Morgunblaðið - 22.06.1989, Qupperneq 48

Morgunblaðið - 22.06.1989, Qupperneq 48
VEIÐIHJÓL OG STANGIR SAGA CLASS Fyrir þá sem eru aðeins á undan FLUGLEIDIR FIMMTUDAGUR 22. JÚNÍ 1989 VERÐ í LAUSASÖLU 80 KR. Genabanki fyrir villta laxastofha HAFINN er undirbúningur að stofhun svokallaðs genabanka fyrir villta íslenska laxastofiia, en firam hafa komið áhyggjur af erfða- mengun vegna fjölda eldislaxa, sem ganga í árnar eftir að hafa slopp- ið úr sjókvíum. Málið komst á rekspöl í vor er Stangaveiðifélag Reykjavíkur ákvað að gefa 500.000 krónur til slíks banka ef landbúnaðarráðu- neytið gengi að vissum skilyrðum. Skilyrðin voru m.a., að hið opinbera tryggði þann stofnkostnað sem umfram gjöfina er og standi straum af rekstrarkostnaði, m.a. iauna- kostnaði. Friðrik D. Stefánsson framkvæmdastjóri SVFR sagði í samtali við Morgunblaðið að land- búnaðarráðherra hefði nú sam- þykkt skilyrðin. Sigurður Guðjónsson deildar- stjóri hjá Veiðimálastofnun sagði, að genabankanum yrði væntanlega valinn staður á Hvanneyri í Borgar- firði, í samvinnu við Búnaðarfélagið sem starfrækir þegar sæðisbanka þar. Hann sagði að starfsemi af þessu tagi tæki bæði lítið pláss og þyrfti lítinn búnað. Svilin verða djúpfryst og er jafnvel talið að hægt sé að geyma þau þannig í áratugi. Sigurður sagði ekkert mæla gegn því að heija starfsemi næsta haust. Stefnt er að því að taka laxa- stofna úr öllum ám landsins inn í bankann. Fyrst um sinn verði þó lögð áhersla á stofna úr ám suðvest- anlands, „en þar ber mest á eldis- löxum í laxveiðiánum og erfða- mengun er þar líklega hafin,“ sagði Sigurður Guðjónsson hjá Veiði- málastofnun. Morgunblaðið/Júlíus Reynt að loka nýrri kvísl úr Bakkahlaupi Skinnastað. GERÐ verður tilraun í dag til þess að stífla nýja kvísl sem hefúr brotið sér farveg úr Bakkahlaupi, aðalvatnsvegi Jökulsár, á Söndunum yfir í Sandá, sem er austasta kvísl Jökulsár og rennur um Oxar- flarðarsveit. Nýja kvislin hefur rutt sér djúp- an farveg og óttast bændur land- rof, hlaupi Bakkahlaup yfir í Sand- ána. Einnig eru eigendur fiskeld- isstöðvarinnar Seljalax á Núps- mýrum uggandi. Nýja kvíslin varð til í miklum vorleysingum i hitunum undan- farna daga. Takist ekki að loka henni óttast menn að hún stækki þegar jökulvöxtur verður í Jök- ulsá. Umdæmisverkfræðingur vega- gerðarinnar á Akureyri kannaði aðstæður til þess að fylla upp í kvíslina i gær og var fyrirhugað að hefja það verk með stórvirkum vélum í dag. Sigurvin Eldur í raðhúsi í Breiðholti SLÖKKVILIÐ Reykjavíkur var í gærkvöldi kallað að raðhúsi í Breiðholti eftir að elds varð vart í risherbergi. Greiðlega gekk að ráða niðurlög- um eldsins en eldsupptök eru ókunn. Til öryggis voru tveir slökkviliðsmenn á vakt á staðnum í nótt. Steypuskáli álversins stækkaður um þriðjung: Morgunblaðið/Björn Blöndal Ingvar Hallgrímsson hjá Gúmmíbátaþjónustunni i Dráttarbraut Keflavíkur með neyðarsendana tvo. Gervihnöttur nam merki frá stolnum neyðarsendi Keflavík. GERVIHNÖTTUR nam merki frá neyðarsendi í nágrenni Kefla- víkur laust fyrir hádegi í gær. Þyrla Landhelgisgæslunnar kom og miðaði út sendinn, sem reyndist vera staðsettur í Dráttar- braut Keflavíkur. I ljós kom að þar var um að ræða tvo stolna neyðarsenda og var annar í gangi. Aðfaranótt föstudags var brot- Að sögn Ingvars Hallgrímsson- ist inn hjá Gúmmíbátaþjónustunni ar hjá Gúmmíbátaþjónustunni var Keflavík og neyðarsendunum stolið. í fyrrinótt var aftur brotist inn hjá fyrirtækinu og þá stolið neyðarflugeldum og fleiru úr gúmmíbát sem þar var verið að yfirfara. nýbúið að yfirfara neyðarsendana og áttu rafhlöður þeirra að duga í 5 ár. Ingvar sagði að eftir um- merkjum að dæma virtist sem unglingar hefðu verið þama á ferð. BB Hertar innh eim tua ðgerðir Innheimtumenn stöðubrotasekta hafa hert aðgerðir til að ná því sem í vanskilum er. í þessari viku hafa yfir 100 ökumenn komið að bílum sínum með rammgerðri rauðgulri klemmu um annað framhjólið og orðsendingu á rúðum þar sem segir að gefinn sé sólarhringsfrestur til að ganga frá ógreiddum stöðumælasektum við lögmannastofú þá sem annast innheimtu fyrir Bílastæðasjóð Reykjavíkur. Ómögulegt er að hreyfa bíl úr stað eftir að klemm- unni hefúr verið komin fyrir. Bílar þeirra sem ekki hafa sinnt þessum tilmælum hafa verið fiarlægðir og fluttir í bifreiða- geymslu lögreglunnar gegnt Miklagarði og geri eigendur þeirra mál sín ekki upp fljótlega mega þeir búast við að bílarnir verði seldir á uppboði. Eykur framleiðsluverð- mæti um 210 millj. á ári Framkvæmdin tekur 2 ár og kostar 500 milljónir króna ÁKVEÐIÐ hefur verið að stækka steypuskála ISAL um þriðjung. Auk þessa hefúr verið unnið að Kjarnfóðurgjöld verði endur- greidd vegna innistöðu búflár HARÐINDANEFND hefúr Iagt til að gjöld af kjarnfóðri verði endur- greidd til bænda á þeim svæðum þar sem innistaða búfjár jókst veru- lega vegna harðinda í lok maí og í júní miðað við meðalár. Að sögn Sveinbjarnar Eyjólfssonar, sem sæti á í harðindanefnd, er óvíða um slæmt ástand að ræða lengur hjá bændum vegna harðindanna í vor. Harðindanefnd hefur einnig lagt til að í framtíðinni verði komið upp birgðum af gróffóðri, meðal annars með fyrirgreiðslu við grasköggla- verksmiðjur. Hann sagði að veruleg ásókn hefði verið í gróffóður í harð- indunum í vor, en það hafi þá verið ófáanlegt. Þá leggur nefndin einnig til að stuðlað verði að því að fræ- kaup verði gerð auðveldari, og í erf- iðu árferði verði gerð áætlun um umframkaup á fræi í mars-apríl, en ef það magn seljist ekki greiði Bjarg- ráðasjóður af því rýrnun og vaxta- kostnað. Að sögn Sveinbjarnar kem- ur væntanlega til með að vanta fræ í sumar en ekki Iiggur fyrir hve mik- ið. Hann sagði að vegna ástands afrétta, sem enn væru á mörgum stöðum á kafi í snjó, væri Ijóst að beit á fjöllum yrði talsvert minni en í meðalári, og kjötframleiðsla gæti því að sama skapi orðið minni. Þá væri einnig óljóst hvaða áhrif aukin innistaða hefði á heilbrigði búfénað- ar, en ekkert hefði verið ákveðið um hvort bændum yrði bætt hugsanlegt tjón af þessum sökum. því að skipta um ker í kerskála. Þessar framkvæmdir gera það að verkum að framleiðsla ÍSAL eykst um 2Í000 tonn á ári en verðmæti þess nú er um 210 miiy- ónir króna. Framleiðslugetan eykst úr 88.000 tonnum á ári í 90.000 tonn. Einar Guðmundsson tæknilegur framkvæmdastjóri ISAL segir að kostnaður við stækkun steypuskál- ans nemi_ 500 milljónum króna á núvirði. Áætlað er að verkið taki tvö ár og hefur þessi stækkun ver- ið á döfinni frá 1984-85. Samþykkt var á mánudag að ráðast í þessa stækkun og hófust framkvæmdir á þriðjúdag. í máli Einars kom fram að með þessum breytingum verður að mestu hætt hleifasteypu í álverinu en áherslan lögð á „barra“ og stangir, en það er verðmætari vara. Þetta hefur í för með sér að ekki verður þörf á jafnmörgu starfsfólki og nú vinnur í álverinu. Engum starfsmönnum verður þó sagt upp en ekki verður ráðið í þær stöður sem losna. Lítið miðaði í deilu flugvirkja SÁTTAFUNDUR í deilu flug- virkja og viðsemjenda þeirra hófst hjá Ríkissáttasemjara klukkan 14 í gær og stóð enn rétt eftir miðnætti. Að sögn Þór- arins V. Þórarinssonar fram- kvæmdastjóra VSÍ miðaði lítið í viðræðunum. Sjómenn funda með atvinnurek- endum í dag. Um stöðu í viðræðum við þá sagði Þórarinn: „Það er búið að semja við þorra launafólks og þótt einn hópur kjósi að fella samn- inga til að mótmæla skattahækkun- um stjórnvalda og efnahagsstjóm þá sjáum við ekki möguleika til frekari tilslakana."

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.