Morgunblaðið - 22.06.1989, Síða 37
< MORDUNBLAEMÐ: FJMMTUDAGOR 22. Í.KJNÍ--1989
37
ÞÓRIR S. GRÖNDAL SKRIFAR FRÁ FLÓRÍDA
ORÐSKÖMMTUN
Fyrir tæpum 10 árum skrifaði
ég grein, þar sem ég varaði við
sívaxandi orðmengun í heiminum
og lagði til, að tekin yrði upp orð-
skömmtun á íslandi. Auðvitað tók
enginn mark á tillögum mínum,
svo ég sé mig tiineyddan að birta
þær hér aftur. Mun ég halda áfram
að gera það á 10 ára fresti þar til
eitthvað verður gert í málinu. Vona
ég, að Mogginn geti birt þessa
grein, en þar eru nú mikil þrengsli,
eins og þið vitið, og stafa þau
auðvitað af orðmenguninni. Hér
er svo greinin:
Óáran hijáir nú vestrænu lýð-
ræðislöndin. Efnahagslífið er þrú-
tið af bólgu þeirri, sem kennd er
við verð. Stjórnendurnir eru van-
máttugir. Lýðurinn er haldinn
lífsleiða og vantrú á landsfeðurna.
Hver höndin er upp á móti annarri.
Hvað veldur slíku? Fréttamaður
ykkar í henni Ameríku hefir velt
þessu fyrir sér þar til brakað hefír
í kvörnunum í hausi hans. Þykist
hann hafa fundið svarið: Orðmeng-
un! Hinum vestræna heimi, og sér
í lagi íslandi, er bráð hætta búin
vegna orðmengunar. Hamingja,
stjórnun, hugsun, framtak, skipu-
lagning og framkvæmd eru að
drukkna í töluðu og prentuðu orði.
Aukin menntun og aðgengilegir
fjölmiðlar hafa orðið til þess, að á
Islandi finnst flestum íbúunum, að
þeir eigi að taka þátt í daglegri
stjórn landsins, stofnana þess og
stærstu fyrirtækja. Þeim nægir
ekki lengur að láta atkvæðin tala
á kjördegi. Dagblöðin hafa, í þessu
augnamiði, opnað síður sínar fyrir
landsins lýð. Iæikmenn láta til sín
taka við vandamál, allt frá utanrík-
issamningum til deilna um það,
hvort írskt kaffi á einum veitinga-
staðnum sé gott eða vont.
Fréttir, greinar, dálkar, viðtöl,
ræður, dómar, kynningar, upp-
lestrar, fyrirspurnir, svargreinar,
svör við svargreinum, ritstjórnar-
greinar, lesendabréf, ummæli,
kjallarar, fréttaskýringar, fram-
haldsgreinar og kosningaspár í
fjölmiðlunum hafa slegið þjóðina
doða, deyfð og ringlun. Hún er
upptekin við að lesa, hlusta á og
horfa á alla þessa „mengun" og
virðist allt um það snúast. En nú
er rióg komið!
Islendingar geta nú orðið fyrir-
mynd annarra lýðræðisþjóða og
unnið bug á orðmenguninni. Grein-
um 72 og 73 í stjórnarskránni
þarf að breyta lítillega. Vitanlega
heldur mál- og prentfrelsi áfram
að gilda í landinu, en bara ekki í
eins miklu magni! Setja verður á
orðskömmtun. Hún mun ná ein-
göngu til orða, sem notuð eru í
fjölmiðlum eða á opinberum fund-
um.
Fólki verður heimilt að tala og
þrasa eins mikið og það vill hvert
við annað. Einnig verður leyft að
endurlífga karlinn á kassanum, ef
menn vilja þruma á torgum og
görðum bæja og borga. Kallar
geta talað yfir hausamótum kell-
inga sinna, og sömuleiðis verða
símtöl kvenna ekki takmörkuð,
enda vita vonlaust að reyna það.
Að tala við sjálfan sig verður að
sjálfsögðu leyfilegt.
Orðskammtur per mann verður
ákveðinn 1.200 orð á ári. Skömmt-
unarseðlar verða afhentir öllum
eldri en tuttugu og eins árs. Þeir,
sem ekki hafa áhuga á því að láta
þjóðina verða aðnjótandi sinna
1.200 orða, geta farið með
skömmtunarseðilinn sinn í næstu
áfengisbúð og fengið gratís eina
flösku af kláravíni. Þannig mun
verulegur hluti þjóðarkvótans
verða innleystur, og fólkið í landinu
sleppa við hluta mengunarinnar.
Það ætti ekki að verða sárs-
aukafullt fyrir allflesta að tak-
marka opinbera orðanotkun. En
vitanlega koma margir til með að
eiga um sárt að binda. Þeir verst
höldnu, orðahólistarnir (79.000 orð
og yfir á ári) verða settir í með-
ferð, þar sem sérfræðingar munu
leitast við að breyta hugsanagangi
þeirra. Vonandi mun takast að
gera þá aftur að nýtum borgurum.
Komið verður á stofn Orðabanka
íslands. Þar geta þeir, sem ekki
ætla að nota sinn skammt í ár,
lagt hann inn og fengið vexti.
Verði ársvextir t.d. 20%, aukast
1.200 orðin á einu' ári í 1.440.
Þannig geta menn safnað sér, t.d.
fyrir góðri afmælis- eða minning-
argrein.
Þegar skömmtunin verður kom-
in í fast horf, mun fljótlega koma
í ljós, hve feiknarlega góð áhrif
hún mun hafa á land og þjóð.
Bólgan í dagblöðunum mun
hjaðna, og þau munu flest komast
í hina ágætu Alþýðublaðsstærð,
og einbeita sér að því að flytja
staðfestar fréttir utan úr heimi og
af landsbyggðinni. í útvarpinu
mun verða nægur tími fyrir lög
unga fólksins og líka óskalög sjúkl-
inga, en landsins börnum verður
hlíft við að þurfa að hlusta á ein-
hveija fósa þusa um allt milli him-
ins og jarðar.
Ólgan, stormurinn, óróinn og
óánægjan mun smám saman dvína
í þjóðarsálinni, og fólkið aftur öðl-
ast sína eðlilegu og hæglátu gleði,
sem einkennt hefir okkar þjóðflokk
frá upphafi. Hægt verður að finna
sér eitthvað þarflegt áð gera í stað
þess að liggja með einskis nýt blöð,
lesandi hvern stafkrók, aðeins til
að láta greinarhöfunda æsa sig upp
og skapa óeiningu og sundrung.
Margur maðurinn mun finna sér
skemmtilegt tómstundarefni, og
enn aðrir munu fara að rækta
kartöflur. Sumir karlar munu jafn-
vel ganga svo langt, að fara með
ektakvinnur sínar í kvöldgöngur
eins og í dentíð!
Landsins börn gætu gengið til
svefns glöð og viss úr fjárhags-
kröggunum, Sjálfstæðisflokkurinn
komist hjá klofningi, alþingismenn
orðið sér úti um mannsæmandi
laun, svo eitthvað sé tínt til.
Þar sem skömmtun þessi mun
ekki ná til íslendinga í útlöndum,
mun undirritaður, fréttamaður
ykkar í Barbaríinu, geta haldið
áfram að senda ykkur dálka af og
til.
Höfundur er ræðismaður Islands
í Suður-Flórída og
framkvæmdastjóri hjá
físksölufyrirtæki á Miami.
PayDay
með soituðum
hnetum,
enau öðru
y* PayDay
hefur svo
sannarlega
siegið í gegn.
Þad gera söltu
hneturnar.
Dreifing:
MATA, Sundagörðum 10, sími 91-681300
Þegar þú vilt láta
ferskleikann njóta sín ...
Þegar kartöflu- og/eða grænmetissalat, kaldar sósur
eða ídýfur eru á matseðli dagsins er MS sýrði
rjóminn, 10%, betri en enginn. Sannaðu til
- fátt gefur meiri ferskleika.
Hitaeiningar MS sýrður rjómi Majónsósa
10% (Mayonnaise)
1 tsk (5 g) 5.7 37
1 msk (15 g) 17 112
100 g 116 753
AUK hf k3d-76-727
Segir „AUTOBILD11 eftir reynslu-
akstur og umsagniröO þúsund les-
enda. í ööru og þriöja sæti uröu
BENZ 190 og BMW 300 gerðirnar.
Betri meðmæli fást ekki! Viöeigum
til afgreiöslu STRAX nokkra 2 dyra
Coupe bíla meö 109 eöa 148 hest-
afla fjölventlavél, 5 gíra kassa eöa
sjálfskiptingu, vökvastýri, raf-
magnsrúöum og læsingum á ein-
stöku veröi eöa frá kr.1.026.000stgr.