Morgunblaðið - 18.03.1989, Síða 32
32
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 18. MARZ 1989
Stjörnu-
speki
Umsjón: Gunnlaugur
Guðmundsson
Jarðarmerki
Þegar við tölum um jörðina
dettur okkur oft efnishyggja
í hug. Vissulega vilja jarðar-
merkin að lífið feli í sér viss
jarðnesk þægindi. Þau vilja
eiga góðan bíl og þægilega
stóla, en ekki síður fínnst jarð-
armerkjunum, Nauti, Meyju
og Steingeit gaman að því að
snerta moldina og mæla út
veggi. Með því síðasta er átt
við að þau vilja festa um-
hverfi sitt niður, lflct og mark-
maðurinn sem snertir stangir
og slá áður en hann mætir
vítaskoti andstæðingsins.
Jörðin vill vita hvar hún er
stödd. Hún vill vera á jörðinni.
Nautið erafslappaö
Jarðarmerkin eru ólík. Per-
sónulega tel ég að Nautið sé
afslappaðasta jarðarmerkið.
Það á til að vera þijóskt, en
er rólegt og vill hafa það
huggulegt og náðugt. Nautið
er ánægt ef það getur legið
i hægindastólnum sfnum og
drukkið mjólk og étið súkku-
laðið. Ef þú lætur mig í friði
þá læt ég þig í friði er mottó
Nautsins. Það er hinn duglegi
letingi sem vinnur af krafti
fyrir sveitasetrinu sem á að
skapa þvf rólega elli.
Viö veljum
Að sjálfsögðu byggjast öll
skrif um stjömuspeki sem og
önnur fög á vali, eða mótast
af því hveiju við veitum at-
hygli f það og það skiptið.
Hvert merki býr yfír jákvæð-
um og neikvaeðum eiginleik-
um. Við veljum síðan úr. Í dag
ætla ég t.d. að nefna nokkra
neikvæða eiginleika jarðar-
merkjanna.
Þyngsli ogherpingur
Hvað varðar Nautið þá á það
til að vera fullþungt, sérstak-
lega ef það gætir þess ekki
að hreyfa sig og breyta til.
Af athugun minni á neikvæð-
um eiginleikum Meyjarmerk-
isins hef ég orðið var við að
hún brýtur sig niður, er sjálfs-
gagniýnin. Hún á til að draga
orku sína saman. Það orð sem
kemurhelst í hugann er herp-
ingur. f fullkomnunarleit sinni
minnir Meyjan stundum á tré
sem beygir sig undan norðan-
áttinni, tálgað og kræklótt.
Stífni Steingeilar
Steingeitin á aftur á móti til
að vera stíf, en á annan hátt
en Meyjan. Sem dæmi má
nefna Steingeitina sem missti
vinnuna og sagði vinum sínum
ekki frá því. Þegar hún var
loksins spurð að því hvernig
gengi í vinnunni, þremur vik-
um eftir að hún hætti, sagði
hún afundin: „Ég er ekki að
vinna." Steingeitin á við það
að stríða að geta ekki sagt
frá vandamálum sínum. Hún
lokast oft inni í sjálfri sér.
Jöröin er pottþétt
Það er kannski vandamál allra
jarðarmerkjanna að þau vilja
vera pottþétt og fullkomin:
.Það kemur ekkert fyrir mig.
Ég stend mig og klára mín
mál án þess að barma mér.“
Og ef illa gengur: „Því miður,
við ræðum það ekki hér.“
BorÖum góðan mat
Sem gott Naut vil ég segja
við Meyjur og Steingeitur. Af
hveiju slöppum við ekki af og
fáum okkur að borða? Hafra-
grautur með rúsínum, rólegt
kvöld í hægindastólnum með
góða bók, nuddolía, gufubað
og huggulegt umhverfi ættu
að gera útslagið, eða bara það
að taka lífinu með mátulegri
ró. Þurfum við endalaust að
véra fullkomin og án veik-
leika? Svarið við þvf er ein-
falt: Að sjálfsögðu ekki. Við
megum eiga okkar veikleika
og við megum njóta lífsins.
GARPUR
BR&ÐABI&GÐA...
HBLDUfi UlLDIBS /M&TA 1/iK-
IUGASVBIT BEINA GN fWW YW?
slélinu SLarm?
Héí?
GRETTIR
BREIMDA STARR
í VATNSMÝRINNI
FERDINAND
SMÁFÓLK
Mér er meinilla við að drekka úr
slöngu...
BRIPS
Umsjón: Guðm. Páll
Arnarson
Þvingun sem byggir á því að
skapa skilyrði fyrir innkast er
tiltölulega algeng við spilaborð-
ið. Dæmi: vestur á hjartaás og
Dx í laufi, en suður (sagnhafi)
hjartakóng og KG í laufí. Vestri
er kastað inn og hann verður
að spila upp í gaffalinn. Hér er
flóknara afbrigði af þessari kast-
þröng.
Norður
♦ D3
VG86
♦ ÁD87542
*Á
Vestur
♦ 75
V Á107
♦ KG9
♦ D10632
Austur
li ▼ K9542
♦ 1063
♦ 975
Suður
♦ ÁKG10962
VD3
♦ -
+ KG84
Suður spilar sex spaða og
heldur velli þegar vestur velur
að skjóta út trompi.
Sagnhafi tekur á drottningu
blinds, tekur tígulás og hendir
niður hjarta. Trompar svo tígul.
Fer næst inn á laufás og tromp-
ai' aftur tígul. Stingur lauf með
trompþristi blinds og fer heim
með því að trompa tígul í þriðja
sinn. (Tilgangurinn með tígul-
stungunum var að hreinsa þann
lit upp.) Staðan er nú:
Norður ♦ - VG86 ♦ 8 ♦ -
Vestur Austur
♦ - ♦ -
VÁ10 11 VK95
♦ - ♦ -
♦ dio Suður ♦ 10 VD ♦ - ♦ KG + 9
Síðasta trompið kemur vestri
í vanda. Ef hann hendir hjarta-
tíunni lendir hann inni á hjartaás
og verður að spila upp í KG í
laufí. Hann kastar því hjartaásn-
um. En þá vendir sagnhafi sínu
kvæði í kross, tekur laufkóng
og spilar hjartadrottningu! Nú
verður austur að gefa blindum
síðasta slaginn á hjartagosa.
SKÁK
Umsjón Margeir
Pétursson
I öðrum undanúrslitariðlinum
fyrir næsta skákþing Sovétríkj-
anna, sem háð voru í Simferopol
í nóvember, kom þessi staða upp
í skák alþjóðlega meistarans Jud-
asin og Kovalev, sem hafði svart
og átti leik. Hvítur lék síðast 41.
Bf5-re6?, sem mun hafa verið bið-
leikur hans.
Svartur virðist mjög illa beygð-
ur, en honum tókst samt á undra-
verðan hátt að halda jafntefli: 41.
- Dxg6!I, 42. Dxg6 - Hg7, 43.
Dxh5 - Hgl+, 44. Ka2 - Hfifl,
45. Dxe5+ og samið var jafn-
tefli, því þrátt fyrir liðsmuninn
verður hvítur að láta sér nægja
þráskák.