Morgunblaðið - 23.05.1989, Blaðsíða 22
22
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 23. MAI 1989
K]®u>
Skjótvirkur stíflueyðir
Eyðir stíflum
fljótt
• Tuskur
• Feiti
• Lífræn efni
• Hár
• Dömubindi
• Sótthreinsar
einnig lagnir
One Shot fer
fljótt að stíflunni
af því að það er
tvisvar sinnum
þyngra en vatn.
Útsölustaðir:
Shell- og Esso
-stöðvar - - -
og helstu byggingavöru-
verslanir.
Dreifing: Hringás hf.
s. 77878, 985-29797.
Bjöígunar-
búnaður
Björgunarvesti
Siglingagallar
Árar
Áragafflar
Penna-neyðarbyssur
Markúsarnet
Flotgallar
Línubyssur
Handblys
Svifblys
og allar aðrar
skoðunarvörur
í skip og báta.
SENDUM UM ALLT LAND
Grandagarði 2, síml 28855, 101 Rvfk.
Evrópubandalagið;
Nýjar tillögur um
samræmingu skatta
Brussel. Frá Kristófer M. Kristinssyni, fréttaritara Morgunblaðsins.
CHRISTIANE Scrivener, sem fer m.a. með skattamál innan fram-
kvæmdastjórnar Evrópubandalagsins (EB), kynnti í síðustu viku fyr-
ir blaðamönnum nýjar tillögur um samræmingu óbeinna skatta inn-
an bandalagsins. Samkvæmt þeim verður ekki sett þak á virðisauka-
skatt og aðildarríkjunum verður heimilt að veita undanþágur frá
skattinum.
Umræður um svokallaða Cock-
field-áætlun sem m.a. fól í sér sam-
ræmingu óbeinna skatta og vöru-
gjalda innan EB hafa staðið frá
árinu 1987. Harðar deilur hafa ver-
ið um tillögumar vegna fyrirsjáan-
legs tekjumissis þeirra aðildarríkja
sem leggja á hærri skatta en tillög-
umar gerðu ráð fyrir en samkvæmt
þeim átti hærra skattbilið að vera
14-20%. Þá hafa Bretar lýst yfir
óánægju sinni með niðurfellingu
núll-skattstigs sem þar er m.a. á
bamafatnaði.
Með nýju tillögunum er fram-
kvæmdastjómin að koma til móts
við þá gagnrýni sem fram hefur
komið. Ekki hefur verið ákveðið
hvert verði lágmarksskattstigið en
búist er við að það verði hærra en
Reuter
Sovéskir tæknimenn flytja flugskeyti og skothylki um borð í Ilyus-
hin-herflutningavél á flugvellinum í Trabzon. Sovéskur liðhlaupi flaug
MIG-29 orrustuþotu þangað og beiddist flóttamannahælis í Banda-
ríkjunum. MIG-þotunni var flogið aftur til Sovétríkjanna á sunnudag.
14%. Eftir sem áður verður afslátt-
arbilið 4-9% og heimilað verður að
veita undanþágur frá skattinum.
Nýju tillögumar gera jafnframt ráð
fyrir breytingum á innheimtu og
skilareglum á virðisaukaskattinum.
Aðlögunartími aðildarríkjanna
verður lengdur og sérstakar reglur
settar m.a. um bifreiðakaup,
fríhafnarverslun og heimildir al-
mennings til að flytja tollfrjálsan
vaming yfir landamæri.
Flúði særður á MIG-þotu til
Tyrklands og beiddist hælis
Þotunni flogið aftur til Sovétríkjanna á sunnudag
Finnland:
105 Filipps-
eyingar
skildir eftir
Helsinki. Frá Tom Kankkonen, fréttarit-
ara Morgunblaðsins.
SKIPSTJÓRI norska farþega-
skípsins „Black Prince“ skildi
rúmlega 100 Filippseyinga eftir
er skipið hélt frá Helsinki í gær.
Filippseyingamir, sem vom 1
áhöfh skipsins, lögðu niður störf
á föstudag til að leggja áherslu
á kröfur sínar um hærra kaup
og betri aðbúnað.
Skipið sem er í eigu norskra að-
ila en er skráð á Filippseyjum kom
til Helsinki á föstudag og fóru
Filippseyingarnir þá í land. Neituðu
þeir að snúa aftur til skips nema
gengið yrði að kröfum þeirra en
margir þeirra munu ekki hafa feng-
ið leyfi í eitt og hálft ár auk þess
sem þeir segja launakjör og að-
búnað allan óviðunandi. í gær á-
kvað síðan skipstjóri „Black Prince"
að halda úr höfn án Filippseying-
anna. 185 manns vom í áhöfn skips-
ins en 105 menn urðu eftir í Hels-
inki.
Skipið var á skemmtisiglingu
með um 430 breska ferðamenn og
höfðu farþegarnir m.a. greitt fyrir
ferð til Leníngrad í Sovétríkjunum.
Skipafélagið endurgreiddi fargjald-
ið og héldu flestir farþeganna heim
til Bretlands á laugardag. Talsmað-
ur skipafélagsins skýrði frá því í
gær að flugmiðar verkfallsmanna
yrðu einnig greiddir og hélt áhöfnin
öll til Bangkok og þaðan til Filipps-
eyja í gærkvöldi.
Moskvu, Ankara. Reuter.
SOVÉSKUR flugmaður flaug
ormstuflugvél af gerðinni MIG-
29 aftur til Sovétríkjanna á
sunnudag, en daginn áður hafði
særður liðhlaupi úr sovéska
flughernum flogið vélinni til
borgarinnar Trabzon nærri
Svartahafi í Tyrklandi. í sama
mund hóf Ilyushin-flutningavél
sig á loft með flugskeyti orr-
ustuvélarinnar innanborðs.
Tass-fréttastofan sovéska sagði
að liðhlaupinn hefði sært vörð
skotsári á herflugvelli í borginni
Tskhakaya í Georgíu áður en
hann tók orrustuvélina trausta-
taki.
Tyrkneskir embættismenn
sögðu að flugmaðurinn, Alexander
Zuyev höfuðsmaður í sovéska
flughemum, hefði sjálfur verið
með skotsár á hendi þegar hann
lenti þotunni á flugvellinum í Trab-
zon. Hann hefur sótt um pólitískt
hæli í Bandaríkjunum.
Sendiherra Tyrkja í Sovétríkj-
unum, Volcan Vural, var kallaður
á fund 1. aðstoðarutanríkisráð-
herra Sovétríkjanna, Alexanders
Bessmertnykhs, sem krafðist þess
að Tyrkir, sem aðild eiga að Atl-
antshafsbandalaginu, skiluðu orr-
ustuvélinni og framseldu flug-
manninn. Talsmaður tyrkneska
utanríkisráðuneytisins sagði að
beiðni Zuyevs um pólitískt hæli
yrði komið á framfæri við
bandarísk stjómvöld að því undan-
skildu að Sovétmenn legðu fram
sannanir fyrir því að hann hefði
gerst brotlegur við lög.
Zuyev var útskrifaður af sjúkra-
húsi í Ankara í gær og hófu emb-
ættismenn þegar að yfirheyra
hann. Dagblöð greindu frá því að
foringjar í tyrkneska flughemum
hefðu yfirfarið orrustuvélina en
byssukúlur höfðu höfðu hafnað í
vængjum hennar. Óljóst var hvort
fulltrúum bandaríska hersins hefði
verið leyft að skoða MIG-29-
þotuna, sem er fullkomnasta orr-
Eftir að fréttir bárust um tilraun-
ina urðu ýmsir til að lýsa áhyggjum
yfir því, að hún kynni að vera fyrir-
boði frekari útbreiðslu kjarnorku-
vopna og gæti leitt til vígbúnaðar-
kapphlaups hjá nágrannaríkjum
Indlands svo sem Pakistan og Kína.
Pakistanar gerðu tilraunir með
skammdrægar flaugar fyrr á þessu
ári.
Tvisvar sinnum áður hafa verið
gerðar tilraunir með indversku
flaugina, en þær misheppnuðust.
Ramaswamy Venkataraman, for-
seti Indlands, sagði að hin vel-
heppnaða tilraun í gær væri mikil-
vægt skref á leið Indveija til að
verða sjálfum sér nógir í vísindum
og tækni.
Tilrauninni var ekki fagnað í
bandaríska sendiráðinu í Nýju
ustuvél sovéska flughersins. Tals-
maður tyrkneska utanríkisráðu-
neytisins sagði að Zuyev, sem er
27 ára að aldri, væri undir vernd-
arvæng tyrkneskra yfirvalda.
Dehlí, sem sendi frá sér tilkynn-
ingu, þar sem segir meðal annars:
„Við höfum látið þá skoðun í ljós
við Indveija eins og aðrar þjóðir,
að frekari útbreiðsla eldflauga verði
til þess að auka svæðisbundna
spennu og ef til vill ýta undir
vígbúnaðarkapphlaup á þessu sviði.
Við höfum einnig skýrt frá þv í,
að stefna okkar er sú að banda-
rískir útflytjendur á hátækni eða
samstarfsaðilar á því sviði stuðli
ekki að útbreiðslu eldflauga."
Fyrir skömmu sögðu tveir banda-
rískir vísindamenn í tímaritsgrein,
að bæði Indveijar og Pakistanir
ættu fullkomnari kjarnorkuvopn en
áður var talið. Indveijar væru í
þann mund að gera tilraun með
vetnissprengju og Pakistanar væru
að smíða Ig'arnorkusprengju í F-16
orrustuþotur.
Indland;
Tiliaun með meðaldræga
eldflaug heppnast vel
Nýju Delhi. Reuter.
MEÐALDRÆGRI indverskri eldflaug var skotið á loft í tilraunaskyni
í gær. Sögðu stjórnvöld, að tilraunin hefði heppnast vel. Hún var
gerð í Chandipur við Bengalflóa í fylkinu Orissa og voru 15.000
þorpsbúar fluttir á brott í öryggisskyni og látnir hafast við í bráða-
birgðaskýlum. Eldflaugin sem er kölluð Agni (eldur) dregur 2.400
kílómetra og er skotið frá landi á skotmörk á landi. Hún getur bo-
rið hleðslu sem er eitt tonn að þyng og má koma kjarnaoddi fyrir
í henni.
VANNSTU NÚNA? TIL HAMINGJU!
Þetta eru tölurnar sem upp komu 20. maí.
Heildarvinningsupphæð var kr. 9.342.292,-
1. vinningur var kr. 5.586.130,-. Tveir voru með fimm tölur réttar og þvi fær hvor
kr. 2.793.065,-.
Bónusvinningurinn (fjórar tölur + bónustala) var kr. 556.818,- skiptist á sex vinnings-
hafa og fær hver þeirra kr. 92.803,-.
Fjórar tölur réttar, kr. 960.432,- skiptast á 264 vinningshafa, kr. 3.638,- á mann.
Þrjár tölur réltar, kr. 2.238.912,-skiptastá 7.176,- vinningshafa, kr. 312,-á mann.
Sölúátaðir eru opnir frá mánudeg'i til (augardags og er lokaö 15 mínútum fyrir útdrátt.