Morgunblaðið - 22.06.1989, Qupperneq 45
MORGUNBIÍAÐIÐ FIMMTUÐAGUR 22. JÖNÍ 1989
45
VELVAKANDI
SVARAR í SÍMA
691282 KL. 10—12
FRÁ MÁNUDEGI
TIL FÖSTUDAGS
Skólasljórar Tjarnarskóla:
Harma að skólaferli góðs nem-
anda hafi lokið með þessum hætti
Ráðherra óskar eftir ársuppgjöfi skólans
MALBLOM
Til Velvakanda.
Þeir eru sjálfsagt margir sem
kannast við dæmisöguna Illgresið
meðal hveitisins en hana er að fínna
í námsefni í kristnum fræðum fyrir
grunnskóla. Góð dæmisaga á sér
engin landamæri og svo er um þessa
því að allt eins mætti heimfæra
hana upp á íslenskt mál.
Meðfylgjandi fyrirsögn gefur að
líta í Morgunblaðinu í dag. Bréf
menntamálaráðherra og greinar-
gerð stjómenda Ijarnarskóla fylgir
á eftir! Engin líkindi eru til þess
að „skólaferli" nemanda sem svo
röggsamlega gengur fram til lausn-
ar sínum málum að alls staðar er
eftir tekið sé lokið. Þetta sem nú
hefur verið talið gefur tilefni til
þess að skora á Morgunblaðið að
taka upp nýjan lið á þessari síðu
sem bæri heitið Málblóm dagsins.
Slíkt vekti eftirtekt, umræðu og
heilabrot. Lesendum blaðsins ætti
að gefa kost á að senda inn efnið.
Það fer vel á því að fyrirsögn sú
sem hér hefur verið gerð að umtals-
sfni verði fyrsta málblómið.
Guðni Björgólfsson
Flugleiðir;
Rýmið sama og áður
ILítið rými
Ágræti Velvakandi.
Mig langar að biðja þig fyrir fá-
einar línur vegna skrifa Baldurs
Elíassonar í dálkum þínum miðviku-
daginn 7. júní, þar sem skrif hans
varða Flugleiðir. Ég vil byija á að
þakka Baldri þau hlýju orð sem
hann lætur falla í garð félagsins
og hrósyrði um þjónustuna um borð
í vélum þess.
Baldur og aðrir ferðalangar eiga
síðan skilið svar við hugleiðingum
hans um sætabil og sæti í nýjum
flugvélum Flugleiða.
Baldur ber saman Saga Class-
sæti í Boeing 737/400-flugvélum
Flugleiða á Evrópuleiðum og Saga
Class-sæti í DC-8-vélum félagsins
á Norður-Atlantshafsleiðum og
þykir samanburðurinn vera DC-8-
flugvélunum í hag. Hér eru til
umræðu nokkuð ólíkir hlutir. Saga
Class-farrými flugleiða í Evrópu-
flugi er af sama toga og svokallað-
ur evrópskur „business class“, það
er sætabreidd er sú sama í allri
vélinni en betra rými fyrir fætur.
Þetta er hjá okkur eins og flestum
öðrum evrópskum flugfélögum svo
sem SAS, British Airways og Luft-
hansa.
Annað er uppi á teningnum í
langleiðaflugi svo sem yfir Norður-
Atlantshaf, þar sem flugfélög bjóða
almennt upp á breiðari sæti í „bus-
iness class“ enda um að ræða flug-
leiðir sem eru allt að þrisvar sinnum
lengri en Evrópuleiðimar. Nú bjóða
Flugleiðir einnig upp á breiðari
þægindasæti í Atlantshafsfluginu.
Er það einn þátturinn í að endur-
skapa ímynd félagsins á þeim mark-
aði.
Með stærri Saga Class-sætum á
Norður-Atlantshafsleiðum, mynd-
böndum og endurbótum á farþega-
þjónustu á jörðu og um borð, ásamt
ýmsu öðru sem er í undirbúningi,
teljum við okkur betur í stakk búin
að keppa við önnur félög á þessum
leiðum um viðskipti þeirra sem
kjósa að greiða fyrir aukna þjón-
ustu. Stærsta skrefið verður svo
stigið á næsta ári þegar nýju Bo-
eing 757/200-vélarnar koma inn á
löngu flugleiðirnar.
Við höfum heyrt frá farþegum,
að þeir telji sumir, að sætin í nýju
737/400-vélunum séu eitthvað
þrengri en í öðrum vélum Flugleiða.
Svo er ekki. Sætin eru nákvæmlega
sömu breiddar og í 727-vélum okk-
ar og sambærilegum flugvélum
annarra flugfélaga. Hins vegar er
hönnun sætanna öðruvísi, þannig
að þau veita fastari stuðning við
bak og mitti. Með því að halda bet-
Til Velvakanda.
Mánudaginn 18. maí 1989 átt
; kost á því að fljúga með þein
ldísi, sem hafði komið alla leið fr
eattle til að þjóna okkur íslending
m. Ég hafði þá nýiokið við a<
(júga í 30 ára gamalli DC-8 í dýr
ndis þægindum, á Saga Clas
eyndar. I fyrsta skipti eftir meir
40 ára viðskipti við Flugleiði
lar^æinja^^ftlejjfc
ur utan um farþegann kunna þau
að virðast þrengri, en ljóst er að
með þessum sætum skilum við far-
þegum okkar minna þreyttum á
áfangastað.
Ljóst er að alltaf verður einhver
þægindamunur á Saga Class-sæt-
um á styttri leiðum og þeim löngu
yfír Atlantshafið, sem er í samræmi
við það sem gerist almennt á mark-
aðnum. En stefna Flugleiða er skýr:
Að okkar farþegar njóti aðbúnaðar
til jafns við það besta sem gerist á
sömu leiðum og sambærilegum far-
rýmum annarra flugfélaga.
Ég vona að Baldur Elíasson eigi
eftir að njóta flugs með okkur um
langan aldur enn, og ég þakka hon-
um fyrir 40 ára tryggð við Flugleið-
ir og forvera þess.
Pétur J. Eiríksson,
framkvstj. markaðssviðs
Um fréttir af
fundi llaksins
afBismarck
Til Velvakanda.
Ég las frétt í Morgunblaðinu og
sá og hlustaði á sama í sjónvarpi
hinn 14. þ.m. um fund flaksins af
orrustuskipinu Bismarck á hafsbotni
nú nýlega. í þessum fréttum fannst
mér fuli mikið af villum og óná-
kvæmni.
í Morgunblaðsfréttinni sagði að
leiðangurinn hefði hafíst 18. maí
1941 frá Gdansk. Það er undarlegt
að nefna hina fomu þýzku Hansa-
borg Danzig þessu pólska nafni í
þessu sambandi þó að borgin hafi
síðar verið lögð undir Pólland og
þeir gefíð henni nafnið Gdansk. Þetta
skiptir þó ekki meginmáli því að
síðasta för Bismarcks hófst ekki í
Danzig heldur í hinni pólsku hafnar-
borg Gdynia, sem Þjóðveijar hertóku
1939 og nefndu Gotenhafen meðan
þéir réðu henni. Allt annað í Morgun-
blaðsfréttinni er rétt að því er ég
best veit.
í sjónvarpsfréttinni náði ég ekki
að festa í minni alla ónákvæmni, t.d.
um skipanöfn en þrennt var eftir-
minnilegt: Sagt var að Bismarck
hefði verið vopnað 30 15 þumlunga
byssum. Þetta er rangt, Bismarck
var vopnað 8 38 sm fallbyssum (sem
er nálægt 15 þuml. hlaupvídd). Ekk-
ert stríðsskip hefur nokkru sinni bo-
rið 30 15 þuml. fallbyssur eða neitt
nálægt því. Ég gat ekki skilið annað
af fréttinni en að skipstjóri hefði
verið Giinther Liitjens aðmíráll. Skip-
stjóri á Bismarck var Emst Lindem-
an en yfírmaður flotadeildarinnar var
fýrrgreindur aðmíráll. Þá varð ekki
annað skilið af fréttinni í sjónvarpi
en að hin stóru orrustuskip Breta
hefðu ekki getað ráðið niðurlögum
Bismarcks og það hefði loksins tund-
urspillirinn Dorsetshire gert. Hið
rétta er, að HMS Dorsetshire, sem
var ekki tundurspillir heldur beitiskip
(5-6 sinnum stærra en tundurspillir),
var látið veita Bismarck náðarhöggið
vegna olíuleysis orrustuskipa Breta
og skorts tundurskeyta í a.m.k. einu
þeirra. Jafnframt skal tekið fram að
það er ennþá umdeilt hvort tundur-
skeyti HMS Dorsetshire eða eigin
sprengjur Þjóðveija endanlega
sökktu Bismarck. í bók Burkhard
von Mullenheim-Rechberg baróns,
sem margir Islendingar þekktu er
hann var hér fyrsti sendiráðsritari,
segir á bls. 241 í enskri þýðingu frá
1982, að að lokum hafí komið skipun
frá brúnni til allra stöðva í skipinu
um að sökkva því og hafí þá verið
farið að dæla sjó inn í skipið í stað
þess að dæla úr því jafnframt því
sem botnlokar vom opnaðir og aðrar
tilfæringar til eyðileggingar nýttar.
Sigurgeir Jónsson
HEF OPNAÐ
tannlæknastofu í Bergstaðastræti 52.
Tímapantanir daglega í síma 16055.
Þórður Birgisson,
tannlæknir.
EvmnuoE
UTANBORÐSMÓTORAR
1.5—300 HESTÖFL
Fyrstir og fremstir
Léttir og liprir
Stórir og stæltir
Eitthvað fyrir alla
ÞORf
SÍMI: 681500 • ÁRMÚLA 11
Förðunar
námskeið
Öll undirstöðuatriði dag- og kvöldförðunar eru
kennd á eins kvölds námskeiðum.
Aðeins 10 eru saman í hóp og fær hver þátttakandi
persónulega tilsögn.
Innritun og nánari upplýsingar
í síma 19660 eftir kl. 10:00.
Kennari:
Kristín Stefánsdóttir
Snyrti- og förðunarfræðingur
'fSN
Laugavegi 27 ■ Sími 19660
HÖGGDEYFAR - KUPLINGAR - DiSKAR
SACHS
Eigum fyrirliggjandi Sachs
höggdeyfa, kúplingarog
kúplingsdiska í allar helstu
tegundir evrópskra og
japanskra fólks- og vörubíla.
Útvegum alla fáanlegar
kúplingar og höggdeyfa
með hraði.
Það borgar sig að
nota það besta.
Þekking Reynsla Þjónusta
FALKINN
SUÐURLANDSBRAUT 8 SlMI 84670