Morgunblaðið - 18.03.1989, Page 33

Morgunblaðið - 18.03.1989, Page 33
OTf ÍSX VN .11 T.'íí \ X I l iC-A líTi.JrXs < MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 18. MARZ 1989 33 Minning: Bárður Magnús- son frá Steinum Fæddur 10. október 1911 Dáinn 13. mars 1989 . Mig langar með nokkrum orðum að minnast frænda míns sem lést á Landsspítalanum 13. mars sl., eftir erfitt stríð við sjúkdóm sem að lokum hafði betur. Hann var fæddur að Steinum undir Ejrjafjöllum 10. október 1911. Sonur hjónanna Elínar Bárðardótt- ur og Magnúsar Tómassonar. Þar ólst hann upp í stórum systkinahópi. Það var líkt með hann og aðra unglinga á þessum árum, hann vandist fljótt á vinnu og þótti þá strax sýna ótrúlega mikla vinnu- semi. A yngri árum fór Bárður á vertíð á vetrum, en á sumrin vann hann við almenn sveitastörf, vega- gerð og aðra vinnu sem til féll í hérðaði. Árið 1941 giftist hann Önnu Sig- urgeirsdóttur frá Hlíð undir Eyja- fjöljum, þau byrjuðu búskap í Hlíð. Árið 1943 fluttu þau að Berjanes- koti og bjuggu þar til 1955, en þá losnaði ein jörðin í Steinum. Það er trú mín að það hafi verið ánægð- ur bóndi sem flutti það ár upp að Steinum, svo mjög sem hann unni Steinahverfinu. Strax á fyrstu ár- unum í Steinum byggði hann upp öll fénaðarhús, og íbúðarhús rúm- um áratug síðar. Árið 1985 hættu Anna og Bárður sveitabúskap og fluttu á Hvolsvöll. Bárður stundaði ekki fasta vinnu eftir það, en greip r' ýmis störf sem til féllu þar- Anna og Bárður eignuðust íjögur böm, þau eru: Ólöf f. 1940, bóndi í Steinum; andvana drengur f. 1942; Sigurgeirf. 1943, járnsmiður á Hvolsvelli og Magnús f. 1944, járnsmiður á Selfossi. Það voru ákveðnir eiginleikar í fari Bárðar sem vöktu hjá mér mik- inn áhuga og verða alla tíð afskap- lega minnisstæðir. Hann hafði mik- inn áhuga fyrir varðveislu gamalla heimilda og er t.d. uppgröftur og lagfæring á kirkjugarðinum í Stein- um glöggt vitni um það, án Bárðar hefði það ekki verið gert og garður- inn algjörlega gleymst innan fárra ára. Það var gaman á síðastliðnu hausti að keyra með Bárði meðfram Steinafjalli og fræðast um öll þau ömefni sem til em í fjallinu og undirlendinu alveg til sjávar. Hann þekkti allan þann aragrúa af öm- efnum, sem þama em og oft á tíðum hvers vegna staðurinn bar þetta nafn. Eg hygg að sveitungarnir muni minnast hans fyrst og fremst fyrir sína miklu hjálpsemi, því það var ríkt í Bárði að sælla sé að gefa en að þiggja. Þeir em margir gijótveggirnir sem hann hlóð en Báður var annál- aður hleðslumaður. Einnig var hann oft við byggingu á timbur og stein- húsum. Ég held að það skemmtilegasta sem Bárður gerði var að klifra í fjöllum, og hefur hann bjargað margri kindinni úr svelti. Mér er minnisstætt í fyrsta skipti sem ég fór með Bárði að taka úr svelti, þá var ég um fermingu. Við fómm ásamt þremur öðmm mönnum. Þegar á staðinn var komið var ljóst að það þurfti að sitja undir á tveim- ur stöðum, en til þess vomm við of fáir, en það verður úr að ég er látinn sitja einn undir uppi á brú en hinir fóm niður. Þarna sat ég og heyrði ekkert í þeim, vegna þess að það var svolítið rok. Eftir rúm- lega tveggja tíma bið, birtist Bárður á brúnni, kominn laus upp. Hann hafði reynt að kalla en ég ekki heyrt, svo þeir þorðu ekki að treysta á vaðinn hjá óvönum unglingi, enda hefur það ekki verið vandamál hjá honum að fara laus upp svo góður fjallamaður sem hann var. Það var stundum sagt að það sem Bárður færi ekki í fjöllum, færi ekki nema fuglinn fljúgandi. Það var gaman nú seinni ár að heimsækja Bárð og ræða við hann um búskapinn, ættfræði eða fjallið sem honum var svo kært. Ég sendi Önnu, börnum, tengda- bömum og barnabörnum samúðar- kveðjur. Að lokum vil ég þakka Bárði þann mikla lærdóm sem ég öðlaðist af honum gegnum árin. Bergur Pálsson Innréttingar Finns Fróðasonar eru landsþekktar fyrir þaulhugsaðan glæsileik og notagildi. Meðfrábærri natni í framleiðsiu þeirra heldur Ármannsfell á lofti fyrsta flokks íslensku handverki, þar sem hver og einn finnur innréttingu sem hæfir hans húsakynnum. Velkomin! Veldu Kópal með gljáa við hæfi MO TT ÁFERÐ með Kópal Dýrótóni ^Apglýsinga- síminn er 2 24 80 laugardag og sunnudag kl. 14-17 hjá okkur og umboðsmanni okkar, Óseyri 5a, Akureyri. Stórsýningar um helgina

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.