Morgunblaðið - 07.05.1989, Blaðsíða 28
28
MORGUNBLAÐIÐ ATVINNA/RAÐ/SMA SUNNUDAGUR 7. MAÍ 1989
smá ouglýsingor
Ý MISLEGT
Áprentuð eldspýtnabréf
SEMSA, s. 91-17082.
ÍLennsla
Lærið vélritun
Ný námskeið eru að hefjast.
Vélritunarskólinn, s: 28040.
Vélagslíf
I.O.O.F 3 = 171587 = L.F.
I.O.O.F. 10 = 171587 = Lf.
□ Helgafell 5989080507 IVA/ -1
aukaf.
Hvítasunnukirkjan
Völvufelli
Almenn samkoma í dag kl.
16.30. Barnagaesla. Allir hjartan-
lega velkomnir.
VEGURINN
V Kristið samfélag
Þarabakki 3
Samkoma i dag kl. 11.00.
Prédikun: Gunnar Þorsteinsson.
Barnakirkja meðan á prédikun
stendur.
Samkoma í kvöld kl. 20.30. Vitn-
isburðir. Prédikun: Björn Ingi
Stefánsson. Verið velkomin.
Jesús elskar þig.
Vegurinn.
í dag kl. 16 er almenn samkoma
í Þríbúðum, Hverfisgötu 42. Fjöl-
breyttur söngur. Bamagæsla.
Ræðumenn eru Hulda Sigur-
björnsdóttir og Jóhann Pálsson.
Allir velkomnir.
Samhjálp.
Krossinn
Auðbrekku 2.200 Kópavogur
Almenn samkoma í dag kl.
14.00. Ath. breyttan samkomu-
tima.
Hörgshlíð 12
Boðun fagnaðarerindisins.
Almenn samkoma í kvöld
kl. 20.00.
Hvítasunnukirkjan
Fíladelfía
Sunnudagaskóli kl. 14. Safnað-
arsamkoma kl. 14. Ræöumaður
er Guðni Einarsson. Almenn
samkoma kl. 20. Ræðumaður
Sam Daniel Glad.
Hjálpræðis-
herinn
Kirkjustræti 2
I dag kl. 14.00: Sunnudagaskóli.
Kl. 16.00: Útisamkoma á Lækj-
artorgi. Kl. 20.30: Hjálpræðis-
samkoma i umsjá flokksforingja.
Vitnisburðir og mikill söngur.
Mánudag kl. 16.00: Heimila-
samband fyrir konur.
Þriðjudag kl. 20.30: Almenn
samkoma. Major Njáll Djurhuus
talar og 26 manna hópur frá
Færeyjum syngur og vitnar. Fórn
tekin. Allir velkomnir.
Ungt fólk
fgjfS með htutverk
Píöisl YWAM - ísland
Samfélagssamvera
Við minnum á samveruna í
Grensáskirkju í dag kl. 17. Frétt-
ir, fræösla, lofgjörð og þjónusta.
Sérstök stund fyrir börnin.
Verið velkomin.
KFUM & KFUK 1899-1989
90 ér fyrir ecsbu Islands
KFUM og KFUK
Almenn samkoma í kvöld kl.
20.30 á Amtmannsstíg 2b. End-
ir allra hluta er í nánd. 1. PÉT.
4,7-11. Ræðumaður Jónas
Gislason. Allir velkomnir.
FERÐAFELAG
ÍSLANDS
ÖLDUGÖTU 3
SÍMAR 11798 og 19533.
Ferðafélagsferðir um
Hvítasunnu, 12.-15.
maí
Öræfajökull
Lagt upp frá Virkisá v/Svínafell,
gengið upp Virkisjökul, utan í
Falljökli og áfram sem leið liggur
á Hvannadalshnúk (2119 m).
Gist í svefnpokaplássi á Hofi í
Öræfasveit.
Þórsmörk-Fimmvörðuháls
Gengið á skiðum yfir Fimm-
vörðuháls. Gönguferðir um
Mörkina. Gist í Skagfjörðs-
skála/Langadal.
Snæfellsnes-Snæfellsjökull
Gengið á Snæfellsjökul (1446
m) og farnar skoðunarferðir á
láglendi eins og timi og aðstæð-
ur leyfa. Gist í gistiheimilinu
Langholti, Staðarsveit. Brottför
í allar ferðirnar kl. 20.00 föstu-
daginn 12. maí. Ath.: Greiðslu-
kortaþjónusta.
Til athugunar fyrir ferðamenn:
Um hvitasunnu verður ekki
leyft að tjalda á umsjónarsvæði
Ferðafélagsins í Þórsmörk,
vegna þess hve gróður er
skammt á veg kominn. Upplýs-
ingar og farmiðasala á skrifstofu
F.I., Öldugötu 3.
Ferðafélag íslands.
IfcflJJ Útivist
Sunnudagur 7. maí
Útivistardagur fjölskyldunnar
- pylsuveisla
Létt fjölskylduganga i Heiðmerk-
urfriðlandi (ca 2 klst.). Brottför
kl. 13 og heimkoma uppúr kl.
16.00.
Ekið að Silungapolli og gengið
frá Höfuöleðurshól um Hraun-
slóð að fallegri hringhlaðinni fjár-
borg (Hólmsborg) og þaðan um
Jaðarslóð og Heiðarveg að
Sauðási þar sem pylsuveisla
verður haldin. Það er orðið snjó-
laust i Heiðmörkinni og náttúran
er að vakna til lifsins með fugla-
söng og gróðurilm úr skógi. Verð
400,- kr., frítt f. börn 15 ára og
yngri með foreldrum sinum.
Kl. 10.30 Bláfjallaleiðin, 1. ferð.
Fyrsta ferð af fjórum í ferða-
syrpu, þar sem ætlunin er að
ganga frá Bláfjöllum til
Reykjavíkur. Nú veröur gengið í
Heiðmörk. Verð 800,- kr. Brott-
för i ferðirnar frá BSÍ, bensín-
sölu. Sjáumst!
Útivist, ferðafélag.
FERÐAFELAG
ÍSLANDS
ÖLDUGÖTU3
SÍMAR11798 og 19533.
Myndakvöld
- miðvikudaginn 10. maí:
Miðvikudaginn 10. maí verður
næsta myndakvöld Ferðafélags-
ins í Sóknarsalnum, Skipholti
50a. Það hefst stundvíslega kl.
20.30.
Efni: Sigurður B. Jóhannesson
sýnir myndir, sem hann hefur
tekiö á ferðum sinum sem farar-
stjóri vítt og breitt um fsland.
Þeir, sem ætla að ferðast með
Ferðafélaginu í sumar, ættu ekki
að sleppa þessu tækifæri, því
að Sigurður mun koma víða við.
Gérard R. Delavault sýnir mynd-
ir frá Öræfajökli og nálægum
fjöllum. Veitingar í hléi. Allir vel-
komnir, félagar og aðrir. Að-
gangur kr. 150,-. Fræðist um
eigið land og komið á mynda-
kvöld Ferðafélagsins.
Ferðafélag fslands.
ÚtÍVÍSt, Grotinm 1
Hvitasunnuferðir Útivistar
12.-15. maí. Eitthvað fyrir
alla.
1. Skaftafell-Öræfasveit. Góð
svefnpokagisting að Hofi. Skoð-
unar- og gönguferðir um þjóð-
garðinn og Öræfasveitina. Ekið
að Jökulsárlóni. Boðið uppá
dagsferð með snjóbíl á Vatna-
jökul ef þátttaka fæst.
2. Öræfajökull-Skaftafell.
Gengin þægilegasta leiö á jökul-
inn (Sandfellsleiö) upp á
Hvannadalshnúk 2119 m. Gist
að Hofi. Gönguferðir um þjóð-
garöinn.
3. Snæfellsnes-Snæfellsjök-
ull. Frábær gistiaðstaða í félags-
heimilinu Lýsuhóli. Sundlaug,
heitur pottur. Skipulagðar
göngu- og skoðunarferðir um
fjölbreytta strönd, á fjöll og Jök-
ulinn eftir vali.
Boðið verður upp á spennandi
dagsferð út i Breiðafjarðareyjar
þar sem siglt verður um Suður-
eyjar og gengið um Purkey sem
er sannkölluð náttúru- paradís.
4. Þórsmörk-Goðaland Góð
gisting i Útivistarskálanum Bás-
um. Skemmtilegar gönguferðir
við allra hæfi um Mörkina. Brott-
för í ferðirnar er kl. 20 á föstu-
dagskvöld. Góð fararstjórn.
Uppl. og farm. á skrifst. Grófinni
1, símar: 14606 og 23732. Pant-
ið tímanlega. Við minnum einnig
á áhugaverðar sumarleyfisferðir:
1. 21.- 25. Júnf: Vestfirsk sól-
stöðuferð. 2. Hornstrandir-
Hornvík 5.-11. og 14. júlí.
3. Hesteyri-Aðalvík-Hornvík
5. -11. og 14. júlí. Bakpokaferð
að hluta. 4. Orlofsdvöl í Útivist-
arskálanum Básum.
Stardalur-T röllafoss
Létt kvöldganga miðvikudag 10.
W*ÆkÆ>AUGL YSÍNGAR
maí kl. 20.
Sjáumst.
Útivist, ferðafélag.
ÆN FERÐAFÉLAG
L3%)j ÍSLANDS
^Égr ÖLDUGÖTU 3
SÍMAR 11798 og 19533.
Sunnudagur7. maí
- Fuglaskoðunarferð á
Suðurnes
Kjörin fjölskylduferð. í fylgd sér-
fræðinga geta þátttakendur lært
að þekkja fugla og fræðst um
lifnaðarhætti þeirra. Fuglaskrá
Ferðafélagsins er merkileg
heimild um þá fugla, sem sést
hafa í þessum ferðum, en þetta
er 19. ferðin síðan skráning
hófst. í upphafi ferðar er far-
þegum afhent Ijósrit af skránni
og þykir mörgum afar áhugavert
að sjá hvaða farfuglar eru komn-
ir til landsins og bera saman við
fyrri ár. Það veröur víða staldrað
við á leiðinni um Suðurnes og
hugað að fuglum, m.a. á Álfta-
nesi, i Hafnarfirði, á Garðskaga,
í Sandgerði, Hafnabergi og
víðar. Hafnaberg er athyglisvert
fuglabjarg, þar sem sjá má allar
bjargfuglategundir landsins að
haftyrðlinum undanskildum. Af
bjargbrúninni má sjá til Eldeyjar,
þar sem þúsundir súlna halda
sig, en þær fljúga oft nálægt
bjarginu. Verð kr. 1.000,-.
Brottför frá Umferðarmiðstöð-
inni, austanmegin, kl. 10 f.h.
Æskilegt er að taka með sjón-
auka og fuglabók. Frítt fyrir börn
15 ára og yngri. Farmiðar við
bil. Fararstjórar: Gunnlaugur
Pétursson, Haukur Bjarnason
og Jón Hallur Jóhannsson.
Fuglaskoðun er skemmtilegt
tómstundagaman fyrir unga
sem aldna. Að kunna skil á sem
flestu í umhverfi okkar gefur
lifinu lit. Deginum er vel variö í
fuglaskoðunarferð með Ferðafé-
lagi (slands.
Miðvikudaginn 10. maí verður
næsta myndakvöld í Sóknar-
salnum.
Ferðafélag íslands.
ÓSKAST KEYPT
Fyrirtæki til kaups
Traustir og fjárhagslega sterkir aðilar hafa
áhuga á að kaupa framleiðslufyrirtæki með
það markmið að flytja starfsemi þess út á land.
Einnig kæmi til greina að gerast hluthafi í fyrir-
tæki er áhuga hefði á að flytja starfsemi sína.
Áhugasamir leggi upplýsingar á auglýsinga-
deild Mbl. merkt: „T - 2690“.
ÞJÓNUSTA
Kaupendur fasteigna,
athugið!
Ég veiti aðstoð við skoðun fasteigna.
Áratuga starfsreynsla.
Upplýsingar í síma 688602.
LÖGTÖK
Lögtök
Eftir kröfu gjaldheimtustjórans í Reykjavík
og að undangengnum úrskurði verða lögtök
látin fara fram án frekari fyrirvara á kostnað
gjaldenda, en ábyrgð Gjaldheimtunnar, að
átta dögum liðnum frá birtingu auglýsingar
þessarar, fyrir eftirtöldum gjöldum:
Vanskilafé, álagi og sektum skv. 29. gr. laga
nr. 45/1987 um staðgreiðslu opinberra gjaldá,
sbr. 14. gr. laga nr. 90/1987 fyrir 1.-3.
greiðslutímabil 1989 með eindögum 15. hvers
mánaðar frá febrúar 1989 til apríl 1989.
Reykjavík, 2. maí 1989.
Borgarfógetaembættið í Reykjavík.
ATVINNUHÚSNÆÐI
Iðnaðarhúsnæði óskast í
Hafnarfirði/ Garðabæ
500-700 fm með góðri lofthæð og helst með
tveimur innkeyrsludyrum, óskast til leigu eða
kaups. Þarf ekki að vera einangrað. Gott
útisvæði nauðsyn.
Tilboð sendist auglýsingadeild Mbl. merkt:
„H - 9790“.
Fullfrágengið
atvinnuhúsnæði
Ártúnshöfði
★ Skrifstofuhúsnæði, 160 fm
★ Verkstæðislagerhúsnæði, 144 fm. Hent-
ar vel viðgerðarþjónustu.
Ýmisleg sameiginleg þjónusta möguleg.
Sundaborg
★ Skrifstofuhúsnæði, 75 fm.
★ Skrifstofu- og lagerhúsnæði, 150 fm
Óinnréttað
atvinnuhúsnæði
Ártúnshöfði
Smiðjuvegur
Ofangreint húsnæði er laust nú þegar.
Nánari upplýsingar veitir Sigurður Jónasson
hjá Frum hf., sími 681888.
Lögmenn - endurskoð-
endur-aðrir
Til leigu eru 3-4 skrifstofuherbergi á vel stað-
settri og vel búinni lögmannsstofu í
Reykjavík. Næg bílastæði. Auk þess stendur
til boða símaþjónusta, aðgangur að kaffi-
stofu og tækjum, svo sem Ijósritun, telexi
og telefaxi. Hentar vel lögmönnum eða end-
urskoðendum sem eru að hefja starfsemi,
m.a. vegna viðskiptamöguleika.
Vinsamlegast tilkynnið áhuga yðar í pósti,
merktan: „Lögmenn" pósthólf 1236, 121
Reykjavík.
Verslunarhúsnæði
við Skútuvog
Til leigu 300 fm gott verslunarhúsnæði við
Skútuvog.
Áhugasamir leggi inn nöfn á auglýsingadeild
Mbl. merkt: „G - 9793“ fyrir 12. maí.
Til leigu
við Hamraborg í Kópavogi skrifstofa með
aðgangi að sameiginlegri kaffistofu.
Til leigu
við Skemmuveg í Kópavogi 280 fm iðnaðar-
húsnæði á jarðhæð með stórum innkeyrslu-
dyrum. Hægt að skipta húsnæðinu og leigja
það í tvennu lagi.
Þeir sem áhuga hafa sendi nafn og símanúmer
á auglýsingadeild Mbl. merkt: „J - 8051“.