Morgunblaðið - 18.03.1989, Blaðsíða 27

Morgunblaðið - 18.03.1989, Blaðsíða 27
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 18. MARZ 1989 27 Einar Sævar Páls- son skipstjóri Fæddur 17. október 1941 Dáinn 6. mars 1989 Einar frændi þinn er dáinn. Þeg- ar ég heyrði þessi orð fannst mér þetta ekki geta staðist. Hann sem var á besta aldri, og aldrei kennt sér neins meins. Það eru ekki nema sex mánuðir síðan amma mín og móðir Einars, Þuríður Guðmunds- dóttir, yfirgaf þennan heim. Nú hefur Einar leitað á sömu slóðir. Það var á síðastliðnum haustdögum sem Einar fer að kenna þess sjúk- dóms, sem síðan átti eftir að draga af honum þann mikla þrótt sem hann alla tíð hafði að bera. Ég hitti Einar ekki oft í vetur, heldur fylgd- ist ég með heiisufari hans og ósk- aði þess að hann ynni á þessum vágesti. Það verður að segjast að ég trúði því alla tíð að honum tæk- ist það, þó framgangur sjúkdómsins lofaði ekki góðu. Það var hans lífsstíll að gefast ekki upp. En þama hitti hann loks ofjarl sinn. Það er svo margs að minnast þegar hugsað er til baka, þannig að erfitt er að taka eitt fram yfir annað. Það sem ég tel þó að hafi skarað fram úr í fari Einars, var elska hans gagnvart öllu sem minna mátti sín, og þá sérstaklega böm- um, þó hann ætti engin sjálfur. Alla tíð stundaði Einar sjó- mennsku, og tæpa tvo síðustu ára- tugina sem skipstjóri á Draupni VE 550, sem hann átti ásamt bræðmm sínum Má og Guðmundi. A ungl- ingsámm mínum auðnaðist mér að róa með þeim eina vertíð. Það var góður tími. Ég hafði oft áður verið sumarlangt í Eyjum á heimili ömmu og systkinanna. Var ég þá oft hróð- ugur að eiga Einar og þá bræður að frændum. Á þessari vertíð þegar ég átti að heita fullorðinn komst ég að því, að þeir áttu það vel skil- ið. Stuttu seinna stofnaði ég heim- ili ásamt konu minni og barni og fór í nám- Eins og ber að skilja var buddan oft ansi þunn. Mér er svo í fersku minni í eitt skipti þegar ég kom í kaffi tii mömmu, að hún tjáði mér að Einar frændi hefði komið í heimsókn og væri nýfarinn. Þetta þótti mér engar stórfréttir, þar sem Einar kom yfirleitt til syst- ur sinnar í Reykjavíkurferðum sínum, en þótti leitt að hitta hann ekki. Ékki fór ég tómhentur af fundi mínum við móður mína í þetta skipti, því Einar hafði skilið eftir ávísun handa mér. Þegar ég spurði mömmu hveiju þetta sætti, kvað hún Einari hafa þótt óviðunandi þetta féleysi hjá frænda sínum. Þetta dæmi held ég að lýsi vel hvern mann Einar hafði að geyma. Öll eigum við eftir að sjá eftir þessum góða og hrausta manhi, sem Einar var. Vitaskuld leggst sorgin misjafnlega á fólk, en þeir eru margir sem eiga erfitt þessa dagana vegna fráfalls Einars og votta ég þeim mína dýpstu samúð. Það er trú mín og von, að dauði hér þýði upphaf nýs og betra lífs annars staðar, og að þeir sem stóðu að Einari hér en voru famir á und- an honum hjálpi honum og leiðbeini á nýrri og óþekktri lífsbraut. Guðmundur Einarsson Yfír heim eða himin hvort sem hugar þín önd skreyta fossar og §allshlið öll þín framtí- ðarlönd fjærst í eilífðarútsæ vakir eylendan þín nóttlaus voraldar veröld þar sem víðsýnið skín. (Stephan G. Step.) Þegar hinstu rök tilverunnar eru ljós, þá syrtir að þegar við stöndum frammi fyrir þeirri staðreynd að lífið er ekki ódauðlegt og ævi mannsins er aðeins brot af eilífðinni, en það fylgir því ávallt sár söknuður þegar við sjáum það líf fölna og deyja, það líf sem við sáum rista sín mörk með- al okkar sem héldum tryggð hvort við annað, svo þegar sá hnútur rakn- ar sem fast við bundum í æsku verð- um við aldrei söm, einhvers staðar er brostinn þáttur, en til að vinna bug á sorginni leitum við á vit gleð- innar sem býr yfir þeim geislum sem lýsa upp björtustu hliðar mannlífs- ins. Og þegar ég lít til baka þegar við vorum að alast upp, þá fínnst mér dagamir hafa liðið hratt, alltaf var eitthvað að ske og eyjan var öll okkar leikskóli. Það er fagurt í Eyjum þegar vorar vel, fjöll og sker eru þakin lífi, af hæðum og tindum blasir við augum fögur og tignarleg sýn gróðursælla úteyjanna, sem umlykja þessa perlu Atlantshafsins. í fjarska er landsýn sem hugur fyllist lotningu fyrir og bátar og skip sem vagga sér á öldum hafsins og flytja björg í bú eru æðar þessa fólks, sem hér lifir og hefur lifað frá upphafi byggðar, hér var því auðvelt að festa rætur. Lífið við sjávarsíðuna var ævintýri líkast, það hlaut því öll umræða að snúast um fískveiðar sem veitti okk- ur lifíbrauð og öll okkar lífsafkoma byggist á. Böm sjómanna þroskuðust með þá trú að arðnýta þessa auðlind þegar þeirra tími kæmi og eitt af þeim var Einar, bróðir minn. Hann fæddist hinn 17. október 1941 í Héðinshöfða við Hásteinsveg. For- eldrar okkar vom þau hjónin Þuríður Guðmundsdóttir frá Stokkseyri og Páll Jóhannes Guðmundsson frá Fá- skrúðsfírði, sem látin eru bæði. Þeg- ar í æsku var Ijóst hvert hugur Ein- ars stefndi, teikningar frá liðnum dögum bera vott um það. Bryggjur og fjara vom staðir sem auðvelt var að fínna sér yndi, hver dagur var öðmm fremri, það vom engin dag- heimili sem heftu frelsið og svona fannst okkur lífíð eiga að vera, áhyggjulaust og indælt, og átti ekki að vera öðmvísi. Með hóp bama er oft erfitt fyrir foreldra að hafa hem- il á ferðum þeirra, en niðri við sjó vom staðir þar sem auðvelt var að fínna Einar, ef leita þurfti hans. Stundum var árabátur tekinn trau- stataki og róið um höfnina og farið um borð í færeyskar skútur sem hér vom iðulega. Á kvöldin var kannski farið með hándvagn á bryggjuna og fenginn fískur og svo var keyrt eftir endilöngum Hásteinsvegi og aflinn seldur. Einhvem tímann var sagt að þetta hefði verið fyrsti vottur útgerð- arsögu hans. En þessir dagar og ár bám okkur hratt með lífsins straumi og brátt vora hinir björtu bemsku- dagar að baki og í þessari fögrn veröld var komið að því að Einar fermdist. Og einn dag um vorið þegar við vomm að veiða murtu undir tré- bryggjunni í Friðarhöfn sagði hann mér að sig langaði á síld þá um suma- rið. Svo réð hann sig á mb. Vonina sem hélt norður til síldveiða, skip- stjóri var Guðmundur Vigfússon frá Holti, framsýnn og athugull maður og naut Einar ríkulega reynslu sinnar með honum. öll sín unglingsár reri hann svo sumar- og vertrarvertíðir með þekktum skipstjómm sem mátu mikils harðfylgni hans við þau störf, þau veittu honum ómælda ánægju og naut hann þess vel. Hafíð var hans starfsvettvangur, þetta var hans líf og yndi. í hópi vina sinna gladdist hann með guðaveigum á góðum stundum. Hann var dulur að eðlisfari en geislandi kraftur og kyngimögnuð orka fékk útrás ef þurfti við. Þá kom upp samúðin með þeim sem minna máttu sín og þá veitti hann á báða bóga, hjá honum vora peningar til að gleðjast með, ekki til að hnjóta um. Allir vom jafn réttháir undir sólinni og enginn ætti að þurfa að líða fyrir vanmátt sinn. Með slíkt hugarfar léði hann öllu því góða og jákvæða liðsemd sína og á því er enginn efí að það er sómi hverrar þjóðar að eiga slíka menn í þjónustu sinni, sem meta það á já- kvæðan og raunsæjan hátt þegar brestur í stoðum mannlífsins og hann fyllti þann bikar samúðarinnar ríku- lega og veitti vel. Því missti hann aldrei sjónar af því sem er forsenda þess er gefur lífínu gildi, að sjá ham- ingjuna blómstra í kringum sig og sjá gleðileiftrin ljóma í andlitum þeirra sem hann hafði rétt hjálpar- hönd. Þessar myndir sýna vel hvem mann Einar hafði að geyma, hjáip- semi hans var einstök og ævinlega sjálfsögð. Með þessu hugarfari fetaði hann lífsleiðina, trúr sínum heima- slóðum og vildi hvergi annars staðar vera. Rætur hans stóðu dýpst í því samfélagi sem við ólumst upp í. Hér eignaðist hann vini sem sumir hvetj- ir létu ekki fenna í þau spor sem hann skildi eftir og sýndu honum tryggð við sjúkrabeð hans, eftir að umskipti höfðu orðið á, heilsu hans og fjarlægar raddir bergmáluðu enn í minningunni. Hann ætlaði sér að verða skip- stjóri og hann átti sér draum að eign- ast eigin bát og árin liðu með lífsins straumi. Haustið 1971 varð þessi draumur að vemleika. Þá keypti hann ásamt mági sínum Henry vél- bát frá Reykjavík af Einari Sigurðs- syni, nefndum ríka, og skírði bátinn eftir hring Óðins, Draupni, sem fékk einkennisstafína VE 550. En á örla- gatímum Eyjanna árið 1973 keypti hann hlut meðeiganda síns ásamt bræðmm sínum, Má og Guðmundi, og skiptu þeir þannig með sér verk- um að Einar var skipstjóri, Már vél- stjóri og Guðmundur stýrimaður. Skemmtilegir tímar mnnu upp. Þeir urðu eigin herrar og ekki öðmm háðir. Og á þeim bát stunduðu þeir útgerð sumur og vetur fram til árs- ins 1975, þá seldu þeir hann og keyptu sér annan stærri vestan frá Stykkishólmi sem þeir eiga enn í dag og ber sömu einkennisstafí. Það var á miðju sumri er þeir sigldu honum heim til Eyja og Heymaey heilsaði í þeim búningi, sem hún fegurst getur orðið. Þeir vom einskipa á sjó því það var þjóðhátíð í Vestmannaeyjum. Sólin sktáði gullnu letri sínu á hafið blátt, græn og blómgróin björgin vom iðandi af lífí og yfír Heimaey var sem geislabaugur í lognvæm síðdeginu. Aldrei höfðum við verið eins hamingjusamir og þegar við renndum inn í höfn, sögðu þeir bræð- ur er við hittumst á bryggjunni, en heima beið móðir okkar vonglöð. Skammt er á milli gleði og sorgar, því skyndilega stendur sóknarprest- urinn heima á gólfí í Pétursey og synimir ekki komnir heim, og sagði henni frá láti dóttursonar síns, sem látist hafði á sviplegan hátt, þá þyrmdi yfir, en með jákvæðu og upplífgandi hugarfari vermdi hún andrúmsloftið á ný og gerði þennan dag ógleymanlegan. I útgerð skiptast á skin og skúrir og vissulega koma fyrir erfiðir tímar þegar óhöpp steðja að, en þá er sigr- ast á þeim með þrautseigju og þolin- mæði og ekki gefíst upp þó á móti blási, upp stytta öll él um síðir. Ein- ar vissi það og hann gnæfði yfir þegar hann sagði: Við „reddum" þessu strákar, og það varð að lokum með ómældri vinnu þeirra bræðra. Milli vina stóð ekki styrr, allir vom jafningjar hvort sem siglt var um sæinn eða setið heima í stofu engin stéttaskipting sem gert hefði umræð- ur allar erfíðari. Ein af hans lífsins gjöfum var léttlyndi, grin og gaman og þegar slegið var á létta strengi var hann hrókur alls fagnaðar og lífið var í æðra veldi. Þegar hans góðlátlega grín hljómaði um stofuna vom veikindi svo framandi og dauð- inn ekki nálægur, en við höfðum þá trú að við myndum aldrei deyja að eilífu, okkar biðu önnur heimkynni, bak við luktar dyr þar sem sálirnar yrðu auðgaðar af visku og kærleika. En það setti að okkur sáran trega er í ágústmánuði sl. kom í ljós að Einar var alvarlega veikur og var fluttur í sjúkrahús í Reykjavík. Þar kom í ljós að læknavísindin höfðu ekki yfir að ráða þeim mætti er tryggt gæti bata. Því kom hann heim aftur með trú sína á mátt sinn og megin, breytt mataræði, huldar vættir, og að neita sér um allt heilsuspillandi gæti sigrað sjúkdóminn og hann varð vonbetri um framtíðina. Allir lögðu sitt af mörkum, systkini, vinir og ættingjar, og það var beðið og vonað. Það ætti ekki að særa neinn þótt eitt nafn væri nefnt. Þuríður Geirsdóttir, syst- urdóttur hans, sem allt frá upphafí veikinda hans - vék aldrei frá beði hans og studdi hann á erfiðum stund- um. Kvöldið fyrir andlát sitt kvaddi hann hana hinstu kveðju. Allt frá barnæsku hafði hún verið eftirlæti Einars, sem reyndist henni sem besti faðir og vom ætíð miklir kærleikar með þeim. Það næddi lífsins haust um stofu 311 á sjúkrahúsi Vestmannaeyja að kveldi 6. mars sl. Þar vomm við saman komin systkini hans, ættingj- ar og vinir, til að kveðja góðan vin og bróður. Vinátta og tryggð tengdi allan hópinn saman sterkum böndum og það var æðmleysi og karlmannleg ró sem færðist yfír fölt andlit hans þegar lífsneistinn fölnaði. Og nú er komið að kveðjustund og enn berast öldur af hafi og minn- ingar streyma að landi. Það er svo margt sem ég minnist og vildi að gæti endurtekið sig; þeirra ára þegar við ólumst upp og sýndum hvort öðm það systkinaþel sem aðeins get- ur gerst milli þeirra sem þekkja og skilja hvort annað. Ég minnist þess dags þegar Einar bjárgaði bami frá dmkknun í höfninni, hann hreykti sér ekki af því, sagðist aðeins hafa gert skyldu sína. Þegar komið var í heimsókn í kofann í hrauninu, hvort sem var að degi eða á mánabjörtum síðsumarkvöldum og við sátum við snarkandi varðeld og ræddum sam- an, eða þegar lögð var áhersla á eitt- hvað, þá ólgaði hann sem hafíð og það gneistaði úr kröftugu andliti hans og loftið var þmngið spennu, svo lygndi jafn skyndilega og talið barst að öðmm efnum. Þetta lífgaði upp á hversdagsleikann. Fram á hinstu stund var Einar sjómaður. Þeir em að fá tonn og tonn sagði hann skömmu áður en hann kvaddi þessa jarðvist. Á gmnn- sævi kvölds flæðir gullinn straumur minninga sem við eigum um hugljúf- an bróður sem með hógværð sinni vakti okkur til umhugsunar um svo margt sem við nú skiljum. Og vorið er í vændum þó honum hafí ekki auðnast að sjá það líf sem hann þráði rísa úr viðjum vetrar og farið að undirbúa sig fyrir vorvertíð, þá þy- kist ég fullviss að hann muni skipa sér í raðir þeirra sem sigla um eilífð- arútsæ, á lendum þeirrar tilveru þar sem góðverk em metin að verðleikum og veraldleg gæði skipta ekki máli; þar sem leikið er á hörpustrengi. Við leiðarlok að sinni vil ég segja þetta: Mér er efst í huga þakklæti fyrir allt það góða og göfuga sem hann vék að mér og mínum og ég harma það að við skyldum ekki eiga lengri samleið, en enginn ræður sínum næturstað og kannski hefur skaparann vantað skipstjóm á hum- arbát. Með virðingu, Kristinn Viðar Pálsson Hann var sjómaður af lífi og sál, drengur góður, skemmtilegur og traustur vinur, en umfram allt var hann sterkur persónuleiki sem setti mark á umhverfi sitt eins og af sjálfu sér, átakalaust eins og andrúmsloftið sjálft sem enginn getur rammað inn en skiptir svo miklu máli. Þannig fór hann ávallt hávaðalaust um hlöð, en í veröld vina sinna skildi hann eftir það sem mestu máli skiptir, góðar minningar og hlýju við hjartarætur. Einar vinur minn á Draupni er látinn, fékk ræs á önnur og æðri mið langt fyrir aldur fram. Þegar maður í blóma lífsins er kallaður á braut verða allar liðnu gleðistund- irnar með döpm ljósi, því það er svo sárt að sakna vinar, en ljósið af persónulegum kynnum við Einar Pálsson er svo sterkt að jafnvel dapurleikinn verður fagur. Einar á Draupni vár sú persóna sem við Eyjamenn getum sannarlega verið stoltir af, því hann skilaði sínu hlut- verki með sóma og sann, alltaf hress að kátur, og það er nú málið. Hann tróð hvorki orðum né vinar- þeli á menn, en hann rímaði við þá sem áttu samleið með honum og hans rím var ekki ódýr lífsstíll eða óvandaður. Hann var samkvæmur sjálfum sér, heill og trúverðugur. Góðmennskan var hans aðalsmerki og það fór því saman að hann var mjög barngóður og mikill dýravin- ur. Þessi harðsækni sjómaður hafði svo sannarlega viðkvæma lund, en hann bar hana vel. Ólgusjó mannlífsins sigldi hann með festu og ró eins og báturinn hans á logn- degi. Menn sáu honum sjaldan bregða, helst ef hann sá eitthvað aumt, það þoldi hann ekki og vildi gera allt sem hann gat til þess að bæta úr og liðka til. Ég varð fyrir því láni fyrir 15 ámm að kynnast Einari þegar þeir. bræður áttu sinn fyrri Draupni. Það "" var mikið lán að verða vinur hans. Hann var þannig skapaður að hann gaf mikið með framkomu sinni, tók lítið sér til handa. Einar ólst upp á barnmörgu heimili í Héðinshöfða, fátæku af veraldarinnar auði en ríkmannlegu af góðum hug og virð- ingu fyrir sjálfstæði hvers og eins til orðs og athafna. Systkinin vora 10. Þau ólust níu upp í Eyjum, eitt austur á landi þar sem foreldrar hans bjuggu fyrst. Þetta var samtaka fjölskylda með efni af skomum skammti, en það vom persónurnar sjálfar sem vom gulls-ígildi. Eins og á svo mörgum heimilum í Eyjum var það móðirin sem var bakhjarl innra lífs heimilis- ins í vörn og sókn. Eftirminnileg kona og æðrulaus eins og fólkið hennar hefur borið gæfu til að vera. Einari var lagið að fá menn í spjallið ef hann vildi svo við hafa, sérstaklega á sínum heimavelli um borð. í bátnum. Að eiga stundir með þeim bræðmm, Einari, Gumma og Modda, um borð í Draupni, var eins og að lenda í óvæntu sumarfríi, eins og að ganga inn í gott leikrit þar sem ekkert mátti missa sig og eins og dögg hverfur fyrir sólu gleymdu menn á augabragði amstri • líðandi stundar, þær hafa verið margar ánægjustundirnar í lúkam- um á Draupni eftir að kíkt var á radarinn eða dýptarmælinn. Mannlífið um borð í Draupni var eins og veröld af veröld, svo sam- taka vom þeir bræður. Eins og ein heild til orðs og æðis en þó hver um sig með sérstaka tóna og til- brigði svo eftir var tekið. Líf og yndi Einars var að stunda sjóinn. Hann naut þess að sækja fast og jafnvel í þeim harðasta róðri undan- fama mánuði hélt hann stóískri ró hins hlédræga, en ömgga manns, en það var svo sárt því það fylgdfy honum svo mikið iíf. Hann naut þess að vera glaður á góðri stund, teyga gullna veig með vinum á ögurstundum sjómennskunnar og njóta landlegustunda mannlífsins. En alltaf hélt hann kóssinum. Skömmu eftir að okkar kynni urðu í fyrsta skipti bar svo við á laugar- dagskvöldi að Einar bankar upp á hjá mér. Það glampaði á auga sem vötn væm, en allt í góðu. Einar spyr mig umbúðalaust þrátt fyrir lítil kynni hvort ég geti lánað honum 5.000 kr. Mér varð eilítið hverft við, en hugsa sem svo að maður hafí nú lent í öðm eins og bið hann að hinkra við meðan ég nái í pening- ana. Þegar ég kem með fímm þús- und kallinn, stendur Einar í gangin- um með stórt knippi af peningum í höndunum og segir: „Ég þarf ekk- ert á þessu að halda, vinur. Mig vantar engan fimm þúsund kall.“ Og þegar ég hváði svaraði hann: „Ég er aðeins að kanna hverjir treysta mér.“ Það var ekki stíll Einars að gera mikið úr hlutunum. Einu sinni hringdi hann í mig seint um kvöld og bað mig að kíkja á dýptarmæl- inn, því það hefði komið smá skvetta á hann. Þegar ég opnaði dýptarmælinn, flæddi út úr honum. Einar gerði ekki rellu út af hlutun- um. Nú er Einar á ókunnum mið- um, en minningin um góðan dreng lifír, góðar-stundir í tonnatali þar sem aldrei fannst hnjóðsyrði. Það em menn sem skilja slíkt eftir. Ég votta bræðmm Einars og systmm dýpstu samúð. Megi góður Guð leiða hann sjóana miklu. Tóti í Geisla

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.