Morgunblaðið - 07.05.1989, Blaðsíða 21

Morgunblaðið - 07.05.1989, Blaðsíða 21
ATVINNU RAD- OG SMÁAUGLÝSINGAR A TVINNUAUGL ÝSINGAR Virðisaukaskattur Ríkisskattstjóri auglýsir eftir lausu starfi á þjónustusviði vegna upptöku virðisaukaskatts. Fram kemur að um sé að ræða nýja og áhugaverða stöðu þar sem starfssvið er m.a. upplýsinga- og kynningarstarfsemi, eftirlit og þjónusta við skattskyld fyrirtæki. Ahersla er lögð fyrirbyggjandi eftirlit með greiðslu óbeinna skatta. Menntun eða góð reynsla á sviði bókhalds er sögð æskileg. Viðskiptafræðing- ur á lánasvið Iðnaðarbankinn vill ráða starfsmann til starfa á lánasvið og segir í auglýsingu að starfið sé laust samkvæmt samkomu- lagi. Starfssvið er m.a. arðsemismat, mat á lánsumsóknum og skýrslugerðir ýmiskonar. Um er að ræða sjálfstætt og krefjandi starf. Einhver starfsreynsla er sögð æskileg. íþróttir, stangveiði og gítarleikur Óskað er eftir barngóðu, reglusömu og duglegu starfsfólki að Þingeyrum í A-Húnavatnssýslu frá 28. maí til 1. septem- ber. Um er að ræða matráðskonu, aðstoðarmann í eldhúsi og leiðbeinendur á aldrinum 17-35 ára. Sérstaklega er óskað eftir þeim sem kunna á gítar og hafa áhuga fyrir íþróttum og stangveiði. Morgunblaðið/Sverrir Hinn 1. júní nk. er hinn opinberi sameiningardagur Brunabótafélags íslands og Sjóvá. Um 40 manns var sagt upp störfúm, en aðeins fjórir hafa fengið störf hjá öðrum fyrirtækjum. Ennþá er útlitið þó ekki slæmt fyrir hina vegna sumarafleysinga. Uppsagnir vegna sameiningar tryggingafélaganna: Flestir fá vinnu í Yfirhagfræðingur Fjárlaga- og hagsýslustofnun auglýsir lausa til umsóknar stöðu yfirhagfræðings. Starfið tengist vinnu við fjárlagagerð m.a. mat á áhrifum verðlags- og launaþróunar og vinnu við tölvukerfi sem notuð eru við fjárlagavinnsluna. Ennfremur felur starfið í sér vinnu við athuganir og úttektir í ríkis- fjármálum. Tekið er fram að við mat á umsóknum verði lögð áhersla á þekkingu og reynslu við skyld störf. RAÐAUGL ÝSINGAR Tannsmíðanám Menntamálaráðuneytið auglýsir eftir umsóknum um nám Tannsmíðaskóla íslands sem skal senda til skólans fyrir 1. júní nk. Umsækjendur þurfa að hafa lokið grunnskólaprófi og hafa jafngildi stúdentspróf í ensku og einhveiju Norður- landamáli. Prjónastofa Eignir þrotabús prjónastofunnar Dyngju hf. á Egilsstöðum eru auglýstar til sölu. Þar er um að ræða eignarhluta í Lyngási 12 þ.e. 600 fermetra iðnaðarhúsnæði ásamt vélum og tækjum t.d. pijónavélum, saumavélum, pressum, ýfingar- vélum og sniðhlífum. 'smáÁÚglýsÍngar Fuglaskoðunarferð Ferðafélag íslands gengst í dag fyrir fuglaskoðunarferð um Suðurnes. í auglýsingu segir að ferðin sé kjörin fyrir fjölskyldur. í fylgd sérfræðinga geti þátttakendur lært að þekkja fugla og fræðst um lifnaðarhætti þeirra. í upphafi ferðarinnar verður þátttakendum afhent ljósrit af skrá yfir þá fugla sem sést hafa í þessum ferðum en þetta er 19. ferðin síðan skráning hófst. M.a. verður staldrað við á Álfta- nesi, í Hafnarfirði, á Garðskaga, í Sandgerði, Hafnarbergi og víðar. Brottför er frá Umferðarmiðstöðinni austanmegin kl. 10.00. sumarafleysingum - segja talsmenn BÍ og Samvinnutrygginga FJÓRIR af þeim tæplega 40 manns, sem sagt var upp störfum við sameiningu Brunabótafélags íslands og Samvinnutrygginga hafa fengið störf í gegnum Atvinnumiðlun félaganna og mál eins starfsmanns er í athugun. Þá fara þrír fara beint á eftirlaun hjá Samvinnutryggingum og Qórir hjá Brunabót, en formlega sameinast félögin 1. júní næstkomandi. Halldór Frímannsson hjá Samvinnutryggingum segist finna inn á það, að sú aðstoð sem þeir hafi auglýst hafi haft jákvæð áhrif bæði innanhúss sem utan. Hann hafi fengið upphringingar frá utanaðkomandi aðilum, sem hafi sýnt áhuga. Einnig hafi þeir átt góða samvinnu við það starfsfólk sem ekki var hægt að bjóða áframhaldandi starf. Hann segist ánægður hvernig málin hafi þróast og hann sé miklu bjartsýnni nú en fyrst þegar séð var fram á að yrði að segja einhveijum upp. Hjá Samvinnutryggingum var uppsagnafrestur lögbundnir 3 mánuðir, en þó rýmri í sumum tilvikum, þar sem starfsfólk hafði ekki áunnið sér full réttindi. „Til að mæta þessu eins og hægt er höfum við í samráði við trúnaðarmenn verkalýðsfélaganna reynt að taka sem flesta af þeim sem sagt var upp inn í sumarafleysingar og lengt þannig uppsagnarfrestinn. Þá ætla einhveijir í nám í haust og verða hjá okkur í sumar, þannig að það eru um það bil 10 manns hjá okkur, sem ekki er ljóst með hvað verður um,“ sagði Halldór Frímannsson. Pétur Már _ Jónsson hjá Brunabótafélagi íslands, sagði að lengri aðlögunartími væri hjá þeim. Uppsagnir miðuðust við það að fólk hætti störfum 31. maí, en héldi launum eitthvað lengur, allt að 9 mánuðum, það færi eftir starfsaldri. Vegna þessa hefðu þeir farið rólega af stað. Pétur Mar sagði að þeir myndu ráða eitthvað af starfsfólkinu í sumarafleysingar og að það væru 5—7 manns, sem þyrfti að útvega aðra atvinnu. Sjóvá-Almennar tóku þá afstöðu að segja ekki upp starfsfólki, en ráða ekki heldur í þær stöður sem losnuðu. Iðntæknistofn- un gefiirút upplýsingarit IÐNTÆKNISTOFNUN íslands hefúr gefið út 28 síðna rit, þar sem teknar hafa verið saman upplýsingar um þá þjónustu, sem Iðntæknistofnun býður fyrir- tækjum og öðrum sem tengjast iðnaði. í frétt frá stofnuninni segir, að efni ritsins sé raðað þannig upp, að aðgengilegt sé fyrir lesandann að átta sig á hvernig þjónusta stofn- unarinnar getur komið honum til góða. Hægt er að fá ritið hjá stofnun- inni. Reyðarfiörður: Fækkun um 35 á atvinnu- leysisskrá frá áramótum Reyðarfirði. Um áramótin voru 40 manns á atvinnuleysisskrá á Reyðar- firði en í dag eru aðeins 5, þar af 2 konur og þrír karlmenn. Hjá hreppnum Verður næg vinna í sumar, þar sem stendur til að fara að stækka skólann. Segja má að næg vinna sé í plássinu eins og er en það breytist þegar Snæfugl SU 20 fer að frysta um borð. Þá gæti farið svo að hráefni minnk- aði mikið sem bærist á land og þá minnkar atvinna um leið. Um 70 manns vinnur t.d. í frysti- húsi KHB núna en þeir eiga '/< hluta í togaranum Hólmanesi á Eskifirði og fá ‘4 af þeim afla til að vinna úr hjá frystihúsinu og eins hjá Hólma- borg, en svo minnkar mikið þegar Snæfuglinn hættir. Nýlokið er vinnu hjá Síldarverksmiðjunni, en þar höfðu 24 atvinnu. Þar voru brædd 31.500 tonn frá áramótum. Búið er að segja upp öllum mönnum utan 5 eða 6. En þéssir menn hafa ekki fengið neina vinnu ennþá og létu ekki skrá sig á atvinnuleyssiskrá. Bergsplan er með 6 menn í fastri vinnu, taka fisk af smábátum og setja upp í skreið á Ítalíumarkað, og þegar því lýkur verður ekkert eftir af fólki. Verktakar hafa sagt upp sínum mönnum og lokað. Því er ekki gott útlit fyrir skólafólk. - Gréta. Höfti í Hornafiröi: Þokkalegt atvinnu- ástand Hö&i. Atvinnuástandið er þokkalegt um þessar mundir, að sögn Hallgríms Guðmundssonar bæjar- stjóra á Höfii. Á Stokksnesi er byijað að byggja fyrir Ratsjárstofnun og á Höfn eru framkvæmdir við 14 kaupleiguíbúðir, sem nær 50 umsækjendur voru um, í fullum gangi. Hallgrímur telur að byggðar verði allt að 20 íbúðir í ár á Höfn, þótt þörfin fyrir fleiri virðist mjög mikil. „Við þurfum ekki vinnuafl hér til að vinna þann afla, sem fer í burtu,“ segir Hermann Hansson kaupfélags- stjóri. Það er ljóst að einhveijir hum- arbátar munu landa afla sínum í öðrum byggðariögum á komandi vertíð. Það helgast meðal annars af þvi að þeir fengu viðbótarkvóta utan héraðs, með því skilyrði að landa humarafla hjá viðkomandi aðilum. Á síðustu humarvertíð voru 15 bátar í viðskiptum við Kaupfélag A-Skaft- fellinga. Þá eru 28 trillur byijaðar á handfærum og línu en á síðasta ári lögðu 39 smábátar upp afla sinn á Höfn. - JGG

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.