Morgunblaðið - 07.05.1989, Blaðsíða 8
8
MORGUNBLAÐIÐ DAGBOK
SUNNUDAGUR 7. MAÍ 1989
T Tk *persunnudagur7.maí,6. sd.eftirpáska. 127.
1 UALr dagur ársins 1989. Árdegisflóð í Reykjavík kl.
7.27 og síðdegisflóð kl. 19.47. Sólarupprás í Rvík kl. 4.39
og sólarlag kl. 22.12. Myrkur kl. 23.32. Sólin er í hádegisstað
í Rvík kl. 13.24 og tunglið er í suðri kl. 15.25 (Almanak
Háskóla íslands).
Brákaðan reyr brýtur hann ekki, og ijúkandi hörkveik
mun hann ekki slökkva, uns hann hefiir leitt réttinn til
sigurs. (Matt. 12,20.)
ÁRNAÐ HEILLA
QA ára afinæli. Á morg-
•/i/ un, mánudag, 8. maí,
er níræður Siguijón Eiríks-
son, Skólabraut 1, Mosfells-
bæ, fyrrum eftirlitsmaður hjá
Vita- og hafnamálastofnun. í
dag, sunnudag, ætlar hann
að taka á móti gestum á heim-
ili sínu.
nA ára afinæli. Næst-
I U komandi þriðjudag, 9.
maí, er sjötugur Þórir Guð-
mundsson, Grenimel 44,
fyrrverandi innkaupastjóri
hjá SH. Hann og eiginkona
hans, Amfríður Snorradóttir,
taka á móti gestum í sal
Meistarafélags bygginga-
manna, Skipholti 70, á af-
mælisdaginn kl. 17 til 20.
SKIPIIM______________
REYKJAVÍKURHÖFN:
Stapafell fór í fyrradag á
ströndina. í gær kom Kyndill
af strönd og í gær fór togar-
inn Jón Vídalín. í fyrradag
kom hin „fljótandi kjörbúð"
Pan Trader inn og fór út
aftur í gær. Danska eftirlits-
skipið Beskytteren fór. í dag
rt JT ára afinæli. Á morgun
• 0 8. þ.m. er 75 ára Sig-
urður Guðmundsson bif-
reiðastjóri frá Streiti í
Breiðdal, Hvassaleiti 12,
hér í bænum. Kona hans er
Bima Runólfsdóttir frá Innri
Kleif í Breiðdal.
nA ára afinæli. Sjötugur
I U verður á morgun,
mánudaginn 8. maí, Eyjólfur
Sigurðsson bankastarfs-
maður, Skipasundi 75, hér
í bæ. Hann og kona hans,
Inga Magnúsdóttir, taka á
móti gestum í Fólkvangi á
Kjalamesi á morgun, af-
mælisdaginn, kl. 18-21.
er Sagaland, leiguskip SlS,
væntanlegt að utan og Græn-
landsfarið Johann Petersen.
Á morgun fer rússneska skip-
ið Akademik Krylov og þá
var sænskt olíuskip Thun-
tank, sem er lítið skip, vænt-
anlegt í gær. Grænlenski tog-
arinn Anson Mölgaard sem
kom inn til löndunar á
fimmtudag fór út aftur í gær.
HAFNARFJARÐAR-
HÖFN: í gær kom inn til
löndunar frystitogaramir
Snæfell og Siglfirðingur.
KROSSGATAN
■
“■r"
Hm~mz
122 23 24
LÁRÉTT: — 1 auli, 5 nóar,
8 guð, 9 skekkju, 11 gálan,
14 askur, 15 umhyggjusöm,
16 líkamshlutar, 17 greinir,
19 fuglinn, 21 svara, 22 tán-
ing, 25 drykks, 26 spíri, 27
bardaga.
LÓÐRÉTT: - 2 púki, 3
fraus, 4 gyðju, 5 litla greinin,
6 snjó, 7 keyri, 9 vandfysin,
10 stöðug, 12 stríða, 13
kroppaði, 18 tölustafur, 20
óþekktur, 21 fian, 23 gelt,
24 tveir.
LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU:
LÁRÉTT: - 1 norpa, 5 svaia, 8 ókáta, 9 smala, 11 öldur,
14 ryk, 15 organ, 16 uglan, 17 sum, 19 urin, 21 ótal, 22
týndist, 25 les, 26 auð, 27 aur.
LÓÐRÉTT: - 2 orm, 3 pól, 3 akams, 4 stökum, 6 val, 7
lóu, 9 stopull, 10 auglits, 12 dílótta, 13 rangalar, 18 undu,
20 ný, 21 ós, 23 Na, 24 ið.
Sigurður Markússon:
Fjórir draugar sóttu a
útflutningsfyrirtækjum
SSo s _4r- S-9
raMúrdo
MANNAMÓT
FÉL. eldri borgara. í
dag, sunnudag, er opið hús í
Sigtúni 3, Goðheimum, kl. 14
og þá spilamennska. Félags-
vist spiluð kl. 19.30 og dansað
kl. 21. Á morgun, mánudag,
er opið hús í Tónabæ frá kl.
13.30 og byijað að spila fé-
lagsvist kl. 14.
KVENFÉL. Grensás-
sóknar. Kaffisala verður í
safnaðarheimilinu í dag
sunnudag 7. maí og hefst kl.
15. Tekið verður á móti kök-
um á sama stað eftir kl. 10.
Lokafundurinn á þessu
starfsári verður annað kvöld,
8. maí kl. 20.30 í safnaðar-
heimilinu.
KVENFÉL. Heimaey
heldur árlegt veislukaffi í
Súlnasal Hótels Sögu í dag
sunnudag kl. 14.
KAFFIBOÐ Fél. Snæ-
fellinga og Hnappdæla
hér í Reykjavík fyrir eldra
fólk úr héraðinu er í dag,
sunnudag, í Sóknarsalnum,
Skipholti 50 A. Hefst það kl.
15. Aðalfundur félagsins
verður svo í framhaldi af
kaffiboðinu kl. 17.30. Þar
verður rætt um kaup á hús-
eign fyrir félagið.
KVENFEL. Breiðholts
heldur hattafund í kirkjunni
nk. þriðjudagskvöld kl. 20.30.
Kaffi verður borið fram og
skemmtidagskrá flutt.
KVENFELAG Bústaða-
SÓknar heldur fund mánu-
daginn 8. maí kl. 20.30 í safn-
aðarheimilinu. Gestir koma á
fundinn. Skemmtiatriði.
Kaffiveitingar.
KVENNADEILD
Styrktarfél. lamaðra og
fatlaðra heldur fund annað
kvöld, mánudag, á Háaleit-
isbr. 11-13 kl. 20.30. Gestur
fundarins verður Gunnlaugur
Guðmundsson stjömufræð-
ingur.
FÉL. raungreinakenn-
ara heldur aðalfund sinn nk.
fimmtudag 11 þ.m. í Kvenna-
skólanum við Fríkirkjuveg.
Að loknum aðalfundarstörf-
um flytur Kristján Jónasson
erindi sem hann nefnir:
Hvemig reikna reiknivélar
sínusa og kvaðratrætur?
ORLOFSNEFND hús-
mæðra í Reykjavík held-
ur kynningarfund á Loftleiða-
hóteli nk. fimmtudagskvöld
kl. 20.30. Kynntur verður þar
nýr orlofsstaður húsmæðra
nú á þessu sumri.
FRÉTTIR
RÚMHELGA vika heitir vik-
an sem nú fer í hönd, þ.e.
vikan fyrir hvítasunnu. í
Stjömufræði/Rímfræði segir
að nafnskýring sé óviss, en
líklega andstæða við helgu
viku.
HÚSFRIÐUNARNEFND
hefur augl. eftir umsóknum í
Lögbirtingablaðinu, úr hús-
friðunarsjóði. Hann var stofn-
aður með lögum árið 1975,
til að styrkja viðhald og end-
urbætur húsa, húshluta og
annarra mannvirkja sem hafa
menningarsögulegt eða list-
rænt gildi. Umsóknarfrestur
ertil 1. sept. nk. Húsfriðunar-
nefnd hefur bækistöð hjá
Þjóðminjasafni íslands.
I HRISEY. I tilk. frá sveitar-
stjóranum í Hrísey og skipu-
lagsstjóra ríkisins í Lögbirt-
ingi segir að gerð hafi verið
tillaga að aðalskipulagi
Hríseyjarhrepps, sem nær
yfir núverandi byggð og fyrir-
hugaða á skipulagstímabilinu
sem er 1988-2008.
RAUFARHÖFN og Þórs-
höfti. Bæjarfógeti Húsavíkur
hefur augl. í Lögbirtingi
lausar tvær lögregluþjóns-
stöður í umdæmi sínu: Á
Raufarhöfn, með aðsetri þar
og á Þórshöfn, með aðsetri
þar. Stöðumar verða veittar
frá 1. júni, en 10. þ.m. rennur
út umsóknarfrestur um báðar
stöðumar.
ÞETTA GERDIST
ERLENDIS:
1223: Svarti greifinn tekur
Valdimar Danakonung til
fanga.
1703: Hertoginn af Marlbor-
ough tekur Köln og síðan
Bonn og Eugen prins af
Savoy heijar í Rínarhémðun-
um og Suður-Þýskalandi.
1777: Bandaríska beitiskipið
„Surprise" tekur breska beiti-
skipið Prince of Orange á
Ermarsundi.
1821: Breska stjómin tekur
við stjóm bresku V-Afríku
Sierra Leone, Gambíu og
Gullstrandarinnar. Breska
Afríkufélagið lagt niður.
1832: Grikkir lýsa yfir stofn-
un sjálfstæðs konungsríkis.
1848: Prússar bæla niður
uppreisn í Varsjá og Pólveijar
gefast upp.
1908: Andrew Fisher myndar
fyrstu stjóm Verkamanna-
flokksins í Ástralíu.
1915: Þjóðveijar sökkva
breska hafskipinu „Lusitan-
ia“ og 1.100 týndu Íífí.
1918: Rúmenar semja frið við
Miðveldin.
1939: Öxullinn Berlín-Róm
settur á laggimar.
7. maí
1942: Sjóorrustan á Kóralhafi
hefst.
HÉRLENDIS:
1197: Önundarbrenna.
1425: Bréf Eiríks konungs
um siglingar til skattlanda.
1804: Stefán Þórarinsson
settur stiftamtmaður.
1884: Bergi Thorberg veitt
landshöfðingjaembættið.
1891: Ráðist á sr. Jóhann
Þorkelsson dómkirkjuprest
fyrir altarinu.
1908: Páll Einarsson skipaður
fyrsti borgarstjóri Reylqavík-
ur.
1934: Borðeyrardeilan hefst.
1940: Fyrsti ríkisráðsfundur
ráðuneytis íslands sem hand-
hafi konungsvaldsins.
1951: Bandarískt herlið kem-
ur til Keflavíkurflugvallar.
Aftnæli: Johannes Bhrams
þýskt tónskáld (1833-1897).
Rússneska tónskáldið P.
Tsjajkovskíj (1840-1898).
Rosebery lávarður og stjórn-
málamaður í Bretlandi
(1847-1929). Mach Leish
bandarískt skáld fæddur
1892. Hérlendis fæddist stór-
útgerðarmaðurinn Haraldur
Böðvarsson.
ORÐABOKiN
Kartafla - kartaflna
í íslenzku hefur sú verið
aðalreglan, að kvk. no., sem
enda á -a í nf. et., endi á
-na í ef. ft. Þar má nefna
no. eins og stúlka - stúlkna,
perla - perlna o.s.frv. Vissu-
lega eru á þessu undantekn-
ingar, og fer það m.a. eftir
hljóðasamböndum. Hins
vegar hefur lengstum verið
kennt, að þau orð, sem hafa
g eða k í stofni, hafi ending-
una -na í ef. ft. Þar má
nefna sem dæmi sprengja -
sprengna, kirkja - kirkna
o.s.frv. Snemma hefur borið
á tvískinnungi í beygingu
þessara orða. í íjölmiðlum
má oft sjá og heyra sagt
„þar féll fjöldi sprengja“.
Samt hygg ég menn segi
enn miklu oftar sprengna í
þessu dæmi sem öðrum
áþekkum. Eins mun al-
mennt sagt ekkna af ekkja,
gang na af ganga, sbr.
gangnamenn, o.s.frv. Þá hef
ég haldið, að almennt væri
talað um góða uppskeru
kartafl na, en ekki kartafla.
í minningabók, sem ég
las fyrir stuttu, stendur:
„Ég saknaði náttúrulega
kartaflanna." Og í nýlegri
grein um kartöfluinnflutn-
ing var talað um innkaups-
verð hollensku kartaflonna.
Ég vona, að flestir séu mér
sammála um, að hér hefði
betur farið á að segja kart-
aflnanna. - JAJ.