Morgunblaðið - 24.06.1989, Side 3
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 24. JÚNÍ 1989
3
Markús Örn Antonsson útvarpssljóri:
Yfirlýsing'ar íjármála-
ráðherra koma á óvart
„Fjarmálaráðherra hefur engar athugasemdir gert og engar
fyrirspurnir hafa borist frá honum eða menntamálaráðherra um
rekstur Ríkisútvarpsins eða stjórnunarleg málefhi hér. Það kemur
mér því mjög á óvart að ráðherrann skuli gefa yfirlýsingar í Morg-
unblaðinu um að Ríkisútvarpið eigi við Qárhagslegan vanda að
etja vegna rekstrar- eða stjórnunarlegs vanda, og ég mun að sjálf-
sögðu óska eftir því við hann að greinilega komi fram hvað hann
á við með þessum ummælum," segir Markús Örn Antonsson, út-
varpsstjóri.
„Ríkissjóður hefur hirt umtals-
verðar tekjur af þessari stofnun
sem hún á tilkall til samkvæmt
útvarpslögum, og ef 'verið er að
tala um að einhveijar viðbótarfjár-
veitingar úr ríkissjóði hafi komið
inn í þessa stofnun, þá er ljóst að
Ríkisútvarpið hefur engin bein
framlög fengið úr ríkissjóði," sagði
Markús Örn. Hann sagði að undan-
farin ár hefði verið um að ræða
vissa erfiðleika í rekstri Ríkisút-
varpsins vegna samdráttar auglýs-
ingatekna og þess að hækkanir á
afnotagjöldum hafi ekki fengist,
jafnvel þó Alþingi hefði samþykkt
þær. Greiðslustaða Ríkisútvarpsins
hefði því verið slæm, og þess vegna
meðal annars hefði safnast upp
skuld á launareikningi stofnunar-
innar hjá Ríkissjóði. Ef það væri
það sem fjármálaráðherra ætti við,
mætti líta á það sem lán, því gert
væri ráð fyrir að það yrði endur-
greitt af útvarpsgjaldi, sem Trygg-
ingastofnun ríkisins kemur til með
að greiða fyrir þá skjólstæðinga
sína sem undanþegnir eru greiðslu,
en þessar greiðslur eigi næstu þrjú
ár að ganga beint upp í launa-
skuld Ríkisútvarpsins hjá fjármála-
ráðuneytinu.
Á stóru myndinni sést yfir svæðið, sem verið er að grafa upp. Á innfelldu myndinni er einn merkasti
hluturinn sem fiindist hefur í vor, útskorið mannshöfuð í tré.
Fornleifauppgröfturinn í Viðey:
Klaustrið að koma í ljós
Gísli Alfreösson um fjárhagsvanda
Þj óðleikhússins:
Ekki sljórnunar- eða
rekstrarlegur vandi
„ÉG fagna því ef ætlunin er að taka á fjárhagsvanda Þjóðleik-
hússins, sem verið hefur mikill um langt árabil, en hins vegar er
ég ósáttur við þá niðurstöðu að um sé að ræða sljómunar- eða
rekstrarlegt vandamál leikhússins," sagði Gísli Alfreðsson, Þjóðleik-
hússtjóri, um þau ummæli Ólafs Ragnars Grímssonar, að endurtek-
inn Qárhagsvandi Þjóðleikhússins og Ríkisútvarpsins sé að hluta
til rekstrar- og sljórnunarlegs eðlis.
Margir forvitnilegir munir hafa fimdist í vor
„í þessu sambandi vil ég benda
á að framlag til Þjóðleikhússins á
þessu ári er mjög svipað og það
var á árinu 1973, ef sú tala er
framreiknuð, en á þeim tíma rak
Þjóðleikhúsið ekki Litla sviðið og
íslenska dansflokkinn. Auk þess
var tæknilið leikhússins mun fá-
mennara á þeim árum, en kjara-
samningar sem síðar komu urðu
til þess að leikhúsið neyddist til
að fjölga í öllu tækniliði, þar sem
sérhæfing í vinnu við leikhús varð
miklu meiri en áður var. Mismun-
urinn milli þess fjármagns sem
leikhúsið fær á íjárlögum og þess
sem það kostar að reka leikhúsið
hefur aukist, og er það aðalvandi
leikhússins, en þegar hann hefur
verið leystur þá tel ég sjálfsagt að
skoða rekstrarlega og stjórnunar-
lega uppbyggingu á leikhúsinu,“
sagði Gísli Alfreðsson.
Fornleifauppgreftrinum í Við-
ey hefur miðað vel áfram í vor
og er grunnflötur klaustursins
nú að koma í ljós. Margrét
Hallgrímsdóttir fornleifafræð-
ingur segir að með þessu áfram-
haldi muni nást að grafa upp um
helming klaustursins í sumar.
Enginn vafi er á að um klaustrið
sé að ræða og hafa fomleifafræð-
ingarair fiindið ritaðar heimildir
frá um 1700 sem styðja það- að
þetta séu klaustursrústirnar.
Margt forvitnilegra muna hefur
komið í ljós í uppgreftrinum í vor.
Einna merkasti gripurinn er útskor-
ið lítið tréhöfuð. Margrét segir þetta
geti verið einhvers konar biskups-
ímynd eða jafnvel taflmaður en eft-
ir er að rannsaka þennan grip bet-
ur. Einnig hafa fundist snældusnúð-
ur úr norsku klébergi, hringnál,
flúraður skarthringur úr silfri,
heslihnetuskum og kertastjaki svo
dæmi séu tekin. Allir eru þessir
munir frá miðöldum.
Margrét segir að hún hafi nýlega
fengið í hendur niðurstöður grein-
inga á dýrabeinum sem fundust í
uppgreftrinum í fyrra. Það vekur
athygli að óvenjuhátt hlutfall er af
fiska- og fuglabeinum og þá einkum
laxabeinum. Hinsvegar mun
klaustrið hafa átt veiðirétt í Elliða-
ánum á sínum tíma sem skýrir
þetta.
Margrét sagði að borgaryfirvöld
hefðu veitt myndarlega fjárveitingn
til uppgraftrarins í sumar og hún
gerði það að verkum að tíu manns
muni vinna að verkinu fram í sept-
ember eða alls í fjóra mánuði. Af
þessu starfsliði eru þrír erlendir
fomleifafræðingar.
Það sem komið er í ljós af
klaustrinu em baðstofa, búr og
skáli og er nú unnið að uppgreftri
á skálanum.
Atvinnumiðlun námsmanna:
Innan við hundr-
að manns á skrá
INNAN við 100 námsmenn eru nú á skrá hjá Atvinnumiðlun náms-
manna. Að sögn Örau Schram, starfsmanns Atvinnumiðlunarinnar,
vantar flesta sem eru á skrá vinnu í ágúst og september eða til
styttri tíma. Tæplega 300 manns hafa fengið störf með hjálp Atvinnu-
miðlunarinnar það sem af er sumri.
„Alls hafa 840 námsmenn skráð
sig hjá okkur frá því að miðlunin
tók til starfa í apríl,“ sagði Ama
Nýmæli í samskiptum Háskóla og atvinnulífs;
Islenzka Jámblendifélagið kost-
ar stöðu eðlisfræðiprófessors
ÍSLENZKA Járnblendifélagið hf. hefur boðið Háskóla íslands að
kosta nýja stöðu prófessors í eöUsfræði þéttefhis. Þetta er í fyrsta
sinn, sem stofnuð er staða við HI með tilstyrk einkafyrirtækis, en
slíkt er algengt erlendis. Þetta er svar fyrirtækisins við bréfi Há-
skólarektors, sem hann sendi hópi fyrirtælq'a. Þar hvatti hann til
aukins samstarfs atvinnulífs og Háskóla og að fyrirtækin taki að sér
að kosta stöður fræðimanna. Háskólaráð hefiir einróma ákveðið að
bjóða dr. Þorsteini I. Sigfussyni eðlisfræðingi að taka að sér stöðuna
á fyrsta tímabili hennar, sem er tvö ár. Að því Ioknu verður samið
um endurnýjun.
Dr. Þorsteini er ætlað að stunda
fijálsar grundvallarrannsóknir á
sínu sviði, en jafnframt að vera
ráðgjafi Járnblendifélagsins við
rannsóknir og þróun fyrirtækisins.
Félagið greiðir laun prófessorsins
og jafnframt ákveðna upphæð til
greiðslu kostnaðar við rannsóknir
og fleira. Stöðunni fylgir engin
kennsluskylda.
Dr. Þorsteinn sagði í samtali við
Morgunblaðið að hann væri þakk-
látur fyrir það traust, sem Háskóla-
ráð sýndi á starfi hans með því að
bjóða honum stöðuna. „Undanfarin
fimm ár eða svo hefur verið tölu-
verð uppbygging hér við Háskólann
á sviði eðlisfræði þéttefnis, sem
tekur til efnis í föstu ástandi. Þegar
ég kom til íslands frá námi í Cam-
bridge 1983 og fór að skoða það
hvemig nýta mætti þekkingu Há-
skólans til gagns í atvinnulífinu, sá
ég strax að í íslenzku stóriðjunni
blöstu við verkefni á þessu sviði,"
sagði Þorsteinn. Hann sagði að sér
hefði þótt sárt að sjá hversu mjög
stóriðjan hefði verið háð erlendri
þekkingu að mörgu leyti, en
snemma hefði tekizt samstarf milli
HÍ og Járnblendifélagsins um að
það styrkti skólann til tækjakaupa,
en í staðinn ynni HÍ að rannsóknum
á eðlisfi'æði kísiljárnkerfisins, sem
Dr. Þorsteinn I. Sigfiísson
miðuðu að því að bæta afurð jám-
blendiverksmiðjunnar á Grundar-
tanga.
„Smám saman hefur myndast
það, sem ég hef stundum kallað
„rannsóknakúltúr“, samstarf Há-
skólans og Járnblendifélagsins á
dálítið háu plani um rannsóknir og
þróun,“ sagði Þorsteinn. Hann
sagði að HI hefði nú öðlast það
mikla þekkingu á þessu sviði, að
hann hefði í vetur verið valinn sem
fulltrúi skólans til að andmæla
doktorsvörn við Háskólann í Þránd-
heimi, þar sem þessar rannsóknir
væm hvað lengst komnar.
„Afköstum járnblendiverksmiðj-
unnar, gæðum framleiðslunnar og
þekkingu á henni hefur fleygt fram,
og það er að þakka sameiginlegu
átaki rannsóknahóps Jámblendifé-
lagsins, starfsmanna verksmiðjunn-
ar og Háskólans," sagði dr. Þor-
steinn. „Ég held að þetta framtak
félagsins staðfesti það, hvað HÍ
getur gert í samvinnu við atvinnulíf-
ið og það er um leið viðurkenning
á starfi Háskólans á vissan hátt.
Háskólarektor hefur beitt sér mjög
fyrir því að skólinn efldist að þessu
leyti og ég vona að þetta sé aðeins
upphafið að miklu víðtækara sam-
starfi."
Schram. „Við höfum þegar veitt
tæplega 300 manns vinnu og um
100 manns em enn á skrá. Hinir
hafa sjálfir útvegað sér vinnu eða
fallið af skrá af öðram orsökum."
Arna sagði mörg atvinnutilboð
hafa borist frá fyrirtækjum síðustu
vikur. Ástæða þess væri m.a. sú
að námsmannaátak félagsmála-
ráðuneytisins hefði borið árangur.
Átakið felst í því að styrkja fyrir-
tæki til þess að ráða námsmenn 16
ára og eldri til sumarafleysinga-
starfa að því tilskyldu að þeir hafi
skráð sig hjá hlutaðeigandi miðlun
og haldi áfram námi næsta haust.
Fern námsmannasamtök standa
að Atvinnumiðlun námsmanna. Þau
em Stúdentaráð Háskóla íslands,
Bandalag íslenskra sérskólanema,
Félag framhaldsskólanema og
Samband íslenskra námsmanna er-
lendis.
Barn slasast
í rennistiga
ÞAÐ SLYS átti sér stað í verslun-
armiðstöðinni Kringlunni í gær,
að eins og hálfs árs gömul telpa
klemmdist í rennistiga, og missti
framan af fremstu kjúku á einum
fingri.
Ekki er ljóst hvemig slysið bar
að, en líðan telpunnar er nú góð.
Að sögn Einars Halldórssonar,
framkvæmdastjóra Kringlunnar,
var öryggisbúnaður rennistigans
yfirfarinn þegar eftir slysið og
fannst ekkert athugavert við hann.