Morgunblaðið - 22.06.1989, Blaðsíða 46
46
MORGUNBLAÐJÐ
IÞROTTiR íÍMMTUDÁGÍÍr
22. JUNI '19891
Mm
FOLK
■ GLENN Hysen, sænski
landsliðsmaðurinn sem leikur með
Fiorentína á Ítalíu, ræddi við Alex
Ferguson, framkvæmdastjóra
^■■■■1 Manchester Un-
FráBob ited á Old Traf-
Hennessy ford í gær. í dag
lEnglandi heldur þessi sterki
vamarleikmaður til
London og ræðir við Terry Vena-
bles, framkvæmdastjóra Totten-
ham.
MGARY Lineker fær 22,5 millj.
ísl. kr. í árslaun hjá Tottenham, eða
um 450 þús. kr. á viku. Einn liður
í kaupum á Lineker er að
Barcelona kemur til London og
leikur á Withe Hart Lane næsta
keppnistímabil - þegar Tottenham
tekur í notkun nýju stúkuna við
austurhlið vallarins.
■ RAY Clemence, fýrrum
landsliðsmarkvörður Englands,
hefur verið ráðinn þjálfari varaliðs
Tottenhams. Hann tekur við starfi
Doug Livermore, sem verður að-
stoðarmaður Terry Venables,
framkvæmdastjóra. Alan Harris
var með það starf, en hann er orð-
inn þjálfari spænska félagsins
Espanol.
■ GARRY Francis, fyrrum fyr-
irliði enska landsliðsins og leikmað-
ur með QPR, sagði - Nei! við til-
boði frá West Ham í gær, um að
hann tæki við framkvæmdastjóra-
starfi félagsins. Francis ætlar að
vera áfram „stjóri“ Bristol Rovers.
„Eftir að ég hafði fengið bréf frá
yfir ijögur þúsund stuðningsmönn-
um Rovers, ákvað ég að vera áfram
í Bristol," sagði Francis.
■ PETER Shreeve, fyrrum
framkvæmdastjóri Tottenham og
núverandi aðstoðarmaður Trevor
Francis hjá QPR, hefur verið orð-
aður við West Ham. „Ég mun ekki
standa í vegi fyrir að Peter fari til
West Ham,“ sagði Francis í gær.
„Ég hef áhuga á starfinu. West
Ham er gott félag,“ sagði Shreeve.
■ DAVID Fairclough, fyrrum
leikmaður Liverpool, hefur gengið
til liðs við Tranmere. Þessi mark-
heppni varamaður var leikmaður
með Beveren í Belgíu.
■ MANCHESTER City seldi í
gær markaskorarann Paul Mould-
f en til Boumemouth á 300 þús.
pund.
■ BARCELONA hefur nú hug
á að fá danska landsliðsmanninn
Michael Laudrup til liðs við sig,
en samningur hans við Juventus
.rennur út í júní. Laudmp er 24
ára og hefur leikið 54 landsleiki
fyrir Danmörku. Barcelona er til-
búið að borga eina millj. punda fyr-
ir Laudrup.
■ JOHAN Cruyff, þjálfari
Barcelona, fór til Kaupmanna-
hafnar til að sjá Laudrup leika
með danska landsliðinu gegn Bras-
ilíu. Eftir leikinn var hann mjög
spenntur fyrir 19 ára Brasilíu-
manni — Bicmarck, sem er ieik-
maður með Vasco de Gama.
MMIKIL mótmæli brutust út í gær
þegar í ljós kom að samkvæmt nið-
urröðun leikja í ensku 1. deildinni
næsta keppnistímabil ætti Liverpo-
ol að leika við Sheffield Wednes-
day á Hillsboroughleikvanginum
16. apríl næsta vor. Á þeim degi
verður eitt ár og einn dagur liðinn
frá hinu hörmulega slysi á leikvang-
inum, þar sem 95 manns létu lífið.
Dagsetning leiks liðanna hefur
mætt mikilli andstöðu meðal lög-
reglu, embættismanna, forráða-
manna liða og fleiri. Þeir óttast að
dagsetningin verði til að ýfa upp
gömul sár.
■ TÖLVA sá um að draga um
leiki og leikdaga af handahófi. Tals-
maður ensku deildarinnar sagði,
að tilviljun ein hefði ráðið dagsetn-
ingunni og að líkumar á að einmitt
þessi leikur lenti á 15. apríl hefðu
verið hverfandi. Hins vegar yrði
allt gert til að breyta þeirri dagsetn-
ingu.
FRJALSIÞROTTIR
Innanfélags-
mótogdóm-
ífe-
frjáls-
íþróttum
Fijálsíþróttasamband íslands
(FRÍ) er aðili að bæði alþjóða-
fijálsíþróttasambandinu IAAF og
íþróttasambandi íslands. FRÍ ber
því skylda til að fara eftir þeim
lögum og reglum sem það hefur
tekið þátt í að móta og jafnframt
er það skylda þess samkvæmt
íþróttalögum.
í fijálsum íþróttum er keppt í
greinum sem eru vel skilgreindar
þ.e. hlaupum, stökkum og köst-
um. Innan alþjóðafijálsíþrótta-
sambandsins hafa aðilar komið
sér saman um ákveðnar keppnis-
reglur til þess að tryggja að ár-
angur sé sambærilegur hvar sem
er í heiminum. T.d. verður að
framkvæma tímatöku og allar
mælingar á sérstakan hátt með
viðurkenndum áhöldum. íslenskur
fijálsíþróttamaður er því ekki að-
eins að keppa gegn félögum í eig-
in landi heldur einnig gegn öllum
sem keppt hafa í viðkomandi grein
svo og öllum þeim sem gera munu
það síðar hvar sem er í heiminum.
íþróttamaðurinn nær árangri
fyrst og fremst vegna þess að
hann hefur lagt mikið á sig sjálf-
ur undir leiðsögn þjálfara síns en
sá árangur er staðfestur af dóm-
ara í réttmætri keppni. Árangur
sem keppandi nær hérlendis getur
náð skráningu á heimsafrekaskrá
og öll met eru einnig skráð erlend-
is. Síðastliðið ár náðist hérlendis
t.d. 4. lengsta kast I heimi í spjót-
kasti og á þessu ári hefur náðst
3. lengsta kast í heimi í kringlu-
kasti á innanfélagsmóti. Miðað við
þá grósku sem verið hefur t.d. í
kastgreinum er viðbúið að hér-
lendis eigi eftir að setja heimsmet
og þá verður dómgæsla að stand-
ast smásjárskoðun.
íþróttahreyfingin í heiminum
er undir vökulu auga fjölmiðla og
almennings vegna ýmiss konar
misferlis sem fljótt spyrst út á
þessari upplýsingaöld. Innan
fijálsíþróttahreyfingarinnar má
minna á fölsun á langstökksár-
angri á heimsmeistaramótinu í
Róm 1987, of mikils halla á kast-
- eftir Birgi
Guðjónsson
svæði í Klagshamn í Svíðþjóð sl.
sumar sem leiddi til ógildingar
alls árangurs þar og lyfjamisnotk-
un í Seoul. Einnig má minna á
sífelldar ásakanir um mútuþægni
erlendra dómara í boltaleikjum,
einkum í knattspyrnu. Hlutverk
dómara er því ekki aðeins mjög
mikilvægt í íþróttastarfiiiu heldur
fylgir því sérstök ábyrgð. Góð
dómgæsla er hlutlaus og lítt áber-
andi. Léleg dómgæsla verður
áberandi og getur orðið mjög
skaðleg fyrir orðstír hreyfingar-
innar í heild. Laganefnd FRI er
endanlega ábyrg fyrir lögmæti
alls árangurs gagnvart stióm
FRÍ, alþjóðasambandinu, ÍSI og
ólympíunefnd.
Mót þau sem fijálsíþróttamað-
ur hérlendis getur keppt á geta
verið allt frá stórmótum svo sem
meistaramótum til svokallaðra
innanfélagsmóta þar sem aðeins
er keppt í fáum greinum (en þeim
er komið á með styttri fyrirvara
en stærri mótum). Löng hefð er
fyrir innanfélagsmótum hérlendis
og hafa þau verið talin mjög mikil-
væg tii að gefa íþróttafólki kost
á að spreyta sig sem oftast og fá
getu sína staðfesta þegar ekki er
völ á stórmótum. Vafi hefur þó
stundum leikið á ágæti þeirra og
misjafnt orð farið af framkvæmd
þeirra og dómgæslu á þeim.
Síðastliðið ár véfengdi
Ólympíunefnd íslands innanfé-
lagsmót þar sem keppandi hafði
náð árangri sem samsvaraði
ólympíulágmarki. Stjóm FRÍ og
laganefnd mótmæltu þessu og
kynntu Ólympíunefnd það átak
sem gert hafði verið í dómaramál-
um, en um 25 dómaranámskeið
hafa verið haldin víða um land á
undanförnum ámm og nýjar leik-
reglur jafnan gefnar út. Umrætt
mót hafði verið vel auglýst og
fullgildir dómarar voru viðstaddir.
Kvaðst sljórn FRÍ og laganefnd
ábyrgjast þann árangur sem náðst
hafði. Fór svo að Olympíunefnd
viðurkenndi árangurinn.
í framhaldi af þessu vom þessi
mál rædd ítarlega á þingi frjálsí-
þróttasambandsins og þingheimi
gert Ijóst að þótt laganefnd viður-
kenndi árangur á einstökum mót-
um t.d. gágnvart alþjóðahreyfing-
unni, hefðu Ólympíunefnd og Af-
reksmannasjóður ÍSÍ ótvírætt
vald til að ákveða hvaða mót þau
tækju gild fyrir ólympíulágmörk-
um eða meta til styrkja fyrir
íróttafólk. Væri því nauðsynlegt
að sjá svo til að innanfélagsmót
væm hafin yfir allar efasemdir
um löglegan árangur. Vom síðan
samþykktar hertar reglur um
auglýsingafrest, skýrslugerð og
lágmarksfjölda keppenda í hverri
grein, en í reglugerðinni er þegar
tekið fram um nauðsyn reyndra
dómara.
Sunnudaginn 11. júní var hald-
ið innanféigsmót á vegum eins
Reykjavíkurfélaganna. Fljótlega
komu fram athugasemdir um að
sitthvað væri athugavert við til-
kynningaskyldu og dómgæslu. Sá
laganefnd sig því knúna til að
athuga málið nánar og kallaði
fyrir sig ábyrgðarmann mótsins.
í kringlukasti hafði verið mælt
með nægilega löngu og viður-
kenndu málbandi. Vallaryfírvöld
bönnuðu hinsvegar notkun þess
málbands í' sleggjukasti. Hafði
framkvæmdaaðili þá einungis 50
metra málband yfir að ráða til
að mæla með sleggjukast en
margir keppenda köstuðu mun
lengra. Var þá gripið til þess ráðs
að skeyta við það 10 metra löngu
bandi og köstin mæld þannig. í
keppninni mun hafa náðst lengsta
kast unglings til þessa sem að
öðru jöfnu hefði orðið íslandsmet.
Árangur keppenda var síðan til-
kynntur án nokkurs fyrirvara um
mælingaaðferð. Samkvæmt al-
þjóðakeppnisreglum verður að
mæla köst með stálmálbandi,
glertreijabandi eða vísindalegum
aðferðum (hornamælingum).
Þótt ofanskráð mæling hafi
verið neyðarráðstöfun vegna
tækjaskorts var hún fljótfærnisleg
og er algjörlega ólögleg og kemur
enn af stað efasemdum um lög-
mæti slíkra móta og jafnvel allrar
dómgæslu á mótum. Vegna hinna
ýmsu ágalla sem voru á fram-
kvæmd þessa móts, sér laganefnd
sig neydda til að úrskurða það í
heild ólöglegt. ítarlegar viðræður
hafa síðan farið fram við fram-
kvæmdaaðila mótsins og er þeim
nú treyst til að halda slík mót
framvegis.
Laganefnd harmar það að-
stöðu- og aðbúnaðarleysi sem
íslenskt æskufólk býr við til
íþróttaiðkunar og að íslandsmet
unglingsins hafi í þessu tilfelli
glatast. Vonast er hinsvegar til
að íþróttahreyfingin og almenn-
ingur geti fyllilega treyst lögmæti
þess árangurs sem næst á innan-
félagsmálum FRÍ i framtíðinni og
að atburður sem þessi endurtaki
sig ekki.
Höfundur er formaður laganefndar
Frjálsíþrótíasambands íslands.
FRJALSIÞROTTIR
Þrettáná
NM öldunga
ÞRETTAN Islendingar taka
þátt í Norðurlandamóti öld-
unga í frjálsíþróttum, sem fram
fer í Larvik í Noregi og hefst
30. þessa mánaðar.
Þeir sem fara eru eftirtaldir; í
35 ára flokki: Friðrik Þór
Óskarsson ÍR, Kristján Gissurarson
KR, Hrönn Edvinsdóttir Víði, Sigur-
borg Guðmundsdóttir Ármanni og
Elías Sveinsson ÍR. í 40 ára flokki
Trausti Sveinbjömsson FH og Anna
Magnúsdóttir HSS, Sigurþór Hjör-
leifsson HSH í 45 ára flokki, í 50
ára flokki Ólafur Unnsteinsson, Jón
H. Magnússon ÍR og Guðmundur
Hallgrímsson UÍA, Ólafur J. Þórð-
arson ÍA í 50 ára flokki og í flokki
70 ára keppir Jóhann Jónsson Víði.
Keppendur í Larvik verða alls um
700.
Ólafur Unnsteinsson og Jóhann
Jónsson fara síðan til Banda-
ríkjanna, þar sem þeir keppa fyrst
sem gestir á bandaríska meistara-
mótinu í San Diego 20. til 23. júlí,
ióhann Jónsson
og loks keppa þeir félagarnir á HM
öldunga, sem fram fer 26. júlí til
6. ágúst. Mótið fer að þessu sinni
fram í Eugen, Oregon. Keppendur
þar verða um 6.000 frá 70 þjóðum.
GOLF
LEK-mót í
Grafarholti
Landsamtök eldri kylfinga, LEK,
efna til móts á Grafarholtsvelli
næstkomandi föstudag, 23.júní.
Leiknar verða 18 holur og keppt
bæði með og án forgjafar. Skráning
fer fram í síma 82815, en ræst
verður út frá kl 14 til kl 18.
Þetta mót er eitt af þeim, sem
tekin verða til viðmiðunar, þegar
valið verður í landslið eldri kylf-
inga, sem tekur þátt í sveitakeppni
Evrópusambands senjóra í Diisseld-
orf í september. Eins og venjulega
eru kylfingar á aldrinum 50-54 ára
velkomnir til þessa LEK-móts og
keppa þeir þá sem gestir.