Morgunblaðið - 22.06.1989, Síða 1

Morgunblaðið - 22.06.1989, Síða 1
56 SIÐUR B STOFNAÐ 1913 138. tbl. 77. árg. FIMMTUDAGUR 22. JUNI 1989 Prentsmiðja Morgunblaðsins Þrír menn líflátnir í Kína í blóra við áskoranir um að milda dauðadóma: Afltaka verkamannanna fordæmd á Vesturlöndum Dauðadómum jjölgar o g búist við fleiri aftökum á næstunni Xu Guoming, einn verkamannanna þriggja sem líflátnir voru í Kina í gær fyrir þátttöku í aðgerðum umbótasinna á dögunum. Fleiri kínverskir andófsmenn voru dæmdir til dauða í gær og er óttast að fleiri aftökur verði í Kína á næstunni þrátt fyrir ítrekaðar áskoranir leiðtoga vestrænna ríkja um að dauðadómar verði mildaðir. Peking. Washington. París. London. Reuter. ÞRÁTT fyrir áköf mótmæli erlendra ríkissljórna létu kínversk stjórn- völd taka þijá verkamenn af lífi í Sjanghæ í gærmorgun. Þeir höfðu verið dæmdir tii dauða fyrir að kveikja í farþegalest þar í borg meðan á aðgerðum umbótasinna á dögunum stóð, en þau náðu hám- arki er alþýðuherinn réðist irin á Torg hins himneska friðar í Pek- ing 4. júní. Talið er að herinn hafi þá myrt þúsundir manna. Jafri- framt skýrði útvarpið í Peking frá því að fjöldi manna hefði verið dæmdur til dauða í gær í héraðinu Shandong. Sfjórnir vestrænna ríkja fordæmdu aftökumar og leiðtogar Evrópubandalagsríkjanna tilkynntu að samband ríkjanna við Kína yrði tekið til endurskoðunar. Að sögn talsmanns borgaryfir- valda í Sjanghæ voru mennirnir líflátnir aðeins augnabliki eftir að hæstiréttur borgarinnar hafði stað- fest dauðadómana og vísað náðun- arbeiðni þeirra frá. Mennirnir þrír hétu Xu Guoming, Dian Hanwu og Yan Yuerong. Þeir voru sagðir hafa kveikt í járnbrautarlest sem ekið var á andófsmenn er höfðu raðað sér yfir brautarteinana með þeim afleiðingum að sex þeirra biðu bana. Útvarpið skýrði ekki nánar frá aftökunni en í Kína er það venja að dauðadómi sé fullnægt með því að sakamaður er skotinn í hnakk- ann. Að minnsta kosti sjö karlmenn og ein kona sem talin eru hafa stjórnað aðgerðum umbótasinna á Palme-málið: Vitni sá Pettersson við morð- staðinn Stokkhólmi. Reuter. ROGER Ostlund, vinur Christers Petterssons, sem ákærður er fyrir morðið á Olof Palme, fyrrverandi for- sætisráðherra Svíþjóðar, sagði fyrir rétti í gær að hann hefði séð hinn ákærða á morðstaðnum skömmu áð- ur en Palme var myrtur. Ostlund sagðist fullviss um að það hefði verið Pettersson sem hann hitti fyrir utan kvik- myndahúsið þar sem Palme var myrtur 28. febrúar 1986. Það hefði verið um kl. 11, rétt áður en kvikmyndasýningu lauk, kvöldið sem Palme var myrtur. „Ég sá hann standa fyrir utan kvikmyndahúsið og ætlaði að tala við hann. Hann sneri sér undan og gekk í burt,“ sagði Ostlund. 20 mínútum síðar var Palme skotinn í bakið er hann gekk heim á leið ásamt eiginkonu sinni, Lisbet. Ostland er eina vitnið úr kunningjahópi Petterssons sem heldur því fram að hinn ákærði hafi verið á morðstaðnum á umræddum tíma. Torgi hins himneska friðar bíða aftöku í Peking. Kínverska útvarpið sagði að mennirnir sem dæmdir voru til dauða í Shandong væru meðal 45 „glæpamanna“ er stefnt hefði verið fyrir rétt í helstu borg héraðsins, Jinan. Hefðu þeir allir hlotið dóma í gær, mismunandi þunga. Hæsti- réttur Kína sendi í gær út áskorun til allra dómstóla landsins þar sem krafist var þungra og skjótra dóma í málum andófsmanna. Vægir dóm- ar voru aðeins heimilaðir í málum uppljóstrara og manna sem gáfu sig fram sjálfir. Fregnir fóru í gær af auknum handtökum umbóta- sinna. Framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna og stjórnir fjölda vest- rænna ríkja höfðu hvatt til þess að lífi hinna dauðadæmdu yrði þyrmt en allt kom fyrir ekki og sagði Marlin Fitzwater, talsmaður Bandaríkjastjórnar, að aftökurnar væru aðeins til þess fallnar að gera sambúð Kínveija og vestrænna þjóða enn stirðari. James Baker, utanríkisráðherra, sagði að þrátt fyrir aftökurnar væru frekari refsiaðgerðir gegn Kínverjum ekki fyrirhugaðar. Reuter Andreij Sakharov í London: Varar við miklum stuðn- mgi við Moskvustjomma Segir hann geta tafið nauðsynlegar umbætur Andreij Sakliarov London. Reuter. SOVÉSKI mannréttindafrömuð- urinn Andreij Sakharov sagði í London í gær, að vestræn ríki ættu að fara að öllu með gát í samskiptunum við Moskvustjórn- Ungverjaland: Fijálsar kosningar? Búdapest. The Daily Telegraph. UNGVERSKI kommúnistaflokk- urinn er tilbúinn til að keppa við aðra flokka á jafhréttisgrundvelli í algjörlega ftjálsum kosningum á næsta ári og taka afleiðingunum, að sögn Imre Pozsgay, áhrifa- manns í sljórnmálaráði flokksins. „Flokkurinn fellst á að kosning- arnar eigi að vera fijálsar og endur- spegla vilja þjóðarinnar og hann er tilbúinn að taka afleiðingunum," sagði Pozsgay. Orð hans eru sögð sýna að leiðtogar flokksins muni ekki fara að fordæmi pólskra leiðtoga og setja kosningalöggjöf sem tryggir flokknum þingmeirihluta. ina. Hjálpin, sem þau veittu, gæti auðveldað henni að hætta við nauðsynlegar umbætur. „Ég vil ráðleggja vestrænum ríkjum að fara afar varlega," sagði Sakharov í fyrirlestri, sem hann flutti í London í gær. „Hugsanleg aðstoð við Moskvustjórnina gæti orðið til, að hún slægi nauðsynleg- um umbótum á frest og reyndi að lappa upp á núverandi kerfi.“ Sakharov sagði, að fyndist ekki lausn á vandamálum minnihluta- hópa og ýmissa þjóðarbrota í Sov- étríkjunum gæti það valdið mikilli ólgu og hugsanlegu valdaráni aftur- haldsafla í hernum. „Ég býst við, að land mitt sé eitt af síðustu ef ekki síðasta ný- lenduveldið. Ef vandamál þjóðar- brotanna verða ekki skynsamlega leyst er upplausn og hrun Sovétríkj- anna óumflýjanlegt. Landsmenn standa á krossgötum og verða að hefjast handa við miklar umbætur en leiðirnar liggja í ýmsar áttir. Gangi þeir of langt er hætta á, að afturhaldsöflin í hernum ræni völd- unum,“ sagði Sakharov. Sakharov taldi réttast, að Sovét- menn færu að dæmi Breta, sem hefðu breytt heimsveldinu í sam- veldi en þegar hann var spurður hvort veita ætti Eystrasaltsríkjun- um sjálfstæði svaraði hann og sagði, að það væri hættulegt að gefa þeim lausari tauminn og hættulegt að neita þeim um það. „Verulegt, þjóðfélagslegt umrót er óhjákvæmilegt." Sjá „Öfgahreyfingu múslima kennt um óeirðir" á bls. 22 og forystugrein á miðopnu.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.