-
ins, Annette Dijkstra, að hinar
tegundirnar 13, sem eru að tveim-
ur undanskildum úr gagnsæju sili-
kongúmmíi, hefðu rétt sloppið fyr-
ir horn og yrðu bannaðar um
næstu áramót ef framleiðslan yrði
ekki bætt.
Sovéskur landbúnaður:
Greinir á um úrbætur
Skokkað
á skóla-
slitum
GEORGE Bush
Bandaríkjaforseti
hefur átt nokkuð
undir högg að
sækja að undan-
förnu, einkum
vegna Tower-
málsins, og hafa
sumir andstæð-
inga hans sakað
hann um að veita
ríkisstjórninni
ekki þá forystu,
sem vera ber. Bush
hefur nú snúist til
varnar og sakað
þingið, sem demó-
kratar ráða, um
óhófseyðslu og
andstæðinga sina
um ástæðulaus
upphlaup. Bush
var í gær viðstadd-
ur skólaslit í Chey-
enne-framhalds-
skólanum í Col-
orado Springs í
Colorado og var
myndin tekin þeg-
ar hann skokkaði
um stund . með
nemendunum.
Samdægurs fékk
hann þá frétt af
þingi, að það hefði
einróma samþykkt
þingmanninn Dick
Cheney sem nýjan
vamarmálaráð-
herra.
Reuter
Lockerbie-slysið:
Er vitað hver stóð að
baki hermdarverkinu?
London. Reuter.
BRESK blöð sögðu í gær, að lög-
reglan vissi hver staðið hefði að
hryðjuverkinu í Skotlandi í des-
ember síðastliðnum þegar
sprenging varð í Pan Am-þotu
með þeim afleiðingum, að 270
manns fómst. Yfirvöld í Bret-
landi og Vestur-Þýskalandi vildu
þó ekki kannast við, að rétt væri
með farið.
Dagblaðið Scottish Daily Record
sagði, að lögreglumenn hefðu kom-
ist að því hvaðan sprengjan kom,
hvemig hún var gerð og í hvaða
tösku hún var í flugvélinni. Sagði
ennfremur, að taskan hefði komið
með flugvél frá Miðausturlöndum
til Frankfurt og þar verið flutt um
borð í Pan Am-flugvélina.
í Times og Guardian var haft
eftir heimildum innan ríkisstjórnar-
innar, að lögreglan vissi hver hefði
sent sprengjuna og hvar hann væri
niðurkominn nú. Þá sagði í Times,
að Paul Channon samgönguráð-
herra hefði rætt málið við starfs-
bróður sinni vestur-þýskan, Jiirgen
Warnke, og ætlaði að upplýsa í
næstu viku hver hermdarverkamað-
urinn væri. Talsmaður Channons
kvaðst hins vegar ekki vita um
neina slíka fyrirætlun og talsmaður
vestur-þýska innanríkisráðuneytis-
Channon neitaði því í fyrradag,
að breska stjómin hefði varað flug-
félög of seint við hugsanlegum
hryðjuverkum með útvarpssprengj-
um en talsmenn Pan Am segja, að
viðvörunin eða bréfið hafi verið sent
tveimur dögum áður en þotan fórst
en tafist í jólaönnunum.
Moskvu. Reuter.
MIKILL ágreiningur virðist hafa
ríkt á ráðstefhunni, sem sovéski
kommúnistaflokkurinn hélt í vik-
unni um úrbætur í landbúnaðar-
málum, þrátt fyrir yfirlýsingar
Jegors Lígatsjovs, fyrrum hug-
myndafræðings flokksins, um að
allir hefðu verið á einu máli. Kom
þetta firam í dagblaðinu Prövdu
í gær.
Á ráðstefnunni vom tillögur
Míkhaíls Gorbatsjovs sovétleiðtoga
um umbætur í landbúnaðarmálum
samþykktar einróma en þær fólust
í því, að samyrkjubúakerfið yrði
áfram homsteinn landbúnaðarins
en auk þess yrðu einstaklingar og
samvinnufélög hvött til að hefja
búskap á leigulandi. Lígatsjov, sem
er formaður í landbúnaðarnefnd
stjómmálaráðsins og helsti and-
stæðingur Gorbatsjovs í landbúnað-
armálunum, sagði að ráðstefnunni
lokinni, að fullur einhugur hefði
verið með honum og Gorbatsjov um
þessi mál og önnur.
í Prövdu sagði, að á ráðstefnunni
hefðu skoðanir verið mjög skiptar.
Hefðu fulltrúar Eystrasaltsríkjanna
viljað ganga lengst, kasta sam-
yrkjubúunum út í ystu myrkur og
taka aftur upp fjölskyldurekstur og
einkaeign á landi, en Lígatsjov hefði
aftur á móti verið talsmaður
óbreytts ástands.
Ekki hefur verið skýrt nákvæm-
lega frá fyrirhuguðum umbótum í
landbúnaðinum í sovéskum fjölmiðl-
um og enn sem komið er virðast
þær flestum heldur óljósar.
Miðausturlönd:
Friðarráð-
stefna í Ung-
verjalandi?
Búdapest. Reuter.
STJÓRNVÖLD í Ungverjalandi
sögðu í gær, að þau væru reiðubú-
in að halda alþjóðlega ráðstefnu
um frið í Miðausturlöndum að ósk
Yassers Arafats, leiðtoga PLO,
Frelsissamtaka Palestínumanna.
Ungverska fréttastofan MTI sagði
í gær, að Arafat hefði sagt á fundi
með Miklos Nemeth, forsætisráð-
herra Ungveijalands, að hann væri
sammála tillögu Sovétmanna um að
friðarráðstefnan yrði haldin eftir sex
eða níu mánuði og farið þess á leit,
að Ungveijar héldu hana. Féllst Ne-
meth á það og sagði einnig, að Ung-
veijar ætluðu að taka upp fullt
stjómmálasamband við ísraela fyrir
mitt þetta ár.
Sjá „Ungveijar vilja ..." á bls.
22.
Þýsku ríkin:
Landskjálfid veldur versnandi vinskap
Völkershausen. Reuter.
LANDSKJÁLFTAR eru ekki algengir í Vestur-Evrópu en síðastliðinn mánudag
skókst samt og hristist bærinn Völkershausen í Austur-Þýskalandi með þeim
afleiðingum, að 80% allra mannvirkja þar skemmdust og eru sum húsin gjöró-
nýt. Jarðskjálftinn, sem var af mannavöldum, vegna sprengingar í austur-þýskri
námu, virðist nú einnig ætla að draga dilk á eftir sér fyrir samskipti þýsku
ríkjanna.
Jarðskjálftinn, sem mældist 5,8 stig á
Richter-kvarða og fannst í flestum ná-
grannaríkjanna, hlaust af sprengingu í
pottöskunámu en við hana hrundu víðáttu-
mikil námagöngin að mestu saman. Bær-
inn Völkershausen er rétt við námuna og
þar skemmdust 80% allra húsa og eru sum
svo illa farin, að rústimar verða jafnaðar
við jörðu.
Fyrstu viðbrögð austur-þýskra stjórn-
valda voru að kenna Vestur-Þjóðverjum
um skjálftann. Sögðu þau, að vestur-þýsk
námafyrirtæki hefðu fyllt gamlar námur
með vatni, sem aftur hefði valdið spennu
í jarðveginum og magnað upp áhrif
sprengingarinnar. Þessu vísa Vestur-
Þjóðveijar algerlega á bug og segja, að
vegna jarðfræðilegra aðstæðna á þessum
slóðum renni vatnið frá landamærum
ríkjanna en ekki að þeim. Segja þeir enn-
fremur, að þessar ásakanir austur-þýskra
yfirvalda beri vitni um óvenjulega rætni.
Hefur þetta mál ásamt ýmsum öðrum, sem
upp hafa komið að undanfömu, valdið
því, að samskipti ríkjanna em nú með stirð-
asta móti.
Hugað að hálfliruninni hlöðu.
Reuter
ins vísaði fréttunum einnig á bug.