Morgunblaðið - 23.05.1989, Síða 46
46
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 23. MAÍ 1989
Tap upp á 73,8 millj-
ónir kr. á síðasta ári
Stafholti.
AÐALFUNDUR Kaupfélags
Borgfirðinga var haldinn í Borg-
arnesi fyrir skömmu. Alls sátu
76 fulltrúar fimdinn auk stjórnar-
->manna og gesta en félagar eru
um 1.300.
Það kom fram í skýrslu kaup-
félagsstjóra, Þóris P. Guðjónssonar,
að rekstur félagsins var mjög erfið-
ur á árinu og er það gert upp með
73,8 milljóna kr. tapi en heildar-
velta var 2.117 millj. króna og hafði
aukist um 15,5%.
Tap af reglulegri starfsemi var
32.5 millj. kr. og afskrifuð hluta-
bréfaeign, tapaðar kröfur o.fl. var
38.5 millj. kr samtals. Afskriftir
fastaQármuna námu alls um 50
millj. kr.
Fjármagnskostnaður var 9,4% af
heildarrekstrartekjum félagsins, en
til samanburðar má geta þess að
launakostnaður nam rúml. 14% af
sömu upphæð.
Þótt flestar verslunardeildir og
þjónustufyrirtæki kæmu vel út og
skiluðu hagnaði þá varð verulegt
tap af dagvöruverslunum kaupfé-
lagsins. Þess vegna hefur verið
gripið til þess ráðs að loka útibúum
bæði á Hellissandi og við Borgar-
braut í Borgamesi. Þá hefur enn-
fremur verið gripið til margvíslegra
annarra ráðstafana s.s. hagræðing-
ar í rekstri, starfsfólki hefur verið
fækkað og útlánareglur hertar.
Heildarlaunagreiðslur námu
samtals 222,7 millj. kr. Fastir
starfsmenn í árslok voru 201 en
alls komust 620 manns á launaskrá
á árinu.
Kaupfélagsstjóraskipti urðu hjá
félaginu á síðasta ári. Olafur Sverr-
isson hætti eftir 20 ára starf en við
tók Þórir Páll Guðjónsson, áður
kennari í Bifröst. Var Ólafi og konu
hans Önnu Ingadóttur haldið veg-
legt samsæti að kvöldi fyrra fundar-
dagsins þar sem þeim voru þökkuð
vel unnin störf og færðar gjafir.
- BR.G.
Morgunblaðið/Ágúst Blöndal.
Gafflar lyftarams stungust inn í rútuna aftan við bílstjórasætið og
þykir mikil mildi að bílstjórinn var einn i rútunni.
Rúta og lyftari í árekstri
Neskaupstað.
HARÐUR árekstur varð við
frystihús SUdarvinnsIunnar nú
nýlega á milli fólksbifreiðar og
lyftara.
Verið var að flytja frystan fisk
úr frystihúsinu í freðfiskgeymslu
fyrirtækisins er áreksturinn varð.
Við áreksturinn stungust gafflar
lyftarans inn í rútuna aftan við
bflstjórasætið og hreinsaðist allur
efri hluti hliðar hennar úr og að
lokum stungust gafflamir í gegn
um bakið á'aftasta sætinu.
Mildi þykir að bflstjórinn var einn
í rútunni, því annars er hætt við
að orðið hefði stórslys.
- Ágúst.
Kerru og
vinnupöll-
um stolið
Ný hárgreiðslustofa
Salon Gabríela er hárgreiðslustofa á Hverfisgötu 64 A sem var opn-
7. april. Eigendur stofiinnar eru mæðgumar Gunnþómnn Jóns-
dóttir og Gabríela Kristjánsdóttir, sem hér sjást.
FÓLKSBÍLAKERRU með ál-
vinnupöllum var stolið frá
Skemmuvegi 34 í Kópavogi um
hvítasunnuhelgina, einhvem
tímann frá fóstudagskvöldi til
annars dags hvítasunnu. Tjón
eigandans er talið nema 2-300
þúsund krónum.
Kerran er mjög óvenjuleg, ein
fárra sinnar tegundar hérlendis,
að sögn eigandans. Undir henni
iniðri era fjögur hjól. Á hliðar
kerrannar er letrað „Variant“.
Þeir sem kunna að búa yfir
gagnlegum upplýsingum um málið
era beðnir um að hafa samband
við Rannsóknarlögreglu ríkisins.
Ur knattborðsstofunni Faxafeni 12.
Knattborðsstofa í Faxafeni
OPNUÐ hefur verið ný knatt-
borðsstofa í Faxafeni 12
Reylqavík, undir nafiiinu Billi-
ardstofan Faxafeni 12.
í stofunni era átta snókerborð,
sex 12 feta og tvö 10 feta.
Opið er alla daga vikunnar frá
klukkan 10 f.h. til klukkan 24.
(Fréttatilkynning)
Baltasar við verk sitt á Húnavöllum.
Morgunblaðið/Jón Sigurðsson
Húnavallaskóli í Austur-Húnavatnssýslu:
Freska Baltasars afhjúpuð
Blönduósi.
FRESKA listmálarans Baltas-
ars var afhjúpuð við hátíðlega
athöfin í Húnavallaskóla fyrir
nokkru að viðstöddu fiölmenni.
Það var Torfi Jónsson fram-
kvæmdastjóri byggingamefiid-
ar skólans sem afhjúpaði lista-
verkið. Freska Baltasars fiallar
um sögu Vatnsdæla allt frá
landnámi Ingimundar gamla að
falli hans og hefiid Ingimundar-
sona. Tuttugu ár era nú liðin
frá því Húnavallaskóli var sett-
ur í fyrsta sinn og var afhend-
ing listaverksins jafiiframt Iiður
til að minnast þeirra tímamóta.
Torfí Jónsson afhenti Húna-
vallaskóla listaverkið til varð-
veislu og veitti Stefán Á. Jónsson
formaður skólanefndar því við-
töku. Baltasar, höfundurverksins,
rakti í grófum dráttum Vatns-
dælasögu og þau hughrif sem
hann varð fyrir og birtast fólki á
40 fermetra veggfleti í kjama
Húnavallaskóla.
Nokkrir gestir fluttu ávörp þar
á meðal Ámi Gunnarsson formað-
ur listskreytingasjóðs, Guðmund-
ur I. Leifsson fræðslustjóri,
Grimur Gíslason kunnur Vatns-
dælingur og Páll Pétursson þing-
maður. Samkórinn Björk söng á
þessari hátíð en hátíðinni stjóm-
aði Valgarður Hilmarsson oddviti
héraðsnefndar A-Hún. jón Sig
30 ára afinæli Sjálfe-
bjargar undirbúið
Bolungarvík.
FYRRI fiindur landssambands-
stjórnar Sjálfsbjargar á þessu ári
var haldinn á Isafirði fyrir
nokkm. Tuttugu og fimm til
þrjátíu fulltrúar frá hinum ýmsu
félagsdeildum víðsvegar af
landinu sátu þennan fiind sem
stóð í tvo daga og lauk með hófi
í veitingahúsinu Skálavík í boði
Sjálfebjargar hér í Bolungarvík.
Fréttaritari Morgunblaðsins náði
tali af Jóhanni Pétri Sveinssyni,
formanni landssambands Sjálfs-
bjargar. Aðspurður um það hver
hefðu verið helstu málefni þessa
fundar sagði Jóhann að helstu mál-
in hefðu verið þijú. í fyrsta lagi
nefndi hann að þar sem landssam-
bandið yrði þijátíu ára á þessu ári,
en það var stofnað 4. maí 1959,
þá hefði verið mikið rætt á þessum
fundi með hvaða hætti væri hægt
að halda upp á þau tímamót, bæði
hvað varðaði afmælishátíðina sjálfa
og einnig hvernig best væri að vekja
athygli á málefnum fatlaðra á þess-
um tímamótum.
í öðra lagi hafí verið rætt um
heimaþjónustumál, en allt frá því á
síðasta þingi landssambandsins,
sem haldið var fyrir u.þ.b. ári, hef-
ur verið unnið mikið í því máli.
í þriðja lagi var fjallað nokkuð
um ferlimál. Jóhann sagði að í þeim
málum mætti sjá nokkum árangur,
en betur mætti gera.
Að lokum sagðist Jóhann Pétur
vilja vekja athygli á því að málefni
fatlaðra og málefni Sjálfsbjargar
snertu alla í samfélaginu. Jóhann
tók sem dæmi ferlimál, bætt að-
gengi nýttist öldruðum, fólki með
t.d. smáböm í vögnum eða kerrum
og ekki síst þeim sem einhverra
hluta vegna þurfa að notast við
hjólastól eða hæiq'ur um lengri eða
skemmri tíma.
- Gunnar
Kaupfélag Borgfirðinga: