Morgunblaðið - 23.05.1989, Qupperneq 18
18
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 23. MAÍ 1989
Erindi um
Finnlands-
sænsku
LEIF Nyholra, aðstoðarprófess-
or frá Helsínki-háskóla, flytur
opinberan fyrirlestur í boði
heimspekideildar Háskóla ís-
lands þriðjudaginn 23. maí kl.
17.15 í stofu 101 í Odda.
Fyrirlesturinn nefnist „Fin-
landssvenskan í ett integrerat
Norden" og fjallar um mál sænska
minnihlutans í Finnlandi.
Leif Nyholm hefur um árabil
rannsakað málfar sænskumælandi
Finna og skrifað m.a. doktorsrit-
gerð um sænskt talmál í Helsinki.
Dr. Ulrich Groenke
Háskólafyrir-
lestur um mál-
fræði
DR. Ulrich Groenke, prófessor
við Kölnarháskóla, flytur opin-
beran fyrirlestur í boði heim-
spekideÚdar Háskóla íslands
miðvikudaginn 24. maí kl. 17.15
i stofu 101 i Odda.
Fyrirlesturinn nefnist „Fyrsti
málfræðingurinn, Mikael Agricola
og Daniel Justinius: Sitthvað um
lágmarkspör og þróun réttritunar
í Finnlandi." Fyrirlesturinn verður
fluttur á íslensku.
Ulrich Groenke er prófessor í
norrænum fræðum og flnnsku við
Kölnarháskóla. Hann hefur skrifað
flölda greina um íslenskt mál, eink-
um nýyrði, slettur og slanguryrði.
Hann hefur einnig skrifað um
finnsku, m.a. bókina Grundziige
der Struktur des Finnischen. Segja
má að í fyrirlestri sínum á vegum
heimspekideildar tengi Groenke
saman þekkingu á íslenskri, finns-
kri og almennri málfræði.
(Fréttatilkynning)
GRIPASAFN
VESTMANNAEYJA
Forsíða íslensku útgáfu bækl-
ingsins.
Fiska- og náttúru-
gripasafii Vestmanna-
eyja;
Bæklingur í til-
efiii 25 ára af-
mælis
FISKA- og náttúrugripasafn
Vestmannaeyja verður 25 ára á
þessu ári.
Safnið var stofnað af bæjar-
stjóm Vestmannaeyja 5. júní 1964.
í tilefni þessara tímamóta hefur
safnið gefið út litprentaða upplýs-
ingabæklinga um Fiska- og nátt-
úrugripasafnið og náttúrufar í
Vestmannaeyjum.
Textar í bæklingnum eru á fjór-
um tungumálum, fslensku, dönsku,
ensku og þýsku.
í bæklingnum er fjöldi litmynda
frá safninu, auk mynda og korta
af ýmsu er tengist náttúrufari
Vestmannaeyja.
Leikfélag
Akureyrar á
Húsavík
Húsavík.
Listviðburður var á Húsavík
um hvftasunnuna er Leikfélag
Akureyrar flutti I Húsavíkur-
kirkju hluta úr leikverki Guð-
rúnar ÁsmundsdóttUr um Kaj
Munk f samantekt Ragnheiðar
Tryggvadóttur.
Flytjendur í verkinu voru Þrá-
inn Karlsson, Sunna Borg, Theod-
ór Júlfusson, Sigurveig Jónsdóttir
og Jón Kristinsson. Orgelleik ann-
aðist Bjöm Steinar Sólbergsson.
Áhorfendur nutu eftirminni-
legrar stundar, en þeir hefðu
mátt vera fleiri en raun varð á.
- Fréttaritari
Hópferð á Hró-
arskelduhátíð
Hljómplötufyrirtækið Gramm-
ið og ferðaskrifstofan Farandi
standa fyrir hópferð á tónlistar-
hátfðina í Hróarskeldu í Dan-
mörku dagana 30. júnf til 2. júlf
nk.
Ætlunin er að fljúga út 27. júní
og koma til baka 4. júlí. Hátíðin
sjálf stendur í 3 daga og fram
koma margar af bestu hljómsveit-
um rokksins, svo sem Pixies, My
Bloody Valentine, Dinosaur jr.,
Camper van Beethoven, Eddie
Brickell And The New Bohemians,
Tanita Tikaram, Cowboy Junkies,
Suzanne Vega og Hugo Largo.
Sætafiöldi í ferðina er takmark-
aður og nú þegar er að verða full-
bókað. Fararstjórar verða Skúli
Helgason og Sigurður Ivarsson.
(Fréttatilkynning)
Hólmfrfður Svavarsdóttir
Nýr formaður
Alliance Fran-
caise
AÐALFUNDUR Alliance Fran-
caise f Reykjavík var haldinn 10.
maf sl. Ný stjóm var kosin á
fúndinum og var Hólmfrfður
Svavarsdóttir kosin forseti fé-
lagsins í stað Þórs Stefánssonar,
sem ekki gaf kost á sér til endur-
kjörs. Þetta er f annað sinn í
sögu Alliance Francaise f
Reykjavík sem kona er kosin
forseti en Vigdfs Finnbogadóttir,
forseti íslands, gegndi embætt-
inu í nokkur ár.
Hólmfríður Svavarsdóttir lauk
MA prófi í heimspeki og fomgrísku
frá Universite Catholique de Lo-
uvain f Belgíu árið 1984. Loka-
prófsritgerð hennar Qallaði um
danska heimspekinginn Sören
Kirkegaard. Hún las frönsku og
bókmenntir við Háskóla íslands á
árunum 1974- 1976 og varð stúd-
ent frá Menntaskólanum á Laugar-
vatni 1974. Hólmfríður var um
tfma stundakennari í heimspeki við
Menntaskólann í Hamrahlíð og í
fomgrísku við Háskóla íslands en
starfar nú á Háskólabókasafni.
Starfsemi Alliance Francaise í
Reykjavík var umfangsmikil á
síðasta ári. Auk þess að reka bóka-
safn sem opið er daglega og skipu-
leggja frönskukennslu gekkst fé-
lagið fyrir nokkrum menningarvið-
burðum sem eftir var tekið. Hæst
bar tvær kvikmyndavikur í sam-
vinnu við frönsku kvikmyndástofn-
unina, franska sendiráðið í
•Reykjavík og Regnbogann. Tvær
leiksýningar vom í Reylrjavík á
vegum félagsins, Madame de la
Carliere eftir sögu Diderots og
Nashymingamir eftir Ionesco. Þá
var starfræktur kvikmyndaklúbbur
á bókasafni félagsins og fleira
mætti telja.
Alliance Francaise í Reykjavfk
var stofnað 1911 og er eitt af 1.200
félögum í Alliance Francaise de
Paris sem var stofnað árið 1883.
Félögin starfa nú í yfir 100 löndum.
Tilgangur Alliance Francaise er
að verja og kynna franska tungu
og menningu í þeim löndum sem
félögin starfa í. Félagar í Alliance
Francaise í Reykjavík em um 600.
Franskur sendikennari hefur starf-
að á vegum Alliance Francaise hér
á landi undanfarin ár.
(Fréttatilkynning)
Útihátíð við
Breiðholtsskóla
ÚTIHÁTÍÐ verður við Breið-
holtsskóla miðvikudaginn 24.
mai í tilefhi 20 ára aftnælis
skólans.
Dagskráin verður fjölbreytt;
Lúðrasveit Árbæjar og Breiðholts
leikur nokkur lög, formaður nem-
endaráðs ávarpar samkomuna,
nemendur gróðursetja 20 tré á
skólalóð, skrúðganga verður farin
um hverfíð, sundmót verður haldið
og farið f leiki á velli, veitingar
verða fyrir nemendur skólans og
grímuball, en nemendur höfðu t.d.
það verkefni í handavinnu í vetur
að sauma sér grímubúninga.
Fyrirlestur um
uppeldi mis-
þroska barna
GARÐAR Vfborg sálfræðingur
heldur fyrirlestur miðvikudag-
inn 24. maf nk. Neftiir hann fyrir-
lesturinn „Um uppeldi mis-
þroska barna".
Fyrirle8turinn verður fluttur á
fundi Foreldrafélags misþroska
bama í Æfingadeild Kennarahá-
skólans á mótum Bólstaðarhlíðar
og Háteigsvegar og hefst hann kl.
20.30. A eftir verða fyrirspumir
og síðan almennar umræður.
Þetta verður sfðasti félagsfundur
Foreldrafélags misþroska bama í
vor.
Guðrún Jónsdóttir sópransöng-
kona.
Útskriftartón-
leikar Gtiðrún-
ar Jónsdóttur
Söngskólinn f Reykjavík út-
skrifar að þessu sinni einn söng-
kennara, Guðrúnu Jónsdóttur.
Útskriftartónleikar Guðrúnar
verða í Norræna húsinu þriðju-
daginn 23. maí nk. kl. 20.30.
Píanóleikari er Jórunn Viðar,
en þær Guðrún og Jórunn hafa
unnið saman lengst af, í söngn-
ámi Guðrúnar.
Guðrún er fædd og uppalin á
ísafírði og hóf þar fiðlunám við
Tónlistarskóla ísafjarðar, sem
hún fylgdi síðan eftir að loknu
stúdentsprófi, við Tónlistarskól-
ann í Reykjavík, en sneri sér brátt
að söngnámi og innritaðist í Söng-
skólann í Reykjavík haustið 1981
og lauk þaðan 8. stigi í söng vo-
rið 1987.
Sl. tvö ár hefur Guðrún stundað
framhaldsnám í söngkennaradeild
Söngskólans en fór jafnframt til
söngnáms í London.
Leiðrétting
GREININ „Vinsamleg tilmæli til
stjómar KEA“, sem birtist í blað-
inu sl. föstudag, er eftir Dagrúnu
Kristjánsdóttur, ekki Dagnýju
eins og misritaðist, því miður.
Biðst blaðið velvirðingar á þessum
mistökum.
Athugasemd fi*á Flugleiðum
MORGUNBLAÐINU barst í gær
eftirfarandi fréttatilkynning frá
Flugleiðum:
Vegna frétta nú um helgina um
halla á rekstri Flugleiða fyrstu
mánuði þessa árs og hugsanleg
tengsl þess við vinnutínj* flug-
manna vilja stjómendur Flugleiða
taka fram eftirfarandi:
Nú liggur fyrir bráðabirgða-
rekstraruppgjör fyrir fyrstu þrjá
mánuði ársins sem bendir til þess
að halli á rekstri fyrirtækisins um-
fram áætlanir geti orðið rúmlega 3
milljónir dollara. Þetta em veruleg
vonbrigði, en bókanir á leiðum fé-
lagsins í sumar eru fleiri en í fyrra
sem vekur vonir um að reksturinn
rétti eitthvað við á sumarmánuðum.
Vegna þess hve flugrekstur hér-
lendis er árstíðabundinn hefur alltaf
verið vemlegur halli á rekstri Flug-
leiða 7 vetrarmánuði, en yfirleitt
náðst að rétta reksturinn við á
sumrin.
Endumýjun flugflotans nú er
félaginu lífsnauðsyn. Meðalaldur
flugvéla var með því elsta sem
þekktist í flugvélarekstri í Evrópu
og með hertum hávaðareglum á
næstu tveimur til þremur ámm áttu
þessar flugvélar skamman líftima
framundan í rekstri félagsins. Ef
ákvörðun um flugvélakaup hefði
verið dregin ætti félagið nú örðugt
um vik að fá nýjar flugvélar áður
en hávaðareglur ganga í gildi. Af-
greiðslutími nýrra flugvéla er nú
4—5 ár. Með endumýjun flugflotans
•verður jafnframt knýjandi nauðsyn
að tryggja hagnað af rekstrinum.
Að því er nú unnið af krafti. í byij-
un árs vom gerðar áætlanir um
tekju- og gjaldahlið rekstrarins.
Tekist hefur að halda útgjaldaliðum
í samræmi við áætlanir en töluverð
frávik em á tekjuhliðinni, einkum
í Ameríkuflugi og í innanlandsflugi
en einnig í Evrópufluginu.
Flugfélög í alþjóðaflugi em í eðli
sínu útflutningsfyrirtæki og rnjög
háð sveiflum í efnahagslífi á heima-
markaði. Þannig sættu Flugleiðir
því á tveimur ámm 1985—1987 að
laun á íslandi hækkuðu um sem
svaraði 100% í dollumm. Þetta varð
félaginu vitaskuld þungt I skauti
því stór hluti af tekjum þess mynd-
ast erlendis og fargjaldaverð á þeim
mörkuðum fylgdi allt öðmm lög-
málum en efnahagslíf hér heima.
Vegna þeirra sveiflna sem verða
í íslensku atvinnulífi er sennilega
mikilvægara fyrir Flugleiðir en er-
lend samkeppnisfélög að tryggja
sem besta framleiðni starfsfólks í
öllum greinum. Jafnframt verður
fyrirtækið að miða launastefnu sína
við þau skilyrði sem því em sköp-
uð. Þetta tvennt hefur sett svip á
kjaraviðræður við flugmenn nú
undanfarið. Ekki er um það deilt
af hálfu forstjóra Flugleiða og
þeirra manna sem hann hefur valið
til samstarfs við vinnuframlag flug-
manna er í samræmi við það sem
gerist hjá flugfélögum sem fyrir-
tækið miðar sig við í Evrópu. Sam-
anburður við vinnutíma bandarískra
flugmanna er óraunhæfur meðal
annars vegna þess að bandarísk
flugfélög telja vinnutíma með öðr-
um hætti en félög i Evrópu. Að
auki er erfítt fyrir íslensk flugfélög
að nýta vinnukrafta flugmanna
jafnt allt árið vegna þess hve mik-
ill munur er á ferðamannastraumi
til og frá íslandi eftir árstíðum. Um
það er vitaskuld ekki við flugmenn
að sakast.
Aths. ritstj.:
Tilefni þessarar fréttatilkynningar
er bersýnilega frétt Morgunblaðsins
sl. laugardag um taprekstur Flug-
leiða hf. fyrstu mánuði ársins o.fl.
Frétt þessi var gerð að umtalsefni
í fréttatíma ríkissjónvarpsins um
helgina og þar sagði Sigurður
Helgason, forstjóri Flugleiða hf.
m.a., að samanburður á flugtima
íslenzkra og bandariskra flug-
manna væri “ekki réttlátur“. í
fréttatilkynningu Flugleiða hf. hér
að framan segir, að þessi saman-
burður sé “óraunhæfur".
í ræðu á aðalfundi Flugleiða hf.
fyrir u.þ.b. ári sagði Sigurður
Helgason, stjórnarformaður félags-
ins m.a.:“Þá er þess að geta, að
afköst í þessum rekstri eru ekki í
samræmi við það, sem samkeppnis-
félögin búa við samfara hækkandi
kostnaði. í samanburði við
bandarísk flugfélög, sem keppt er
við á Atlantshafinu kemur í ljós,
að t.d. áhafnanýting er allt að því
40-50% hærri hjá amerísku félög-
unum heldur en hjá Flugleiðum.
Mesta samkeppnin kemur frá þess-
um félögum, sem nú búa við hag-
stæð rekstrarleg skilyrði vegna hins
lága gengis Bandaríkjadollars.
Hjá því félagi, sem hefur lægstan
áhafnakostnað, sem er Continental,
er kostnaður á hverja flugstund í
kringum $300. Hjá Flugleiðum er
þessi kostnaður um $791 á hveija
flugstund á þessu ári og hefur hann
þá tvöfaldast frá árinu 1985. Það
segir sig sjálft, að samkeppnisað-
staða félagsins þegar þessar tölur
eru hafðar í huga, er vægast sagt
vonlítil.“
Hafi þessi samanburður á
flugtíma íslenzkra og bandarískra
flugmanna í frétt Morgunblaðsins
sl. laugardag verið “óraunhæfur“
og “ekki réttlátur", að dómi for-
stjóra Flugleiða hf. á hið sama
væntanlega við um samanburð
stjórnarformanns Flugleiða hf. á
aðalfundi félagsins fyrlr ári - eða
hvað?
Því má svo bæta við, að Morgun-
blaðið byggði frétt sfna á traustum
heimildum innan Flugleiða hf.
Vandamál félagsins vegna kjara-
deilna við starfsfólk eru Morgun-
blaðinu óviðkomandi.