Morgunblaðið - 22.06.1989, Page 21
MÖRGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR %2. UOMÍ •
aiN
Grikkland:
Erfiðar stj ómarmyndun-
arviðræður framundan
Aþenu. Reuter.
KONSTANTÍN Mitsotakis, leiðtogi Nýja lýðræðisflokksins, hefur
fengið þriggja daga umboð til að mynda nýja ríkisstjórn í Grikk-
landi. Stjórnarandstöðuflokkur hans sigraði í þingkosningum þar
í landi á sunnudag.
AIi Akbar Rafsanjani, forseti íranska þingsins, og Míkhaíl Gorbatsjov
Sovétforseti skömmu áður en viðræður þeirra hófust í Moskvu í fyrra-
dag.
Rafsanjani og Gorbatsjov ræðast við
í Moskvu:
Vilja bæta sam-
skipti ríkjanna
Moskvu. Reuter.
MÍKHAÍL Gorbatsjov Sovétfor-
seti og Ali Akbar Hashemi Rafs-
anjani, forseti íranska þingsins,
sem er í heimsókn í Sovétríkjun-
um í boði Gorbatsjovs, hyggjast
beita sér fyrir bættum samskipt-
um írana og Sovétmanna, en þau
hafa lengi verið stirð.
Gorbatsjov og Rafsanjani, sem
ræddust við á þriðjudag, voru á
sama máli um að möguleikarnir á
því að auka samvinnu ríkjanna
hefðu aldrei verið meiri en nú.
Fréttastofan TASS skýrði frá því
að þeir myndu síðar í vikunni undir-
rita samning um samvinnu ríkjanna
til aldamóta.
Khomeini, trúarleiðtogi írana,
sem lést 3. júní, lýsti Sovétríkjunum
sem handbendi djöfulsins í erfða-
skrá, sem hann breytti síðast árið
1987. Rafsanjani, sem verður að
öllum líkindum eftirmaður Khom-
einis, sagði hins vegar 8. júní að
Khomeini hefði sagt sér skömmu
áður en hann lést að bæta þyrfti
samskiptin við Sovétmenn. Gorb-
atsjov lýsti yfir fullum stuðningi við
íslömsku byltinguna í íran og
kvaðst viss um að heimsókn Rafs-
Neyðar-
ástand á
Sri Lanka
Colombo, Sri Lanka. Reuter.
FORSETI Sri Lanka, Ranasinghe
Premadasa, hefiir lýst yfir neyð-
arástandi í landinu til að halda
uppi lögum og reglu. Þar með
er yfirvöldum gert kleift að hand-
taka fólk án þess að ákæra það.
„Við erum nauðbeygðir til að lýsa
yfir neyðarástandi til þess að halda
uppi nauðsynlegri þjónustu og lög-
um og reglu,“ sagði aðstoðarvarn-
armálaráðherra landsins, Ranjan
Wijeratne, við þingmenn Sameinaða
þjóðarflokksins, sem stjórnar
landinu. Síðustu viku lögðust al-
menningssamgöngur niður vegna
verkfalls, og af því varð mikil rösk-
un á samgöngum í höfuðborginni
Colombo.
í janúar sl. var aflétt neyðár-
ástandi sem varað hafði í fimm ár.
Því var fyrst beint gegn skæruliðum
Tamíla en síðar gegn hinni vinstri
sinnuðu Frelsissveit alþýðunnar,
sem vill steypa núverandi stjórn
landsins. Talið er að Frelsissveitin
standi að baki verkfallinu í síðustu
viku. Að sögn Wijeratne, aðstoðar-
varnarmálaráðherra og utanríkis-
ráðherra, þá hafa yfir þúsund
manns verið drepnir síðan neyðar-
ástandinu var aflétt.
anjanis væri í samræmi við vilja
Khomeinis.
Mitsotakis biðlaði til kosninga-
bandalags vinstrisósíalista og
kommúnista og vildi að þeir mynd-
uðu saman bráðabirgðastjórn sem
myndi hreinsa grísk stjórnmál af
öllum hneykslismálum áður en
kosið yrði á ný.
Mitsotakis vantar aðeins sjö
þingsæti til að hafa starfhæfan
þingmeirihluta. Takist honum ekki
að mynda stjórn, fær Andreas
Papandreou, forsætisráðherra,
stjórnarmyndunarumboðið, en
flokkur hans, Hellenski sósíalista-
flokkurinn (PASOK), hefurnú 125
þingsæti af þijú hundruð.
Aðalverkefni bráðabirgða-
stjórnarinnar sem Mitsotakis vill
mynda, yrði að hans sögn að
hreinsa til í gríska stjórnmálum.
Hann vill fá sérstakt umboð til
þess að svipta þá sósíalista frið-
helgi, sem flæktir eru í hneykslis-
mál og ákæra þá. Að nokkrum
mánuðum liðnum yrðu svo nýjar
kosningar.
Papandreou túlkar úrslit kosn-
inganna hins vegar sem ótvírætt
umboð grísku þjóðarinnartil Hell-
enska sósíalistaflokksins og
bandalags vinstrisósíalista og
kommúnista. Þeir hafa til samans
154 þingsæti og Papandreou sagði
það skyldu þeirra að mynd;f ríkis-
stjórn.
Bandalagsmenn segjast þó ekki
hafa í hyggju að fara í stjóm með
Konstantín Mitsotakis
Reuter
PASOK, á meðan Papandreou eða
nokkur sem tengist hneykslismál-
unum er þar í forystu.
' 1 'V' tMí&Z'-->' ;
wmnm- ....
I
"
HJA OKKUR FÆRÐU
GÓÐA UNDIRSTÖÐU
FYRIR FÆTURNA
BÆKLU NARSKÓSMÍÐI
Bæklunarskósmíði felst í sérsmíði á skóm fyrir þá sem
þess þurfa með, og einnig spelkum til stuðnings og
réttinga á fótum. Til slíks búnaðar eru gerðar miklar
kröfur. Hjá okkur starfa aðeins viðurkenndir sérfræðingar
í bæklunarskósmíðum. Fyrir þeim fer Kolbeinn Gíslason,
fyrsti íslendingurinn sem lokið hefur meistaraprófi í
greininni. Við höfum lagt áherslu á að smíða þægilegaog
fallega skó sem standast fagurfræðilegar kröfur
samtímans. Til þess notum við hráefni sem tryggja
léttleika og góða endingu.
Þá viljum við vekja sérstaka athygli á ADIMED
meðferðar- og sjúkraskóm. ADIMED skórnir eru
sérstaklega hannaðir fyrir lamað og hreyfihamlað fólk og
þá sem orðið hafa fyrir meiðslum á ökkla, s.s.
liðbandsslitum.
SÉRSTÖK INNLEGGJAÞJÓNUSTA
Fjöldi fólks þjáist af ýmiss konar fótkvillum sem oft valda
verulegum óþægindum. Með notkun réttra innleggja í skó
má draga úr og jafnvel komast með öllu hjá slíkum
óþægindum. Við sérsmíðum traust og endingargóð
innlegg eftir tilvísunum lækna. Og við ábyrgjumst gæði
innleggjanna.
Fyrir þá sem þjást af þreytu og verkjum í baki bendum við
á innleggin frá VISCOLAS. Þau veita mikla fjöðrun og
hafa hvílandi áhrif á fætur og bak. Rannsóknir hafa gefið
til kynna að VISCOLAS innleggin draga mjög úr
höggáhrifum við göngu og henta því mjög vel íþróttafólki
og öðrum sem þurfa mikið að standa í fæturna.
SÉRVERSLUN MEÐ HEILSUSKÓ
Gísli Ferdínandsson hf. starfrækir einnig skóverslun. í
samræmi við markmið fyrirtækisins einbeitum við okkur
að því að hafa á boðstólum skó sem fara vel með fæturna
og viðhalda heilbrigði þeirra. Þannig getur þú fengið hjá
okkur skó sem ekki aðeins hæfa lengd fótanna heldur
einnig breidd þeirra.
BARNASKÓR í HÁUM GÆÐAFLOKKI
Börnin eru í sérstöku uppáhaldi hjá okkur. Það er mjög
mikilvægt að litlir fætur fái að vaxa og þroskast eðlilega
og það gera þeir því aðeins að valdir séu réttir skór sem
veita fótum þeirra eðlilegan stuðning.
Lækjargötu 6, Reykjavík, sími 20937
Kolbeinn Gíslason
Moistari í bæklunarskósmíöi
Bæklunarskósmíði
Skóviðgerðir Skóverslun
Ráðgj öf