Morgunblaðið - 22.06.1989, Side 13

Morgunblaðið - 22.06.1989, Side 13
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 22. JUNI 1989 13 Hug-leiðing- um ljóðaleik _________Tónlist____________ Jón Ásgeirsson Ljóðaklúbbur Almenna bókafé- lagsins stóð fyrir skemmtilegri dagskrá í Listasafni Siguijóns Ólafssonar sl. föstudag, þar sem fram komu Matthías Johannessen skáld og Pétur Jónasson gítarleik- ' ari. Dagskráin var nefnd Matthías og Pétur — ljóð og gítar. Matthías las úr ljóðabókum sínum en á milli og undir lestri nokkurra ljóða lék Pétur tónlist eftir Sor, Walton, Lennon, Kjartan Ólafsson og frumflutti tónverkið Veglaust haf eftir Atla Heimi Sveinsson við ljóð Matthiasar. Leikur Péturs var bestur í verkunum eftir Sor og Walton, enda náðist þar frábær samstilling í lestri og leik. í raun er ekki hægt að ijalla um þessa dagskrá sem tónleika en þeir þræðir sem tengja saman ljóð og tónlist eru í raun sömu innviðir og öll listsköpun byggist á og eft- ir að hafa hlýtt á Matthías og Pétur vefa úr þessum þráðum listilega og áhrifamikla dagskrá, varð til eftirfarandi hugleiðing. Sú kenning er til, að uppruna máls meðal mannfólksins sé að finna í hljóðlíkingum, sem í fyrstu hafí verið líkari söng en tali. Sann- að er að munurinn á tali og söng, eins og þessi fyrirbæri eru aðskil- in nú til dags, er í raun harla lítill og munar þar helst um tónun- ina, þ.e.a.s. er varðar tónsvið og styrk. Til eru lög (t.d. íslenska þjóðlagið við visuna Klappa sam- an lófunum), sem eru í raun les- íónun, þar sem mismunandi tón- fall afmarkar hverja ljóðlínu og er talið að þannig sé sú tónun tilkomin, sem tíðkuð er við trúar- athafnir víða um heim. Það að laglína öðlaðist þá formfestu að geta staðið ein og óstudd og tón- list þar með, þurfti ekki lengur að styðjast við texta, á sér ekki nema nokkurra alda sögu. Þá er og önnur kenning, að ljóð hafí í upphafí verið flutt með meiri tónan en gerist í töluðu máli og að lestur þeirra sé því síðara tíma fyrirbæri. Lýrísku skáldin Saffó og Anakreon léku undir á lýru og einnig er til í frá- sögiium, að kviður Hómers hafi verið fluttar af heimilistónlistar- mönnum til forna í Grikklandi. Þá er og talið að t.d. leikverk Æskilosar hafí verið flutt með þeim hætti er vel mætti kalla söng, enda bendir nafnið kór (dans) til þess að sungið og leikið hafi verið undir dansinum. Brag- liðaskipan og hljóðfall í ljóðagerð gæti því allt eins átt uppruna sinn í háttbundnum hreyfíngum dans- aranna. í fornum frásögnum íslenskum eru margar ábendingar um tón- bundinn flutning ljóða og stakra vísna og víða gerður skarpur greinarmunur á því að yrkja og kveða. Þá er og hægt að skilja Snorra Sturluson svo í umfjöllun hans um foma bragfræði, að átt sé við tónrænan flutning Ijóða, t.d. þar sem hann fjallar um fyrir- bærið höfuðstaf. Þar stendur: „Sá stafr ræður kveðandi" og stuttu seinna í Háttatali, þar sem fjallað erum skipan „hljóðstafa“, stendur skrifað: „Önnur stafasetning er sú, er fylgir setning hljóðs þess, er hátt gerir ok kveðandi." Um þennan mun, er Snorri gerir á „allri stafasetningu ok hljóða“, eru fræðimenn trúíega ekki sam- mála og geta eflaust teygt þar allt til og togað, svo ófróður mað- ur sem undirritaður er, sæi hvorki til vegs né varða og vissi ei hvar stæði. Eitt er þó alveg víst, enda stendur það utan sviðs þess skilj- anlega, að ljóð eru gædd galdri, sem enn heldur áhrifamætti sínum, galdri sem þótti fyrrum vera hættulegur og ekki allra að leika sér með. í raun ætti ljóðið að vera „liðið undir lok“ í öllum orðaflaumi fjölmiðlanna og vart fínnanlegt í stórflóðum bóka- útgáfunnar, en það er eins og hér sé um bundið sem forðum og að Gleipnir hafí enn hald á hinum ógnarlega Femisúlfi og hvert skáld sé í spomm Týs, er ekki hló sem aðrir, þá hann „lét hönd sína“. Hvað listagaldurinn snertir, þá er hann aflvaki í listsköpun allra tíma og ólíkra þjóða, mannleg sameign, gædd alþjóðlegu inntaki er virðir hvorki landamerki eða aðrar samvistarhindranir. Þetta kom ljóslega fram er Pétur Jónas- son gítarleikari flutti tónlist eftir Sor, sem undirleik við lestur Matt- híasar Johannessen á ljóðinu Við. Það var með undarlegum hætti sem lestur og tónlist féllu vel sam- an. Sama má segja um tónlist Waltons en íslensku verkin eftir Kjartan og Atla voru ekki eins samstillt textunum. Þetta kann að þykja undarlegt, að tónlist sem samin er á öðrum tíma og fjarri þeim vettvangi, sem Matthías hefur haslað sér, skuli eiga betur við ljóð hans en eftir samtiðar- menn og vini. Tónlist, ljóð og dans eiga sér sameiginlegan uppruna og undir- ritaður er sannfærður um að ljóð eigi að flytja og skáldin ef til vill miklu fremur að halda „ljóðatón- leika" en gefa ljóð sín út í hljóm- lausum bókum. Tónblær og hrynj- andi er sál hugsunarinnar og þar má merkja hvort hugur fylgi „máli“, hvort sem túlkað er í tón- um, dansi eða orðum. Skáldið Matthías Johannessen hefur ekki aðeins sett saman orð, þau hafa merkingu og það sló á glampa galdurs, er hann gæddi þau lif- andi hljóman og af tónblæ og hrynjandi mátti og merkja að hugur fylgdi máli. Krislján Davíðsson Kristján Davíðsson sýnir í Nýhöfii KRISTJÁN Davíðsson opnar málverkasýningn í listasalnum Nýhöfii, Hafiiarstræti 18, laugar- daginn 24. júní klukkan 14-16. Á sýningunni eru olíumálverk unn- in á þessu ári. Kristján hefur haldið fjölda einkasýninga og tekið þátt í sam- sýningum hér heima og erlendis. í sýningarskrá segir Aðalsteinn Ingólfsson meðal annars um verk Kristjáns: „Málverk Kristjáns Dav- íðssonar eru hvorki hefðbundin né óhlutbundin, heldur takmarkalaus vettvangur þar sem sívökul lista- mannsvitund mætir síbreytilegri náttúru. Hverfult augnablik þess stefnumóts er hið raunverulega inn- tak verka hans.“ Sýningin, sem er sölusýning, er opin virka daga frá klukkan 10-18 og frá klukkan 14-18 um helgar. Henni lýkur 12 júlí. VIÐ BJOÐUM ÞER ÍBÚÐ í HAFNARFIRÐI f FJÖLBÝLISHÚSIVIÐ SUÐURHVAMM Sýnum og seljum skemmtilegar og góðar íbúðir á góðu verði við Suðurhvamm í Hafnarfirði. íbúðirnar eru 2ja-4ra herbergja og afhendast strax í haust tilbúnar undir tré- verk. Hús, sameign, lóð og bílastæði afhendast fullfrágengin. Stórir bílskúrar fylgja 6 íbúðum. Mjög góð sameign. Eftirsóknarvert: Traustvekjandi: Kynning og sala: Frábært útsýni. Góð suðurlóð. Stutt í alla þjónustu. Byggingaraðili: Hagvirki hf. Teikningar: Arkitektar sf. í Skútahrauni 2 í Hafnarfirði. Opið í kvöld og annað kvöld kl. 16.00-21.00. Um helgina kl. 13.00-18.00. VERIÐ VELKOMIN S g HAGVIRKI HF Skútahrauni 2, Hafnarfirði sími 53999. 11540 Seljendur ath.! Vegna mikillar sölu óskum við eftir öllum stærðum og gerð- um eigna á skrá. Atvinnuhúsnæði Skútuvogur: Mjög gott 380 fm atvhúsn. sem skiptist í 260 fm lager- húsn. með góðri innk. og 120 fm skrifst- húsn. Afar góð grkj. Helluhraun: 240 fm iðnhúsn. á götuh. m. góðri aðkeyrslu. Mögul. að selja í tvennu lagi. Góð grkj. í böði. Skólavördustígur: Rúmlega 40 fm verslhúsn. á götuhæð í nýl. húsi. Hugsanl. eignask. Fagrihjalli: 170 fm parh. auk 30 fm bílsk. Tilb. að utan og fokh. að innan í sumar. Teikn. á skrifst. Baughús: Vorum að fá í einkasölu mjög skemmtil. 180 fm einbhús á tveim- ur hæðum. 5 svefnherb. 30 fm bílsk. Veghús: Fallegar 3ja-7 herb. íb. í smíðum sem afh. tilb. u. trév. og máln. í febr. 1990. Teikn. á skrifst. Einbýli — raðhús Nálægt Hlemmi: I80fmeinb. sem í dag eru tvær íb. Á hæðinni eru saml. stofur, herb. og eldhús. Uppi eru 4 svefnherb. og baðherb. íb. kj. er 2ja herb. séríb. Nánari uppl. á skrifst. Lindarflöt: Mjög fallegt einl. einb- hús ásamt stórum bílsk. 4 svefnherb. Góðar stofur. Bein sala eða skipti á 4ra-5 herb. ca 120 fm íb. í Gbæ. Fannafold: 170 fm einbhús á einni hæð m/innb. bílsk. 3 svefnherb. Næstum fullb. eign. Blesugróf: Nýl, fallegt einbhús á einni hæð. Bílskréttur. Verð 9,0 millj. Víöihvammur: 220 fm mjög fallegt einbhús. Tvær hæðir og kj. m/mögul. á séríb. Mjög fallegur garður. Töluv. áhv. Ákv. sala. Laust strax. Verð 11,8 millj. Láland: 155 fm mjög fallegt einb- hús á einni hæð. 4 svefnherb. Góðar innr. Parket. 50 fm bílsk. Arnartangi: 100 fm fallegt enda- raðh. Bílskréttur. Laust strax. Verð 7 m. í Þingholtunum: Virðulegt 170 fm timbur einbh. sem hefur allt verið endurn. að innan. Fallegur gróinn garður. 4ra og 5 herb. Vfðimelur: Falleg 5 herb. 100 fm neðri sérh. ásamt bílsk. Verð 7,0 millj. Digránesvegur: 115 fm falleg efri sérh. Bílskúrsr. Glæsll. utsýni Engihjalli: Mjög góð 80 fm íb. á 1. hæð i lyftuh. Laus. Verð 5,4 millj. Úthlíð: Mjög góð 4ra herb. íb. á jarðh. m/sérinng. Góð áhv. lán. Laus strax. Sóleyjargata: 100 fm glæsil neðri hæð. 2 svefnherb. Saml. stofur Sólstofa. Ákv. sala. Laus strax. Vesturgata: Mjög góð 100 fm fb sem hefur öll verið endurn. Sérhiti Nýtt rafm. Fallegur grðinn garður. Silfurteigur: 120 fm falleg efr hæð. 3 svefnhérb. Tvennar svalir Bilskréttur. Laus strax. Ægisíða: 126 fm íb. á 3. hæð Suðursv. Glæsil. útsýni. Mögui. á góð um grkj. Verð 7,5 millj. Kiapparstigur: isofmefrihæð og ris sem í dag eru 2 íb. Töluv. end- urn. Verð 5,5 millj. Drápuhlíð: 90 fm falleg mikið endurn. risíb. Laus strax. Verð 5,2 miilj. Tjarnarból: 110 fm falleg ib. á 2. hæð. 3 svefnherb. Bilsk. Laus strax. 3ja herb. Hamraborg: Góð90fmíb.á1.h. Sólvallagata: 85 fm íb. á 2. hæð. 2. svefnherb., saml. stofur. Tölu- vert endurn. Verð 4,8 millj. Langamýri: Ný, sérstakl. góð 90 fm íb. á jarðh. m/sérinng. 25 fm bílsk. Verð 7,0 millj. Vesturgata: 85 fm ib. i kj. Laus strax. Verð 3,4 millj. Hraunbær: Góð 87 fm íb. á 3. hæð + herb. í kj. Töiuvert endurn. Park- et. Laus strax. Verð 4,8 mlllj. 2ja herb. Nýbýlavegur: Falleg 70 fm íb. á 2. hæð. Suðursv. Góður garöur. Bilsk. Góð greiðslukj. Verð 4,7 millj. Skipholt: Mjög góð 50 fm íb. á jarðh. Fallegar innr, Parket. Hrísmóar: Mjög falleg 80 fm íb. á 2. hæð. Áhv. 2,3 millj. frá veðdeild. Skaftahlíð: 50 fm góð íb. á jarðh. Verð 3,2 millj. Bollagata: 60 fm góð kjfb. 1,0 millj. áhv. frá veðdeild. Mögul. á góðum grskilm. Leus strax. Verð 3,6 millj. Ljósheimar: Mjög góð 85 fm Ib. á 6. hæð. Fallegt útsýni. Skipti á stærri eign æskil. Verð 4,5 millj. Snyrtivöruverslun Ifjölmennu úthverfi borgarinnar. Góður leigusamn. FASTEIGNA MARKAÐURINNl Oðinsgotu 4 11540 - 21700 Jón Guömundsson sölustj., Leó E. Löve lögfr. Ólafur Stefánsson viÖskiptafr.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.